Morgunblaðið - 20.01.1948, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.01.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: ÞYKKNAR upp með vaxandi SA átí síðdegis, 15. tbl. — Þriðjudagur 20. janúar 1948. YFIRLIT yfir útgerðina s.l. ár er á bls. 7. íslenskii skíðamennimir, sem fóru iil Sviss. ÍSLENSKU SKÍÐAMENNIRNIR, sem fóru til Svisslands til að keppa á Vetrarolympíuleikunum, fóru hjeðan flugleiðis s.l. sunnudagskvöld. Var Jtessi mynd tekin af hópnum á Keflavíkurflugvelli skömmu áður en þeir stigu upp í flugvjelina. Á myndinni eru talið frá vinstri: Einar Pálsson verk- fræðingur, fararstjóri, Árni Stefánsson, sem fer með Heklukvikmyndina til að sýna hana í Sviss, skíðamennirnir þrír Guðmundur Guðmundsson, Jóaas Ásgeirsson og Magnús Brynjólfsson og Her- mann Stefánsson, íþróttakennari. Stúlkan á myndinni er sænsk flugfreyja, ungfrú Rohaje Sjögren. Kveikl í kassa í GÆR var slökkviiiðið kallað út tvisvar sinnum. í fyrra skipti að húsi einu við Langholtsveg. Þar hafði kviknað í út frá olíu- kyndingu. Búið var að slökkva er liðið kom á vettvang. í seinna sinnið var liðið kallað að vöru- geymsluhúsi Eimskipafjelagsins Þar hafði verið kveikt í kassa og logaði hann vel er slökkviliðið kom. Eldurinn var fljótlega slöktur. Þarna var um íkveikju að ræða og strákum nokkrum sem ekki tókst að ná, kent um. Innbro! NÚ um helgina var framið inn- brot í Prjónastofur.a Malín, Grettisgötu 3. Þjófurinn hafði þaðan á brott með sjer átta pakka af ullargarni. í hverjum pakka voru 10 hespur Garnið var gult og grænt. A þriðja hundrað skíða- menn veðnrteptir um hekina ________p Dvöldu að KolviSarhéli og Skíðaskálanom NOKKUÐ á þriðja hundrað manns varð veðurteppt að Kolviðar- hóli og í Skíðaskálanum í Hveradölum um síðustu helgi, og komst ekki til bæjarins fyrr en fyrri hluta dags í gær. Er blaðið átti tal við Guðmund Hofdal að Kolviðarhóli í gær kvað hann þar hafa gist 150 manns aðfararnótt mánudags, en í Skíðaskál- anum gistu um 80 manns. Húsbruni á Siglufirði í gær --------- .] Rok, - Engu bjargað. ;SÍÐDEGIS í gær kom upp eldur í húsi frú Önnu Vilhjálms- dóttur á Siglufirði. Húsið er við aðalgötuna gengt hótel Hvann- eyri. Breiddist eldurinn svo ört um húsið að sáralitlu varð bjarg- að þaðan. Rok var af norðaustri. Slökkviliði tókst að verja næstu hús. Og stóð húsið uppi í gærkvöldi. En alt eyðilagðist sem þar var. Meðal þeirra, sem gistu að Kolviðarhóli voru 40^—50 skát- ar, sem dvalið höfðu í skála sín um í Innstadal. Mörg hundruð fóru á skíði um helgina, en veður var gott á laugafdag og fram eftir sunnu deginum, en upp úr þrjú fór það versnandi og ofsarok og blind- bilur kominn um fjögur leytið. Mikill fjöldi var kominn í bæ- inn áður en veðrið spilltist til muna, en þeir bílar, sem lögðu af stað síðar en kl. 4 að ofan komust ekki til bæjarins, en þeir síðustu, sem komust alla leið til bæjarins, voru allt að fimm tíma á leiðinni. Sýndu bílstjórar „rútu—bílanna mik inn dugnað og ósjerplægni við að koma fólkirlu í bæinn, sem svo oft áður. Einn stór bíll bilaði á leiðinni og varð fólkið úr honum að ganga niður að Lögbergi. Einn- ið sáu Ármenningar, sem komu úr skála sínum í Jósefsdal, sjer þann kost vænstan að ganga til bæja'rins, þar sem engin von var til fyrir þá að komast með bílum. Ekkert tjón var á mönnum' svo vitað sje í hrakningunv þessum, og allt var gert fyrir þá, se<m í skálunum dvöldu, sera hægt var, og leið þeim vel. Árni Siefánsson og Senóný efslir ÞRJÁR umferðir hafa nú farið fram á Skákþingi Reykjavikur, og eru þeir efstir Árni Stefáns- son og Benoný Benediktsson með 3 vinninga hvor. Þriðji er Guðmundur Ágústsson með 2/. vinnirrg. Næstir koma Baldur Möller, Eggert Gilfer, Jón Ágústsson og Kristján Sylveríus son með 2 vinninga hver. Árni Snævarr er með !/<> vinning, Bjarni Magnússon með 1, Hjálm ar Theodórsson, Sveinn Kristins son, Guðjón M. Sigurðsson og Sigurgeir Gíslason með y2 vinn ing hver og Steingrímur Guð-' mundsson með engan. 1 þriðju umferðinni vann Guðmundur Baldur, Bjarni Guð- jón, Kristján Sigurgeir, Árni Stefánsson Svein, Jón Sfein- grím, Benóný Hjálmar, en Snæ- varr og Gilfer gerðu jafntefli. Næst verður teflt í kvöld kl. 20 í öllum flokkum. I. og II. fl. tefla í Alþýðubrauðgerðinni við Vitastíg, en meistaraflokkur í Þórsgötu 1. Samningar milli sjó- manna og útvegs- manna í Sandgerði VERKALÝÐS- og sjómannafje- lag Gerða- og Miðneshrepps, hafði sagt um samningum um hlutaskifti í Sandgerði á síðastl. hausti. Samninganefndir frá fje laginu og útgerðarmönnum hafa unnið að því að ná samkomu- lagi undanfarið. Hafði verið lýsí yfir vinnustöðvun frá og með laugard. 17. þ. m. Á fundi samn- inganefndanna s.l. fimtudags- kvöld, 15. þ. m., náðist samkomu lag sem borið var undir fund 1 Verkalýðsfjelaginu á föstudags- kvöld og var það þá samþykt. Breytingar frá fyrri samningi eru þessar helstar. 1. Kauptrygging hlutamanna hækkar úr kr. 350.00 í kr. 578.00 á mánuði í grunnlaun. 2. Hlutaskipti eru þau sömu og áður, 24 y2 staða skifti miðað við 12 manna skipshöfn, en /2 hlutur skiftist á milli sjómanna og landformanna eftir nánari á kvæðum. Aukagreiðslur til sjó- manna og landformanna, sem voru áður teknar af óskiftum afla, falla að öðru leyti niður. 3. Kauptrygging og greiðslur fyrir veikindaforföll, ná aðeins -til þeirra manna, sem eru í sama skiprúmi alla vertíðina, nema lögmæt forföll komi til. 4. Samningsaðilar lofa að beita sjer fyrir að greiðslur vegna veikinda og slysaforfalla skipverja, verði að fullu bættar af Almannatryggingunum. 5. Samningsaðilar ákveða að beita sjer fyrir, að dregið verði úr róðrum á helgidögum, eftíl' nánara samkomulagi við skip- stjórana. «». Samningurin ner bundinn því skilyrði, að skipverjum verði tryggt lágmarksverð fyrir hrogn kr. 0,40 pr. líter eða kg. Þessi trygging verður að 'koma frá þriðja aðila því verðlag á hrogn um er svo lágt, að útgerðarmenn geta alls ekki greitt þetta verð miðað við núverandi sölumögu - leika. í fyrra fengu skipverjar ekkert fyrir þau hrogn sem þeir hirtu, en nokkru var fleygt. Alþingi kemur saman í dag, ALÞINGI kemur saman til framhaldsfundar kl. IV2 í dag. Á dagskrá eru þrjár kosningar. Kosning fjögra manna í Landsbankanefnd, þriggja yfir- skoðunarmanna landsreikninga fyrir árið 1946 og einn maður í stjó'rn Gjafasjóðs Jóns Sigurðs- sonar. Rjett sluppu í stofuhæð hússins var Bóka- verslun Hannesar Jónssonar. —■ Dóttir hans var í búðinni í gær. Þar var og aðkomukona, er þær fundu reykjarlykt í húsinu. —- Svipuðust þær strax eftir því, hvaðan reykjarlyktin myndi stafa, og opnuðu miðstöðvarher- bergi sem var á sömu hæð. Gaus þá eldur á móti þeim, er hurð- in að herbergi þessu var opnuð, En við aukinn loftstraum að bál- inu, sem þegar var komið, esp- aðist eldurinn svo ört, og barst skjótt upp í efri hæð hússins, þar sem frú Anna hafði íbúð sína, að þeir sem þar voru, kom- ust aðeins óskaddaðir út úr hús- inu en fengu engu bjargað af húsmunum. Logaði enn Þegar blaðið átti tal við frjettaritara sinn á Siglufirði kl, 8 í gærkvöldi, logaði enn í hús- inu, en ekki meira en svo, að eldurinn var orðinn viðráðanleg ur, og víst að eltki myndi brenna meira. En þá var talið að allar bæk- urnar og aðrar vörur í verslun Hannesar Jónssonar, og varning ur, sem var í stofuhæðinni, myndi gereyðilagður, svo og alt í íbúðinni á efri hæð. Um orsakirnar til eldskvikn- unar þessarar var algerlega ó- kunnugt. Síldveiðarnar 1 FYRRINÓTT var allsæmileg veiði í Hvalfirði. Síidin stóð á sæmilegu dýpi og sögðu sjó- menn hana hafa verið mjög þjetta. 1 gær var engin veiði enda veður mjög óhagstætt. Frá þvi á laugardagskvöld þar til í gærkvöldi bárust 11.850 mál síldar með 15 skipum. í gærdag var aðeins unnið a3 löndun síldarinnar í þró hjer í Reykjavík. Tíu skip lönduðu síld sinni þannig, Um helgina var flutningaskipið Hel Jestað. Það ber um 10 þúsund mál., og var lokið við hleðslu þess á 10 til 12 klst. í gærkvöldi var byrjað að lestá Súðina og Pólstjörnuna. * Skipin sem komið hafa*síðan á sunnudag eru þessi: Ingóifur A.rnarson með 1100 mál, Narfi 500, Stjama 850, Kristján EA 850, Mumrpi 750, Keflvíkingur 100, Anglía 800 Jón Þorláksson 700, Sveinn Guðmundsson 950, Huginn II. 800, Sigurfari AK 700, Böðvar AK 900, Fróði og Bragi 500, Þorsteinn EA 650. KULIÍABYLGJA f BANDARÍKJUNUM NEW YORK: — Kuídabylgja gengur nú um gervöll Bandarík- in og jafnvel suður í Florida, sem annars er mjög heit á þessum annars er mjög heitt á þessum tíma árs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.