Morgunblaðið - 20.01.1948, Side 5
Þriðjudagur 20. janúar 1948.
MORGUTSBLAÐIÐ
5
Þjðiyiljinn og
saltfisksölumáiin
Fróðlepr háskóla-!
iyrirleslur um vík-
inga
í LAUGARDAGSBLAÐI Þjóð-
viljans er grein með stórri fyrir-
sögn, er hljóðar svo: „Útvegs-
mönnum í Vestmannaeyjum bann
að að selja saltfiskbirgðir sínar“.
Af því að fyrirsögn greinarinn-
ar kemur vafalaust fleirum en
mjer undarlega . fyrir sjónir, vil
jeg með þessum fáu línum lýsa
því yfir að ofannefnd fyrirsögn,
og svo greinin öll, er algjörlega
röng og tóm vitleysa, að öðru en
einu einasta atriði, sem jeg mun
síðar koma að.
Efnislegt innihald greinarinnar
er þetta:
1. Um 1000 smál. af fiski er ó
selt í landinu.
2. Jóhann Þ. Jósefsson hefur
bannað útvegsmönnum í Vest-
mannaeyjum að selja þurfisk
sinn.
3. Jóhann Þ. Jósefsson hefur
veitt S. í. S. (Sambandinu) einko
útflutningsleyfi á saltfiski og
megi aðrir ekki gera tilraunir
með sölu.
4. Fiskur sá, sem þurkaður hef-
ur verið í Vestmannaeyjum, er
150 smál., og veitist eigendum
örðugt að verja hann skemmdum.
Eins og allir, sem vel þekkja til
,'fisksölumála íslendinga, vita, eru
ofangreindir liðir allir rangir. —
Hið rjetta í máli þessu er:
1. Allur harð-þurri fiskurinn er
seldur og verður afskipaður til
Ameríku innan fárra daga. Öllum
öðrum þurkuðum fiski mun verða
afskipað í þessum mánuði. Enn-
fremur er all-mikið af óseldum
og óverkuðum ufsa til í landinu.
2. Fisksölusamlag Vestmanna ■
eyinga hefur aldrei óskað eftir að
selja sjálft umræddari þurrfisk,
enda mjer vitanlega ekki getaS
það. Að Jóhann Þ. Jósefsson hafi
bannað þeim að selja fisk þerinan,
veit jeg og Vestmannaeyingar
þeir, sem fiskinn eiga, að er al-
gjörlega rangt.
3. Sölusamband ísl. fiskfram •
leiðenda hafði eitt löggildingu á
síðastliðnu ári til að selja salt-
'fi'sk landsmanna eins og áður, en'
það hefur heldur ekki neitað
beiðni Vestmannaeyiriga um sölu
á þurrfiski sínum, þar sem slik
beiðni hefur aldrei verið fram
borin.
4. Fiskur sá, er Vestmannaey-
ingar eiga verkaðan, er ekki 150
tonn, eins og Þjóðviljinn segir,
heldur allmikið meiri, og er það
auðvitað kostnaðarsamt að halda
fiski þessum sem öðrum frá
skemdum. Hefur það verið stjórr.
Fisksölusambandsins mesta á -
byggjuefni frá því í haust, hversu
langur tími fór í að koma hinurn
þurrkaða fiski ámarkað.
í þessu sambandi vil jeg benda
á tvö mjög þýðingarmikil atriði,
sem varpa nokkuð skýru ljósi á
hina tvo aðila, ákærandann Þjóð-
viljann og hinn ákærða Jóhann
Þ. Jósefsson. Á jeg þar við stöðv-
un þá, sem varð á útboðum og
sölu íslensks saltfiskjar í allan
fyrravetur, sem ölium fiskfram-
leiðendum mun kunnugt, að átti
rót sína að rekja til hinna fölsku
vona, er aðal forustumenn Þjóð-
viljans, sem þá rjeðu málum,
höfðu gefið þjóðinni um því nær
ótakmarkaða sölu í Rússlandi. —
Þeir menn, sem voru svo ógæfu-
samir að framleiða saltfisk síð-
astliðinn vctur, munu nú þessa
dagana, þfcgar þeir eru að gera
upp reikninga sína, finna það hve
.gífurlegu tjóni þeir urðu fyrir af
þessum ástæðum. Það er ekkert
'launungarmál að fiskútboð voru
ekki leyfð meðan á hinurn .opin-
beru ríldssamningum stóð við
Rússa, og eyddlst því til einskis
hinn dýrmæti kaldi tími yetrar-
ins til þpss að koma fiskinum á
aðra markaði. Það er heldur ekk
ert launungarmál, að komið var
undir vor, þegar hið dýrkeypta
nei loksins koiíi. Hitatíminn stóð
fyrir dyrum í hinum öðrum mark
aðslöndum vorum og útflutning-
ur að mestu stöðvaður fram i
september.
Þarna urðu hinar glæstu vonir,
er Þjóðviljinn gaf, síður en Svo
Ve'stmannaeyingum nje öðrum
fiskeigendum til hagsbóta. Þegar
svo sýnt er orðið í hvaða óefrii
er komið, er það einmitt Jóhann
Þ. Jósefsson, sem biður Fisk-
ábyrgðarnefnd og S.. í. F. að
hvetja fiskeigendur til að verka
nokkurn hluta fiskjar síns til þess
að minka hina geysilegu áhættu,
sem fylgdi því að geyma hann
óverkaðan yfir allan hitatímann.
Er þetta hið eina atriði, er Þjóð-
viljinn fer rjett með. Síðan trygg-
ir Jóhann Þ. Jósefsson, sem fjár-
málaráðherra, fiskeigendum út-
flutningsverð fyrir hinn þurrkaða
fisk, sem var tilsvarandi saltfisks
ábyrgðinni.
Samtímis hóf hann forgöngu
um sölu saltíiskjarins til allra
hugsanlegra markaðslanda með
þeim áhuga, að jeg fullyrði að
enginn íslenskur ráðherra hvorki
fyrr hje síðar,. hafi unnið daglega
svo ósleitulega, sem liann hefur
gert á síðastliðnu ári, að sölu fiskj
arins. Sýndi það glöggt, að hann
skildi vel þá hættu, er fiskurinn
var í, ef sala hans drægist um of,
svo og þá ábyrgð er hann sjálfur
bar gagnvart ríkissjóði.
Þá er það atriðið, sem einnig
er vert að minna á —- þurrfisks-
salan. Flestum er í fersku minm
hverinig veðurfar var hjer síðast-
liðið sumar. Ollu hinir stöðugu
óþurkar því, að örlítill hluti fiskj
arins náðist fullþurr, nokkuð 7/8
oð 3/4 þurt og sumt komst ekki
svo langt að næði einni breiðslu.
Spánn var því eina landið af
hinum gömlu markaðslöndum,
sem venjulega notaði þannig verk
aðan flsk. Vonir þeirra manna,'
sem til þektu, stóðu og einnig til
þess, fram á síðari hluta sumars,
að takast mætti að selja Sþán-
verjum, en því miður varð ekki
sú raun á. Hefur það valdið Is-
lendingum miklum vonbrigðum
að geta nú ekki, að nýju, sent
nokkur hundruð smálestir af fiski
til hins góða og gamla viðskipta-
lands okkar ■—■ markaðslands sem
löngum hafði verið lífæð íslensks
sjávarútvegs. Skal pví Þjóðvilj-
inn, og raunar aðrir íslendingar
líka, nú spurðir að því, hvort þeir
telji iíklegt, að afgreiðslubannið
fræga, er-kommún'istar hjer settu
á skip, er fluttu vörur til eða fra
Spáni, hafi orðið, eða verði, að-
stoð eða fyrirgreiðsla á sölu ís-
lensks saltfisks til þessa lands.
Þetta tvennt — saltfiskssalan
til Rússlands og afgreiðslubann-
ið á Spán — eru hvorttveggja svo
stórir svartir blettir, að illa fer
Þjóðviljanum að minnast á þessi
mál í þeim tilgangi einum að
sverta núverandi sjávarútvegs-
málaráðherra.
Jeg vil fullyrða, að Jóhann Þ.
Jósefsson er ólíklegastur allra ís-
lendinga til þess að vilja verða
því valdandi, að fiskur útvegs
manna seljist nú ekki, eða seljist
seint og illa. Hann sem núverandi
fjármálaráðherra á að standa fisk
eigendum skil á tjóninu. Og þeg-
ar því, svo auk þess er getið til,
að hann sjerstaklega sitji yfir hag
útvegsmanna í Vestmannaeyjum,
,þá finst rnjer auðsætt að árásar-
efni Þjóðviljans sjeu mjög að
þrotum komin.
Kristján Einarsson.
Tll áferaisess hafa
boiisf ríim 52 þús.
í SKÝRSLU þeirri, er Lands-
samband ísl. útvegsmanna ljet
Morgunblaðinu í tje og birt var
i sunnudagsbl. hafði gieymst að
geta síldarmagns þess er Akra-
nesverksmiðjunni hafði borist
að kvöldi 15. janúar. — Þangað
höfðu þá borist 52.779 mál
síldar.
JON STEFFENSEN prófess-
or flutti háskólafyrirlestur fyr-
ir almenning í hátíðasal háskól
ans á sunnudaginn eð var. —
Fjallaði fyrirlesturinn um vík-
inga og var hinn fróðlegasti.
Húsfyllir var og klöppuðu á-
heyrendur fyrirlesaranum lof í
lófa.
ísiand byggt af vestrænum
víkingum.
Steffensen prófessor hefir
unnið að víðtækum beinarann-
sóknum úndanfarin ár. Af
rannsóknum sínum hefir hann
komist að raun um, að á Vík-
ingaöld voru tveir kynflokkar.
víkinga, hver með sínum greini
legu útlitseinkennum. Annan
flokkinn nefndi fyrirlesarinn
austræna víkinga^ þá sem heima
áttu í Noregi og öðrum Norð-
urlöndum og svo vestræna vík
inga, þá sem voru á Bretlands-
eyjum.
Beiriarannsóknirnar sýna að
ísland var byggt af vestrænu
víkingunum.
Mannlýsingar Heimskringlu
og. Flateyjarbókar
sannaðar.
Fyrirlesarinn skýrði m. a. frá
rannsóknum á beinum þeirra
jarlanna og frændanna Magnús
ar Erlendssonar Rögnvaldar
Kolssonar. Eh bein- þeirra
eru varðveitt í Kirkju hins
heilaga Magnúsar í Kirkwall.
Þessar rannsóknir sanna að
lýsingar á þeim í sögunum eru
rjettar og rjett er farið með
frásögn af vígi Magnúsar helga.
Er frá því skýrt í sögunum, að
Magnús hafi verið veginn með
því að honum var veittur á-
verki á höfuð og sjest á haus-
kúpu hans og svohefir vérið,
Erægur flupiaður
kemur hingað
í flugvirki
EINS OG skýrt var frá hjer í
blaðinu fyrir helgina kom risa ■
flugvirki ameríska hersins til
Keflavíkur á leið sinni til Þýska-
lands. Flugvjel þessi er á hnatt-
flugi. Hóíst flugið á Andrews-
flugvelli við Washington og var
flogið til Keflavíkur í einum á-
fan|ta. Hjeðan fór vjelin til Eng -
lands og síðan til Wiesbaden í
Þýskalandi. Síðan verður flogið
um Japan til Bandaríkjanna. —
Búist er við tveimur risaflug-
virkjum til Keflavikur núna í
vikunni.
Flugforingi í hnattfluginu er
Hewitt T. Wheless ofursti, en
hann er kunnur amerískur her-
ílugmaður, þótt hann sje aðeins
33 ára. Hann tók þátt í orusíun-
um um Japan, Philippseyjár og
víðar á Kyrrahafi. Hann stjórn-
aði loftárásunum á Japanséyjar
1945. Hefur hann hlotið mörg
heiðursmerki fyrir frækiíega
frammistöðu í styrjöldinni.
öspsktir í Egypfefandi
Cairo í gærkvöldi.
TIL átaka kom milli stúdenta
og lögreglu í dag, er þeir fyr
nefndu fóru með óspektum um
Cairo vegna deilumála Breta og
Egypta um framtíðarstjórn
Sudan.
Nokkrar óeirðir urðu einnig í
Alexandríu, og Var iiafður v’örð
ur um háskólann þar og í höf-
uðborginni. — Reuter.
Frá Guðjóni Samúelssyni próf. ,
húsameistara ríkisins hefir blað-
inu borist eftirf.arandi um bygg-
ingaframkvæmdir á árinu, sem
leið:
A liðnu ári 1947, hafa bygg-
ingaframkværpdir á vegum þess
opinbera verið með allra mesta
móti, þrátt fyrir vöntun á bygg-
ingarefni og vinnukrafti.
Byggingar þær, sem unnið var
að á liðnu ári og uppdrættir gerð
ir að, eru þessir:
Sjúkrahús og tilheyrahdi
byggingar:
Kleppur. Viðbygging við geð-
veikaraspítalann, rúmar.40 sjúk-
linga, var fullgert 1946, en er nú
að miklu leyti fullgert að innan,
nema enn vantar í það öll hrein-
lætistæki, en þeirra ér von á næst
unni. 8 starfsfólkshús eru í smíð-
um voru, eru nú fullgerð, þau
rúma 24 manns, sumpart eins
manns herbergi ög 2 herb. íbúðir
með öllum þægindum.
Vífilsstaðir. Hjúkrunarkvenna-
hús fyrir 7 manns er fullgert.
Bíla- og verkfærahús einnig full-
gert. Ráðsmannshús ásamt íbúð-
um fyrir yfirhjúkrunárkonu og
yfirmatreiðslukonu gert fokhelt.
Akranes. Sjúkranús fyrir 25
rúm er í smíðum, en ekki nærri
lokið.
Eyrarbakki. Lokið byggingu
læknishúss.
Akureyri. Nýtt spítalahús
nærri fokhelt, rúmar fullgert 110
sjúklinga, auk annara maiðsyn-
legra herbergja.
Siglufjörður. Uppdrættir nær
fullgerðir af sjúkrahúsi fyrir 32
sjúklinga, auk stárfsfólks og ann
ara herbergja, var ekki enn haf-
ið:
Reykjavík. Fæðingadeild
Landsspítalans, rúmar 54 sæng-
urkonur.
Gerðir frumuppdrættir að
hjúkrunarkvennaskóla Landsspí-
talans, er á að rúma 100 nem.,
auk húsnæðis fyrir skólann.
Patreksfirði. Gerðir uppdrætt-
ir að læknishúsi, en verk ekki
hafið ennþá.
Kópasker. Læknishús i smíð-
um, fokhelt.
Biskupssetur og prestsseturshús:
Reykjavík. Húsið „Gimli“
breytt og endurbætt fyrir bisk-
upssetur. Gerðir uppdrættir að
prestsseturshúsi í Laugarnes-
sókn. Hafin bygging orestsseturs
húss í Hallgrímssókn, -slegið upp
mótum fyrir 2. hæð.
Fnjóskadal. PreStsseturshús að
Hálsi, nærri fullgert.
Fljótum. Presstseturshús að
Barði, nól. fullgert.
Hvanneyri. Prestsseturshús full
gert.
Desjamýri. Presseturshús full-
gert utan, unnið inni.
Breiðabólstað. Prestsseturshús
fullgert utan, unnið inni.
Miklabæ. Prestsseturshús full-
gert utan, unnið inní.
Kirkjur:
Reykjavík. Hallgrímskirkja,
undirkór fullgerður fyrir páska.
Laugarneskirkja, verður full-
gerð á þessu ári.
Bessastaðir. Unnið að endur-
bótum kirkjunnar, verður lokið
i vetur.
Mentaskólar:
Akureyri. Heimavistarhús fyrir
160 nemendur, nál. fokhelt og
'mnihúðun sennilega lokið á þessu
ári.
Hjeraðsskólar:
Skógar undir Eyjafjöllum. —
Bygging fokheld, unnið innan-
húss:
Reykir í Hrútafirði. Heimavista
hús fokhelt og sundlaug nærri
fullgerð.
Laugaland. Bréyting og stækk-
un skólans hafin.
Varmahlíð. Búningsklefar við
sundlaug, fókhelt og byrjað að
grafa fyrir aðalbyggingunni,
Eiðar. Heimavist og kennara-
hús nærri steypt upp.
Núpi. Leikfimihús fokhelt.
Barnaskólar og Fjelagsheim-
ili.
Akureyri. Viðbygging við skóla
húsið fokheld.
Borgarnes. Skólahús fókhelt.
Kópavog. Skólahús að nokkru
steypt upp.
Akranes. Fullgerðir uppdrætt-
ir, undirbúningur hafinn.
Öláfsfirði. Húsið í smíðum, vel
fokhelt.
Grindavík. Húsið fullgert.
Hveragerði. Húsið fullgert.
Hólmavík. Húsið í smíðum, vel
fokhelt.
Villingaholti. Skólahúsið full-
gert.
Grafarnesi. Fjelagsheimili íull-
gert.
Jökuldalur. Fullgert skólahús.
Stykkishólmur. Fullgert leik-
fimihús.
Lýtingsstaðahreppur. Nálega
fokhelt skólahús.
BreiðdaJsvík. Fjelagsheimili
fullgert og byrjað á skólanúsi.
Suðursveit. Fjelagsheimili .
gert. fokhelt. skólahús.
Fljótshlið Fokhelt fjélags-
heimili.
Gaulverjabær. Unnið að fje-
lagsheimili.
Ljósafoss. Fakhelt skólahús.
Sauðárkrókur. Fullgert skóla-
hús.
Blönduós. Skólahús fullgert.
Vopnafjörður. Heimavistar-
skóli að Torfustöðum, fokheldur.
ísafjörður. Fullgert leikfimi-
hús.
Asahreppur. Fjelagsheimili.fok
helt.
Miklaholtshreppur. Fjelags-
heimili fokhelt.
Bæjarsveit. Fjelagsheimili fok-
helt.
Norðfjörður. Fjelagsheimili og
barnaskóli fullgert.
Sundlaugar o. s. frv.
Vopnafjörður. Sundlaug, undir
stöður og botn steypt.
Kéldurieshreppur. Fullgerður
sundskáli.
Seyðísfjörður. Sundlaug nærri
fullgerð.
Flúðir. Sundlaug fullgerð. '
Hörðudalur. Fokheldur sund-
skáli.
Reykhólar. Steypt sundþró.
Klúku. Fullgerð sundlaug.
Fáskrúðsfirði. Fullgerð sund-
höll.
Súgandafirði. Baðstofa nærri
fullgerð.
Lundarreykjadal. Sundlaug og
klefar í Brautartungu fullgert.
Verkamannahús:
Víða reist verkamannahús. En
ókunnugt að öðru leyti.
Skrifstofuhús o. fl.
Arnarhváll. Hæstirjettur full-
gert utan og að nokkru leyti að
innan.
Ríkisskip. Tillöguuppdrættir
gerðir að skrifstofu og geymslu-
húsi i Rvik.
Gagnf ræðaskólar:
Reykjavík. Skólinn fullgerður
að utan og að mestu leyti húð-
áður að innan, rúmar 500 nem-
rindur.
Vestmannaeyjar. Undirstöður
steyptar. Rúmar 11 kenslustofur.
Húsmæðraskólur. Kvennaskólar.
Isafirði. Skólahúsið nær full-
gert.
Borgarfirði. Skólahúsið full-
gert.
Hafnarfirði. Vinna nýl. hafin.
Þjóðleikhúsið í Reykjavík.
unnið við að fullgera bygging-
una.
Elliheimili.
Hafnarfjörður. Byggingin aö
nokkru steypt upp.
íbúðarhús o. fl.
Reykjavik. Tillöguuppdrættii*
að húsi fyrir hæstarjettardónr-
ara.
Norðfirði. Hús fyrir bæjarfó-
getann í smíðum.
Frn. á bls. 11.