Morgunblaðið - 08.07.1948, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.07.1948, Blaðsíða 14
1$ BtORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 8. júlí 1948< KENJA KONA Qtir &» _4 œ,m Uluunó 122, dagur Augu hennar urðu ísköid og það var eins og hún spýtti orð unum út úr sjer. „Hann giftist ungfrúnni“, sagði hún. „Hanu er orðinn plantekru-eigandi og ræktar hrísgrjcn og baðnaull. Hann gengur um með svipu í hendinni og slær á bakið á þræl unum sínum“. Þá iangaði til að spyrja ótal fleiri spurninga, viðvíkjandi Tom, en eftir kuldann í augna ráði hennar að dæma, var ráð- legast að þegja. „Hvar eru brjefin hans?“ „Okkur þætti gaman að fá að lesa þau“. „Jeg er búin að brenna þeim'' j sagði Jenny. „Jeg opnaði ekki einu sinni það síðasta" | Rödd hennar gaf þeim til kynna, að Tom væri einnig úti-, Jokaður frá þeim og ætti ekki lengur neitt tilkall til þeirra. Rödd hennar sagði einnig, að þessi dómur hennar yfir Will og Tom væri þegar fastákveðinn og ef einhver þeirra ætlaði sjer aö mótmæla henni, færi hann sömu leiðina. Hún stóð enn við rósa beðið, þar sem þeir höfðu kom ið að henni. „Þið ættuð að fara í bað“ sagði hún. „Það er óþefur af ykkur." VII. Eftir þetta fanst Dan, eins og þykkur veggur hafi risið innan heimilisins. Öðrum meg- in við vegginn var móðir hans, en hinum megin John og Dan og Mat. Það var Jenny, sem reisti þennan vegg. Þeir höfðu minst á Will við kvöldverðar- foorðið einum eða tveimur dög- -um eftir heimkomuna, en þá foafði Jenny sagt: „Viljið þið gcra svo. vel að minnast hvorki á Will eða Tom í minni áheyrn. foeir hafa ydirgefið mig og mitt foúsi Jeg vil ekki heyra neitt í-rá- þeim framar“. „Hvaða vitleysa, mamma“, sagði Dan. „Þú veist sjálf, að fojer þykir alveg eins vænt um þá og okkur. Hugsaðu þjer, hve glöð þú verður að sjá þá, þeg- ar þeir koma aftur“. Hún svaraði ekki en horfði á f>an; svo hann roðnaði undan augnaráði hennar. Svo var ekki -talað meira um það. En seinna bað John Mat og Dan að minn- ast ekkert á Tóm og Will við 'foana. „Hún elskar þá svo mik- *ðr að-hún er hugsjúk út af því, að þeir hafa yfirgefið hana“, Æagði hann. Þeir fóru að ráðum hans. — 4*egar forjef kom frá Tom, lásu 4>eir það saman, en sögðu henni -ekki frá 'því. Það stóð ýmislegt í-'því, sem ekki hefði mýkt hug hennar til Toms, til dæmis, stóð þar: „Og pabbi, láttu ekki fólkið í Bangor telja Þjer trú um, að foað sj e nokkurn tíma hægt að íá Suðurríkjamennina til að af- nema þrælahaldið. Hjer er far- ,feð vel með þrælana. Herra Mc t'erson er góður vinur Thom- asar Spaulding frá Sapeloe. — Þeir álíta báðir, að það eigi íddrei að selja þræla, og ekki foaupa þá, nema beint frá Af- ríku. Þrælunum okkar líður bet Jtir hjá okkur, heldur en þeim mundi líða, ef þeim væri gefið frelsi. Jeg er farinn að líta á málið frá sjónarmiði Suðurríkja búans og jeg er orðinn þeirrar skoðuna, að þrælahald eigi full- komlega rjett á sjer suður frá. Fólkið hjer trúir ekki á frá- skilnað Suðurríkjanna. En hjer eru menn örir í skapi, og reiðu- búnir til að grípa til vopna hve nær sem er. Það er meira að segja ekki ótítt, að einvígi manna á milli sjeu háð. En þeir eru allir sammála um að fara í stríð við Norðurríkin ef í hart fer“. Jenny hefði orðið enn reið- ari Tom, ef hún hefði fengið að lesa brjefið. En Mat sagði, að eftir lýsingu Toms að dæma hlyti lííið að vera skemtilegt í Suðurríkjunum. „Það væri gam an að fara að heimsækja hann“, sagði hann. Mat var orðinn geysihár og kominn hátt á þrí- tugsaldur, en latur og rólynd- ur að eðlisfari. ,,Mjer mundi ekki þykja neitt á móti því, að láta fimm eða sex þræla þjóna mjer“, sagði hann og brosti. — „Þið munið eftir Atticusi. Hon- um var alveg sama, þótt hann væri þræll. Mjer fjell vel við hann“. Þeim bárust einnig brjef frá Will. Fyrsta brjefið skrifaði hann til Dans frá Philadelfíu. j „Kæri Dan“, skrifaði hann. „Jeg býst við, að þið sjeuð nú allir komnir heim aftur og hafið orðið hissa, þegar jeg var far- inn. Jeg ætlaði að vera kyrr heima, þangað til þið kæmuð. En jeg gafst alveg upp. Jeg skal segja þjer, hvernig stóð á því, en segðu ekki pabba það. Hann mundi aðeins verða enn óhamingjusamari en hann er nú þegar. Mamma fór að kvarta og kveina um leið og þið voruð farnir. Hún ljest halda, að þið hefðuð ekki farið strax inn á skóglendin. Hún sagði, að pabbi elskaði einhverja konu í Old Town og hann hefði farið þang- að til að hitta hana. Jeg hjelt, að jeg gæti sannfært hana um, að þetta væri ekki satt, svo við ókum upp eftir til Old .Town næsta dag, og þá var okkur sagt, að þið væruð farnir. En þá sagði hún, að kvenfólkið biði eftir ykkur ei»hversstðar inni á skóglendunum. Svona hjelt hún áfram allan veturinn. Þú veit hvernig hún er, altaf að gefa eitthvað í skyn. En stundum var hún líka ber- orð. Jeg vissi, að hún var veik og meinti ekki það, sem hún sagði. Jeg bar altaf á móti henni þangað til hún varð reið. Stund- um talaði hún ekki við mig í tvo eða þrjá daga. Jeg var alveg að verða vitlaus sjálfur af að reyna að finna eitthvað upp, er gæti orðið henni til geðs. Þegar hún talaði ekki um pabba, þá var það Tom. Þegar hann giftist þarna suður frá, varð hún alveg óð og uppvæg í langan tíma á eftir. — Hún steytti hnefana, sVó að hnú- arnir hvítnuðu, og gnísti tönn- um, og sagðist óska þess, að hann væri dauður. Hún sagði engum, hvar Tom var. og bann- aði mjer að segja það. Ef fólk spurði. hvar hann væri. sa<*ði hún, að hann hefði farið til siós og væri einhversstaðar hinum megin á hnettinum. Þegar jeg reyndi að mæla honum bót, varð hún reið við mig, svo jeg kaus að þegja. —i En hún sagði, að jeg væri and- vígur sjer, og að lokum rak hún mig út úr húsinu. Hún sagði, að hún ætti húsið, það hefði verið bygt fyrir hennar pen- inga, og hún vildi ekki hafa fjandmenn sína undir sínu eig- in þaki. Jeg sagði henni, að jeg væri ekki fjandmaður hennar, en það dugði ekki neitt. Hún sagði, að jeg ætti að fara. Þeir einu, sem hún getur haft ánægju af, ert þú og Mat, og hún heldur að pabbi sje að spilla ykkur á móti sjer. Jeg sagði henni, hve pabbi væri góður maður og hve hlýlega hann talaði altaf um hana. En hún sagði, að hann væri hræsn- ari og elskaðí margar aðrar konur. Mjer þykir leiðinlegt, að jeg skyldi þurfa að fara. Jeg gerði allt, sem jeg gat. Jeg ætla að fara til Cincinnati og seinna ætla jeg ef til vill að setjast að í Ohio. Jeg skrifa þjer aftur, strax og jeg veit hvert jeg fer. Það er segja, jeg ætla að skrifa pabba. Jeg held, að það sje best, að þú segir honum ekkert frá þessu brjefi. Hann á nógu erfitt fyrir það. Þinn elskandi bróðir, wm.“ IX. Þegar Dan hugsaði um það seinna, fanst honum þetta sum- ar og næstu sumur á eftir, mundu hafa verið honum alveg óbærileg, ef hann hefði ekki get að skroppið við og við til Meg og Beth, dóttur hennar. Eftir fráfall Saladins dómgra bjuggu þær einar í stóra húsinu við Ess exgötu og þeirn þótti alltaf vænt um að sjá hann. Beth var tólf ára, og ást hennar á Ðan, sem hafði byrjað, þegar hún var smábarn, fór stöðugt vaxandi. Hún vildi alltaf helst sitja við hlið hans þegar hann kom í heimsókn. Stundum tók hún höndunum utan um háls hans og vafði fingrum sínum í hár hans, sjerstaklega þó eftir að hún fann það út, að það þótti honum gott. Framkoma hennar við hann var alltaf barnalega hlvlee óg honum bótti innilega vænt um hana. Hann og Meg hentu oft gaman að þessari ást hennar á Dan. þegar hún var ekki nálægt. „Það er óskön eðlilegt að litl- ar st.úlkur á henn«r aldri verði ástfanenar af báum ungum mönnum“, sagði Meg. Dan brosti „Jeg var ástfang- in af bier á sama hátt,“ sagði hann. ..Þeear ie» fripfti. að bú npt1aðir að giftast Pawl skip- stióna. fanst mier líf mitt hlióta að vnrða gleðisnaut.t utm frá hví. Þú bauðv.t minr ekki einu sinni í brúðlranni?S. Jeg faldi mit» fvrir utan kirkiuna og grjet fnrrriim t.arum“. í>on blótni bppði. ,.jeg vissi nm tilfinninwar bínar“. sagði Vm bú bnrfðin „ mitf á^ökun- ovoumim. Hns <-><t íp» bafð; svik ;■* V.'r, í frvtrfCnm Þeos vegna Voi,1* iocf bier eWi i briiðVaUU— :•* T„rr v>nr-ð5 pbb; jífp fram- Svört og hvít Austurlenskt ævintýri. 1 -1 Einu sinni var konungur, Hann átti þrjá syni, og hann hjelt jafn mikið upp á þá alla. Dag einn kallaði hann bá alla á sinn fund og sagði þeim, að hann væri nú orðinn gamall maður og hann vildi vita ,að ekki yrði misklíð milli þeirra. braéoranna um konungdóminn í ríkinu, svo að hann hafði ókveðið, að út um það skyldi gert með einhverri þraut. Einn ykkar verður konungur, annar fer með hermál rík- isins og sá þriðji fer með fjármálin. En þið eigið að lifa í eindrægni og elska hvorn annan eins og bestu bræður. Þessu höfðu bræðurnir ekkert á móti og svo varð það ákveðið, að gera út um málið með bogaskoti, þannig, að sá, sem skyti ör lengst skyldi verða konungur. Fírus hjet sá, sem var sterkastur þeirra og þóttist hann viss um sigurinn, um að hans ör myndi fara lengst. Kvöldið áður tók hann sjer gönguferð meðfrcim fljótinu og horfði ineð hrifningu yfir yndislegu garðana á bökkunum. Hann var að hugsa um, hvað það væri mikil hamingja að eiga að verða konungur yfir þessu dásamlega landi, þegar hann heyrði neyðaróp og ung negrastúlka kom hlaupandi niður að fljótsbakkanum, þar sem hún kraup niður og horfði grátandi niður í vatnið. Hvað amar að þjer? spurði sprinsinn góðlátlega Svarta stúlkan, sem var á aldur við prinsinn, sagði: Bolt- inn minn rann niður í fljótið. Jeg var að leika mjer að hon- um inni í garðinum mínum, en missti hann yfir girðinguna og þarna flýtur hann úti á vatninu. Nú, var það ekki annað, sagði prinsinn. Þá skaltu bara kaupa þjer nýjan bolta. Nei, sagði stúlkan, nei, þú veist ekki hvað hann er mjer mikils virði. Jeg dey, ef jeg fæ hann ekki aftur. Jæja, hvað viltu þá geía mjer, ef jeg næ í hann fyrir þig?, Jeg skal gefa þjer ráð, sem er meira virði en heilt kon- ungsríki. LA f mjög og sagði: Nei, ert þú hjer? — Nei, jeg er nýfarinn, svar- aði hinn. ★ — Veistu hvað er sameigin- legt með gíraffa og tarfi? — Nei. — Þeir kunna hvorugir á hjóli. ★ -— Jeg keypti nýlega bók, sem heitið: Hvernig maður verður skemtilegur? — Nú, en þú hefir ekki haft tíma til þess að lesa hana. * — Mikið ósköp geta konur verið falskar. — Nú, hvernig þá? — Jeg setti hjúskaparauglýs- ingu í blaðið hjerna um daginn og sú eina sem svaraði var kær- astan mín. ★ — Get jeg fengið að líta á nýtísku kjól. Afgreiðslumaðurinn svarar þurrlega: — Nýtísku kjól, á hann að vera of þröngur eða of síður? ★ — Af hverju viltu ekki leng- ur leika þjer við Lilla? — O, hann er svo leiðinlegur. — Nú, hvernig þá? — Hann gerir ekkert annað en grenja, þegar jeg slæ hann í höfuðið með hamri. m aqyiu æstarn-" ~)L / 'h.ot'l.a.Cl.lA.n “emaOui '• «u> “'■.,,'V — Og nú ekkcrt svindl, Iþú ferð til tunglsins og kemur beint heim aftur. Sovjetmenning: Áður fyr skemtu Þjóðverjarnir sjer í leyni að sögum um Hitler og Göbbels. Nú snúast sögurnar um Rússana. Þessi saga gengur nú manna á milli: Rússi hjelt fyrirlestur í Sov- jetvinafjelagi í borg í Austur- Þýskalandi, og á eftir bauð hann viðstöddum að taka þátt i umræðum. Þjóðverjarnir spurði á hvern hátt hægt væri að auka matarskamtinn. En sú spurning var nú ekki beinlínis í sambandi við erindið. Rúss- inn svaraði ergilega: . — Jeg skil ekki hvers vegna þið Þjóðverjar talið altaf um mat. í Sovjetríkjunum tölum við altaf um menningu: Rödd úr salnum sagði: — Ja, það er nú svo, menn tala mest um bað, sem þá vantar. Tveir menn mættust á götu. Annar þeirra fagnaði hinum BERGUR JONSSON Málflutningsskrifstofa Laugaveg 65. Sími 5833. Heimasími 9234,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.