Morgunblaðið - 31.10.1948, Side 1
12 síður og Lesbók
35. árgangur 257. tbj. — Sunnudagur 31- október 1948. Prentsmlðja Morgunblaðsina
Winston (hurchill í sumarfríi
Winston Churchill var um hríð á baðstað við Miðjarðarhafs-
ströndina í haust til að hvíla sig. Þá var þessi mynd tekin af
honum er hann var að koma af sundi í Miðjarðarhafinu.
Ástandið í Frakklandi
ier botnandi
Sijórnin hefir nú um 80 prcf. kolanámanna
á valdi sínu
París 1 gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Peuter.
ÁSTANDIÐ í frönsku kolanámunum fór enn mjög batnandi í
dag og stjórnin nær nú sífellt fleiri námum á sitt vald. Það er
því orðið ljóst, að franska stjórnin hefur sigrað í baráttunni um
kolanámurnar, og• kommúnistar hafa orðið að hörfa með liðs-
sveitir sínar til hafnarborganna. Franska innanríkisráðuneytið
tilkynnti í kvöld, að stjórnin hefði nú náð á sitt vald 80% af
cllum kolanámunum. Ennfremur hefur stjórnin á sínu valdi
50 % allra kolanámanna á Nord og Pas de Calais svæðunum og
hefur vinna þegar verið hafin á ný í mörgum þeirra.
Til Antwerpen ‘
Mörg skip, á leið til Frakk-
lands með kol, hafa verið látin
fara til Antwerpen. Þaðan hafa
kolin verið send með járnbraut-
arlestum til Jeumont, Frakk-
lands megin við landamærin.
Á þa'nn hátt hafa verið flutt
1500 tonn á dag. — í Marseilles
hófu hafnárverkamenn verkfall
í dag og töfðust um 5000 ferða-
menn í borginni.
Alit stjórnmálamanna
Stjórnmálamenn hjer álíta,
að kommúnistar kunni að reyna
að halda verkfallinu gangandi
þar til franska þingið kemur
saman á ný 15. nóvember, og á
meðan muni þeir reyna að
stofna til óeirða meðal stáliðn-
aðarmanna og fleiri stjetta.
301 hefur særst
Frá því verkfallið hófst, fyr-
ir 28 dögum, hefur 301 maður
særst úf liði stjórnarinnar, 626
menn hafa verið handteknir,
þar af 160 Vestur-Afríku-menn
og 85 aðrir útlendingar. Hefur
62 þeirra verið vísað úr landi.
Kínverskir komm-
únislar við Mukden
London í gær.
FREGNIR frá Mansúríu herma,
að hersveitir kommúnista sjeu
nú komnar að borginni Muk-
den. Munu þær þegar hafa tek-
ið flugvöll við borgina, en
stjórnarhersveitirnar eru þarna
á undanhaldi. — Reuter.
r
A svartan lisfa
Páfagarði í gærkveldi.
ALLAR bækur franska rithöf-
undarins Jean Paul Saatre hafa
verið settar á svartan lista hjer
í Páfagarði. — Reuter.
Noregur gengur ekki í neitt
ríkjasamband fyrst um sinn
Frá 1. nóv. n. k. kostar
Morgunblaðið kr. 12,00 á
mánuði, innanlands.
Bylfing í Perú
Lima í gærkveldi.
RÍKISSTJÓRN Perú hefur ver-
ið steypt af stóli. Við völdum
hafa tekið nokkrir herforingj-
ar undir stjórn Audria hers-
höfðingja. Hófu þeir uppreisn
fyrir hálfum mánuði í borginni
Arequipa í suðurhluta Perú.
Ekki var vitað anað en að
stjórnarherirnir hefðu að mestu
bælt uppreisnin þeirra niður, en
í morgun var skyndilega gefin
út tilkynning um stjórnarskipt-
in. Ekki er vitað, hvar Busta-
mente fyrrum forseti landsins
er niður kominn. Sumir telja,
að hann sje fangi uppreisnar-
mannanna, en aðrir segja, að
hann hafi flúið land og sje á
leiðinni til Argentínu, þar sem
hann muni dveljast í útlegð.
Jarðýtur valda
skemdum á
jarðslrentpm
RAFMAGNSSTJÓRI -gaf bæj-
arráði á fundi þess írfyrradag,
skýrslu, um bilun, sem varð á
háspennujarðstreng við Suður-
landsbraut þann 19. þ. rn. Or-
sök hennar. var sú, áð jarðýta
skemdi strenginn.
í sambandi við þætta mál,
gerði rafmagnsstjóri það að til-
lögu sinni til bæjarráðs, að
banna uppgröft með jarðýtum
nálægt jarðstrengjum, án sam-
þykkis Rafmagnsveitunnar.
Þessari tillögu vísaði bæjarráð
til borgarritara, til athugunar.
Sfjórnarkreppa
í Grikklandi
Aþena í gærkveldi.
GRÍSKI forsætisráðherr-
ann, Sophoulis, lýsti því
yfir í kvöld, að stjórnar-
kreppa væri óumflýjanleg
í Grikklandi. Stjórnmála-
menn hjer álíta, ajð hann
muni segja af sjer ein-
hverntíma á næstu 48 klst.
I gær var allt Grikkland
lýst í hernaðarástand, frá
því í dag að telja.
Reuter.
Halvard Lange ræðir
utanríkisstefnu Norð-
manna
Segir Noreg lilheyra Veslur-Evrópu
Oslo í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HALVARD LANGE, utanríkisráðherra Noregs, flutti í dag
ræðu í Stórþinginu. Fjallaði hún um utanríkisstefnu Noregs.
Sagði ráðherrann að frá því að stríðinu lauk, þá hefðu Norðmenn
grundvallað utanríkisstefnu sína á Sameinuðu Þjóðunum. Hann
tagði, að Noregur myndi ekki ganga í neitt ríkjasamband fyrst
um sinn. Hann kvað samkomulagið milli stórveldanna hafa
versnað upp á síðkastið. Vestur-Evrópu bandalagið hefði verið
myndað eingöngu vegna ótta viðkomandi ríkja við Rússa og
\æri einvörðungu varnarbandalag. Hvorki Vestur-Evrópu ríkin
nje Bandaríkin hefðu áhuga á öðru en friði.
Tillaga Frakka í
Paleslínudeilunni
samþykkl
París í gærkveldi.
UNDIRNEFND sú, sem Öryggis
ráð skipaði til þess að fjalla um
tillögu Frakka í Palestínudeil-
unni, hefur nú,. lýst yfir fylgi
sínu við hana- Fulltrúar Kína,
Bretlands og Belgíu í nefndinni
greiddu atkvæði með tillögunni
en fulltrúi Ukraínu var einn á
móti.
Samkvæmt frönsku tillög-
unni er til þess ætlast, að bæði
Arabar og Gyðingar flytji lið
sín frá þeim stöðum, sem þau
ekki rjeðu yfir fyrir 14. þessa
mánaðar. Að því loknu er ætl-
unin að sáttasemjari S. Þ. í
Palestínu ákveði markalínur til
bráðabirgða milli herja deilu-
aðila, en nsesta skrefið verður
að semja endanlega um yfir-
ráðasvæði Gyðinga og Araba í
landinu meðan á núverandi
vopnahljei stendur. — Reuter.
Sama þófið
París í gærkvöldi.
STJÓRNMÁLANEFND S. Þ.
hjelt áfram að ræða Grikklands
málið í allan dag. Ræðumenn
Austur-Evrópuríkjanna sökuðu
Bandaríkin óg Bretland um að
nota Grikkland sem einskonar
herstöð og þeir sem töluðu af
hálfu Vestufveldanna skömm-
uðu Júgóslávíu, Búlgaríu og
Albaníu fyrir að aðstoða Mark-
os. — Umræðum var síðan
fi-estað til þriðjudags.
*Noregur tilheyrir V.-Evrópu
Hann kvað Noreg tilheyra
Vestur-Evrópu, efnahagslega,
menningarlega og landfræði-
lega, en ekki væri þar með sagt
að Norðmenn kysu að slíta öllu
sambandi við Austur-Evrópu.
Þeir hefðu ekki í hyggju að
g'anga í neitt bandalag fyrr en
hervarnárnefndih, er skipuð
var af Svíum. Dönum og Norð-
mönnum, hefði lokið störfum,
í febrúar næstk. Hann sagði að
samvinna Norðurlandanna væri
af allt öðrum toga spunnin en
bandalag Vestur-Evrópu.
Hervarnarnefndin
Hervarnarnefnd þessi var
skipuð að aflokinni ráðstefnu
þessara þriggja Norðurlanda í
Oslo. í henni eiga sæti sjer-
fræðingar frá . umræddum
löndum. Þeir eiga að rannsaka
möguleikana á því að sameina
hervarnarkerfi Skandinavíu,
bæði hvað hergögn og þjálfun
hermanna snertir. )
Berlínardeilan
Ráðherrann minntist nokkr-
um orðum á Berlínardeiluna.
Hann kvað Vesturveldin eiga
fullan lagalegan og siðferðileg-
an rjett á því að dvelja í Ber-
lín og' þess vegna væri ógjörn-
ingur fyrir þau að láta undan
Rússum í því máli.
Tjekkar styðja farnska
verkamenn ,
Prag í gærkvöldi.
AÐ minnsta kosti 20 millj.
tjekkneskar krónur hafa nú
safnast handa verkamönnum
þeim, sem nú eru í verkfalli £
Frakklandi. — Reuter.