Morgunblaðið - 09.12.1948, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 09.12.1948, Qupperneq 9
0 Fimmtudagur 9. d;s. u48. MORGUISBLABl 9 Minningarorð um Einar Guðmundsson óðalsbónda að Bjólu ÞANN 29. nóv. s.l., andaðist Ein- ar Guðmundsson fyrv. óðalsbóndi í hárri elli að heimili sínu, Bjólu í Rangárvallasýslu. Hann verður jarðsett að Odda í dag. Með Einari Guðmundssyni höf um vjer Rangæingar mist höfð- ingja í bændastjett, tryggan og ráðhollan vin vina sinna, og trú- an og góðan son íslenskrar gróð- urmoldar. Mjer finst sunnlensk bændastjett hafa lækkað um gilda mannhæð við fall hans. Einar Guðmundsson var fædd- úr að Hvammi í Landsveit, 2. febr. árið 1860. Hann var sonur hjónanna Guðmundar Þórðarson ar og Guðríðar Jónsdóttur, er þar bjuggu, og albróðir bændahöfð- ingjans Eyjólfs Guðmundssonar, er var landskunnur maður um langt skeið. Einar ólst upp með foreldrum sínum fram yfir ferm ingaraldur, en var þó oft lang- dvölum hjá móðurömmu sinni, er bjó á Kornbrekkum á Rangár- völlum. Daginn eftir ferminguna fór hann alfarinn að Kornbrekk- ur og þar kvæntist hann konu sinni Guðrúnu Jónsdóttur frá Keldum, er þar var fóstruð. •— Munu þau hjónaefnin hafa hugs- að sjer að búa á Rangárvöllum, en sand- og fellisvorið mikla 1882 lagðist jörð þeirra í auðn og hið blómlega bú nálægt ger- fjell. Var þá nauðugur einp kost- ur að leita sjer annars jarðnæð- is og flýja Rangárvellina, sem þau þó elskuðu og söknuðu æv- ína út. Fluttist þá gamla Korn- brekkna fólkið alt út að Rifshala koti í Asahreppi og hófu þau Ein- ar og Guðrún búskap þar ná- lega allslaus af öllu nema kjarki, samheldni og trú á lífið. — Þau bjuggu þar til 1909, en keyptu þá austurpartinn á Bjólu, og höfðu þá bætt Rifshalakot svo mjög, að það var lítt þekkjanlegt frá því, sem var, er þau komu þangað. Þá hafði hagur þeirra tekið þeim stakkaskiftum, að bú þeirra var talið eitt hið besta í sveitinni. A Bjólu bjuggu þau við mikla rausn og höfðingsskap þar til skömmu eftir 1920, að þau ljetu af búskap og fengu jörðina í hendur syni sínum og tengdadótt ur, sem búa þar enn. Hjá þeim dvöldu gömlu hjónin til æviloka. Þau Einar Guðmundsson og Guð- Bjólu-hjónin við hönd sjer upp að Bjólu, og gaf mjer bunka af nýjum gljá- andi pappírsörkum. Kannske er það tilviljun ein, að síðan jeg fór að berjast sjálf- ur minni lífsbaráttu, þá hefur starf mitt að mestu verið fólgið í því, að skrifa á pappírsarkir. Jeg hefi útfylt þær tugum og hundruðum saman og jeg hefi gleymt þeim öllum jafnótt og jeg hefi lagt þær frá mjer. Jeg hefi gleymt þeim öllum nema þess- um mínum fyrstu örkum. Þótt nú sjeu liðin 30 ár síðan jeg eign aðist þær, man jeg ennþá vel, hvernig þær litu út. Jeg nefni þetta atvik ekki hjer vegna þess, að það sje í raun og veru nokkuð merkilegt. Það mun öllum gleymt fyrir löngu nema mjer einum. En einmitt þetta lýs ir vel og betur en margt annað, snörum þætti í fari Einars Guð- mundssonar. Þennan þátt þekkja allir vel, er lifðu bernskuár sín í nágrenni hans. Hann hittir á leið sinni lítið barn, sem grætur og hann tekur það við hönd sjer, leiðir það heim í bæinn sinn og skilur ekki við það fyr en hann sjer brosið skína í gegnum tárin. „Meiri er sá, sem sigrar barns- hjartað með kærleika, heldur en hinn, sem vinnur borgir með eldi og sverði“. Einar Guðmundsson var meiri barnavinur en alment gerist og hann hafði tileinkað , sjer þá list, sem fáum er lagin. athafnir hans báru líka þess vott, að hann bjó yfir meiru, en allur þorri manna. Hann hlaut alltaf að standa upp úr, enda skýldi hann sjer aldrei bak við meðal- menksuna og fjöldann. Fyrir það eignaðist hann lika öfund- armenn, en slikt verða þeir að þola, sem standa að einhverju leyti feti framar almenningi. — Menn eins og Einar Guðmunds- son, verða að taka við mörgu eitruðu skeyti, sem aðrir sleppa við, vegna þess að þeir standa í skjóli meðalmenskunnar. — Jeg veit að honum var stundum van- treyst þegar best hefði mátt treysta honum, og honum sveið það, þótt fáir vissu það. Hann bar tilfinningar sínar ógjarnan utan á sjer, og hann var ekki allra vinur, en þeim mun betri og tryggari þeim, sem voru svo heppnir að vinna traust hans. — Einar í Bjólu bognaði aldrei, en sagði meiningu sína óhikað hvar sem var og hvenær sem var. Orð ræða hans var hin sama, hvort hann talaði við háa eða lága. Jeg hef aldrei þekkt mann, sem var lausari við að vera höfðingja- sleikja en Einar Guðmundsson. Hann var altof stórbrotinn til þess að skríða fyrir titlum og tignarmerkjum og hann þoldi illa valdboð eins og margir vorir bestu forfeður. Þegar Gunnlaugur ormstunga gekk fyrir Eirík jarl Hákonar- rún Jónsdóttir voru 63 ár í hjóna Hann gat leikið sjer með börnum son, þá undraðist jarl, að hann bandi, en saman í heimili í 71 ár og mun það fátítt. Guðrún and- aðist fyrir rúmum 3 árum. Þau eignuðust 8 börn, 3 dóu í æsku, en 5 komust til fullorð- insára, 4 synir og 1 dóttir. Tvö þeirra eru látin fyrir nokkru — Guðríður, sem lengstum átti heima á Bjólu og Guðmundur út gerðarmaður í Vestm.eyjum. Eft ir lifa 3 synir, Agúst bóndi í Bjólu, Guðjón fyrv. bóndi í Rifs- halakoti og Óskar læknir í Rvik. Þegar nú Einar Guðmundsson er dáinn, þá leitar hugur minn aftur í tímann til bernskuára minna í Bjóluhverfinu. Jeg á þaðan margar minningar um gömlu hjónin í Bjólu og þessar minningar eru allar bjartar og fagrar, svo að þar ber engan skugga á. Eitt hið fyrsta, sem jeg man eftir Einari Guðmundssyni er það, að hann var staddur á heim- ili foreldra minna. Jeg hafði eign ast blýantsstubb og jeg vildi líka eignast blað til þess að krota á. Einhverra hluta vegna var kvabbi mínu um blað ekki sinnt og jeg grjet. Þá sagði Einar: „Komdu með mjer heim að Bjólu jeg á nógan pappír handa þjer“. Og hann tók mig og leiddi mig fram á efri ár. Jeg lærði ungur að virða Einar á Bjólu, og sú virðing hefur farið vaxandi eftir því, sem jeg þrosk- aðist og kyntist lífinu betur. •— Hann eignaðist fyr og síðar marga vini meðal barnanna í Bjóluhverfinu, og þessir vinir hans munu aldrei gleyma honum, en altaf þakka honum. Þótt Einar Guðmundsson byrjaði búskap sinn fellisvorið mikla 1882, þá r«rð hann stór- bóndi og vor eftir vor bjarg- vættur margra manna í heyleysi og harðindum. Hann hafði löng- um margt hjúa og mikil umsvif, og margir munu hafa talið hann efnishyggjumann. Hann var og af ýmsum talinn harður viðskiftis og óvæginn í deilum. En jeg full- yrði, að hafi menn komið til hans samningaleiðina, þá hafi flestir getað farið af hans fundi ánægð- ir með erindislok. Væri honum aftur á móti sýndur yfirgangur, þá átti hann það til að bregða hvössum brandi, því að bann var skapmaður mikill og ljet þá hlut sinn ógjarnan. Enginn, sem þekkir hann, ef- ast um það, að hann var miklu meira en meðalmaður. Hann var karlmenni í sjón og raun. Allar gekk óhaltur, þótt hann hefði sollið sár á fæti, og spurði hann, hvernig slíkt mætti vera. — Þá mælti Gunnlaugur: „Eigi skal haltr ganga, meðan báðir fætur eru jafnlangir". En hirðmaður Eiriks jarls hlýddi á og mælti: Hann rembist mikið íslending urinn“. Mjer finst Einar Guðmundsson hafa haft svipmót nokkuð af Gunnlaugi ormstungu, þegar hann gekk fyrir Eirík jarl. Það var metnaðurinn fyrir sjálfan sig og land sitt, sem gerði Gunnlaugi fært að ganga óhaltur fyxir hinn norska jarl. Það var metnaður- inn fyrir sjálfan sig og íslenska bændastjett, sem gerði það að verkum, að Einar í Bjólu gat stað ið jafnkeikur, hvort sem hann átti í höggi við bóndann eða valds manninn. Mjer er líka nær að halda að sumum sendimönnum hins opinbera, hafi þótt bóndinn í Bjólu á stundum óþarflega ein- arður og hnakkakertur, ekki síð- ur en hirðmanni Eiríks Hákonar- sonar fanst Gunnlaugur orms- tunga á sínum tíma. Þó mun eng- inn, sem þekti Einar, segja að hann hafi verið rembilátur mað- ur. (Framh. á bls. 12) NEFND MANNA úr Húnaþingi er komin hingað til Reykja- víkur, til þess að vinna að-því, og finna möguleika til þess, að endurbyggð verði og stækkuð rafstöðin í Sauðanesi við Laxárvatn. En frá þeirri stöð fær Blönduós rafmagn sitt. í nefndinni eru þessir: Guð- brandur ísberg, sýslumaður, f. h. sýslunnar, Steingrímur Davíðsson, skólastjóri, oddviti Blönduóshrepps, Gunnar Gríms son, sýslunefndarmaður, f. h. Höfðahrepps og frá samvinnu- fjelögunum, Kaupfjelaginu og Sláturfjelaginu, Jón Baldursson kaupfjelagsstjóri og Runólfur Björnsson, frá Kornsá. Það er stjórn rafveitunnar sem kosið hefur nef'nd þessa, en prír aðilar standa að rafveit- unni, sýslan, Blönduóshreppur og samvinnufjelögin, — sagði Guðbrandur ísbev?. við Mbl. í gær. Hann skýrði svo frá: Raforkan, sem fæst frá þess- ari stöð, er nú orðin mikils til of lítil. Er stöðin byggð fyrir 220 kw. en hefur verið yfir- keyrð allt upp í 290 kw. vegna þess hve þörfin fvrir rafmagn hefur aukist. Auk þess hafa verið settar upp tvær diesel- vjelar, er gefa 70 kw. hver. Vjelar stöðvarinnar eru nú orðnar mjög slitnar Þær hafa verið í notkun þarna í 15 ár, en voru keyptar f-á Noregi 15 ára gamlar. Rafveita þessi hef- ur verið rekin með góðum hagnaði. Var skuldlaus að kalla fyrir tveimuc árum, en hefur nú safnað nokkrum skuld um að nýju, vegnr. vjelabilana og uppsetningar á dieselvjelun um. Tekjurnar á þessu ári verða um 140 þúsund krónur, en rekst urskostnaður lítill. Gerð hefur verið áætlun um endurnýjun og stækkun á raf- veitu þessari. Hefur Rafmagns- eftirlit ríkisins samið þá áætl- un. Er fyrirhugað að hin endur- byggða rafveita g°ti framleitt um 1400 kw. Þarf þá að hækka stífluna við Laxárvatn, og bækka vatnsborðið í Svína- vatni með annari stíflu til vatns miðlunar. Þegar rafmagnið er orðið þetta mikið, á að leiða það til Skagastrandar. En þar er nú ekkert rafmagn, sem framleitt er við vatnáorku, en dieselvjelar notaðar til fram- leiðslu á ljósarafmagní og til hraðfrystihúsanna Fólki hefur fjölgað á Skaga- strönd á síðustu árum, svo að þar eru nú um 500 íbúar, en voru 300 fyrir 4 árum síðan. íbúar álíka margir í báðum þessum kauptúnum. Má gera ráð fyrir, að hvert kauptún- anna fyrir sig þurfi strax a. m. k. 500 kw. og er þá ekki of mikið í lagt, að auka orkuna upp í 1400 kw. Næsta sporið gcríi verið það, að reisa stöð við ytri Laxá, ná- lægt þar sem leiðslan lægi út að Skagaströnd. Einr.ig hafa ver- ið athúgaðar aðstæður til þess að auka raforkura frá Laxá hinni fremri með því að reisa rafstöð milli Svínavatns og Lax árvatns. En þá yrði vatnið úr Svínavatni notað tvisvar. — Við erum að vona, segir Guðbrandur ísberg að lokum, að við getum fengið löggjöf um þessar framkvæmdir og hægt verði að byrja á verkinu, svo sem stíflugerð o. þ. h. á næsta ári, með fje, sem hægt væ.ri að fá til þess innan hjeraðs. Daiir vi!|a tryggja srg gegn ftæmtu- herdeildaniarf- semi Khöfn, miðvikudag. Einkaskeyti til Mbl. RIKISÞINGIÐ tók í gær til með ferðar frumvarp frá Hægri flokknum um skipun sjerstakr- ar þingnefndar til að athuga hvort gildandi lög sjeu næg trygging gegn glæpum við sjáll stæði landsins, öryggi þess og stjórnarskrána og meðal ann- ars hver sje trygging gegn starl semi fimtu herdeildar, eða landssvikara, sem kynnu að starfa fyrir erlend ríki. Talsmaður frv., Bjorn Kraft, Ijet svo ummælt í ræðu, að vit- að væri, að þegnskapur sumra flokka við önnur ríki væri meiri en þegnskapur þeirra- gagnvart eigin föðurlandi. Þetta sje hættuleg staðreynd, sem eigi sjer stað í mörgum lýðræðislöndum Evrópu. Þegar sett sje löggjöf gegn fimtuher- deildarstarfsemi verði að gæta þess, að veikja ekki grundvall- aratriði lýðræðisins. En að þau lýðræðislönd, sem leyfi undir- búning að því að lýðræðisfyrir- komulaginu sje steypt sjeu a'ð fremja sjálfsmorð. Þingmenn fylktu sjer alment um frumvarpið og var því vís- að til sjerstakrar nefndar. — Páll. 50 présent íram- leiðsluaukning á 10 árum! London í gærkvö'ldi. í VIÐTALI, sem Paul Hoff- man, framkvæmdastjóri Við- reisnaráætlunar Evrópu, átti við frjettamenn í dag, kvaðst hann líta svo á, að Bretar gætu aukið framleiðslu sína' um 50 prósent á næstu tíu ár- um. Hoffman fór mörgum við- urkenningarorðum um breska. iðnaðinn og kvaðst í engu landi bafa sjeð jafn myndar- legar tilraunir til að auka framleiðsluna. Hoffman leggur af stað flug leiðis til Kína í kvöld, en þar mun hann kynna sjer mögu- leika til aukinnar aðstoðar. —• Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.