Morgunblaðið - 19.01.1949, Side 4

Morgunblaðið - 19.01.1949, Side 4
4 MGRGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. janúár 1949« > — Crein Hannesar Jónssonar : (Framh. af bls. 2) Ibann gengið frá samningum við Éandaríkjastjórnina, sem tryggðu íslandi ábyrgðarverð ríkisstjórnarinnar á fiskinum. Samningar þessir voru gerð- >r í byrjun október og gekk Eandaríkjastjórn að því að Jcaupa alla freðfisframleiðslu okkar, sem óseld var í haust. ,.Fiskurinn verður allur greiddur í dollurum", sagði *Thor. ,,en hann verður sendur til Þýskalands. Iiingað til hef- ur órðið nokkur dráttur á af- .skipun fiskjarins vegna þess að Þýskaland og Bandaríkin hafa <Kir. ekki komið sjer saman um nokkur atriði í sambandi við kaupin. Fiskurinn er samt seld ux og samningarnir milli Is- -lands og Bandaríkjanna undir- ritaðir". Senaiherrann hjelt áfram og sagði. ,.Þátttaka okkar í Mars- baltáætluninni og viðreisn Evr- ópu hefur orðið okkur til mikils gagns í sambandi við afurða- .sölu okkar. Við höfum ekki að- eins fengið lán til að bvggja upp síldarútveginn. heldur höf- um við líka öðlast aðstöðu til rnjög hagkvæmra sölusamninga á freðfiski og síldarlýsi. Okkur er mikill hagur í þessai'i við- nkiptaaðstöðu, svo þátttaka okk ar í Marshallhjálpinni er okk- ur til hagnaðar á meira en einn veg'. fíappasæll maður. Thor Thors hefur verið eink- ar happasæll maður. Hann hef- ur haft sanna hamingju af að Jþjóna þjóð sinni af öllum kröft- um í mörgum þýðingarmestu málum Islands. Starfsgleði hans og einlægur þjónustuvilji við þjóðiná hefur leitt af sjer að hvert það starf sem hann hefur wnnið, hefur verið afburða vel leýst af hendi. Það hefur verið liamingja íslands og hamingja TTiors að hann er sístarfandi at- •orkumaður, sem finnur sanna #;leði í að leysa hvert starf sem fullkomnast af hendi. En hamingja Thor Thors fcyggist ekki eingöngu á starfs- gleði hans. Hann er óvenju Tiappasæll í hjónabandi sínu. Árið 1926 giftist hann framúr- íkarandi elskulegri konu, frú Ágústu Thors, Ingólfsdóttur, ’Gíslasonar, læknis i Borgarnesi. Það hefur verið hlutverk þess arar konu að standa við hlið Thors í öllu starfi hans og ann- ríki. Hún hefur fært lífi hans ást og unað og stjórnað heimili lians. Með henni hefur hann oignast og alið upp þrjú börn Margrjeti, Ingólf og Thor. Heimilishamingja sendiherrans liefur sennile^a verið bjartasti J>átturinn í lífi hans, en starfs- gleðin hefur verið önnur ham- ingjulind hans. Heimilir.ham- ingjuna á hann að þakka frú Ágústu, en happasældma í fitarfi sínu vinnugleði sinni. 5 [ j Ung stúlka óskar eftir i einhverskonar | aivbnu | | eftir kl. 2 á daginn. Til- i I boð merkt: „1931—557“, } I sendist Morgunblaðinu | I fyrir laugardagskvöld | Thor Thors er hamingjumaður, því hann kann listina að elska konu sína, fjölskyldu, störf og þjóð. Hannes Jónsson. Beihiskorlurinn og álgerSin V’iðta! við Óskar Malláéfssoti MORGUNBLAÐIÐ hitti Óskar Halldórsson útgerðarmnnn að máli og spurði hann frjetta af norsku beitusíldinni sem stend- ur til að flutt verði til landsms. Hann sagði að það hefði ver- ið mikil ótíð við Noregsstrend- ur að undanförnu, það hefði komið stutta stund veiðiveður og skip hefðu orðið vör við síld og samkvæmt símtali sem hann átti við Aalesund í gær er .ill- veður á miðunum og öll skip í höfn. Það er ekkert nýtt fyr- irbrigði, sagði Óskar, að hingað sje flutt inn norsk síld ti! beitu, það hefur skeð nokkrum sinn- um áður. Það sem gildir er að ná í fyrstu síldina. Hún er feit- ust og best til beitu og getur verið mjög sæmileg. Má jafna henni við rýra Faxaflóasíld. Síðastliðið ár keyptu Norð- menn nokkur þúsund tunnur af frystri Hvalfjarðarsíld t’l beitu af okkur og líkaði þeim sú síld vel. Frystihúsin við Faxaflóa frystu veturinn 1948 meira af síld en þörf var fyrir til beitu á vertíðinni og þegar vertíð hætti voru menn í vandræðum með þessa síld og vildu ekki eiga hana til- næstu vortíðar. Solumiðstöð hraðfrystihúsanna seldi svo þessa síld til Frakk- lands í sumar til manneldis þar. Hefði menn órað fyrir að Hval- fjarðarsíldin mundi bregðast hefði þessi síld aldrei verið flutt úr landi. — Hvað verður mikið keypt til landsins af beitusíld? — Jeg held það verði 16—18 þúsund tunnur. Jeg hef heyrt menn giska á 25—30 þúsund tunnur, en það er alt of hátt magn, að mínu áliti, þVí í apríl- byrjun kemur venjulega síld hjer á grunnið við Grindavík, Hafnir, Keflavík og víðar og þá verður farið að afla hennar. — Hvað verður verðlð á norsku síldinni? — Jeg held það verði kr. 1,25 kílóið með öllum kostnaði, korn ið á bíl hjer í Reykjavík Beitu- nefnd lítur eftir dreifingu og verði síldarinnar og skamtar mjög lítinn ágóða, líklega 4% fyrir þessa erfiðu og áhættu- sömu verslun. — Hvenær kemur fyrsta síld- in? — Jeg ímynda mjer að komi hingað 1—2 smáfarmar fyrir lok þessa mánaðar, því síld þessi þarf að koma strax og dreifast í þær verstöðvar sem enga eða litla beitu eiga, en aðal magn síldarinnar mun koma með Eim skipafjelagsskipi ura 10. febr., því þannig stendur á ferðum frystiskipa Eimskipafjelagsins að þau geta ekki verið hjer fyrr og önnur íslensk frystiskip hef- xr ekki verið hægt að fá. 19. da$:ur ópsins. Sólaruppkoma kl. 9.46. Sólarlap ki. 13.32 Árdegisflæði kl. 8.40. Síðde^isflæði kl. 21,00. Næturvörður er í Ingólfs Apóteki sími 1330. IS’æturlæknir er i lækna^arðstof- nnni, sími 5030. Næturakstur annast Hreyfill. sími 6633. Söfnin Landsbókasafnið er opið kl. 10— 12, 1—7 og 8—10 al!a virka daga nema laugardaga, þá kl. 10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasafnið kl. 2—7 allc. virka daga. — Þjóðminjasafmð kl. 1—3 þriðjudaga. fimmtudaga og sunnudaga. — Lisíasafn Einars Jónssonar kl. 1,30—3,30 é sunnu- dögum. — Bæjarbókasafnið kl. 10—10 alla virka daga nema laugar- daga kl. 1—4. INáttúrugripasafnið opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju daga og fimtudaga kl. 2—3. Gengið Sterlingspund .............. 26,22 100 bandarískir dollarar --- 650,50 I 100 kanadiskir dollarar______ 650.50 100 sænskar krónur ------ 181,00 | 100 danskar krónur ------ 135,57 , 100 norskar krónur -...... 131,10 100 hollensk gyllini......245,51 100 belgiskir frankar ...... 14,86 1000 franskir frankar.......- 24,69 100 svissneskir frankar ..— 152,20 Bólusetning. gegn barnaveiki heldur áfram og er fólk ómint um, að koma með börn sin til bólusetningar. Pöntunum er veitt móttaka í síma 2781 aðeins á þ.iðjudögum kl. 10—12. Ungbarnavernd Líknar, Templarasundi 3, er opin á þriðju dögum, fimmtudögum Og föstudögum kl. 3,15—4. Silfurbrúðkaup 25 óra hjúskaparafmæli eiga í dag hjónin Jóhanna Guðjónsdóttir og Þ.,rleifur Eggertsson. Barónsstíg 3. Hjónaefni Sl. laugardag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Ölöf Stefánsdóttir. Minni Borg. GrmsneSi og Einar Einarsson, Seyðisfirði. Brúðkaup Sl. laugardag voru gefin saman í hjónaband af sr. Bjama Jónssvni, ung frú Sigrún Pálsdóttir, og Hjörtur Hjartarson sjómaður. Heimili þeirra verður á Fossvogsbietti 18. Handknattleiksmót íslands 1 kvöld kl. 8 keppa að Hálogalandi Valur — Ármann og l.R. — Víking ur Ferðir frá Ferðaskrifstofunni. Sunddeild K. R. hjelt aðalfund sinn s.l. mánudags kvöld. 1 stjórn voru kosnir: Magnús Thorvaldsen, formaður, Einar Sæm undsson, varaformaðnr, Sigurður Jóns son, ritari, F.inar Sigui-vmsson, gjald keri og Pjetur Jónsson, meðstjórnandi Til bóndans í Goðdal U. H. 50, H. G. 500, Grjeta 5, Inga 50, M. S. S. spilagróði 321, N. N. 25, S 50, H. U. 50. S. og Þ. 30, Guðm. og Hildigunnur 50, Deffa 100, H. Þ. 100. Blöð og tímarit Frjáls verslun. 11.—12. hefti 1948 hefir nýlega borist hlaðinu. Efni er j m.a.: Margt reynt — margt tekist, eftir Vilhjálm Þ. Gíslason. skilastjóra Langt er liðið siðan. eftir Einar Ás- mundsson, hrl., fyrsta ritstjóra blaðs ins, Svolítið uppgjör eftir Baldur Pálipason, Fræðsluferil Sir Francis Drake, eftir læif Beckman. Eftirtald ir menn skrifa uxu nemendasaniband Heillaráð Danski híbýlafræSingttri.nn Ulla Tafdrup sýnir á þessum tveim- iii myndum, hvernig nota má plássið í liílu eldhúsi til hins ítrasta með því að hafa eldhúsborðið tvöfalt. Neðra „bprðið“ er einskonar skúffa, sem er hæfilega liátt til þess að húsmóðirin geíúr bakað á því og börnin borðað við það, áður en þau fara í skólann á morgnan^. . Verslunarskóla Islands tiu ára; Kon ráð Gislason, Magnús Kjaran. Hró- bjartur Bjarnason, Vilhj. Þ. Gíslason, Víglundur Möller og Óiafur Sigurðs son, Andrew Carnegie. eftir H. IVIaur er. Þú er í blaðinu Innanbúðar og utan, verslunartíðindi, minningarorð um látna verslunarmen. Stafsskýrsla V. R. árið 1948, eftir Guðjón Einars son. formann V.R. Fjelagsannáll. leik rit, eftir Alexander KieJland. bóka dálkar o. ml. fl. Skipafrjettir: Eimskip: 1S. jan.: Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss er í Reykjavik. Goðafoss fór frá Reykja vik 15. jan. til Þýskalands. Lagarfoss er í Reykjavík. Reykjavík fór frá Gautaborg 14 jan. til Leith og Reykja víkur. Selfoss kom til Hull 16. jan. frá Rotterdam. Tröllafoss kom til New York 16. jan. frá Reykjavík. Horsa er á Þingeyri. lestar frosinn fisk. Vatnajökull fór frá Antwerpen 13 jan. til Reykjavikur. Katla fór frá Reykjavík 9. jan. til New York. ftikisskip 18. jan.: Esja fer frá Reykjavík kl. 20 í kvöld vestur um land í hringferð. Hekla er í Álaborg. Herðubreið er væntan let- til Akureyrar í dag. Skjaldbreið er í Reykjavík. Súðin var á ísafirði í gær á suðurleið. Þyrill er í Reykja vík. Hermóður var á Patreksfirði í gær á norðurleið. Sverrir er á Breiða firði. E & 2. 18. jan.: Foldin er væntanleg til J.ondon á miðvikudagskvöld. Lingestroom er væntanlegur til Færeyja á fimmtu- dagskvöld. Reykjanes er á Vestfjörð um, lestar saltfisk til Grikklands. Leiðrjetting 1 frjett um afmæli Þórs Guðjóns- sonar á Akureyri, sem birtist hjer í blaðinu 9. þ. m. varð meinleg prent- villa, þar sem kvennaskóli misprent- oðist fj'rir kennaraskóli. J ólatr j esskemtun Elliheimilisins 1 frjett um jólatrjesskemmtun Elli- heimilisiiis í Sjálfstæðishúsinu í fjTra dag, þótti það ekki koma nógu greini lega fram, að Sjálfstæðishúsið bauð gamla fólkinu og gestum þess upp á ókeypis veitingar og viðurgerning all- an, sem þar var látinn í tje. Þessa hefur forstjóri Elliheimilisins beðið • Jeg er að velta því fvrir mjer — hvort misliu veggfóSnr sje nukkurskonur fóðurblanda. blaðið að geta og jafnframt færa bestu þakkir frá gamla lólkinu fyrir rausnina og ánægjulega kvöldstund I alla staði. Útvarpið: 8,30 Morgunútvarp. — 9,10 Veður fregnir. 12.10—13,15 Hádegisútvarp 15,30—16.30 Miðdegisútvarp. 18,25 Veðurfregnir. 18.30 íslenskukennsla. — 19,00 Þýskukennsla 19,25 Tónleik ar: Lög leikin á gítar og madólín (plötur). 19,45 Auglýsingar. 20,00 Frjettir. 20,30 Kvöldvaka: a) Oscar Clausen rithöfundur flytur erindi: Þegar tugthúsið var reist í Skólavörðu holti. b) Steingerður Guðmundsdótt ir leikkona les kvæði eftir Einar Bene diktsson. c) Upplestur Þj/ðsögur. Enn fremur tónleikar. 22,00 Frjettir og \ eðurfregnir. 22,05 Óskalög 23,00 Dagskrárlok. Framh. af bls. 1 myndu fylgja Kuomintang- stjórninni ef nauðsynlegt reynd ist fyrir hana að flytja. — Af meira en 50 fulltrúum erlendra ríkja í Nanking, sem fengu sam hljóða beiðni frá kínversku stjórninni, svöruðu aðeins þess- ir þrír játandi. Ástæðurnar Talið er, að Rússar og leppríki þeirra hafi einkum þrjár ástæð- ur til þessa. í fyrsta lagi myndi það hreinsa Rússa af ásökunum um, að þeir sjeu að skifta sjer af innanríkismálum Kína. 1 öðru lagi gæfi það til kynna, að Rússar stæðu við Moskvu-sam- þykktina, en samkvæmt henni viðurkenndu Rússar stjórn Chiang-Kai-sheks. í þriðja lagi myndu Rússar á þennan hátt fa tældfæri til þess að fylgjast með hinni vaxandi hreyfingu komm únista í Suður-Kína, þar sem 60 þús. vopnaðir menn eru sagð ir bíða eftir fyrirskipun um að gera uppreisn. 1 Sigurður Ólason, hrl. — : Málflutmnsaskrifstofa Lækjargötu 10B. j Viðtalstimi Sig. Ólas., kl. í 5—6, Haukur Jónsson, ; cand. jui kl 3—6. — I Sími 5535 ......... n n l HUIHill

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.