Morgunblaðið - 19.01.1949, Page 6

Morgunblaðið - 19.01.1949, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. janúar 1949. Landssamband ísíenskra úívegsmanna — Rifnefnd L. í. Ú. Vandamál sjávarútvegsins verð UNDANFARNAR vikur og mánuði hefur mikið verið rætt og ritað um sjávarútveginn, út- vegsmenn og heildarsamtök út- vegsmanna, Landssamband ísl. útvegsmanna. Þetta er að sjálfsögðu mjög eðlilegt þegar þess er gætt, að þjóðarheill er undir því kom- in, hvernig málefnum aðalat- vinnuvegar þjóðarinnar er hátt- að á hverjum tíma, en engum mun nú dyljast — að afkoma þjóðarinnar allrar byggist á því, að hægt sje að afla sem mestra verðmæta úr hafinu um- hverfis landið og nota til þess að fullu öll þau tæki, sem þjóð- in hefur eignast á síðustu órum í því skyni. Þessu marki verður hinsveg- ar ekki náð nema á þann hátt, að útgerð íslenskra fiskiskipa, stórra sem smárra, sje arðvæn- leg og heilli menn til aS leggja fram fjármuni sína og starfs- krafta, en ekki þegar svo er ástatt, að fyrirsjáanlegur tap- rekstur er framundan, eins og verið hefur hin síðari ár, nema óvenjuleg aflabrögð komi í aðra hönd. Aflabresturinn á síldveiðun- um síðustu fjögúr árin, hin gíf- urlega dýrtíð og verðbólga í landinu, samhliða hinni miklu eftirspurn eftir vinnuaflinu, frá útflutningsframleiðslunni, til óarðbærrar vinnu í landi svo sem framkvæmda ríkis og bæjarfjelaga, ofþenslu í iðnaði og verslun, hefur allt þjarmað svo að sjávarútveginum, að vjelskipaflotinn er nú að þrot- um kominn, gömlu togararnir eru flestir hættir veiðum, nokk- ur hinna nýju botnvörpuskipa rekin með tapi og mörg þeirra berjast í bökkum. Landssamband ísl. útvegs- manna hefur sýnt fram á þetta með skýrslum og margskonar upplýsingum, sem eklti hafa verið vjefengdar. Og samt sem áður hefur fengist betra verð fyrir útflutningsafurðirnar á er lendum mörkuðum eftir ófrið- arjokin, en bjartsýnustu menn gátu gert sjer vonir um. Ástandið í málefnum sjáv- arútvegsins er því svo alvarlegt í Úag, að það gegnir furðu að eHki skuli vera fyrir löngu bú- ið að grípa til nógu alvarlegra ráðstafana til að knýja fram leið rjettingu í þessum efnum til frambúðar. Slíkt spor verður að stíga, fyrr en seinna, og áður en þetta ár er liðið, því ella er ekkert annað framundan en fjárhagslegt hrun þjóðarinnar. Forsaga. Þetta alvarlega viðhorf í mál efnum sjávarútvegsins á að sjálfsögðu sína forsögu, sem of langt yrði að greina á þessum vettvangi, en þó skal bent á nokkrar staðreyndir. Þegar samningarnir voru gerðir við breska matvælaráðu- neytið árið 1942 um fisksölu til Bretlands, var vísitala fram- leiðslukostnaðar í landinu 183 stig en verð á nýjum fiski inn- arilands, slægðum með haus, kr. 0,45 fyrir hvert kíló. Þá var af- koma vjelbátaflotans viðunandi fil frambúðar á Eftir Jakob Hafstein fram- kvæmdastjóra L. I. U. og hafði verið sæmileg og raun- ar góð frá því á árinu 1940. Eftir þetta fer alvarlega að þrengja að útveginum í land- inu. Framleiðslukostnaður fer ört hækkandi (dýrtíðin og verð bólgan) en fiskverð helst að heita má óbreytt. Árið 1943 reyndist meðal vísitala fram- færslukostnaðarins 257% stig, en fiskverð óbreytt allt árið. — Síðan hækkar vísitalan á árinu 1944 upp í 268 % og enn er fisk- verðið óbreytt. Það, sem safn- ast hafði er nú horfið og út- vegurinn byrjar að safna skuld- um. Enn hefur svo meðalvísi- talan hækkað á árinu 1945 upp í 275% stig, en fiskverðið enn að mestu leyti óbreytt, nema hvað greitt var 15% hærra verð | fyrir nokkurn hl. þess fisks, er ■ bátaflotinn seldi ísvarinn í fisk- . kaupaskip, fyrri mánuði verr- I arvertíðar það ár. Svo kemur • ; árið 1946 með meðalvísitölu . framfærslukostnaðar 292% stig I fram til nóvemberloka en hækk ar í desember í 306 stig, og það ár er fiskverðið aðeins 50 aur- ar fyrir hvert kíló. Þetta stutta yfirlit talar sínu máli um það, hvernig að þrengdi hjá vjelbátaútveginum jafnt og þjett, og þó er þess að geta, að hækkunin á vísitölu framfærslu kostnaðarins er ekki rjettur mælikvarði á útgjaldaaukningu sjávarútvegsins á þessum tíma, þar sem ýmislegt, er útvegur- inn þarfnaðist til reksturs síns, og ekki hafði áhrif á útreikn- ing dýrtíðarvísitölunnar, liækk- aði enn meira en vísitalan sjálf, og hefur hið sama átt sjer stað bæði árin 1947 og 1948. I nóvember—desember mán- uði 1946 skýrði Landssamband- ið ríkisstjórn og Alþingi frá því, að útgerð mundi stöðvast á vetr arvertíðinni, ef viðunandi lausn fengist ekki á þessum miklu vandamálum útvegsins. Lagði þá fulltrúafundur heildarsam- takanna höfuðáherslu á það, að ráðist yrði miskunarlaust á dýr- tíðina og verðbólguna í land- inu til þess að lækna þessa mein semd. Sú leið þótti hinsvegar ekki fær þá og heldur ekki síð- an. í stað þess tók ríkissjóður ábyrgð á ákveðnu fiskverði til vjelbátaflotans, sem er óbreytt enn þann dag í dag, og þar með var aðalatvinnuvegur þjóðar- innar, sjávarútvegurinn, dreg- inn í dilk með landbúnaðinum, sem þá um margra ára skeið hafði lifað á niðurgreiðslum úr ríkissjóði. Eftir að fískábyrgðarverðið kom til kastanna á árinu 1947, eða 65 aurar fyrir hvert kíló — reyndist meðalvísitala þess árs að vera rúm 320 stig og síðast- liðið ár 300 stig, eftir að vísi- talan var fest með lögunum um dýrtíðarráðstafanir laust fyrir jólin 1947. Forsaga hinna miklu vanda- mála útvegsins skal svo ekki rakin frekar að þessu sinni, þó að ótal margt annað komi hjer til greina. Útvegsmenn telja, að þeir hafi nógu tímanlega bent á, að hverju myndi stefna, og þeir hafa reynst getspakir í þeim efnum, hvað svo sem aðrir kunna að segja og hversu mörgum hnútum og skútyrð- um hefiír að þeim verið kastað að ósekju upp á síðkastið, fyrir það eitt, að standa fast saman um hagsmunamál sín. Stefna útvegsmanna. Á öllum þeim fundum og ráð- stefnum, sem útvegsmenn hafa komið saman á hjá Landssam- bandi ísl. útvegsmanna hin síð- ari ár, hefur ,,ábyrgðarleiðin“ svonefnda ekki átt almennu fylgi að fagna, heldur þvert á móti. Landssamband ísl. út- vegsmanna hefur ekki ákveðið slíkt. Öðrum ber að þakka það, að þessi leið var valin eða van- þakka. Stefna útvegsmanna og heild- arsamtaka þeirra í þessum mál- um hefur frá öndverðu verið þessi í aðalatriðum: I. Að dýrtíðin og verðbólgan væri höfuðmeinsemd atvinnu- veganna og að ráðast verði misk unarlaust á þessar meinsemdir með stórkostlegri niðurfærslu á dýrtíðarvísitölunni ásamt öðr um sannverkandi aðgerðum, til að finna framtíðarlausn og skapa raunhæfan fjárhagslegan starfsgrundvöll fyrir útflutn- ingsframleiðsluna í landinu. Reynist þessi leið ekki fær — hin svonefnda verðhjöðnunar- leið — verði framtíðarlausnin ekki fengin með neinu öðru en með rjettlátri gengisskráningu á íslenskri krónu, miðað við þarfir útflutningsframleiðslunn ar. II. Að varanleg lausn í vanda málum útflutningsframleiðsl- unnar felist í því einu, að jafn- vægi náist milli framleiðslu- kostnaðar innanlands og sölu- verðs afurðanna á erlendum markaði, þannig að hægt verði að gera út skip án fyrirsjáan- legs hallareksturs miðað við venjulegar kringumstæður, meðalafla ' og markaðshorfur — að því er snertir vjelbáta- flotann annarsvegar og hinsveg ar botnvörpuskipin eða skip, sem flytja út ísvarinn fisk á eriendan markað. Þessu marki verður hinsveg- ar ekki náð nema með þeim að- gerðum sem um ræðir í 1. lið. III. Að verði ekki talið fært að fara þessar leiðir, hefur Landssambandið bent á, að ekki væri hægt að tryggja það að sjávarútvegurinn yrði rekinn nema með neyðarráðstöfunum sem felast í því: a. Að ríkið tryggi ákveðið á- byrgðarverð á fiskinum til vjelbátaflotans og á þeim fiski, sem eldri togararnir leggja á land hjerlendis — sem óhjákvæmilega hlýtur að leiða til mikilla fjárútláta fyrir ríkissjóð árlega og b. Að útgerðarfyrirtækjum, sem orðið hafa fyrir miklum á- föllum af óviðráðanlegum or- sökum, svo sem aflabresti, verði veittur viðunandi fjár- hagslegur stuðningur, meðan afla- og hlutatryggingarsjóð- ur vjelbátaflotans er ekki starfandi. Hefur þetta verið gert vegna aflabrestsins á síldveiðunum árið 1945, 1947 og er nú í framkvæmd vegna aflabrestsins á síldveiðunum í sumar. IV. Að stofnaður verði afla- og hlutatryggingarsjóður vjel- bátaflotans, og er hjer um að ræða eitt mesta hagsmunamál bátaútvegsins, sem Landssam- bandið hefur barist fyrir í mörg ár, og má nú telja trygt að þessu máli verði stýrt heilu í höfn á þessu Alþingi. V. Að útvegsmenn fái til frjálsra umráða hluta af þeim gjaldeyri; er fæst fyrir fram- leiðslu þeirra, þar til skapaður verði heilbrigður og raunhæf- ur rekstursgrundvöllur fyrir sjávarútveginn, enda verði þeim gjaldeyri varið til kaupa á auðseljanlegum vörum og á þann hátt, innan ákvæða verð- lagseftirlitsins, að vörur þess- ar valdi ekki aukinni dýrtíð eða verðlagi í landinu. — Um fram- kvæmd þessa atriðis, eins og heildarsamtök útvegsmanna hafa lagt til, hefur áður verið skýrt á þessum vettvangi, og er því ástæðulaust að gera það frekar að umtalsefni að þessu sinni. VI. Að hverskonar trygging- argjöldum verði ljett af sjáv- arútveginum svo sem framast er unt, bæði vátryggingargjöld um af skipum, slysatryggingar- gjöldum skipshafna. sjúkrasam lagsgjöldum og veikindaforföll- um skipverja, og almannatrygg ingarnar látnar hera þann kostn að, enda er sú ruur.in á orðin, að með lögunum um almanna- tryggingar hefur útgerðinni ver ið lagt á herðar ný tryggingar- gjöld, án þess að felld yrðu úr gildi þau gjöld, í þessum efn- um, sem hvíldu á útgerðinni áður t. d í sjólögunum og ætti ekki að þurfa að vera ágreining ur um það, að hjer er um full- komið rjettlætismál að ræða. VII. Að viðurkennt verði Verðiagsráð sjávarútvegsins á sama hátt og Alþingi hefur á árinu 1947 sett lög um fram- leiðsluráð landbúnaðarins. Hjer að framan hefur verið drepið á nokkur þau atriði, sem markað hafa stefnu og baráttu Landssambands ísl. útvegs- manna á undanförnum árum fyrir bættum hag sjávarútvegs- ins í landinu. Þegar þessi atriði eru borin saman við það stutta yfirlit, sem sett var fram til skýringar á því, hvernig vanda- mál útvegsins hefðu aukist jafnt og þjett frá því á árinu 1942, ætti hver og einn að geta dæmt nokkurnveginn hlutlagt og hlutdrægnislaust um það, hvört vanþörf hafi verið á því að vinna að varanlegri lausn á meinsemdunum, sem naga rætur þessa atvinnuvegar. Vinnuaflið á rjettan stað. í framhaldi af þessu hafa svo útvegsmenn sífellt bent á það, hversu nauðsynlegt væri að beina vinnuaflinu í landinu að útflutningsframleiðslunni, með því m. a. að draga stórkostlega úr opinberum framkvæmdum ríkis og bæjarfjelaga, hætta ó- þörfum skólabyggingum, minka skrifstofubákn ríkisins, endur- skoða fræðslulöggjöfina með hliðsjón af kennarafjölda í land inu og koma á vinnuskyldu skóla fólks á' vissum aldri við arðbæra útflutningsframleiðslu þjóðarinnar. Lítið sem ekkert af þessu hefur verið gert, þó að útflutningsframleiðslan hafi átt við hina mestu og alvarlegustu erfiðleika að etja um öflun nauð synlegs vinnuafls á undanförn- um árum, og enn í dag. Það ætti þó að vera í lófa lag- ið að greiða úr þessum vanda ef góður vilji löggjafarvaldsins er fyrir hendi. Og þess fyrr, sem það er^gert því betra og auð- veldara mun það reynast. Enda mun lítill vafi leika á því, að áður en langt um líður mun heildar leiðrjetting á öllum þess um málum verða knúin fram, ef ekki af þeim, sem skipað hafa sjer saman um að vinna að hag atvinnuvega þjóðarinn- ar, þá af ennþá sterkari öflum, sem ekki verða umflúin. Grundvöllur. Eins og áður er að vikið er það höfuð stefnumál Landssam- bands ísl. útvegsmanna að vinna að því, að heilbrigður rekstrargrundvöllur fáist fyrir útgerð á Islandi. Slíkur grund- völlur er ekki fyrir hendi í dag. Sú lausn, sem fengist hefur í vandamálum útvegsins með samkomulagi fulltrúafundar L. í. Ú. hinn 11. þ. m. við ríkis- stjórnina er aðeins bráðabirgða- lausn. Enn einu sinni er horfið að því ráði að skjóta sjer und- an örðugleikunum, sem eru því samfara að taka hörðum hönd- um á höfuð vandamálunum, dýrtíðinni og verðbólgunni í landinu. Landssamband ísl. útvegs- manna telur hiklaust, að hjá því verði alls ekki komist á þessú Framhald á bls. 7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.