Morgunblaðið - 19.01.1949, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.01.1949, Qupperneq 8
8 MOHOVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. janúar 1949. Útg.: H.f. Árvakur, ReykjavHc. '^‘Í££Ær Framkv.stj. Sigfús Jónsson. Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgBarm.). Frjettar-itstjóri ívar Guðmundssor " Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1G00. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Er Stalin hlutlaus? HIN OFSALEGA barátta íslenskra kommúnista fyrir því að íslendingar stingi höfðinu niður í sandinn og ljúgi því að sjálfum sjer að hlutleysi lands þeirra sje öruggasta trygg- ingin fyrir sjálfstæði þess og öryggi fólksins gefur tilefni til þess að varpað sje fram nokkrum spurningum. Fyrsta spurningin er sú, hvort þær þjóðir, sem kommún- istar stjórna sjeu hlutlausar og afneiti þátttöku í hverskonar bandalögum eða þjóðasamsteypum. Ef athuguð er afstaða þjóðanna í Austur-Evrópu og á Balkanskaga, sem allar hafa kommúnistiskar stjórnir, að Grikkjum undanteknum, kemur þetta í ljós: Allar þessar þjóðir hafa nána samvinnu við Rússa, við- skiptalega og hernaðarlega. Svo ríkar kröfur gera Rússar tii áhrifa á innanlandsmál þessara þjóða, að þegar ein þeirra, Júgóslavar, gera lítilfjörlega tilraun til þess að viðhalda broti af sjálfsákvörðunarrjetti sínum, þá er hún sett út af hinu kommúnistiska sakramenti og lýst yfir hana ónáð Kominform, hinna alþjóðlegu samtaka kommúnista. Pólverjar, Tjekkar, Júgóslavar, Búlgarar, Rúmenar, Ung- verjar og Albanir eru þessvegna ekki hlutlausar þjóðir. Þær hafa þvert á móti lýst því yfir eins greinilega og frekast er unnt að þær sjeu í nánu bandalagi, hernaðarlegu og við- skiptalegu við Sovjet-Rússland. Með þessa afstöðu fara hinir kommúnistisku leiðtogar þessara þjóða ekki í neina laun- kofa. Þeim dettur ekki í hug að minnast á hlutleysi. Hitt er svo armað mál að auðvitað er fjöldi fólks í þessum löndum, að öllum líkindum meirihluti almennings, sem ep andvígur hinni rússnesku hernaðar- og einræðisstefnu. En kommúnistar hafa hrifsað til sín völdin í skjóli Moskva- valdsins. En þessi meirihluti fólksins, sem andvígur er komm únistum er heldur ekki hlutlaus. Hann er á móti rússnesku stefnunni og þráir ekkert meira en að geta tekið höndum saman við lýðræðissinnað fólk á Vesturlöndum. Að því hafa þá verið færð rök, að í þeim löndum, þar sem kommúnistar hafa komist til valda síðan að heimsstyrjöld- inni lauk, er ekki minnst á skjól og vernd hlutleysisins. Úr- ræði hinna kommúnistisku leiðtoga er ekki aðeins hernaðar- og viðskiptabandalag við Rússa heldur alger undirokun Þjóðanna undir Moskvavaldið. En þá kemur að annari spurningunni: Er Rússland kannske sjálft hlutlaust, er Stalin hlutlaus? Raunverulega hefur þeirri spurningu verið svarað um leið og hinni fyrri. Útþenslustefna Stalins, undirokun hverrar þjþðarinnar á fætur annarar, og alger útþurkun annara úr tölu sjálfstæðra þjóða, sbr. Eystrasaltslöndin, sannar ekki að Stalin sje hlutlaus. Hún sannar það gagnstæða, nefnilega það að honum kemur slíkt ekki í hug. Hvaða óbrjáluðum manni kemur í hug að með sókn sinni vestur meginland Evrópu sje Stalin að framkvæma hlutleysisstefnu? Þriðja spurningin, og ekki sú þýðingarminnsta fyrir okkur íslendinga, er sú, hvort liðsmenn Stalins hjer á landi sjeu þá ekki hlutlausir? Þjóðviljinn og leiðtogar íslenskra kommúnista segja að eina tryggingin fyrir sjálfstæði íslands og öryggi lands- manna sje hlutleysi þess. Sjálfir hafa þessir menn 3agt til að ísland segði tveimur stórveldum stríð á hendur. Þeir eru eitinig uppvísir að því að hafa leynt og ljóst barist fyrir hagsmunum hins rússneska hernaðarstórveldis hjer á landi. Hver trúir því, að þessir menn sjeu hlutlausir? En hversvegna vilja þeir þá að íslendingar stingi höfðinu ofan í sandinn og trúi á vernd hlutleysisins? Það er vegna þess að þeir hafa ekki völdin hjer eins og í löndunum bak við járntjaldið. Þeir vita að íslendingar eru mótfallnir yfirgangsstefnu Moskvavaldsins. Þessvegna vilja þeir umfram allt reyna að halda þeim hlutlausum og landi þeirra opnu fyrir hinum rússnesku frelsisræningjum. Tal íslenskra kommúnista nú um ást þeirra á sjálfstæði hinnar íslensku þjóðar er þessvegna argasta guðlast og öfug- mæli, sem nokkurn tíma hefur heyrst í umræðum um frels- ismál þessarar þjóðar. Þó eru til menn, sem ekki ségjast vera kommúnistar, en virðast trúa þessu lævíslega hræsnishjali. Um þá menn hæfir þetta best: Sælir eru einfaldir. \JiLuerji óhri^ar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Svangir menn í myrkri. FLESTIR Reykvíkingar hafa haft tóm undanfarna daga að í- iuga hvað við borgarbúarnir •rum orðnir háðir hinum mikla aflgjafa, rafmagninu. Þegar það fer, ■ þótt ekki sje nema stund og stund, sannast áþreif- anlega hið gamla máltæki, „að enginn veit hvað átt hefir fyr en mist _hefir“. Það fengu þeir mörgu að reyna, sem setið hafa svangir í myrkrinu þessa dagana, vegna þess, að rafmagnsstaurar brotn- u.ðu austur í Grafningi. Fæstir hugsa um það daglega hve háðir við erum rafmagn- inu á öllum sviðum. Ljósin hverfa, það er ekki hægt að sjóða mat, eða hlusta á útvarp. Jafnvel 4 heimilisverkin verða að sitja á hakanum, þegar raf- magnið fer, að minsta kosti hjá þeim sem eingöngu vinna heim- ilisverkin með rafmagnsáhöld um. — - • Sjálfsagðir hlutir. OG svo eru menn orðnir van ir því, að fá rafmagnið fyrir hafnarlaust inn í hús sín til afls og ljósa, að það hefir án efa farið fyrir í'leirum, eins og kunningja mínum, sem sat heima hjá sjer við ketraljós á su.nnudagskvöldið. Han’i sagði alt í einu: „Jæja, við getum þó að minsta kosti fengið okkur eitt lag á fóninn, okkur til dægra- styttingar“. En hann gleymdi því, að fónninn gengur fyrir rafmagni. Annar náungi var að sálast úr þorsta, en gerði ekki tilraun til að skrúfa frá va^nskrana. Það hafði gripið hann svo, að úr því ekki væri rafstraumur, þá væri heldur ekki til neins að reyna að ná sjer í vatnssopa!!! Já, það er mikill máttur, sem við höfum beislað, þar sem raf- magnið er, og alt veltut á því, að það sje í lagi. Rafmagns- skömmtunin ÞAÐ var sjálfsögð ráðstöfun hjá Rafmagnsveitunni. að skamta bæjarhverfunum raf- magnið til skiftis. Það hefði átt að tryggja, að „hver fengi sinn skamt“, eins og þar stendur. En sumir þóttust vera afskiftir í þeirri skömtun. Þannig var það í hverfinu, sem jeg bý. Rafmagnið fór hjá okkur klukkan 10,30 á sunnu- dagsmorgun. Straumur kom aftur klukkan 3, en var tekinn af klukkan 6,30 og kom svo ekki fyr en kl. 9 um kvöldið. Önnur hverfi fengu hinsvegar straum bæði fyrir hádegi og kvöldmat. Þeir, sem ekki fengu mat um hádegi, sökum rafmagnsskorts höfðu gert sjer vonir um heitan kvöldmat. En það brást af fyr greindum ástæðum. En svo lagast þetta aftur á mánudag og þriðjudag. • Kuldalegt fólk ÞAÐ er eiginlega allfróðlegt að virða fyrir sjer vegfarendur hjer á götunum í Reykjavík þegar kuldakast kemur, eða hríð eins og undanfarið. Menn virðast ekki alment eiga hlý vetrarföt, eða kunna að klæða sig út í íslenskt vetr- arveður. En nokkuð er það mis- jafnt. Það sjest maður og mað- ur á stangli, sem virðist kunna að klæða sig út í stórhríð að vetrarlagi, en fleiri eru þannig til fara, að engu er líkara, en að þeir hafi búið sig til skemti- göngu á sólríkum sumardegi. Og það má sjá mörg kuldaleg andlit á götunum þessa dag- ana. • Einkamál — og þó. . MENN kunna að segja, að það sje þeirra einkamál, hvern- ig þeir klæða sig. Það kann að vera eitthvað til í því. En það er hægt að undrast hvað marg^ ir virðast harðgerðir. Maður tekur eftir því, að „berhausaða fjelagið“ er fjöl- mennara en margur hyggur. — Ungir piltar virðast ekki nota höfuðfat. Og það er hörmung að sjá hvernig margir búa sig til fótanna. Kvenfólkinu vorkennii mað- ur meira en körlum, enda stór- merkilegt, að suma kvenfólk skuli halda heilsu eins og það býr sig. Þetta ber að skoða sem fróð- leik fremur en siðferðispistil. — En mikið má það vera, ef heilsu farið versnar ekki í bcrginni, í þessu kuldakasti. • Biðraðasiður ÞAÐ er stundum verið að hæla Rekyvíkingum fyrir, að þeir hafi furðu fljótt lært að bíða í skipulögðum röðum við aðgöngumiðasölur, eða þar sem menn hópast saman til þess að fá sig afgreidda. % Það er satt, að mikið hefur áunnist frá því, sem var hjer áður fyr, er hver og einn tróðst eins og hann hafði afl til. Leiður ósiður er það við kvik myndahúsin, þegar menn ganga eftir röðinni að fá þá, sem næst aðgöngumiðasölunni eru komn- ir til að kaupa fyrir sig aðgöngu miða. Það getur stundum orð- ið til þess, að hinir sem fóru í sína röð og biðu rólegir, missa af miðum, þar sem alt er upp- selt er röðin kemur að þeim. • Afnemum ósiðinn ÞENNA ósið þarf að afnema. Hafi þeir, sem í biðröð standa ekki einurð til að mótmæla þessari aðferð, verður að fara fram á það við ráðamenn kvik- myndahúsanna, að þeir selji hverjiím manni ekki nema tak- markaðan fjölda aðgöngumiða. Því það ætti að liggja í augum uppi, að maður, sem kaupir 6— 10 aðgöngumiða í einu ætlar annaðhvort að selja þá á svört- um markaði, eða hann er að kaupa fyrir þá, sem hafu kom- ið sjer hjá, að standa í röð.. •.. niiiini* MEÐAL ANNARA ORÐA . . . Endurskipulagning „stærsla fyrirlækis veraidarinnar" Eftir Wiliam Hardcastle, frjettaritara Reuters. WASHINGTON —• Sjerstök nefnd, sem í eiga sæti ýmsir þekktir bandarískir borgarar, stjórnmálasjerfræðingar og ráðunautar, vinnur að því um þessar mundir að reyna að finna leiðir til að auðvelda starf forseta Bandaríkjanna. Það er nú orðin viðurkennd staðreynd, að skyldur Banda- ríkjaforsetanna eru orðnar svo margar, að engin mannleg vera getur leyst þær allar af hendi. hversu gjarnan sem viðkom- andi þó vildi gera það. • • 2,000,000 STARFS- MENN SEM yfirmaður „stærsta fyrir tækis veraldarinnar“, eins og Bandaríkjamenn stundum kalla stjórnaryöld sín, falla meðal annars 76 mismunandi stjórnardeildir undir forset- ann; þessar stjórnardeildir senda skýrslur sínar beint til hans og honum er ætlað að marka stefnu þeirra. Auk þessa verður forsetinn að bera meg- Inábyrgð á stefnu stjórnarinnar ínantanus- og utanríkismál- um, að koma fram sem yfir- maður als herafla Bandaríkj- anna, leggja síðustu hönd á fjárlögin, taka þátt í margs- konar opinberun athöfnum, flytja ræður o.s.frv., o.s.frv. Nú vinnur ofangreind nefnd að því, undir forystu Herbert Hoover, fyrverandi forseta, að ganga frá tillögum um endur- skipulagningu „stærsta fyrir- tækis Bandaríkjanna“, en „fyr irtækið" hefur hvorki meira nje minna en 2,000,000 manna í þjónustu sinni. • • RÁÐGJAFANEFND HVÍTA HÚSSINS MEGINVERKEFNI nefndar- innar er að rannsaka þær skyldur sem stjórnarskrá Bandaríkjanna leggur forset- anum á herðar. í því sambandi hefur nefndin þegar skýrt frá því, að hún sje því meðmælt, að sett verði á stofn sjerstök ráðgjafanefnd í Hvíta húsinu. Forsetinn hefur að vísu fjölda aðstoðarmanna, en starfssvið þeirra þykir ekki nógu vel af- rjnarkað og illa til þess fallið, áð þéir geti í hverju máli líomið fram sem öruggir ráðu- oautar forsetans. Hin nýja ráðgjafanefnd mundi koma fram sem milli- liður milli forsetans og hinna ýmsu stjórnardeilda, auk þess sem hún mundi aðstoða forset- ann við að undirbúa og ákveða fyrirmæli sín til deildanna. ,.HREINSUN“ HOOVER-NEFNDIN vill einn- ig, að fram verði látin fara „hreinsun11 hjá stjórninni í heild. Hún gagnrýnir sjerstak-' lega þau ráðuneyti, sem fara með hervarnir Bandaríkjanna, því enda þótt landher, floti og flugher eigk nú að heita að lúta einni sameiginlegri yfir- stjórn, á sjer stað mikil tog- streyta á bak við tjöldin, og leiðtogar herjanna reyna hver um sig að ná sem bestri að- stöðu hvað fjárveitingar til herjanna snertir o.s.frv. Til þess að koma í veg fyrir þetta, vill nefndin auka völd hervarnarráðherrans til muna, gera hann að raunverulegum yfirmanni yfir ráðherrum land hers, flota og flughers og veita honúm einum umboð til að ákveða skiptingu fjárveit- inga til herjanna o.fl. Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.