Morgunblaðið - 22.02.1949, Síða 12

Morgunblaðið - 22.02.1949, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. febrúar 19+9. -- í frásögur færandi Mentamálaráð Frh af bls. 5. svo ilia við á einj.<ennishnöpp- um lögregluþjónsms. s! ÞAÐ ER ÞESSI staðreynd, að ! lögreglan kemur og gerir hvað | hún getur og leitast við að gera 1 það árekstralaust, sem fyrst og • fremst hefur farið framhjá í ströngustu gagnrýnendum henn 1 ar .... timbruðum og ótimbr- j uðum. Það eru hreinustu hugar órar að ætla, að hinir einkenn-1 isklæddu verðir laganna hjer í j Reykjavík hafi ánægju af því að setjast á höfuð samborgara sinna — sekra jafnt og sak- lausra — og „færá þá í fang- elsi að morgni“. Hitt er að lík- indum sanni nær, að lögregl- an okkar, eins og lögregla ann- ara borga, byggi starfsemi sína fyrst og fremst á tvennu: hjálp- arbeiðnum' borgaranna og skyldukallinu. Það var að minnsta kosti eng in sataniskur gleðisvipur á á- sjónu lögreglumannsins, sem jeg horfði á flýta sjer út í leigubíl fyrir utan lögreglustöð- ina nokkru eftir miðnætti, til þess að hjálpa þar foreldrum við að ráða við son. sinn, sem neytt hafði meira áfengis en sextán árin hans gátu haft hem il á vandræðalaust. Unglingur- inn var í áflogum við föður sinn úti í bílnum, en með að- stoð lögreglumannsins tókst að stilla- hann nokkuð og koma honum heim. Það varð heldur ekki vart nema góðlátlegrar gamansemi í frásögn lögregluþjónanna tveggja, sem gegndu aðstoðar- beiðrd í húsi austur í bæ, og komust að því þar á staðn- um, að borgararnir, sem deildu, hafa gert það sjer til dundurs undanfarin ár að kæra hvor annan fyrir lögreglunni .... og það fyrir banatilræði, þegar best hefur látið! Og ekki varð jeg var við nein aðfinnanleg mistök þetta laugardagskvöld mitt á lögreglu stöðinni, þegar lögreglan, svo fátt eitt sje talið: rannsakaði umfangsmikið bifreiðaslys á Hafnarfjarðarvegi, hlýddi brunakalli á Bræðraborgarstíg, handtók tvo útlendinga, grun- aða um að brjóta brunaboðann á Alþingishúsinu, gegndi hjálparbeiðnum frá kaffistof- um, samkomuhúsum og heima húsum, ók heim heilum skara af ölvuðum mönnum og hand- tók öhnum kafinn leynivínsala í austurenda Hafnarstrætis. ý JEG KVAPDI lögregluþjónana á fjórða tímanum þennan sunnu- dagsmorgunn. Jeg taldi mig þá hafa fengið þá skoðun mína staðfesta, að lögregluþjónar þessarar borgar sjeu yfirleitt jafn prúðir menn og viðfeldn- ir og Reykvíkingar eru flestir hverjir. En áður en jeg hjelt heim á leið, fylgdist jeg með því stutta stund hvernig lögreglan skipulagði með bílum sínum nokkurskonar strætisvagna- ferðir í austur- og vesturbæ- inn fyrir fólkið, sem hópaðist saman um þrjúleytið á lög- reglustöðinni og bað þar um að- stoð við að komast heim til sín. Þarna voru einstaklingar og foreldrar með börn sin — góð- ir reykvískir borgarar, sem orð ið höfðu of seinir fyrir að ná sjer í leigubíl og fannst það nú ekki árennilegt að ganga heim í bleytunni og snjónum. Jeg hafði orð á því við Pálma Jónsson varðstjóra, að ekki yrði því neitað, að vel væri það gert af lögreglunni, sem þó hefði feykinóg að snúast, að hjálpa þessu fólki. Pálmi hefur sjálfsagt minnst samtals okkar um lögregluna og afstöðu almennings til henn- ar. — Ög alt gerum við þetta af bölvun okkar, sagði hann og hló. G. J. Á. Þetta er síðari grein af tveim ur um næturheimsókn hjá lög- reglunni. Gyðingar vilja banna „Ollver íwisi" í Berlín Einkaskeyti frá Reuler. BERLÍN 21. febr. — Gyðingar í Berlín hafa krafist þess, að hætt verði að sýna kvikmynd- ina „Oliver Twist“ þar í borg, á þeim íorsendum að hún kynni að æsa upp Gyðingahatur í Þjóðverjum á nýjan leik. Hætta varð við síðdegissýningu á myndinni í dag, vegna þess að Gyðingar gerðu aðsúg að kvik- myndahúsinu og hafa eigendur þess nú lýst því yfir, að ef þeir fái ekki nægilega vernd yfir- valdanna til þess að sýna mynd- ina í friði, þá muni sýningin á henni hætt. (Framh. af bls. 9) verkfr. 3000, Málfríður Bjarna- dóttir, lyfjafræði, 2000, Móses Aðalsteinsson, byggingarverk- fr. 3000, Ólafur Gunnarsson, sálarfræði, 2000, Ólafur Einar Ólafsson, veðurfræði, 2000 Páll Halldórsson, efnaverkfr., 3000, Ragnar Hermannsson, efnafræði 3000, Runólfur Þórðarson, efna verkfræði, 3000, Rúrik Th. Har- aldsson, leiklist, 2000, Sigríð- ur Breiðfjörð, franska, 2000, Sigurbjörn Árnason, veðurfr., 2000, Sigurður Jónsson, grasa- fræði, 2000, Sigurgeir B. Guð- mundsson, skipabyggingarverk- fr., 3000, Steingrímur Her- mannsson, efnaverkfræði, 3000, Vigdís Kristjánsdóttir, málara- list, 2000, Þórir G. Ingvarsson hagfræði, 2000, Þorsteinn Ing- ólfsson, verkfræði, 2000, Þór- unn Guðmundsdóttir, málara- list, 2000 krónur. Greinargerð Um námsstyrki þá, sem Menntamálaráð íslands hefur nú úthlutað, þykir rjett að taka fram eftirfarandi atriði til skýr ingar: Fjárhæð sú, sem Menntamála ráð hafði nú til úthlutunar, nam kr. 350,000,00. Er þar miðað við upphæð þá, sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1949, 14. gr. B. II. b. — Þar sem fjárlög fyrir þetta ár hafa enn eigi verið afgreidd. er úthlutun námsstyrkjanna nú framkvæmd með þeim fyrir- vara, samkvæmt fyrirmælum Menntamálaráðuneytisins, að styrkirnir lækki, ef Alþingi kynni að veita lægri fjárhæð til þeirra, en áætlað er í fjárlaga- frumvarpinu. Styrkþegum verð ur því eigi greiddur nema helm- ingur styrksins, þar til fjárlög íyrir árið 1949 hafa verið af- greidd. Menntamálaráði bárust að þessu sinni 235 umsóknir. Er það 29 umsóknum meira en s.l. ár. Af þeim voru 113 umsóknir frá nemendum, sem Mennta- málaráð hefur áður veitt styrki. Eðlilegt þótti, að þeir nemend- ur, sem fengu styrki frá Mennta Matsvein vantar á togbát frá Reykjavík. Uppl. í sirna 7718. málaráði 1948, og stunda nám í ár, hjeldu styrkjum sínum yf- irleitt áfram. Þó var samkvæmt venju eigi veittur styrkur til þeirra, sem notið hafa styrks s.l. 4 ár, eða njóta sambærilegs styrks frá öðrum opinberum að- ilum.’- Af fjárhæð þeirri, sem til út- hlutunar var fóru kr. 237.000.00 í framhaldsstyrki. Eftir voru þá einungis kr. 113.000.00, sem komu til úthlutunar meðal 122 umsækjanda. Er því augljóst, að eigi var hægt að bæta við að þessu sinni, nema hlutfalls- lega fáum nýjum styrkþegum. Við úthlutun styrkjanna var m. a. tekið tillit til eftirfarandi sjónarmiða: Þeirri reglu var fylgt að veita yfirleitt eigi styrki öðrum en þeim, sem þegar hafa byrjað nám eða hefja það um þessar mundir. Það námsfólk, sem hyggst að stunda langt nám. var að öðru jöfnu látið sitja fyrir um styrki. Auk þess var að sjálfsögðu tekið tillit til und- irbúnings umsækjanda og með- mæla. Nokkrar umsóknir var eigi hægt að taka til greina vegna þess, að þær bárust eigi Menta- málaráði fyrr en löngu eftir að umsóknarfrestur var útrunninn. Styrkirnir eru nú, eins og s.l. ár, í tveimur flokkum, kr. 2.000.00 og kr. 3,000.00. Við ákvörðun styrkupphæðanna vara m. a. tekið tillit til fram- færslukostnaðar í dvalarland- inu. Sökum þess, hversu nýir um- sækjendur voru margir í hlut- falli við þá f járhæð, sem til ráð- stöfunar var, skrifaði Mennta- málaráð fjárveitingánefnd Al- þingis og fór þess á leit, að hún beiti sjer fyrir því að hækkuð verði um 50—100 þús. kr. upp- hæð sú, sem veitt verður til námsstyrkja á fjárlögum 1949, 14. gr. B. II. b. Svör til þeirra nýrra um- sækjenda, sem ekki hefur verið hægt að veita styrki að þessu sinni, verða því eigi send fyrr en lokið er afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár. Það skal að lokum tekið fram að enginn ágreiningur var í Menntamálaráði um úthlutun námsstyrkjanna. (Fr jettatilkynning frá Menntamálaráði). AUGLYSlNG ER GULLS IGILDl •iiiHiiiimiiiiiimiiiiiMiiiin llllllllll••ll■ll•lllMlllllllllmllll•llllllllllll•l■•lll•lllllll■llllllllllfllllllllll■•llllllll•llllllll■■lllClllllllllll■llllllllllll•llll■lllllllltlllllllll■clllllllllHllll•lllll•ll•Mlllllllllllllllll■llllll■■llll■llalll■llllllllll•lllll - Markús » lllHIIIIIIIIIIHIII IHMHHMHHHHHHHHII llllllllllflllllllll Eftir Ed Dodd I !IHIIIIIIMIimiHHIItlHI3IIIHII(IHIHIHIHIIHIMIHHHHHIHHIIIHIHIll I jV\ SORRY MARK, J PRO/VUSED GEORGE TOWNE ! TO GO OUT WITH HIAA mk . — Jæja, nú fer að styttast fresturinn, sem lesendunum var gefinn til að senda nöfn á litla fallega hvolpinn. Jeg verð líka bráðum að fara að heiman. — Til hvers ertu að fara. — Jeg ætla að taka myndir af villisvínaveiðunum. En heyrðu elskan. Eigum við að ía okkur reiðtúr saman um skóg- inn í tunglskininu í kvöld? — Mjer þykir það leitt, en jeg lofaði Towne að fara út með honum í kvöld. Akureyrarkirkju gefnir fveir hökiar AKUREYRI,' 21. febrúar: — Síðastliðinn sunnudag fór fyrsta guðsþjónusta fram í Ak- ureyrarkirkju eftir nær óslitið samkomubann og messubann síðan 20. nóv. í 12 vikur. Voru þá í fyrsta sinn teknir í notkun höklar þeir hinir fögru, er kirkjunni voru gefn- ir. Annan gaf Klæðaverksmiðj an ,,Gefjun“, og er hann alís- lenskur að efni og vinnu. Er hann úr hvítum Gefjunardúk, skreyttur með gullnu ísaumi og steinum úr Glerhallarvík. Hefir frú Unnur Ólafsdóttir saumað hann af miklum hag- leik. Hinn er franskur, gefinn af prófessor Guðbrandi Jóns- syni og konu hans, Olgu Eliza- beth, f. Petersen, til minning- ar um mæður þeirra hjóna, Olgu Elizabeth Petersen og Karólínu Jónsdóttur Þorkels- son. Við guðsþjónustuna voru báðir prestar Akureyrarkirkju fyrir altari og báru höklana, en vigslubiskup prédikaði. Að prjedikun lokinni mintist hann þessara góðu gjafa, veitti þeim móttöku fyrir hönd kirkjunnar, þakkaði gefendum og las gjafa brjef prófessors Guðbrandar og konu hans og mintist helstu æfiatriða frú Karólínu, sem fædd var í námunda við Akur- eyri og dvaldist þar bæði á yngri og efri árum. Söfnuður- inn reis úr sætum í þakklætis- skyni við gefendur. — H. Vald. — Meðal annara orða Frh. af bls. 8. deildar þeirrar, sem sá um út- nefningu ,,aðstoðaryfirmanna“ (stjórnmálafulltrúa) í hern- um. Þetta gerði þeim kleift, sjer stakl. sem yfirmönnum lögregl unnar, að losa sig við andstæð- inga sína innan stjórnarinnar og endurskipuleggja herinn, eft ir að stjórnmálafulltrúarnir höfðu beitt sjer fyrir hreinsun innan fylkinga hans og þannig sigrast á andkommúnistunum þar. • e RAUÐI HERINN MYNDUN „föðurlandsfvlking- arinnar“, hjelt Dimitrov áfram, sem að stóðu „alirr lýðræðis- og föðurlandsvinir', styrkti enn aðstöðu kommúnista. Meginá stæðan var sú, að í „föðurlands fylkingunni“ tókst kommúnista leiðtogunum að ganga þannig frá hnútunum, að „aðal áhrifa embættin lentu í höndum kommúnistaflokksins'. Dimitrov lauk yfirliti sínu yfir valdaránsaðferðir komm- únista og notkun þessara að- ferða í Búlgaríu með nokkrum viðurkenningarorðum til Stal- ins vinar síns og Rauða hers- ins. — Fremur öllu öðru, sagði búlgarski einræðisherrann, gátu kommúnistar í Búlgaríu þakkað þeirri staðreynd sigur sinn, að „rússneski þjóðfrelsis herinn dvaldi í ættlandi voru, en nærvera hans ein nægði í siálfu sjer til þess að gjöreyða áhrifum afturhaldsaflanna11. Þetta sagði kommúnistaleið- toginn i Búlgaríu, sem, eins og aðrir kommúnistar, til slcamms tíma hjelt því fram, að Rússar hefðu engin afskipti af innan- landsmálum leppríkjanna aust an járntjaldsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.