Morgunblaðið - 24.02.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.1949, Blaðsíða 1
16 síðmr Bandar, mófmæla handíöky 15 húlgarskra presla Einkaskeyti til MorgunblaSsins frá Reuter. • WASHINGTON, 23. febr. — Utanríkismálaráðuneytið hjer til- ; kynnti í dag, að búlgarska stjórnin hefði virt að vettugi mót- mæli þau, er Bandaríkin sendu 21. febr. s.l. gegn handtöku 15 . presta mótmælendakirkjunnar í Búlgaríu. Prestar þessir eru • sakaðir um njósnir, fyrir Breta og Bandaríkin, föðurlandssvik og svartamarkaðsbrask með bandaríska dollara. Úr lausu lofti í orðsendingu Bandaríkjanna J sagði: „Slíkar ásakartir eru gjörsamlega gripnar úr lausu ' lofti og eru næsta skoplegar. Þær eiga sjer enga stoð í veru leikanum, og eru bornar fram til þess eins, að reyna á grimmd arfullan hátt að kúga Teið-1 toga mótmælendakirkjunnar í; 1 Búlgaoríu til hlýðni við kom- múnismann“. Búlgarar svöruðu engu í orðsendingunni bentu Bandaríkin og á það, að sam- kvæmt friðarsamningunum við Búlgaríu, hefðu þau skýlausan rjett á því, að fulltrúi banda- ríska sendiráðsins yrði við- staddur rjettarhöldin yfir prest unum, er hefjast munu n. k. föstudag. Búlgörsku yfirvöldin svöruðu þessu engu. % Sýningum á ir0lim Twisfrr fresfað í Vínarhorg VÍNARBORG, 23. febr. — Á- kveðið hefir verið að fresta sýn ingum á bresku kvikmyndinni „Oliver Twist“ hjer í Vínar- borg. Gyðingar og kommúnist- <ar halda því fram, að alið sje á Gyðingahatri í myndinni og hafa krafist þess að hún verði bönnuð. — Reuter. PARÍS, 23. febr. — Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins tilkynti hjer í dag, að Frakkar gætu ekki fallist á íillögur „hinnar hlutlausu nefndar11, sem Öryggisráðið skipaði til þess .að leysa Berlínarvanda- málið. — Hann bætti því við, að bæði Bretar og Frakkar styddu gagntillögu Bandaríkj- anna, þar sem gert er ráð fyrir að gjaldmiðill Rússa gildi í allri Berlín og fastanefnd hlutlausra meðlima Öryggisráðsins geri út um öll deilumál, er upp kynnu að koma á sviði efna- hags- og fjármála. — Reuter. Ræf! um viMiffi LONDON, 23. febr. — Viðræð- ur um fjármál og viðs*kifti milli Bretlands og Póllands hóf ust hjer í .London í dag. Rætt var um skaðabætur til breskra fyrirtækja vegna eigna þeirra er gerðar hafa verið upptækar í Póllandi og einnig um greiðsl ur á stríðsskuldum Pólverja við Breta. — Formaður pólsku sendinefndarinnar er aðstoðar- fjármálaráðherra landsins. Ed- I ward Drozniak. — Reuter. Ræöa hans vakfi feikna gremju í Frakklandi Einkaskeyti til Mbl. írá Rsnter. PAEÍS 23. febr. — Utanríkis- málanefnd franska þingsins samþykkti í dag, með 21 at- kvæði gegn 13, að krefjast þess að umræður fari fram í þinginu um ummæli kommúnistaleið- togans Thorez í gær, er hann sagði að Frakkar ættu nð taka vel á móti Rússum, ef til< kæmi að þeir yrðu að „elta óvini sína“ innyfir landamæri Frakklands. Ennfremur fullyrti hann, að Rússar hefðu aldrei, og myndu aldrei hyggja á árásarstríð. Þessi ummæli Thorez liafa vakið óhemju mikla reiði allra flokka (nema kommúnista) í Frakklandi, enda játaði hann með þeim, svo eigi verður um villst, að franskir kommúnistar mætu meir hagsmuni Rússa og leppríkja þeirra, en síns eigin löðurlands. — Umræðurnar um ummæli Thorez fara fram í franska þinginu síðdegis á morgun, og er búist við að þær verði mjög heitar. Bíða menn þess með eftirvæntingu, hvaða skýringu Thorez muni gefa á landráðatali sínu. © a’S ® mmi iaigo undirritaður i 4éte?æla iémnum yfir Hindszenty Dóanur ungversku kommúnistanna yfir Mindszenty kardinála hefur vakið reiði um allan heim og mótmæli frá lærðum sem leikum hafa komið fram út af þessum dómi. Víða hefur verið efnt til mótmælafunda. Myndin hjer að ofan er frá mófmæla- fundi kvenna, sem haldinn var í Ncw York. Þúsundir kvenna tóku þátt í rr.ótmælafundinum og sumar konurnar báru spjöld þar sem aðferðum kommúnista var mótmæit harðlega. öfrar Ferðalög útlendinga í landinu fakmörkuö Einkaskeyii til Morf>un!>luðsins frá Reuter. PRAG 23. febr. — Tjekkneska þjóðþingi-ð hefur nú samþykkt lög, þar sem stjórn landsins er gefið vald til þess að takmarka „eftir þörfum“ ferðalög útlendinga í Tjekkóslóvakíu. Samkvæmt þess- um nýju lögum, verða tjekkneskir borgarar, að viðlagðri þungri refsingu, að gefa skýringu á og skýrslu um öll sín ferðalög. Að dæmi Rússa Á undanförnum vikum hafa tjekknesku yfirvöldin innkall að nær öll tjekknesk vegabrjef, Augljóst þykir, að Tjekkar muni ætla að fara að dæmi Rússa, og gefa aðeins út vega- brjef til þeirra, sem .yfirvöld- in hafa lagt blessun sína yfir, en slík vegabrjef eru altaf inn- kölluð þegar er viðkomandi er kominn heim úr ferðalaginu. Er þar með loku fyrir það skot LONDON, 23. febr. — Bresk- ið, að nokkur komist úr landi ar og bandarskar flugvjelar hafin í tjekkneska utanríkis- ráðuneytinu- Als hafa 80 manns verið reknir þaðan. Telja frjetta ritarar, áð þetta standi í sam- bandi við nýja alsherjarhreins un, er senn muni hefjast í öll- um leppríkjum Rússa. 7900 smálestir nema með vitund og vilja yfir- valdanna. Mreinsun í utanríkisráðuneytinu settu nýtt met í dag, er þær fluttu 7900 smálestir af vistum til Berlínar á 24 klst. Er það 400 smálestum meira, en flutt á frið- við a Einkaskeyti til Morgunblaðsins. RHODOS 23. febr. — Níu mán- aða ófriði milli Gyðinga og Egypta í Palestínu lýkur á morgun, er friðarsamningar verða undirritaðir hjer á Rho- dos. Undanfarnar fimm vikur hafa staðið hjer yfir friðarvið- ræður, undir yfirstjórn dr. Bunche, sáttasemjara S. Þ. —■ Þeim lauk í dag, er Seif Ed Din, fulltrúi Egypta, kom aftur frá Kairo, með fullt umboð til þess að undirrita friðarsamninga. — Skömmu áður hafi dr. Bunche lýst því yfir, að á mánudaginrt myndu hefjast friðarviðræður milli-Transjórdaníu og Israel, á Rhodos. Svör Arabíu og Irak Arabía og Irak hafa þegar svarað boði dr. Bunce um frið- arviðræður við Israel á þann hátt, að þau muni geta fallist á þá friðarsamninga, er hin lönd- in í Arababandalaginu geri við Israel, en þau lönd eru Egypta- land, Transjórdanía, Sýrland og Libanon. „IIöfuðborg“ Negev Egyptar urðu við þeirri kröfu Gyðinga, að þeir fengju að hafa her í Beesheba, „höíuðborg“ Negev-eyðimerkurinnar í Suð- ur-Palestínu, en það var eitt helsta deiluefnið á friðarfund- inum á Rhodos. Friðarviðræður við Libanon Riley, helsti ráðunautur dr. Bunche, lagði af stað áleiðis til Beirut í dag, höfuðborgar Lib- anon. Er búist við að hann muni ræða við yfirvöld Libanon um möguleika á friðarviðræðum milli Gyðinga og Libanon. Stórt spor Dr. Walter Eyton, formaður sendinefndar Israel á Rhodos, skýrði frjettamönnum frá því í dag, að með undirskrift friðar- samninganna við Egypta, væri stórt spor stigið í áttina til frið- ar og betra samkomulags í lönd unum fyrir botni Miðjarðar- hafs. Hann sagði, að þolinmæði og samningslipurð dr. Bunche, ætti ríkan þátt í þessum góða árangri af friðarviðræðunum. Þá hefir mikil hreinsun verið var s. 1. sólarhring. ■— Reuter. Löng bið. St. PAU, MINN. — Frú Jean- ette Darling sótti nýlega um skiln að frá manni sínum. Hún sagði, að hann hefði farið að heiman árið 1923 til þess að horfa á knatt leik — og ekki sjest síðan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.