Morgunblaðið - 24.02.1949, Page 8

Morgunblaðið - 24.02.1949, Page 8
Fimmtudagur 24. fe'brúar 1949 8 MORGUISBLAÐIÐ Ötg.: n.f. Arvakur, Reykjavfk. Framkv.stj. Sigfús Jónsson, Rltstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgBarœ.). Frjettaritstjóri ívar Guðmundsso^ Auglýsingar: Arni Garðar Kristinssoí. Ritstjórn, auglýsmgar og afgreiðsla’ Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlandc, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu ið aura æintakið, 75 aura m*S Lcsbók. Quisling móti stefnu Norðmanna !! FYRIRLITNASTI glæpamaður norsku þjóðarinnar mótar nú stefnu ríkisins. ...“ segir Þjóðviljinn, blað íslenskra kommúnista í gær. Hafi nokkur íslendingur verið í vafa um það, að kommún- istar sjeu gjörsamlega vitfirrtir í áróðri sínum gegn varnar- viðleitni hinna vestrænu lýðræðisþjóða, þá hlýtur sá vafi að hverfa við lestur forystugreinar Þjóðviljans í gær. Þar er því blákalt haldið fram að utanríkisstefna Norð- manna nú sje byggð á kenningum landráðamannsins og þjóð- svikarans, Vidkun Quisling!! Vegna þess að norska þjóðin er þess alráðin að treysta varnir sínar og öryggi með samvinnu við hinar vestrænu lýðræðisþjóðir segja íslenskir kommúnistar að hún hafi tekið upp merki þess manns, sem hún fyrirlítur dýpst allra manna og ljet taka af lífi fyrir svívirðileg svik og glæpi á örlaga- stundu Noregs. Þessi yfirlýsing kommúnistablaðsins sýnir íslendingum inn í myrkviði hins kommúnistiska hugarfars. Þar er engin glæta af heilbrigðri dómgreind til. Þar er ekkert að sjá annað ep. glórulaust ofstækið. Þjóð, sem vill verja frelsi sitt og mannrjettindi er sögð heiðra minningu argasta tilræðismanns ins við frelsi hennar og heiður, þegar hún leitar samstarfs við þær þjóðir, sem hún veit að ekki sitja á svikráðum við frelsi. hennar og sjálfstæði. Hvers vegna láta íslenskir kommúnistar sjer slík orð um munn fara? ÚR DAGLEGA LÍFINU . . . Þegar þorsk- urinn þótti mat- ur . . . MÖNNUM verður tíðrætt um veðráttuna. Það er leitað álits eldri manna, um hvort þeir muni annað eins og svörin eru jafnan, að þetta sje nú ekki mikið á móts við það, sem það var í gamla daga. Einstaka maður hefur ekki betra minni en það, að hann man ekki ann- an eins vetur hjer á Suður- landi. Það var í sambandi við veðráttuna og þá einkum gæftaleysið, sem þetta með þorskinn kom til tals. Maður- inn, seip jeg var að tala við kunni skil á ýmsu í sambandi við veðrið. Og svo sagði hann þessa sétningu: ,,Það var veturinn, sem snjó flóðið varð og þorskurinn þótti matur“. Gæftaleysi og nýmetisskortur „ÞAÐ hafði ekki gefið á sjó vikum saman þenna vetur“, hjelt maðurinn áfram, „þangað til fyrstu daga góu, að farið var á sjó. Það var öllum íarið að langa í nýmeti, sem ekki hafði sjest svo lengi. En í fyrsta róðrinum fjekkst ekkert nema þorskur. Og löngunin í nýmetið var svo mikil, að afla bátsins var skipt upp á milli þorpsbúa og alilr átu þorsk að þessu sinni“, sagði sögu- maður. ,,Það var yfirleitt ekki gert. Þorskurinn var bara valúta“. Öldin önnur UT af þesari sögu spunnust umræður um geymslu nýmetis eftic nýjustu kúnstarinnar regl um og komist að þeirri niður- stöðu, að við værum ekki leng- ur svo háðir dutlungum veður- farsins. Við gætum haft ný- meti allt árið. Hraðfrystur fiskur væri eins og nýr. Maður, sem þátt tók í sam- talinu og er alinn upp í fiski- þorpi, fullyrti, að það væri vítaminsbragð af hraðfrysta fiskinum, svo ekki væri nú minnst á hraðfrystu gellurnar, sem, væru betri en nýar. • Margt að læra ÞETTA er ekki auglýsing fyrir hraðfrystihúsin, nje hvatning til manna um að eta meira af hraðfrystum fiski. Mönnum er aðeins bent á, að það er hægt að geyma matvæli í hraðfryst- ingu mánuðum og jafnvel ár- um saman, þannig að þau sjeu eins og ný þegar þau eru mat- reidd. Það á við fisk, grænmeti, kjöt og fleira. En það er ekki sama og síður en svo hvernig hraðfrystar matvörur eru matreiddar, eða frá þeim gengið áður en látið er í pott eða á pönnu. í því liggur einmitt galdur- inn og það er ekki nóg, að geyma matinn eins og nýan, ef hann er svo .eyðilagður í meðförum á heimilunum vegna vankunnáttu. • Vanrækt efni HRAÐFRYSTIHÚSUNUM hef- ur ekki dottið í hug, að gefa út leiðarvísa um hvernig best sje að þíða matvæli, sem geymd hafa verið í hraðfrystingu. ■— Það er bara látið danka, eða gert ráð fyrir því, að húsmæð- ur sjeu fæddar með þeim eig- inleikum, að þær viti hvernig happadrýgst sje að þíða bein- frosna ýsu, eða heilagfiski, sem er eins og gler í höndunum þeirra, þegar það er keypt. Hraðfrystu vörurnar eru sem nýar þegar rjett er með farið, en það verður að kenna möpnum galdurinn og þá verð- ur alltaf nóg af nýmetinu, hvort sem gefur á sjó eða ekki. Auðveld lagfæring ,,HVAÐ er að heyra þet.ta“, sagði maður nokkur, eftir að hann hafði lesið kvörtunina frá strætisvagnsstjóranum hjer í dálkunum vegna skiptipening- anna. „Eru ekki seld kort, viku kort, mánaðarkort, eða lausa farmiðar hjá strætisvögnun- um?“ Það er ekki furða þótt mað- urinn spyrði. Það er leitt að heyra aðra eins vitleysu og þá, að sami maðurinn komi mörgum sinn- um sama daginn inn í strætis- vagn og greiði í hvert sinn með peningaseðli. Rvers vegna keypti þessi maður ekki miða í hefti fyrir 10, 20 eða 50 ferðir? Það hlýtur að vera hægt að kaupa hjer farseðla með stræt- isvögnum á þann hátt, eins og siður hefur verið og er erlendis, þar sem strætisvagnaferðum er haldið uppi með líku sniði og hjer. Já, ætli það ekki? — Auð- veld lagfæring það! Það er vegna þess að þeir vita að íslenska þjóðin man hina hetjulegu baráttu Norðmanna fyrir frelsi sínu. Þeir vita líka að afstaða Norðmanna til Norður-Atlantshafsbandalags lýð- ræðisþjóðanna vekur mikla athygli hjer á landi. íslenskir kommúnistar sjá að það er ekki hægt að telja íslendingum trú um það, að norska þjóðin sje að farga landsrjettindum sínum og þjóðfrelsi með þátttöku í varnarsamtökum þeirra þjóða, sem tryggja vilja í senn eigin öryggi og framtíð heims- friðarins. Af öllum þessum ástæðum hafa kommúnistar ærst svo gjörsamlega að þeir láta blað sitt halda því fram, að „fyrir- litnasti glæpamaður norsku þjóðarinnar móti nú stefnu ríkisins.“ Hvernig líst íslendingum á þessa „þjóðvarnarbaráttu?“ Eru ekki prófess^ar og dósentar einfeldninnar hreyknir af því að eiga slíka bandamenn? Yfirlýsing Thorez KOMMÚNISTAR hafa kastað grímunni. Franski kommún- istaleiðtoginn Thorez lýsti því yfir í ræðu, sem hann flutti í fyrradag að ef rússneskir herir ryddust inn í Frakkland, þá myndu kommúnistar bjóða þá velkomna og berjast við hlið þeirra gegn sinni eigin þjóð. Með þessari yfirlýsingu hins franska kommúnistaleiðtoga hafa kommúnistar játað á sig landráðastefnu sína. Þeir hafa lýst því yfir að þeir ætli að berjast með herjum Rússa en gegn þjóð sinni. Fram til þessa hafa kommúnistar ekki viljað viðurkenna að þeir hefðu þetta í hyggju. Þeir hafa þvert á móti reynt að fá almenning til þess að trúa því að þeir væru hinir einu sönnu ættjarðarvinir og „landvarnarmenn“. Undir því yfir- skyni hafa kommúnistar um alla Evrópu tekið upp tryllta baráttu gegn samvinnu lýðræðisþjóðanna um varnir sínar. Þeir menn, sem hafa trúað því að kommúnistum gengi eitt- hvað annað til með þessari baráttu, en skilyrðislaus þjónkun við Rússa, hafa nú fengið órækar sannanir fyrir villu sinni Það getur vel verið að íslenskum kommúnistum þyki þessi yfirlýsing Thorez óþægileg. Sjálfir eru þeir ekki eins hrein- skilnir og hinn franski flókksbróðir þeirra. En kommúnistar allra landa eru eins. Þeir hafa sömu skyldur gagnvart yfir- boðurum sínum. Rússland er þeirra föðurland. Fyrir það ber þeim að berjast og fyrir það vilja þeir berjast. MEÐAL annara orða . 1 s Danir iosna við þýska flóilamenn Eftir CHARLES CROOT, frjettaritara Reuters. KAUPMANNAHOFN — Heil „borg“, sem í bjuggu um skeið 35,000 íbúar og var þar til fyrir nokkrum mánuðum sjöunda stærsta borg Danmerkur, er nú til sölu eins og hún leggur sig. Borgin, sem hafði sína eigin borgarstjórn, skóla, kirkjur, kvikmyndahús, sjúkrahús og lögreglustöð, var að öllu leyti eins og aðrar borgir — að tveim ur hlutum undanskildum: íbúar hennar sáu aldrei peninga og höfðu ekkert samband við um- heiminn. Borgin gekk undir heitinu Oxboell-búðirnar. Ibúar henn- ar voru þýskir flóttamenn, sem komu til Danmerkur á ófriðar- árunum. • • 200,000 ÞJÓÐVERJAR ÞETTA var hluti af þeim 200 þús. flöttamönnum, sem í Dan- mörku voru í stríðslokin. Nú hafa hernámsyfirvöldin í Þýska landi fallist á að taka við þeim öllum, og Danir eru þvínær al- veg orðnir lausir við þá. Aðeins 50 íbúar eru nú eftir í Oxboell-búðunum, og þeir eiga að fara til Þýskalands fyrir lok þessa mánaðar. Þetta er því dauð borg. Unnið er að því að koma öllum notfærum hlutum fyrir í stórum vörugeymslum, og þannig hafa þegar yfir 6 þús. kolaoínar verið fluttir í eitt þeirra. í öðru vöruhúsi eru þús- undir stóla og borða. 80,000 BÆKUR í BOKASAFNI borgarinnar er nú verið að ljúka við að ganga frá þeim 80,000 bókum, sem í því eru. Rauði krossinn ætlar að sjá um dreifingu þessara bóka til þýskra bókasafna, sem urðu fyrir skemmdum í stríð- inu. Símastöðinni. sem afgreiddi yfir 300 síma, hefur nú verið lokað. Sömu sögu er að segja um þvottahúsið, sem var ákaf- lega stórt og fullkomið. A götum þessarar borgar gef- ur enn að líta skylti, sem vísa leiðina til skrifstofa og embættis manna, sem nú eru úr sögunni. • • • ENGIN LAUN EITT hafði þessi flóttamanna- borg þó aldrei, og það var banki. Enginn hafði neina peninga handa á.milli, hvorki þýska nje danska. Þó höfðu allir einhvers- konar vinnu. En engin laun voru greidd. Aðeins æðstu em- bættismennirnir fengu einhver laun fyrir störf sín, venjulegast þó aðeins örlítið betra íbúðar- húsnæði en aðrir borgarbúar og endrum og eins aukaskammt af matvælum. Flestir braggarnir í þessari borg voru byggðir með það fyr- ir augum, að 12 til 16 manns gæti búið í þeim. En þegar flóttafólkinu fjölgaði, varð ekki hjá því komist að taka sumar vörugeymslurnar í notkun og gera úr þeim húsnæði. BORGIN VERÐUR RIFIN I MAÍ næstkomandi munu um 200 danskir herfangar koma til Oxboell-búðanna. Þeir verða til húsa í sjúkrahúsinu, en úr því hafa nú öll sjúkragögn verið flutt. Þessum föngum verður fengið það verkefni að rífa braggaborgina og undirbúa gróðursetningu þeirra trjáa, sem fela eiga allar leyfar af þessari flóttamannanýlendu. Trjein, og kirkjugarðurinn litli, sem þeir 1,254 Þjóðverjar, sem Ijetust í flóttamannabúðunum, hvíla í, verða þá með tímanum það eina til að minna á þessa borg, sem um tíma taldist til sjö stærstu borga Danmerkur. „Hallveig Fróða- dóttir" farin frá Hull BROTTFÖR hins nýja diesel- togara Reykjavíkurbæjar, „Hallveigar Fróðadóttur“, hefir af einhverjum ástæðum, d'reg- ist svo- að það var ekki fyr en í gær er skipið lagði úr höfn. Jón Axel Pjetursson, er veitti ski^inu móttöku fyrir hönd Reykjavíkurbæjar, sendi skeyti um brottför skipsins í gær. Þar segir að skipið eigi að hafa lagt úr höfn í Hull um hádegi í gær. Er því talið sennilegt að togarinn verði kominn hingað á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.