Morgunblaðið - 25.02.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.02.1949, Blaðsíða 1
 ÍÍUAlS SAIIIÍIÍ íilJÁLSIIA PJÓÐA 66 Thorei ©ndurtekyr Sandrála- ¥frSiíiegu? arffaki Lavals. .. Einkaskcyii til Mor'iunhlaðsins frá Reuter. PÁRÍS 24. febr. — Þingmenn kommúnista fögnuðu ákaft. er Maurice Thorez, leiðtogi þeirra, lýsti því yfir í þingræðu í dag, að sjer væri kærkomið að fá tækifæri til að endurtaka ummæli síþ um það, að Frakkar ættu að taka Rússum opnum örmum, ef þeir yrðu ,,neyddir“ til að gera innrás í Frakkland og jafnvel til að hernema frönsku liöfuðborgina-. AÍheimsathygli UmræSur um þessi ummæli Thorez hófust í franska þing- inu í dag, samkvæmt kröfu meirihluta utanríkismálanefnd arinnar. Var mikil þröng í þing salnum og virtust þingmenn allir helst vilja fá tækifæri til að taka þátt í umræðunum um málið, en bað hefir að vonum vakið athygli um allan heim. Þeir af andstæðingum kommúnista, sem í dag töl- uðu, fóru engir dult nieð þá skoðun, að þeir litu á kom- múnistaflokk Frakklands sem landráðaflokk, og Thorez, foringja hans, sem líklegasta kvislingsefni lands ins. Varpaði einn ræðumann anna þannig fram þeirri spurningu (og orsakaði með því ógurleg org frá kommún istabekkjunum), — hvort Thorez hefði hug á því að verða eftirmaður Lavals sem kvislingur. — Annar þiugmaður spurði: „Lítur Maurice Thorez á sjálfan sig sem leiðíoga flokks í þjónustu erlcndrar stjórn- ar“. Þessi sami ræðumaður sakaði kommúnistaforingj- ann síðar í ræðu sinni um að stjórna flokki, sem væri á launum hjá erlendu her- veldi. Thorez enn fagnað I ræðu sinni í dag sagði Thorez, að alþýða Frakklands og vinir verkalýðsins mundu beita sjer fyrir því, að ekki yrði einungis erfit.t að há stríð gegn Sovétríkjuhum, heldur algerlega ómögulegt. (Fagnað- aróp frá kommúnistum) Thorez fjekk það svar frá einum af fulltrúum sósíalista, að öll franska þjóðin mundi, ef á reyndi, reynast samhuga um að hrynda af sjer árásum ofbéld- isþjóðar, „hvaðan sem hún kemur og jafnvel þótt hún reyndist vera fyrverandi banda mannaþjóð“. Frekari umræðum um land- ráðayfirlýsingu kommúnista- leiðtogans var frestað til morg- uns. ákureyri AKUREYRI, fimmtud. — Fimm innbrot hafa verið framin hjer á Akureyri að-undanförnu og er slíkt mjög sjaldgæft hjer. Brotist var inn í fiskbúðina við Strandgötu og í bifreiða- ] stöðina Bifröst. Var þar Stolið ' skiptimynt. Brotist hefur og ver | ið inn í bílaverkstæði Jóhann- f esar Kristjánssonar, hurðir þar brotnar en engu stolið. Þá var j brotist inn í Blikksmiðjuna og . uns.stolið þar um 1200 krónum. J Einnig hefur verið brotist inn í nokkra bíla. Öll eru þessi mál í rannsókn og munu sum innbrotin þegar hafa verið upplýst. — H. Vald. Truman í frí WASHINGTON — Truman mun fara til Florida 6. mars n.k. og vera þar í fríi til 19. mars. Rjettarhöldum er enn haldið áfram í meiðyrðamáli Victors Kravchenko („Jeg kaus frels- ið“) í París. Þessi mynd var ný- lega tekin af honum. - Samningur Gyðinga og Egypta undir- ritaður RODOS, 24. febr. —- Egvptar og Gyðingar undirrituðu í dag vopnahljessamning á eyjunni Rodos. Hafa samkomulagsum- leitanir staðið yfir þarna lengi að undanförnu undir leiðsögn dr. Bunche, sáttasemjara Sam- einuðu Þjóðanna. Samningi þessum hefur verið fagnað víða um heim, og hefur Truman forseti meðal annarra látið þá ósk í ljós, að samskon- ar samkomulag náist sem fyrst milli Ísraelsríkis og annarra Arabaríkja. — Reuter. Fimmlán búigarskir kirkjuieiðíogar fyrir rjefti Fimmfán búloarskir klrkju- leiðfogar fyrir rjetfi Einkaskeyti til MorgunblaSsins frá Renter. LONDON, 24. febr. — í dag hefjast í Sofia rjettarhöld i máli þeirra fimmtán kirkjuleiðtoga, sem kommúnistastjórn Búlgaríu ljet handtaka fyrir nokkru og sakaði um „landráð og njósnir fyrir Bretland og Bandaríkin." Auk þess eru nokkrir þeirra bornir þeim sökum, sem þessa dagana eru mjög í tísku austan járntjaldsins, að þeir hafi verslað með erlendan gjaldeyri á svörtum markaði. Síðan 1932 Vassil Osorgiev Ziapkov, sem kommúnistar fullyrða að sje leiðtogi „njósnahringsins“, hef ir þegar „játað“ sekt sína. — Samkvæmt upplýsingum stjórn arvaldanna, á hann að hafa viðurkent að hafa stundað njósnir frá því 1932! í kæruskjalinu á hendur I kirkjuleiðtogunum, sem birt j var í dag, er sagt, að þeim hafi I tekist að brenna öll hættuleg j sönnunargögn gegn sjer, en : því bætt við, að „játningar, * ritaðar með eigin hendi“ sýni J það, að hinir ákærðu eigi heima í „fylkingum þeirra manna, sem starfa sem njósnarar og föðurlandssvikarar“. iurkmið Atlantshafs- landnlags m að efla friðinn í heiminnm Norska sifómin vill þáttiöku Noregs í uadirþúningsumræöuin um bandalagið Einkaskeyti til Mbl. frá NTB. OSLO 24. febr. — Halvard Lange, utanríkisráðherra Noregs lýsti því yfir í Stórþinginu í dag, að norska stjórnin sje þeirrar skoð- unar, að Norðmönnum beri að taka þátt í undirbúningsumræð- um undir hið fyrirhugaða Atlantshafsbandalag. „Atlantshafs- samtökin“, sagði Lange, „eiga að verða frjáls samtök frjálsra þjóða“ og viðræðurnar í Washington og London hefðu sannfært norsku stjórnina um það, að eina markmið þessara samtaka yrði að treysta og efla friðinn. Lange: „Við höfum dýrkeypia reynslu" í lok ræðu sinnar sagði norski utanríkisráðherrann ennfrem- ur: „Norska stjórnin lítur svona á málið: Stjórnmálaþróunin hefur neytt okkur til að viðurkenna, að til þess að tryggja frið- inn, verður að auka samvinnu lýðræðisríkjanna í vestri Við höfum dýrkeypta reynslu fyrir því, að einangrun hefur enga lausn í för með sjer. Við höfum aldrei tekið þátt í og munum aldrei gerast aðilar að neinni þeirri stefnu, þar sem takmarkið cr ofbeldi. Við æskjum þess að búa í friði með öllum nágranna- þjóðum okkar. Til þess að tryggja friðinn, og um leið okkar eigið öryggi, verðum við að taka þátt í þeirri „öryggissamvinnu", sem nú er að þróast meðal lýðræðisþjóðanna.“ Evali boðið til Delhi DELHI 24. febr. — Búist er við því, að dr. Evatt, utanríkis- ráðherra Ástralíu komi til Delhi í næstu viku í boði Nehru for- sætisráðherra. Tveim dögum síðar mun ráðherrann halda til London og þaðan til New York. — Reuter. Óttast um meiri óeirðir í Durban DURBAN 24. febr. — Hermönn um og' lögreglu í Durban var skipað að vera vel á verði í dag, af ótta við að svertingjar í borginni sjeu að undirbúa nýj- ar árásir á Indverja, Fullyrt er, að áróðursmiðum hafi verið dreift meðal svertingjanna og þeir hvattir til að ráðast gegn Indverjum á morgun og um helgina. — Reuter. Herlög í Siam LONDON 24. febr. — Herlög voru í dag látin ganga í gildi í.Síam. Er þetta öryggisráðstöf- un vegna hættuástandsins í ná- grannalöndunum. — Reuter. ítarleg ræða. I skýrslu sinni til þingsins rakti Lange ítarlega sögu hug- myndarinnar um skandinaviskt hervarnabandalag og afstöðu norsku stjórnarinnar til þess. Hann gerði einnig grein fyrir för sinni til Washington og London, sagði í fáum orðum frá viðræðum sínum við breska og bandaríska embættismenn og lýsti markmiði Atlantshafs- bandalagsins. Til að efla friðinn. Viðræðurnar í Washington og London, sagði utanríkisráðherr ann, hefðu styrkt þá sannfær- ingu norsku stjórnarinnar, að meginmarkmið sáttmálans yrði að efla friðinn og auka öryggi meðlimalandanna. Samningn- um mundi ekki stefnt gegn neinni þjóð. Atburðirnir að und anförnu hefðu borið það með sjer, að lýðræðisríkin yrðu að skapa sjer það öryggi, „sem við vonum að Sameinuðu þjóðirn- ar geti veitt okkur er fram líða stundir“. „Samningurinn, sem nú er í undirbúningi, á að verða í sam- ræmi við 51. grein stofnskrár Sameinuðu þjóðanna. Grund völlur hans á að vera „einn fýr ir alla og allir fyrir einn“, ef svo skyldi fara, að einhver samn- Framh. á hls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.