Morgunblaðið - 25.02.1949, Blaðsíða 6
6
M O H *• f’ 'V « r 4 n t f>
Föstudagur 25. febrúar 1949.
Ötg.: H.f. Árvakur, Reykjavftt.
Framkv.stj. Sigfús Jónsson
Rltstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgn*;Œ>_s
Frjettaritstjórl ívar Guðmundssos
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinssor.
Ritstjóm, auglýaingar og afgreiðal*
Austurstræti 8. — Sími 1600
Áskriftsrgjald kr. 12.00 á mánuði, innanlanda,
kr. 15.00 utanlands.
f iausasölu 10 aura «intakið, 75 aura m«B Leibók.
Ferðabannið er fráleitt
ÍSLENDINGAR hafa s.l. ár orðið að setja margskonar tak-
markanir við eyðslu erlends gjaldeyris. Sprettur það að sjálf-
sögðu fyrst og fremst af því að þjóðin hefur ekki aflað nægi-
lega mikilla gjaldeyristekna til þess að standa undir þörfum
sínum'. Að því leyti til hafa gjaldeyrishömlurnar verið eðli-
legar og í fullu samræmi við það, sem gerst hefur með öðrum
þjóðum, sem líkt hefur verið ástatt fyrir.
Um framkvæmd þeirra reglna, sem settar hafa verið um
láðstöfun gjaldeyris okkar má hinsvegar deila, og fullvrða
má, að oft hefur gagnrýnin á hana haft við gild rök að
styðjast. Hefur og þrásinnis verið á það bent hjer í blaðinu
að stjórn gjaldeyrismálanna sje alltof þung í vöfum og skapi
borgurunum, og þá fyrst og fremst þeim, sem reka verslun
og viðskipti, óþarfa erfiðleika.
En ein ráðstöfun gjaldeyrisyfirvaldanna hefur sætt sjer-
stakri gagnrýni og það að makleikum. Það er ferðabannið til
útlanda. Samkvæmt þeirri ákvörðun er hægt að banna ein-
staklingum, sem utan vilja fara, að fara úr landi, enda þótt
þeir þarfnist einskis gjaldeyris hjeðan að heiman.
Það verður ekki hjá því komist að endurtaka þau ummæli,
sem blaðið hefur áður haft um slíkar reglur: Þær eru frá-
leitar og það ber að afnema þær hið bráðasta. Það er eðiilegt
að þjóðin spari gjaldeyri sinn og að gjaldeyrisyfirvöld hennar
fari varlega í að eyða honum til nauðsynjalítilla utanfara.
En það væri beinlínis óviðeigandi frelsisskerðing að meina
íólki, sem nýtur gistivináttu manna erlendis að fara úr landi.
Til lengdar er ekki hægt að sætta sig við slíkar takmarkanir
á frelsi borgaranna.
Ferðalög geta að vísu verið óþarfur lúxus. En þau eru
miklu oftar nauðsynlegur þáttur í lífi menningarþjóða, einnig
okkar íslendinga þó við sjeum fáir. Við megum þess vegna
ekki taka upp neinskonar innilokunarstefnu í þessum efnum.
Þess vegna er umrætt ferðabann til útlanda óviðurkvæmi-
legt og sjálfsagt að það verði afnumið hið fyrsta.
Æskan
og kommúnisminn
UNGT FÓLK er yfirleitt frjálslynt. Það ann persónufrelsi og
er andvígt því að einstaklingnum og athafnavilja hans sje
þröngur stakkur skorinn. Æskan vill fá að njóta þróttar síns
til þess að treysta framtíð sína innan rjettláts þjóðfjelags.
Öll kúgun er óspiltu ungu fólki viðurstyggð.
Af þessum ástæðum er íslensk æska í dag mjög móthverf
kommúnismanum. Frjettirnar af ofbeldisaðgerðum komm-
únista í löndunum austan „járntjaldsins" hafa mætt sterkri
andúðaröldu frá íslenskri æsku. Fangelsun og jafnvel líflát
stúdenta í Tjekkóslóvakíu og víðar hafa átt ríkan þátt í að
eyða því litla fylgi, sem kommúnistar höfðu meðal ungs fólks
hjer á landi.
Ungt fólk er ennfremur mjög þjóðernissinnað. Þess vegna
hefur það óbeit á stjórnmálamönnum, sem vitað er að ganga
fyrst og fremst erinda erlendra harðstjóra í afstöðu þeirra
til sjálfstæðis- og öryggismála lands þess. En eftir yfirlýsingu
franska kommúnistaleiðtogans á dögunum um að kommún-
istar myndu berjast með innrásarher Rússa en gegn sínum
eigin mönnum, liggur fyrir skýlaus vitneskja um, að það er
lilutverk kommúnista allra landa.
Öryggismál íslendinga hefur mjög borið á góma undan-
farið. íslensk æska veit, hvar hún er á vegi stödd í afstöðunni
til þeirra mála. Hún vill treysta sjálfstæði þjóðar sinnar og
sitt eigið öryggi. Þess vegna vill hún samvinnu við þær þjóð-
ir, sem halda merki lýðræðis og persónufrelsis á lofti. En hún
vill hinsvegar ekki að í landi hennar sjeu herstöðvar eða
erlendur her á friðartímum. Hún vill heldur ekki láta leggja
á sig herskyldu.
Stærsta áhugamál íslenskrar æsku er að búa sem tryggi-
legast um sjálfstæði lands síns. Til þess að ná því takmarki
er hún reiðubúin til þess að hafa samvinnu við æsku annarra
frelsisunnandi þjóða. Frelsi og kommúnismi er ósamrýman-
legt. Þess vegna er íslensk æska kommúnismanum móthverf.
*
UB DACLEGA LIFTNU
Fjörugt
leiklistarlíf i
ÞAÐ er heldur betur fjör yfir I
'eiklistinni um þessar mundir.!
'lýlega búin að vera frumsýn-
:ng á nýju leikriti 1 Hafnar-
!irði, frumsýning 1 gær hjá
4jalakettinum og frumsýning
' kvöld hjá Menntaskólanem-
’ndum og loks von á frum-
’.ýningu á nýju íslensku leik-
"iti hjá Leikfjelagi Reykjavík-
ur.
Þetta er ánægjulegur fjör-
’dppur, sem kemur sjer einkar
vel í deyfðinni og drunga vet-
urs og veðrahams- Enda tekið
með þökkum af almenningi,
sem fyllir leikhúsin kvöld eftir
kvöld-
ö
I leikhúsinu
snemma dags
GOTT dæmi um hve mikið er
að gera hjá leikurum og hve
þjettskipað er á leikhúsið, 9r
að menntaskólanemendur
urðu að halda búningaæfingu
sína fyrir hádegið í gærmorg-
un. Um annan tíma var ekki
að ræða í gömlu Iðnó. Annað
eipý. hefur þótt í frásögur fær-
andi, eins og það, að fara niður
í Iðnó klukkan 9 að morgni til
að horfa á leikrit. En það gerði
jeg í gærmorgun.
„Jeg minnist
fjórtán skálda . . .
MENTASKÓLALEIKIRNIR
eru hefð í leiklistarlífi Reykja
víkur. Það voru skólapiltar,
sem fyrstir sýndu sjónleiki
hjer í bænum. Og lengi voru
það skólapiltar, sem hjeldu
uppi leiklistarlífi hjer. — Úr
Menntaskólanum hafa komið
margir okkar bestu leikara,
sem fengu áhuga fyrir leiklist-
inni þegar þeir fóru að leika í
skólaleikjum.
Tómas minnist fjórtán
skálda í fjórða bekk. En við
hin getum sagt, að við minn-
umst jafnmargra leikara frá
skólaárunum, þótt ekki getum
við komist jafnvel að orði og
skáldið.
e
Mikið er á sig
lagt fyrir listina.
ÞAÐ voru áhugasamir ungl-
ingar, sem komu saman í
kjallaranum í Iðnó í gærmorg-
un um 9 leytið. Hressilegur
piltur var kominn í ítalskan
herforingjabúning, annar var
klæddur eins og aðalsmaður,
sá þriðji þjónn frá seytján
hundruð og súrkál. Þarna
voru og blómarósir, sem skört-
uðu hefðarmeyjatísku frá
sama tíma. En frammi á leik-
sviði voru leiksviðssmiðir,
Bachmann ljósameistari, Sig-
fús Halldórsson, leiktjalda-
meistari og loks Ævar Kvaran
leikstjóri og Lárus Sigurbjörns
son rithöfundur, sem verið hef
ur pottur og panna í menhta-
skólaleikjunum undanfarin ár.
Það var verið að leggja síð-
ustu hönd á verkið, hver sjer-
fræðingur á sínum stað.
e
Ast og klækir
OG svo byrjaði leikurinn —
Mirandolina — rómantískt
leikrit um ást og klæki, mann-
legan breyskleika o.s.frv. Frá
því verður ekki sagt hjer. A-
horfendurnir verða að fá sitt
og leiklistargagnrýnandinn
verður látinn um að segja álit
sitt á hinum ungu leikurum.
En hver veit, nema að meðal
leikenda á frumsýningu menta
skólaleiksins í kvöld sje upp-
rehnandi stjarna á leiklistar-
heimi okkar. — Það hefur
komið fyrir áður.
•
„Heilbrigt Iíf“
TÍMARIT Rauða krossins,
„Heilbrigt líf“, er komið út.
Er þetta síðasta heftið af því
merka riti, sem dr. Gunnlaug-
ur Claessen sá um áður en
hann dó. Þar birtast síðustu
greinarnar, sem sá merki mað-
ur skrifaði, Ritstjórarabb hans,
þar sem altaf var, og er að
þessu sinni, eitthvað nýtt.
íslensk læknastjett misti
mikið er dr. Claessen fjell frá
og þótt ritstjórn „Heilbrigðs
lífs“ verði án efa falin færum
manni í alla staði. þá munu
margir sakna greina dr.
Claessens, seni aldrei þreyttist
á að benda mönnum á misfell-
urnar í þjóðfjelaginu, en gerði
það á þann hátt, að það urðu
ekki skammir, eða aðdróttanir,
heldur ráðleggingar, sem ekki
var hægt annað en að taka til
greina.
©
Baráttan gegn
lúsinni
DR. Gunnlaugur Claessen var
i andstæðingur allra óþrifa, lík-
amlegra og andlegra. Aldrei
þreyttist hann á að herja gegn
lúsinni og gerir það onn : þessu
síðasta hefti sínu af „Heil-
brigðu lífi“.
Sá dagur kemur, vafalaust,
að lúsin verður landræk ger
með öllu úr þessu þjóðfjelagi,
þótt enn sje nokkuð langt í
land, að því er virðist, en þá
má minnast dr. Claessens, sem
eins ötulasta og áhrifamesta
bardagamannsins gegn þeim ó-
fögnuði og sóðaskap íslensku
þjóðarinnar.
•
Heilbrigðis-
skýrslur
skemtilestur
FÁTT er eins drepleiðinlegt og
opinberar skýrslur, hverju
nafni, sem þær nefnast. Heil
brigðisskýrslur eru ekki undan
tekning.
En þegar dr. Claessen um-
skrifaði heilbrigðisskýrslurnar
urðu þær í senn skemtilestur
fræðandi se mhafði bætandi
áhrif. Er ekki t. d. alt, sem
segja þarf um tannskemmdir
og tannlæknaskort hjer á
landi sagt í þessari einu setn-
ingu hjá dr. G. CL:
„Tannlæknar voru alltof fá-
ir, svo að víða er ekki um ann-
að að gera en að rífa úr fólki
tennur. Eyrarbakkalæknirinn
dró alls 1652 tennur“ (á einu
ári).
• •••- • ■•■•••••••••iniiiiii*i»rrMiMMiiiiiiiitiiiiiiiiiiMii ■- ......
\4FDA| úmmaRA OROA |
'••••IM••|I|•|||||||||||||||||■||||||||||■||••I • <1 • 1111II111111IIIII111III111 C ið
Kröfum um launahækkanir fækkar í Bandaríkjunum
Frá frjetaritara Reuters. lítið borið á launahækkunum.
NEW YORK — Sjerfræðingar
Bandaríkjastjórnar eru þeirrar
skoðunar, að talsvert sje þegar
farið að draga úr kröfum
verkalýðsfjelaganna um hærri
laun til handa meðlimum sín-
um. I þessu sambandi vekja
þeir athygli á því, að fram-
færslukostnaður hefur farið
lækkandi að undanförnu, eins
og fram kemur í hagskýrslum
stjórnarinnar. Þá telja þeir
ennfremur, að sú staðreynd
muni draga mjög úr kauphækk
unarkapphlaupinu, að Walter
Reuter, formaður hins öfluga
fjelags bifvjelavirkja í Banda-
ríkjunum og einn af aðaláhrifa
mönnum C.I.O. verkalýðssam-
bandsins, hefur ekki lagt meg-
ináherslu á kauphækkunar-
kröfur í áætlun sinni fyrir nú-
verandi ár. Hann hefur lýst
því y-fir, að fjelag sitt muni
fyrst og fremst beita sjer fyrir
eftirlaunum handa fjelags-
mönnum og öðrum hlunnind-
um.
• •
STEFNA C.I.O
UNDANFARNAR vikur hefur
Er hjer þegar orðinn mikill
munur á og síðastliðið ár, þeg-
ar verkalýðsfjelögin kepptust
við að krefjast aukinna launa
fyrir meðlimi sína.
Enda þótt ársáætlun bifvjela
virkja sje sú fyrsta, sem
stærri verkalýðsfjelögin leggja
fram í ár, er álitið, að hún sje
í samræmi við þá stefnu, sem
leiðtogar C.I.O. lögðu áherslu
á, á ársþinginu í nóvember.
• •
STYTTRI VINNUTÍMI
AUK ýmiskonar hlunninda og
aukins vinnuöryggis, er álitið,
að fjelag bifvjelavirkja muni
að þessu sinni reyna að knýja
fram kröfur um styttan vinnu-
tíma, sjerstaklega ef sýnt þyk-
ir, að bifreiðaverksmiðjurnar
neyðist til að minnka eitthvað
vinnuafl sitt. Stefnt yrði þá
væntanlega að því að skipta
vinnunni, sem fyrir hendi er,
meðal fjelagsmanna — án þess
að kaupgreiðslur til einstakra
verkamanna yrðu minnkaðar.
En þetta mundi þó hafa í för
með sjer aukin útgjöld bíla-
verksmiðjanna.
30 STUNDA VINNU-
VIKA
ÝMISLEGT hefur að undan-
förnu þótt benda til þess, að
John L. Lewis, leiðtogi kola-
námumanna, muni beita sjer
fyrir því, að vinnutími námu-
manna sinna verði styttur. Er
ekki talið ólíklegt, að hann
fari fram á 30 klukkustunda
vinnuviku með óbreyttum
launum. Hann hefur þegar
fengið atvinnurekendur til að
fallast á eftirlaun handa námu
mönnum, og kolaiðnaðurinn
greiðir nú um 100,000,000 doll
ara. á ári 1 velfarnaðarsjóð
námumannanna.
Svo kann að fara, að launa-
greiðslur til bifvjelavirkja
lækki örlítið á næstunni. Sam-
kvæmt samningum þeirra við
atvinnurekendur, er beint sam
band milli launa bifvjelavirkj
anna og framfærslukostnaðar-
ins á hverjum tíma.
Þetta yrði þá væntanlega
fyrsta launalækkunin, sem
öflugt bandarískt verkalýðsfje
lag mundi fallast á.,frá því
stríðipu lauk.