Morgunblaðið - 26.05.1949, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.05.1949, Blaðsíða 1
16 síður 36. árgangur. 118. tbl. — Fimmtudagur 26. maí 1949- Prentsmiðja Morgunblaðsins Enginn nrnngur nf 3Vt klukkust. fundi utanrákisráðherrania Eiukaskeyti til Mbl. frá Rcuter. PARIS, 25. maí. •—• Utanríkisráðherrar fjórveldanna sátu á fundi í 3M> klukkustund í dag og er það lengsti fundurinn, sem þeir hafa haldið frá því að ráðstefnan hófst s.l. mánudag. En þrátt fyrir það varð ekki um neinn árangur af fundinum að ræða, eða samkomulag. Enn rætt um einingu Þýskalands ' Umræðurnar snerust enn í dag um einingu Þýskalands og sýndist sitt hverjum, eins og fyrri daginn. Ræðumenn ljetu sjer nægja, að reifa sín sjónar rnið í ræðum sínum í dag og rifa niður skoðanir hinna- Vishinsky stjörnaði fundi fyrst og hjelt langa tölu, lærða mjög og lögfræðilega, sem svar við því að vesturveldin höfðu hafnað tillögu hans. frá í gær um að endurreisa hernámsráð fjórveldanna. Hinir gerðu samanburð . Utanrikisráðherrar vestur- veldanna ljetu sjer nægja, sem svar við því, að benda Vishin- sky á það sem áunnist hefir í Vestur-Þýskalandi með þeirri einingu, sem þar hefir ríkt með samkomulagi vesturveldanna. Bevin benti m. a. á, að ef til vill væri þýsk eining og eining fjórveldanna um Þýskalands- mál.in ekki það sama. En þýsk éining væri nokkuð, sem Þjóð- verjar einir gætu náð sín á iriilli. Þetta' væri mergurinn málsins. í boði Frakklandsforseta í kvöld (miðvikudag) sitja utanríkisráðherrarnir kvöldboð hjá Auriol Frakklandsforseta í Muratsalnum í Elyseé-höllinni. Engar ræður voru fluttar í veislunni. Fyrirspurn vegna morða við Hongkong LONDON, 25. maí — í spurn- ingatíma í neðri málstofu breska þingsins í dag var spurst fyrir um gang rannsóknarinnar vegna morðs tveggja breskra lögreglumanna í námunda við Hongkong fyrir um þrem vik- um. Skýrt var frá því, að stiga- menn hefðu framið morðin, en lögreglumennirnir voru drepn- ir um borð í báti, sem nokkuð af vopnum var í. Oll vopnin eru fundin. —Reuter. Mótniælafundur. LONDON — Breskir kommúnist- ar hafa efnt til mótmælafundar fyrir utan fangelsið, sem komm- únistinn Gerhart Eisler er í varð- haldi í. Tvær konur hafa horfið með öllu úr sendiráði Breta í Moskva Bresk mótmæli til rússnesku stjórnarinnar Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter, LONDON, 25. maí. — Enda þótt rússnesku stjórnarvöldin hafi ekki oþinberlega kannast við það, benda líkur til þess, að þau hafi látið hanötaka og fangelsa tvær konur, sem störfuðu við sendiráð Breta í Moskva. Ofsóknir. Frá þessu var skýrt hjer í London í dag, í sambandi við mótmæli, sem breska stjórnin hefur sent þeirri rússnesku, vegna framkomu hennar við starfsmenn breska sendiráðsins í Moskva. Tvær rússneskar kon ur, sem giftar eru breskum borgurum og störfuðu við síma- vörslu í sendiráðinu, hafa horf- ið með öllu, og sú þriðja, sem ennfremur er gift Breta, hefur orðið fyrir svo miklum ofsókn- um af hendi rússnesku yfirvald anna, að hún reyndi nýleg'a að fremja sjálfsmorð. Dvalarleyfisbeiðnum ueitað. í mótmælaorðsendingu Breta vegna framkomu Rússanna er og vakin athygli á því, að ýmsu fólki, sem senda átti til vinnu í sendiráðinu breska, hafi verið neitað um dvalarleyfi í Rússlandi. SHANGHA FALLIIM Síðustu dagana áður en Shanghai fjell var svikurum ekki sjurd nein miskunn. Ef þcir voru staðnir að glæpum, eða svikum var þegar settur herrjettur á staðnum og þeir ákærðu dæmdir til dauða, en dauðabegningunni síðan fullnægt umbúðalaust á staðnum. Sjást hjer þrír borgarar í Shanghai, sem líflátnir voru í húsagarði. “ t. # % ö •: s. itjaeuk iisssr Voíkstíli lairiiiduíarsfaiisisiðrirití cfsfi óiaysi '■ -■ ** 'T j Einkaskeyti íil Mbl. frá Reuler. BERLÍN, 25. maí. — Breskir embættismenn í Berlín sökuðu Rússa um það í dag, að þeir liefðu rofið samkomulagið um afnám flutningabannsins á borgina. Rússar hefðu á ný lagt alvarlegar hömlur á verslun og flutninga milli hernámssvæðanna, auk þess sem þeir hefðu jafnvel gripið til nýrra ofbeldisráðstafana í sambandi við viðskipti allskonar milli svæðanna. Brétar taka fram, að Vestur-^ veldin hafi að öllu leytj staðið við sinn hluta samkomulagsins. lifhskklil’ Svik Rússa geti hinsvegar haft DUIItilC Cll|JCIflnai álvarlegar afleiðingar í för með sjer. ráðherraembætti LinkasÍvCyti frá Rcutcr. Enn barist í úthverfum Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LONDON, 25. maí — Hersveit- ir kommúnista hjeldu inn í Shanghai-borg í dögun í rnorg un, án þess að mæta minstu mót spyrnu. Höfðu hersveitir stjórn- arinnar hörfað undan vestur á bóginn og tekið sjer stöðu við Soochow-ána. Alt með kyrrum kjörum. í frjettum frá Shanghai í dag segir, að hersveitir kommúnista hafi verið undir góðum aga og ekki farið rænandi nje rupl- andi um borgina. Verslanir hafi opnað skömmu eftir að borgin var tekin og götusala verið tek_ in upp á ný, en fólk fylt göt- urnar eins og vant er. Þá er skýrt frá því, að fasta lögreglu lið borgarinnar hafi komið til starfa sinna eins og ekkert hafi ískorist og sjálfboðalögregla hafi tekið að sjer að stjórna um ferðinni í borginni. I ameríska skólanum í Shang hai hjeldu próf áfram í dag, eins og fyrirhugað h Uði verið. Barist í úthvcrfunur Fregnir hafa borist í dag um bardaga í úthverfum Shanghai, en aðrar fregnir herr. a, að her- sveitir kommúnista hafi sótt hratt fram suður fyrir borg- ina. Aðalbardagar hafa orðið við brýr og krossgötuy þar sem hersveitir stjórnarir iar voru að reyna að komast undan frá borginni. Segir að á < inum stað hafi komið til blóðugs bardaga, þar sem hcrmenn stj' Tnarijnnar voru að sprengja upp skotfæra birgðir. Mótsagnakenndar frjettir Annars eru fregnir frá víg- stöðvunum í Kína í dag nokk- uð mótsagnakendar, eftir því úr hvaða áttinni þær koma. •— í einni frjett, frá Peking, er full- yrt að hersveitir kommúnista hafi sótt fram frá Shanghai eft- ir Hangchow-járnbrautinni og náð á sitt vald borg einni. sem I er aðeins um 43 km. frá hinni miklu hafnarborg Ningpo í Chekiang fylki. Rólegt í Berlín í Berlín sjálfri, þar sem verk- fall járnbrautarstarfsmanna nú er á fimmta degi, hafa heyrst fregnir um„ að vonir standi til þess, að deilan kunni að leysast innan skamms. Óstaðfestar fregnir herma, að Rússar muni ætla að ganga að kröfum verk- fallsmannanna um að þeir fái laun sín greidd í gjaldmiðli her- námssvæða Vesturveldanna. Allt hefir verið með kyrrum kjörum í Vestur-Berlín í dag. WASHINGTON, 25. maí — Dr. Ralph J. Bunche, sáttasemjari Samcinuðu þjóðanna í Palestínu hefir afþakkað boð Trumans forseta um að taka við aðstoð- arutanríkisráðherraembætti, er ráðherrann bauð honum. Dr. Bunche sagði frjettamönn um, eftir að hann kom af fundi Trumans, að hann vildi halda áfram starfi sínu hjá S. Þ. Og auk þess væri hann hræddur um, að hann myndi ekki hafa jafngott kaup hjá ríkinu og S. Þ. Elizabelh og Philip til Norður-írlands i LONDON, 25. maí -r- Elizabeth prinsessa og Philip maður henn ar fóru í dag í þriggja daga opinbera heimsókn til Norður Irlands. j Meðan þau dveljast þar, munu þau meðal annars verða gerð heiðursborgarar í Belfast. —Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.