Morgunblaðið - 03.06.1949, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
FöstucJagur 3. júní 1949.
Líknarsjóður íslands
,,LÍKNARMERKIN“ eða frí-j
merkin með yfirverði, sem póst-
stjórnin gaf út árið 1933, eru
uppseld og önnur væntanleg þá
og þegar, þykir því hlýða að
skýra alþjóð frá sjóðnum, sem
þau hafa skapað, tekjum hans
og styrkveitingum.
Skipulagsskrá Líknarsjöðsins
er frá 22. mars 1933, aðalatriði
hennar eru þessi:
„Tilgangur sjóðsins er að
styrkja með fjárframlögum
hverskonar líknarstarfsemi í
landinu, einkum slysavarnir,
barnahæli, ellihæli og þesshátt-
ar fyrirtæki“. Tekjur hans eru
yfirverð frímerkja, sem póst-
stjórnin gefur út í þessu skyni.
Stjórn sjóðsins skal skipuð 3
mönnum til 6 ára í senn, einn
tilnefndur af Slysavarnafjelagi
íslands, annar af væntanlegu
landssambandi íslenskra liknar-
stofnana og sá þriðji af sam-
göngumálaráðuneytinu. Það
skipar tvo meðan landssamband
ið er ekki stofnað. Sömu aðilar
skipa 3 varamenn í stjórnina,
og ráðuneytið 2 endurskoðend-
ur.
Stjórn sjóðsins má árlega út-
hluta til líknarstarfsemi 80%
af tekjum hans. Afganginn má
ekki skerða nemna 6. hvert ár.
þá má verða allt að heJming
höfuðstólsins til nýrra fram-
kvæmda.
í stjórn þessa sjóðs hafa lengst
af verið Ásmundur Guðmunds-
son prófessor, Jón Pálsson fyrv.
bankafjehirðir og Þorsteinn
skipstjóri Þorsteinsson í Þórs-
hamri. Árið 1945 kom undirrit-
aður í stað Jóns Pálssonar og
árið 1947 Geir Sigurðsson skip-
stjóri í stað Magnúsar Sigurðs-
sonar bankastjóra, en hann kom
í stjórnina árið áður í stað Þor-
steins Þorsteinssonar.
Eins og kunnugt er voru líkn-
armerkin 4 og yfirverð þeirra
var samtals 80 aurar. Fyrsta
árið, 1933, seldust þau svo vel
að Líknarsjóður fjekk um 3260
kr. af yíirverðinu, þótt tiltölu-
legur útgáfukostnaður og sölu-
laun póststjórnar væru frátek-
in, eins og skipulagsskráin mæl
ir fyrir. Næstu árin gekk sal-
an treglega. Lægstar voru tekj-
ur sjóðsins árið 1935, einar 336
kr., en svo fóru þær óðum vax—
andi einkum eftir komu setu-
liðsins. Langmest seldust þó
frímerkin árið 1947, þegar sýnt
var að þau voru á förum. Líkn-
arsjóður fjekk rúmar 39600 kr.
af sölunni það ár. í fyrra þrutu
þau alveg og nægðu engan veg-
inn eftirspurninni. Hlutur Líkn
arsjóðs af sölunni 1948 varð um
1970 kr., og þótti stjórn sjóðs-
ins ekki taka að skifta 80% af
því fje, en býst við að geta orð-
ið rausnarlegri að ári, þegar
nýju líknarmerkin verða kom-
in.
Tekjur Líknarsjóðs af fyr-
greindu yfirverði ,,líknarmerkj-
anná“ hafa orðið samtals rúm-
ar 107 þúsund kr. og vextir af
bankafje rúmar 5000 kr. — aðr-
ar tekjur sama sem engar, ein
5 kr. gjöf — Auðvitað væri
ánægjulegt að fá fleiri og stærri
gjafir til úthlutunar.-
Uthlutað hefir verið úr sjóðn-
um samtals 78700 kr., er svo
skiptust: Slysavarnafjelag ís-
lands fekk alls 38,600 kr. Barna
heimilið Sóllheimar í Grims-
nesi 11400 kr., Elliheimilið í
Skjaldarvík 8500 kr., Barna-
vinafjelagið Sumargjöf 7000 kr.
Elliheimilið Grund, Rvík 6400
kr., Elliheimilið á Seyðisfirði
4000 kr. og ennfremUr 5 barna-
stofur utan Reykjavíkur alls
2800 kr. Önnur útgjöld (aug-
lýsingar, ritföng og burðareyr-
ir) hafa orðið þessi 16 ár alls
innan við 250 kr. Laun engin.
— í sjóði eru nú nálega 34000
krónur.
Nýju líknarmerkin, einstak-
lega lagleg eftir myndum að
dæma, eru 5 og ,,aðeins ókom-
in“ segja póstmenn. Yfirverð
þeirra samtals er ein króna, en
burðargjaldsgildi 10, 35, 50, 60
og 75 aurar. Má búast við að
þau seljist fljótt og vel og gefi
bæði póstsjóði og Líknarsjóði
drjúgan skilding. Mjer er svo
tjáð að meir en lítið sje þegar
pantað frá erlendum frímerkja
vinum.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Háxefar og kyndarar
segja upp samningum
KAUP- og kjarasamningar há-
seta og kyndara á skipum Eim-
skipafjelagsins og Skipaútgerð
arinnar, gengu úr gildi í fyrra-
dag, 1. júní.
Sjómannafjelag Reykjavíkur
semur fyrir hásetana og kynd-
arana. Deiluaðilar hafa setið á
fundum með sáttasemjara rík-
isins.
Hásetarnir og kyndararnir
sögðu samningnum upp og
krefjast þeir grunnkaupshækk-
unnar og ýmissa annarra kjara-
bóta.
Steingrímur Arnason
STEINGRÍMUR er fæddur 31.
maí 1889 á Kletti í Kollafirði í
Gufudalssveit og ólst þar upp
til ellefu ára aldurs. Þá fluttist
hann að Eyrardal í Álftafirði við
ísafjarðardjúp.
Hann byrjaði ungur að stunda
sjóinn eins og fleiri þar um slóð-
ir. Hann kom til Hnífsdals á þeim
árum, þegar menn voru að byrja
að nota mótorvjelar í róðrar,-
báta. Lagði hann sig strax eftir
að læra að fara með þær, og varð
svo laginn vjelamaður, að hann
varð mjög eftirsóttur til þeirra
starfa.
Tuttugu ára gamall var Stein-
grímur orðinn formaður og farn-
aðist það svo vel, að orð var á
gert. Nokkru eftir að hann var
orðinn formaður, keypti hann
sjer mótorbát og var þá hvort-
tveggja í senn útgerðarmaður og
formaður. Frá Hnífsdal fluttist
hann til Flateyrar við Önundar-
fjörð, rak hann þar útgerð og
síðar verslun.
Árið 1933 fluttist Steingrímur
til Reykjavíkur og ári síðar hóf
hann að reka mjög umfangsmikla
starfsemi, keypti síld á haustin
og frysti hana til beitu og seldi
síðan útgerðarmönnum hjer við
FaxafJóa og víðar. Árið 1942
byggði hann ásamt fleirum hrað-
frystihús í Keflavík og fluttist
þangað ári síðar. Hann hefur
stjórnað harðfrystihúsi þessu frá
fyrstu tíð, en það mun vera með
stærri hraðfrystihúsum á land-
inu. Til Reykjavíkur fluttist
hann aftur 1945 og hefur verið
búsettur hjer síðan, en stjórnar
ófram hraðfrystihúsinu í Kefla-
vík ásamt stóru hraðfrystihúsi
hjer í borginni, („Hraðfrystistöð-
inni“).
Af því, sem hjer að framan
hefur sagt verið, má ljóslega sjá,
að Stpingrímur hefur ætíð verið
að vaxa. Hann byrjaði með tvær
hendur tómar, en starf hans hef-
ur blessast. Hann er maður gæt-
inn vel og glöggur. Jeg, sem
þessar línur rita, hefi þekkt hann
frá því er hann kom fyrst í Hnífs
dal og leyfi mjer að gefa honum
þann vitnisburð, að hann sje
drengur góður í hverri raun.
Steingr. kvæntist 1917 Kristínu
Hálfdánsdóttur frá Meirihlíð í
Bolungavík, en hún dó 1927. Þau
eignuðust þrjá syni, sem allir eru
uppkomnir og hinir mannvæn-
legustu. í annað sinn kvæntist
Steingrímur 1933, Grjetu Maríu
Þorsteinsdóttur.
Um Steingrím má segja, að
hann hefur gengið til góðs göt-
una fram eftir veg. Margir eru
þeir, sem honum hafa kynnst á
liðnum 60 árum, og óhætt er að
fullyrða, að þeir hafi hugsað
hlýtt til hans á þessum afmælis-
degi hans og óskað þess, að hann
megi lengi lifa og halda góðri
heilsu og starfskröftum.
Jónás Halldórsson.
Úr brjefi frá Minne-
sota, Bandaríkjunum
HINN 30. apríl s 1. ljest hjer
í sjúkrahúsi merk kona og vel
látin, Dóra Schram, er ávallt
nefndi síg svo, en hjet fullu
nafni Halldóra Schram.
Hún var fædd í Reykjavík
árið 1869. Foreldrar hennar
voru þau Kristján Schram húsa
meistari og seinni kona hans
Margrjet Pjetursdóttir Hjalte-
sted. Halldóra fluttist \ estur
með foreldrum sínum árið 1873
og ólst þar upp, lauk kennara-
prófi um tvítugt og stundaði
skólakennslu fram til sjötugs
aldurs, var heiðruð af því opin-
berað er hún ljet af því starfi,
fyrir langt og vel unnið dags-
verk á því sviði.
Halldóra fór heim til íslands
þjóðhátíðarárið 1930 og mint-
ist þeirrar ferðar æ síðan með
hinni mestu hrifningu og þeirr-
ar ógleymanlegu ánægju, sem
hún hafði haft af dvöl sinni á
ætjörðinni.
Hún talaði og ritaði íslensku
eins og hún hefði aldrei að heim
an farið, þó að hún lifði og
starfaði eingöngu með ensku-
mælandi fólki.
Dóra sál. átti þrjá velmetna
albræður hjer í Bandaríkjunum
og einn hálfbróðii*, Ellert
Schram skipstjóra í Rvík.
Vinur.
- Vorjjing
Frh. af bls. 5.
sje framfylgt. Telur það
drykkjuskröll þau, sem haldin
hafa verið í húsinu síðastliðinn
vetur til megnrar vansæmdar
fyrir bæinn.
| Trjesmiður I
1 óskar eftir vinnu- Vanur =
1 verkstæðisvinnu- — Gæti \
\ tekið að sjer verkstjórn, \
I ef óskast. Tilboð sendist \
| blaðinu fyrir 5- júní, — i
I merkt: „Trjesmiður“.
iMiiiiiiiiiiiiiiiiifniiiiitiiiimiiiiiiiiiniin«viiiiiTiiiiiiiiii»
•iiimiiiimiiiimiiuMiiitiniiiiiiimiHmmiiMtimiiiiMn
I Endurskoðunarskrifstofa \
EYJÖLFS ÍSFELDS
| EYJÓLFSSONAR
= lögg. endursk. Túngötu 8. \
i Sími 81388. i
111111111111111III lllllll..
Markúe £k £k £k £k Eftii Ed Dodd
Þegar allir eru í fasta Svefni hrotti út í nóttina. Hann er
í skálunum, læðist Vigbjörn
flóttalegur og skimar í kring-
um sig.
En Andi, sem liggur úti í hest
húsi verður hans fljótlega var.
Mlnntngarorð
Þérdís Gaðmunds-
dóttir frá Heylæk
SÍÐASTLIÐINN uppstiening-
ardag andaðist ,hjer í bænum
Þórdís Guðmundsdóttir frá Hey
læk í Fljótshlíð, 78 ára að aldri,
eftir stutta legu.
Hún var fædd að Velli í Vest-
mannaeyjum og ólst þar upp til
5 ára aldurs með foreldrum sín-
um. Við lát föður síns flutti hún
að Heylæk til fósturs hjá Helga
bónda og hreppstióra Guð-
rnundssyni og Arnfríði konu
hans. Naut hún þar mikillar
umhyggju og var sem í foreldra
húsum
Hún eignaðist eina dóttur,
barna Unu að nafni, með Guð-
muni Helgasyni í Valstrýtu. —,
Og varð dóttirin henni stoð og
stytta á efri árum. Þórdís
dvaldist um nokkurt skeið að
Sámsstöðum í Fljótshlíð hjá
Árna bónda Árnasyni og Þór-
unni konu hans, og varð hið
besta vinfengi í milli. Seinna
gerist hún bústýra hjá Erlendi
Magnússyni frænda sínum,
bónda að Heylæk, eftir lát móð-
ur hans, en fósturstystir henn-
ar, Guðrúnar Helgadóttur. —
Voru þá sum systkini Erlendar
í æsku, og gekk hún þeim í móð
ur stað og annaðist heimilið hið
besta. Gegndi hún þessu starfi
um einn áratug.
Frá Heylæk íor hún með dótt
ur sinni alfarin til Reykjavíkur,
og áttu þær mægður þar heim-
il saman, uns Þórdís andaðist.
Þórdís var ágæt kona, stillt og
vönduð á öllum sviðum, trygg-
lynd og hjálpfús. Hún eignaðist
vrnsa góða vini. Og þakka þeir
henni nú og ckyldmenni hennar
m a. systur og einkadóttir ljúfa
og góða samfylgd, ástúð ög um-
hyggju og biðja henni blessunar
Guðs í nýjum og bjartari hcimi.
Arnfríður Rósa Magnúsdóttir.
— Meðal annara orða
Frh. af bls. 8.
in óttast að hermennirnir,
kunni að snúast í lið með þess-
um frelsisunnandi mönnum.
Kreml-stjórnin rekur sífellt
hina „friðsömu þjóðernis póli-
tík“ sína, með því að kúga og
bæla niður alla þjóðrækni,
meðal þjóða þeirra sem búa á
yfirráðasvæði hennar. Þjóð-
ræknir og frelsisunnandi menn
eru umvörpum sendir í fanga-
búðir. Og lögð er áhersla á, að
ryðja hverjum þeim manni úr
vegi, sem líklegur er til þess,
að hafa nokkra forgöngu um
þjóðræknismálin.
Samtímis er leitast við að
hafa upp á hinum vopnuðu
herflokkum, sem hinir frjáls-
lyndu föðurlandsvinir hafa
komið sjer upp, sjer til varnar,
og útrýma flokkum þeirra
með báli og brandi. í Prypetj-
hjeraðinu hefur NKVD-liðið t.
d. sent út flugvjelar, til þess að
leita uppi leynilegar stöðvar
frelsisvinanna.
- Sumargjöf
Framh. af bls. 9.
sjera Árni Sigurðsson, ritari,
Jónas Jósteinsson, gjaldkeri.
Meðstjórnendur: Frú Aðalbjörg
Sigurðardóttir, frú Arnheiður
Jónsdóttir og Helgi Elíasson
fræðslumálastjóri.