Morgunblaðið - 07.09.1949, Side 8
8
M O R G V 1S B L Á fí I Ð
Miðvikudagur 7. sept. 1 949.
■.i*
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1(S00.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
kr. 15.00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
I
i
Nú er hún gamla
Grýla dauð
ÁR EFTIR ÁR hafa hinir svokölluðu vinstri flokkar streytst
við að telja íslensku þjóðinni trú um að Sjálfstæðisílokkur-
inn væri eingöngu flokkur hinna ríku í þjóðfjelaginu og að
takmark hans væri það eitt að gera hina ríku ríkari, en
hina fátæku fátækari.
Við hverjar einustu kosningar hefur þetta verið slagorð
kommúnista, krata og „milliflokksins“.
Hvers vegna hafa þessir flokkar byggt baráttu sína á jafn
haldlausum fullyrðingum?
Vegna þess að þeir hafa álitið að þeir gætu notað Grýlu-
trúna til þess að rugla dómgreind almennings. En nú er
hún gamla Grýla dauð. Það er ekki lengur hægt að telja
neinum einasta manni, með heilbrigða skynsemi, trú um
það að Sjálfstæðisflokkurinn berjist fyrir því, að viðhalda
látækt og misrjetti i þjóðfjelaginu.
Vegna hvers er það ekki hægt?
Það er ekki hægt vegna þess að almenningur hefur sjeð
með eigin augum, það sem hefur verið að gerast í landinu
undanfarna áratugi. Það er ekki hægt að villa honum sýn
um það og segja það svart, sem er hvítt.
★
Það, sem almenningur hefur sjeð, er það, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur haft alla forystu um þær þjóðlífsumbætur,
sem mest áhrif hafa haft til bóta á líf fólksins.
werji ihri^ar.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Hvor er skrítnari?
ÞEGAR jeg sá fólkið hópast
niður að danska Grænlandsfar
inu hjer í höfninni í góðviðr-
inu í fyrrakvöld, til þess eins
að glápa á grænlensku fjöl-
skylduna, sem þar er um borð,
fór jeg ósjálfrátt að velta því
fyrir mjer, hvor væri nú eigin-
lega skrítnari í augum hins,
íslendingurinn, sem glápti eins
og naut á nývirki, eða Græn-
lendingurinn, sem Ijet eins og
hann yrði ekki var við þetta
forvitna fólk.
•
Ekkert vafamál
Á HINU var enginn vafi hvor
var kurteisari. — Það bykir
ekki háttvísi — ekki einu sinni
í Grænlandi —, að fólk standi
eins og aular með opin munn
og glent augu og góna á ó-
kunnugt fólk.
Nú skal það tekið fram, að
sumir, sem komu þarna í for-
vitnisskyni, sýndu þessum fá-
sjeðu gestum okkar meiri nær-
gætni. Þetta fólk gekk rólega
framhjá skipinu og sá þó það,
sem það vildi sjá.
©
Ef það væri á
Grænlandsgrund
ÞAÐ er ekki nema eðlilegt að
menn vilji fræðast og sjá
Grænlending með eigin aug-
um, en það er ekki sama
hvernig komið er fram.
Hugsið ykkur að íslensk
fjölskylda lenti í sjávarháska
og hrektist til Grænlands. Þar
lendir menn kæmu í hópum
til að glápa, benda, flissa og
láta eins og fífl, yfir þessu
skrítna fólki, sem komið væri
til Grænlands.
Ætlf íslendingunum myndi
ekki líða hel,dur illa, ef þeir
yrðu hafðir þannig að sýning-
armunum?
( Brjef frá
Danmörku
LESANDI Morgunblaðsins í
Give í Danmörku skrifar ,,Dag
lega lífinu“ brjef, sem mjer
þótti vænt um að fá. í fvrsta
lagi er það ákaflega hlýlegt
j og í öðru lagi reynir brjefrit-
1 ari að benda á leið í vanda-
máli, sem nokkuð var rsett hjer
i dálkunum í fyrrvetur.
Bijefið er einmitt tímabært
nú er farið er að hausta og ef
hægt er að útvega þessa
,,blæjubílskúra“, finst mjer
sjálfsagt að reyna þá.
Brjefið er á þessa leið:
„Blæju-bílskúrar11
„Kæri Víkverji-
Það hefur farið fyrir mjer
eins og líklega flestum göml-
um Reykvíkingum erlendis, að
„Daglega lííið“ er nauðsynleg-
asti þáttur Morgunblaðsins til
að rifja upp fyrir rnanni minn-
ingarnar.
Fyrir meira en ári las jeg
í oft um vanhirðu og vöntun
á húsakynnum fyrir bifreiðar
heima og mundi eftir auglýs-
ingu, sem jeg hafði rekist á í
Berlingatíðindum, er mjer þótti
snilldarleg lausn á málinu, a.
m.k. þegar annað fæst ekki.
Tæplega vafi á því að mikinn
gjaldeyri og viðgerðarkostnað
mættj spara með „blæjuskúr“,
ef svo mætti kalla, enda lítur
blæjan mjög vel út fæst t.d.
í aluminíum- eða silfurlit“.
•
„Ljett eins og
fótatak kisu“
BRJEFRITARI sendir með
brjefinu auglýsingu um þessa
blæjuskúra. Það eru venjuleg-
ar ábreiður, sem eru þannig
sniðnar, að þær falla vel yfir
bíl, og skýla honum alveg.
Menn sem telja má að hafi
vit á meðferð bifreiða fullyrða
að þessar blæjur geti verið
fullt eins góðar og bílskúrar og
verja vagnana algjörlega gegn
veðri. „Og þær eru ljettar eins
og fótatak kisu“, segir í auglýs-
ingunni.
Það mætti að minsta kosti
reyna þetta, því tugir þúsunda
í verðmætum fara til spillis í
vetur vegna bílskúraskorts.
Morgunblaðið
á Jamaica
ANNAÐ brjef, sem einni.g er
frá lesenda Morgunblaðsins,
i kemur lengra að, eða alla leið
frá Jamaica. Þar býr ung, ís-
jlensk kona, sem gift er ensk-
um manni. Frúin heitir Mrs.
G.E. Craven, en kunningjar
hennar í bænum þekkja hana
undjr. nafninu Ragna Fossberg.
Frúin skrifar m.a. á þessa leið:
■ „Því lengra sem jeg fer að
heiman því betur les jeg Morg
unblaðið, og hjer les jeg það
frá upphafi til enda, bæði til
, skemmtunar og fróðleiks“.
Það er gaman .að heyra.
Sjálfstæðismenn höfðu forystuna um að stríðsgróðinn væri
hagnýttur til eflingar atvinnulífi landsmanna. Það var fyrir
frumkvæði og undir forystu formanns Sjálfstæðisflokksins,
Ólafs Thors, sem framleiðendur til lands. og sjávar tóku
höndum saman við verkamenn og aðra launþega um stór-
fellda eflingu atvmnulífsins. Áfleiðing þeirrar staðreyndar
er sú. að íslendingar eiga nú atvinnutæki, sem eru trygging
þess að hjer geta allir haft næga og góða atvinnu, ef þjóðin
aðeins lætur ekki sökkva þeim í fen verðbólgu og öngþveitis.
Tímar fyrirstríðsáranna, þegar Framsókn og Alþýðuflokk-
urinn, skipulögðu hallæri í landinu, atvinnuleysi og bág-
indi, þurfa þess vegna ekki að endurtaka sig, nema að þjóðin
beinlínis vilji það. En hún vill það ekki.
★
Jafnhliða því að Sjálfstæðisflokkurinn og forystumenn
hans tryggðu landsmönnum hinar miklu atvinnulífsumbæt-
ur hafa stórfellda’.' breytingar gerst á öðrum sviðum þjóð-
lífsins. I uppeldis- cg menntamálum, heilbrigðismálum, hús-
næðismálum o. s. frv. hafa stór spor verið stígin fram á
við. En þær umbætur eru bein afleiðing uppbyggingar at-
vinnulífsins, enda eini grundvöllurinn, sem þær geta stað-
:ð á í framtíðinni.
Það getur heldur engum dulist að undanfarin ár hafa lífs-
kjör almennings á íslandi bæði verið að batna almennt og
jafnast. Fátæktin hefur verið á undanhaldi fyrir bættri lífs-
afkomu og menningarlífi fólksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu í þessari merki-
iegu þróun. Á Alþingi og í ríkisstjórn hefur flokkurinn beitt
sjer fyrir alhliða umbótum. Út í athafnalííinu hefur fjöldi
fylgismanna hans og leiðtoga staðið fyrir uppbyggingu at-
vinnulífsins á einstökum stöðum og í einstökum hjeruðum.
★
Það er ekki hægt að dylja þessa staðreynd fyrir almenn-
ingi á íslandi. Þessvegna er það gjörsamlega þýðingarlaust
fyrir kommúnista, Framsókn og Alþýðuflokkinn að hefja
upp Grýlusöng sinn enn einu sinni. Grýlutrúin er dauð.
En með henni mun fleira fara sömu leiðina. Þeir flokkar,
sem byggt hafa málflutning sinn á henni, hafa einnig lifað
sitt fegursta. Þeirra hlutskipti er hrörnun og gleymska.
Sjálfstæðisflokkurinn mun hinsvegar eflast að fylgi og
halda áfram baráttu sinni fyrir þróttmiklu og rjettlátu þjóð-
fjelagi á íslandi. Þjóðfjelagi, þar sem framtak einstaklings-
ins fær að njóta sín en hóflegt ríkisvald gætir þess þó að
hagsmuna heildarjnnar sje gætt. Éf þessari stefnu verður
fylgt munu lífskjör almennings á íslandi halda áfram að
batna og verða jafnari og þau þurfa að verða það.
MEÐAL ANNARA ORÐA .... I
IMIIIIII•IIIIIMIIMMI■M■llll••■l■lllllllllllll■l■■•■■ll•••llllll•lll■■ll•••l•l•IMI■ll•l•MM■IM•■lll■IMI•l••llllll•lllllllll•l•l•llm|Æ
Rannsókn á afkomu grískra verkamanna.
Eftir S.E. Modiano,
frjcttaritara Reuters.
AÞENA — Samkvæmt rann-
sókn, sem nýlega var fram-
kvæmd í Grikklandi, verja
grískir verkamenn nú tveimur
þriðju hlutum launa sinna til
kaupa á matvælum. Meðalút-
gjöld fjölskyldu í borgum
Grikklands nema á degi hverj-
um 29,775 drachmum, en þessi
tala breytist lítið eitt á milli
landshluta.
Ransókn þessi á framfærslu-
kostnaði gríska verkamannsins
var framkvæmd undir umsjón
verkalýðsmáladeildar Mars-
halláætlunarinnar.
• •
NIÐURSTÖÐUR
AÐALNIÐURSTÖÐUR rann-
sóknarinnar eru á þessa leið:
Um 66% af tekjum meðal-
fjölskyldu er varið til kaupa
á matvælum. Rúmlega 11%
fer í fargjöld með strætisvögn-
um og öðrum farartækjum, til
kaupa á tóbaki, sælgæti og dag
blöðum.
Tæplega 9% launanna er var
ið í fafnað, 5,9% til kaupa á
eldsneyti, 4% í húsaleigu, 2,4%
í hreinlætisvörur, 1,6% til
læknishjálpar og um 1% til
ýmiskonar heimilistækja.
Hyer fjölskyldumeðlimur
greiðir að meðaltali 3,716
drachmur í fæði á dag.
• •
FIMM HUNDRUÐ
FJÖLSKYLDUR
NIÐURSTÖÐUTÖLUR rann-
sóknaiinnár fengust á þann
hátt, að fylgst var með frdm-
færslukostnaði 500 fjölskyldna
i ■ Aþenu, Pereus, Haraklion,
Patras, Salonika og Volos.
fjölskyldum þessum störfuðu
meðlimirnir alls í 48 atvinnu-
greinum. Hjer er einungis um
„verkamannafjölskyldur“ að
læða, þar sem launin geta
breyst frá degi til dags. Rann-
sóknin nær ekki til „fastra
starfsmanna“ og skrifstofu-
manna.
• o
LÁG LEIGA
í FJÖLSKYLDUNUM fimm
hundruð voru það alls 676
menn, sem unnu fyrir kaupi,
eða með öðrum orðum 1,35 að
meðaltali á hverja fjölskyldu.
Meðaleyðsla hverrar fjölskyldu
fyrir fatnaði nam 2,281 dra-
chmu á dag. Hver fjölskylda
varði daglega 692 drachmum í
hreinlætisvörur og 592 í lækn-
ishjálp.
Flestir verkamannanna njóta
opinberrar aðstoðar við öflun
ódýrrar læknishjálpar.
Húsaleiga er ákaflega lág og
stjórnarvöldin gæta þess vand-
lega, að hún hækki ekki. Við
þetta bætist svo það, að ó-
keypis húsnæði er víða hægt
að fá, enda þótt það sje oftast
ákaflega ljelegt. ,,Af þessum
50 fjölskyldum“, segir í skýrsl-
unni til Marshallhjálparinnar,
„greiddu 163 enga húsaleigu,
201 bjó í leiguhúsnæði og
136 áttu eigin heimili11.
• •
MISJAFNT HÚSNÆÐI
í SKYRSLUNNI kemur enn-
fremur í Ijós, að um 40% af
íjolskyldunum búa í síæmu
húsnæði, 25% i góðu og 35%
í miðlúngs eða sæmilegum h'ús
um!
Yfirleitt reyndist' húsnæði
íþessara fjölskyldna vera ákai
lega mismunandi. Þar sem
sumar fjölskyldurnar höfðu
rafmagn og hita, nægileg hús-
gögn og lúm handa hverjum
meðlimi, voru aðrar i hálfgerð
um hellisskútum eða kjallara-
íbúðum, þar sem fólkið varð að
sofa á gólfinu.
Heilbrigðismálunum hjá
meirihluta fjölskyldnanna, seg-
ir í lok skýrslunnar, „var illa
komið“.
Malan heldur fast
við kynþátíakúgun
Suður-Afríku
HÖFÐABORG, 6. sept.: — Dr.
Malan, forsætisráðherra Suður
Afríku, flutti ræðu í morgun
á ársþingi þjóðflokksins ■ í
Transvaal. Lýsti hann yfir, að
stjórn sín væri staðráðin í að
beita sjer fyrir því, að þeir kyn
'þættir, sem byggja Suður-Af-
ríku, blönduðust ekki. — Með
þetta fyrir augum yrðu allir
borgarar skyldaðir til að bera
á sjer vegabrjef þar sem skráð
væri, hvort eigandinn væri Ev-
rópumaður, innfæddur, Hindúi
eða kynblendingur.'
Malan hældist um af því að
stjórhin Jrefði komið i veg fyrir
að Hindúar ættu áfram fulltrúa
á þingi :Suður-Afriku. — Næst
niuhdi' hún svö banna það, að
kvnblendingar úr Höfðaborgar
f-ylkiy fengju að eiga sína eigin
-bingfulltrúa. — Reuter.