Morgunblaðið - 08.09.1949, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.09.1949, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 8. sept, 1949. MORGUISBLAÐIÐ 9' Búnaðarþing markar stefnu sína í framfararmálum landbúnaðarins íslandsdeild sýRÍngarinnar fíufí í ffugvjei SJÖUNDA Norræna garðyrkjusýningin, sem í ár verður haldin í Helsingsfors, hefst annan föstudag þar í borg. Fáeinum dögum áður verður íslandsdeild sýningarinnar flutt þangað öll loftleiðis. — Hjeðan fara á sýninguna um 25 garðyrkju- bændur og áhugamenn um garðyrkju. 7 mánaða starf ' Frá þvi um síðustu áramót hefir undirbúningsnefnd Garð- yrkjusýningarinnar unnið að þátttöku íslands. Þó deild ís- lenskra garðyrkjumanna muni ekki verða stór um sig, þá hefir undirbúningsnefndin kappkost að, að gefa frændþjóðum okk- ar, sem gleggst yfirlit um stöðu garðyikjunnar í íslensku at- vinnulífi. í gær átti Mbl samtal við E. B. Malmquist ræktunarráðu- naut bæjarins, framkvæmda- stjóra Garðyikjufjelags ís- lands, við undirbúning allan við sýninguna. Syningarsjóður stofnaður Til þess að standast kostnað við sýninguna stofnaði Garð- yrkjufjelagið sjerstakan sjóð. Hafa garðyrkjumenn gefið allt að eina kr. á hvern ferm. lands, sem gróðurhús þeirra taka yf- ir. Þá hefir ríkið stutt sjóðinn, svo og Reykjavíkurbæ, ennfrem ur sýslufjelög nokkur. Tilgangurinn Um þátt íslands í sýningunni sagði Malmquist eitthvað á þessa leið: Það gefur að skilja að. vegna fjarlægðarinnar til sýningarstaðar og annara erfið leika, þá er ekki auðvelt að koma á neinni stórsýningu á framleiðslu okkar. Mun deildin okkar á þessari merkilegu sýn ingu því mótast af þessu, en garðyrkjubændur hugsa sjer að með þátttökunni verði hægt að gera samanburð á hjerlendri framleiðslu og því sem frænd- þjóðir okkar framleiða af græn- meti og blómum. Islenskum garðyrkjumönnum, sem sækja munu sýninguna, gefst þarna mjög gott tækifæri til að sjá allar þær nýjungar í fram- leiðslu og tækni að því er að garðyrkjunni almennt lýtur, en það verður mjög mikilsvert fvr ir þá og þeir vilja vera undir það búnir að ströngustu kröfur sjeu gerðar til blóma- og græn- metisframleiðslunnar. i Sýningin íslenskir garðyrkjumenn munu sýna alskonar afskorin blóm á sýningunni, svo sem Chrysanthemum, Rósir o. m. fl. og senda m. a. nýtt afbrigði á sýninguna af Nellikum, ,.Anna Borg“, sem Sveinn Guðmunds- son á Reykjum, hefir ræktað. Þá verða sendir bananar, vín- ber, melónur, gúrkur og yfir- leitt allt það grænmeti sem sjest á íslenskum borðum. Þá verða sýnd línurit og töflúr, er sýna þróun garðyrkjunngr hjer. ásamt ljósmyndum gf gróðurhúsum og hvernig ís- lenskir garðyrkjubændur. hafa tekið hveravatnið til noíkunar við ræktun sina. Merki sýningarinnar. Flutningur blómanna og grænmetisins Mjög athyglisvert var að heyra hvernig „sýningamunirn- ir“ verða fluttir til Helsing- fors. Það var strax í upphafi ákveðið að flvtja allt í flug- vjel. Er nú búið að ganga frá öllu í sambandi við flutning- inn, útúega kassa og annað þess háttar. Að kvöldi þess 12. þ.m. verða blómin skorin af og' sett í kassa og við þau ísmylsna, svo það verða nokkurskonar „ís- varin blóm“. Snemma morg- uns 13. sept. leggur flugvjelin af stað, en komið verður við í Stokkhólmi, en síðan flogið til Helsingfors og þar munu svo garðyrkjumenn taka við sýning unni og setja allt á sinn stað í hinum gífurlega stóra sýningar skála. ‘ • garðyrkjubændur Bjaini Ásgeirsson ráðherra verður sjerstakur heiðursfull- trúi íslands á sýningunni, en auk hans fara um 25 garðyrkju bændur og áhugamenn. Meðal þeirra eru því nær allir þeir er sæti eiga i sýningarnefndinni: Jóhann Tónasson, Bessastöðum, Ragna Sigurðardóttir, Arnaldur Þór, Insimar Sigurðsson og E. B. Malmquist ræktunarráðu- nautur. — Jóhann Jónasson í Reykjahlíð, sem sæti á í nefnd inni, sem varaformaður, getur ekki farið. Þ°ssari Norrænu garðyrkju- sT'"r,ingu, sem er hin sjöunda í röðinni. og önnu- sem Islend- invar taka þátt í, lýkur 25. sept. Munu garðyrkiumenn ferðast 1 njn návrenni Helsingfors og kynnast finnskri parðyrkju, í boði finnskra starfsbræðra. Frjálsíþróttamót umjlincta FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓT B- juniora (innan 16 ára) fer fram á iþróttavejhnuni .14. og 15. septernber. Fyrri, dáginn verður keppt í 60 m hlaupi, kúluvarpi,i hástökki og 600 metra hlaupi, | Seinni daginn verður keppt í lángstökki, kringlukasti og 5x 80 m boðhlaupi. Merkileg alhliða ályktun á leið til Englands, AÐALMÁLIÐ á hinum nýafstaðna afmæl- isfundi Búnaðarþings austur í Egilstaðaskógi var ályktun sú, sem Búnaðarþingið gerði þar um irndbúnaðarmál. í frjettaskeyti hjer í blaðinu þaðan að aust- an, þar sem sagt var frá því, er á þingi þessu gerðist var getið um ályktun þessa eða álykt- unartillögu, eins og hún var, er stjórn Bún- aðarfjelags íslands gekk frá henni og flutn- ingsmaður hennar Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri lagði hana fram. En er ályktunin hafði legið fyrir allsherjarnefnd þingsins voru gerðar á henni lítilsháttar breytingar. í ályktun þesari er mörkuð stefna Búnaðar- þingsins í landbúnaðarmálum, stefna sem æíla má, að bændur landsins aðhyllist í aðal- atriðum og unnið verði að því, eftir því sem ástæður frekast leyfa að þessi framfaramál landbúnaðarins nái fram að ganga. Hjer er ályktunin birt eins og endanlega var frá henni gengið: ÁLYKTUNIN Um leið og Búnaðarþing minnist 50 ára starfsemi sinnar, vill það þakka öllum þeim, er undirbjuggu og stóðu að stofnun Búnað- arfjelags íslands og festu það skipulag um störf Búnaðarþings, sem síðan hefir í meg- orðið, framkvædar samkvæmt þörfura bændastjettarinnar. Jafnfrarot verði veðdeild Búnaðarbankans gerð starfhæf og efld til þess að sinna verkefni sínu. 4. Að vega- og símalagningu um sveita- hjeruð verði hraðað svo, að hvert býli kom- ist í vegasamband við þjóðvegakerfi lands- ins og sími verði lagður á hvern bæ. > 5. Hraðað verði rafvirkjun og dreifingu raforku, svo að öll byggðarlög landsins geti fengið raforku til sinna þarfa annaðhvort frá stórum orkuverum eða á annan hátt, þar sem ekki er annars úrkosta. 6. Að landnámi ríkisins og stofnun nýbýla verði haldið áfram og hraðað. Unnið veröi að þvi að stofna til einstakra nýbýla og ný- býlahverfa,þar sem náttúruskilyrði og önnur aðstaða er sem best. Þess skal þó ávallt gætt, að slíku landnámi sje dreift um öll helstu hjeruð landsins. 7. Að kostað verði kapps um verndun gróð- urlendis á allan hátt. 8. Að landbúnaðarfræðsla, leiðbeiningar- starfsemi og tilraunastarfsemi hverskonar í þágu landbúnaðarins, verði efld með meiri fjárframlögum, svo að sem öruggust innlend reynsluvísindi fáist, sem grundvöllur að rækt- unar- og framleiðslustarfsemi bændastjett- arinnar. indráttum staðið óbreytt. Búnaðarþing hefir frá upphafi talið það hlutverk sitt að veraÁskoranír BÚnaðarþÍngS § brjóslvörn og merkisberi íslenskrar bænda- tij bændastjettarinnar Jafnhliða og Búnaðarþing gerir þessar kröf- stjettar, og ávalt borið fram rjettmætar kröf- ur hennar um stuðning ríkisvaldsins við land- búnaðinn og unnið að því að efla stórhug og fjelagskenndir bændastjettarinnar til vaxandi framkvæmda og þroska. Á þessu 50 ára afmæli Búnaðarþingsins vilja þeir fulltrúar, sem þar eiga nú sæti, leggja ríka áherslu á það, að landbúnaður hefir frá upphafi íslandsbyggðar verið meg- inatvinnuvegur þjóðarinnar, að hann hefir varðveitt tungu vora og þj&ðerni. Búnaðar- þingio telur því, að einhver brýnasta þjóðar- nauðsyn sje að efla landþúnað vorn þannig, að hann geti framvegis verið meginstoð at- vinnulífs þjóðarinnar, og mótað menningu vora og veitt þjóðlífi voru þá festu og það öryggi, sem þróttmikill landbúnaður ávalt og alls staðar gerir. Til þess að grundvöllur þessa þjóðfjelags- lega cryggis verði sem best tryggður, leggur Búnaðarþing áherslu á að fjárframlög af hálfu þess opinbera til landbúnaðar verði aukin svo að þar sje ávalt fyrir hendi sú vinnu- tækni að það fólk, sem þar starfar, geti haft sambærileg kjör um kaupgjald og aðra að- stöðu við aðrar stjettir þjóðfjelagsins. Aðkallandi ráðstafanir næstu sex ár bem sjerstaklega aðkallandi ráðstafanir í þessu skyni á næstu 6 árum.vill Búnaðarþing benda á eftirfarandi atriði: 1. Að ríkissjóður leggi fram þann fjárstuðn- ing til ræktunarframkvæmda, að allur hey- fengur fáist af vjeltæku og ræktuðu landi (tún, áveitur). 2. Að innflutningur verði leyfður á nægi- lega miklu af nauðsynlegum. vjelum og verk- færum, svo sem til þurkunar á landi, jarð- vinnslu, heyskaparstarfa og heyverkunar, svo og til annara þarfa landbúnaðarins. 3. Að lánsstofnanir landbúnaðarins, bygg- ingarsjóður og ræktunarsjóður, verði efldir, svo þessar stofnanir hafi nægilegt lánsfje með þeim kjörum, er nú gilda, til þess að húsabætur, ræktunarframkvæmdir -og aðrar aðkallandi umbætur varðandi landbúnað geti ur á hendur Alþingis og ríkisstjórnar um rjettmætan og sjálfsagðan stuðning til efling- ar landbúnaðinum vill þingið jafnframt og sjerstaklega bera fram áskoranir til bænda- stjettarinnar um eftirfarandi atriði: 1. Að bændur efli sem mest hin fjelags- legu samtök sín, á öllum sviðum, geri þau sterk og áhrifamikil tæki, bæði til þess að mennta bændastjettina sem mest og best, svo og til þess að krefjast rjettar síns gagnvart óðrum stjettum. Fjelagssamtök bænda þurfa ávallt að vera vakandi til sóknar og varnar fyrir þeim sjálfsögðu kröfum bændastjettar- innar að það fólk, sem við landbúnað starfar 2. Að glæða og þroska ræktunarmenningu bændastjettarinnar sem allra mest, svo að ræktun jarða og ræktunarstörf verði talin ein virðulegasta og nauðsynlegasta starfsgrein þjóðarinnar. 3. Að vinna af alefli að ræktun og kyn- bótum búpenings með enn meiri festu og á- huga en gert hefir. verið og þroska á þan.u hátt hina mörgu ágætu afurðaeiginleika, sem búfje okkar býr yfir og auka hreysti þess og þrif. 4. Að bæta fóðrun og hirðingu búfjárins i sambandi við auknar kynbætur búfjárteg- undanna, svo að bændur nálgist sem allra mest það takmark, að fóðra hverja skepnu svo vel að hún gefi af sjer það afurðamagn, sem erfðaeðli hennar leyfir. 5. Að gæta þess vel að hafa ávallt nægileg- an fóðurforða á haustnóttum fyrir allan fóð- urpening, svo að ekki verði fóðurskortur, hversu harður sem veturinn verður. 6. Að hin faglegu fjelagssamtök bænda hafi nægilega marga sjermenntaða menn til þes» að leiðbeina bændum í hinum ýmsu grein- um landbúnaðarins. Jafnframt er skorað á bændur að afla sjer sem mestrar sjermennt- unar varðandi landbúnaðinn og vera vel vak- andi fyrir allri leiðbeiningarstarfsemi og hag- nýta sjer hana við hin daglegu störf sem allra best, svo sem mest afköst fáist eftir hvern einstakling, sem að landbúnaði vinnur. Amelhyst snýr heim á á leið til Englands. HONG, KQNG, ,7... sepþ ■— heiríi tií Englantís á morgun. tokúf á breskúm fíotaStÖðúfn á Breska hersnekkjan Amethy&t, sem fræg er eftir ferðina niður Verður skipið kvatt með mik- leiðinni, bæði í Singapore, Col- illi viðhöfn og Sörhuleiðis' er ombó, Aden, Malta og Gibralt- Yangtse-kiang leggur af stað undirbúningur undir góðar við- ar. Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.