Morgunblaðið - 16.10.1949, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.10.1949, Blaðsíða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. okt. 1919. Ávarp til æskunnar UM NÆSTU helgi velur íslenska þjóöin sjer fulltrúa til þess að fara með stjórn þjóðmálanna næstu fjögur ár. Þá fá íslenskir kjósendur enn einu sinni að njóta þeirra helgu mann- rjettinda lýðræðisþjóðskipulagsins, að velja sjálfir forustumenn sína með frjálsum og leynilegum kosningum. Fjórir stjórnmálaflokkar ganga nú fyrir íslenska kjós- endur og biðja um traust þcirra og stuðning. Þrír þessara flokka fylgja í grundvallaratriðum meginreglum lýðræðisskipulags- ins, en þriðji flokkurinn, kommúnistarnir, stefnir að afnámi þeirra lýðrjettinda, sem íslenska þjóðin telur dýrmætust. Sá flokkur mun því hljóta þá sömu fordæmingu hjer og hjá öðr- um lýðfrjálsum þjóðum. Úrslit þessara þingkosninga geta orðið örlagarík fyrir þjóð- ina. Vandamál þau, sem væntanlegt alþingi fær til úrlausnar, eru þess eðlis, að óhjákvæmilegt er, að á þeim sje tekið með einbeittni. og stefnufestu, ef þau eiga að verða farsællega til lykta leidd. Samstjórn ólíkra flokka á erfitt með að taka mál- in föstum tökum, enda hefur reynslan leitt í ljós, að oftast verður stjórnarkreppa í landinu þegar mestu varðar, að með röggsemi sje haldið um stjórnartaumana. Ein slík stjórnar- kreppa hefur valdið þeim haustkosningum, sem nú fara fram. Þetta verður þjóðin að hafa hugfast, er hún nú gengur að kjörborði. Því aðeins geta þessar kosningar auðveldað lausn vandamálanna, að kjósendurnir noti vald sitt til þess að mynda heilsteyptan meiríhluta á Alþingi. En það er ekki nóg að veita einhverjum flokki aðstöðu til þess að fara einn með stýórn í landinu. Það varðar þjóðina einnig miklu, hvaða flokkur fær þetta mikla vald. Við það val verður jijóðin bæði að styðjast við reynslu Iiðinna ára, stefnumál flokk- anna við þessar kosningar og þær lífsskoðanir, sem móta stefn- ur flokkanna. Þegar þessa er gætt verður augljóst, að það er aðeins einn flokkur, sem þjóðin getur og á að fela forsjá vanda- mála sinna við þessar kosningar. Þessum flokki hefur þjóðin líka allt frá stofnun hans sýnt mest traust, þótt hún hafi eltki veitt honum nægan styrk til þess að framkvæma stefnu sína til hlýtar. Þessi flokkur er Sjáifstæðisflokkurinn. Æska þjóðarinnar hefur ótvírætt sýnt vilja sinn. Sívaxandi fjöldi unga fólksins hefur skipað sjer undir merki Sjálfstæðis- flokksins, svo að æskulýðssamtök flokksins eru nú áííka fjöl- menn og æskulýðssamtök hinna flokkanna til samans. Orsakir þessa mikla æskufylgis eru augljósar: / Sjálfstæðisstefnan túlkar best þær hugsjónir sjálfstæðis, einstaklingsfrelsis og framtaks, sem samrunnar eru íslensku þjóðareðli og hafa verið þjóðinni styrkust stoð í allri framfara- baráttu hennar. Sjálfstæðisflokkurinn vill varðveita athafnafrelsi og and- legt frelsi einstaklinganna, en um leið boðar hann þau aug- ljósu sannindi, að hinir frjálsu einstaklingar og starfsstjettir þeirra eigi að vinna saman að úrlausn vandamála sinna. Hann er því mesti samvinnuflokkur þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn var forustuflokkur þjóðarinnar í baráttu hennar fyrir alfrjálsu íslensku lýðveldi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur með öruggri stjórn utanríkis- mála lýðveldisins skapað þjóðinni traust og viðurkenningu í alþjóðlegum samtökum og hefur einn allra flokka verið einhuga í utanríkisstefnu sinni. Sjálfstæðisflokkurinn hefir haft forustu um hinar stór- íelldu framfarir á öllum sviðum atvinnulífs þjóðarinnar, sem orðið hafa síðustu árin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þannig haft forgöngu um að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar bæði út á við og inn á við. Hann hefur hinsvegar ekki haft aðstöðu til að hafa þau áhrif á efna- liags- og fjármálaþróunina í landinu, sem hann hefði óskað. Þess vegna hefur orðið að fylgja þeirri haftastefnu, sem nú er að verða óviðunandi og hefur valdið margvíslegri spillingu í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn einn boðar nú þjóðinni nýja stefnu. Hann boðar henni frelsi í stað hafta og frelsisskerðingu. Hann boðar þjóðinni þá stjóruhætti, sem allir þrá, en trúin á höftin er orðin svo rík í hinum flokkunum, að þeir eru hættir að trúa því, að þjóðin geti orðið frjáls. En þetta er sú stefna, sem frjálshuga íslenskt æskufólk vill láta móta stjórn þjóðmálanna. Það er hinsvcgar ljóst, að því að- Ungir framsóknarmenn Eýsa fylgi sínu Eru meðlimir F. U. F, UNGIR Framsóknarmenn hafa nýlega birt ávarp til æskunn- ar, þar sem gerð er nokkur grein fyrir ,,stefnu“ Tíma- manna í* kosningunum og seg- ir þar meðal annars: „Framsóknarflokkurinn er eini floklcurinn, sem treystandi er. Hann ann ekki valdabraski“. Allir vita, sem eitthvað hafa fylgst með stjórnmálum síðustu árin, að Frarhsóknarflokkur- inn hefur verið klofinn svo að segja í hverju stórmáli, og svo mikil sundrung hefur ríkt inn- an flokksins, að Framsóknar- menn rufu stjórnarsamstarfið m. a. til þess að bjarga flokkn- um frá opinberum klofningi í bili. o. s. frv. Hver verður næstur, anum, eru flest allir komnir mun reynslan skera úr. Ungir , yfir 30 ára aldur og sumir ná- Framsóknarmenn ættu sem lægt fertugu. Slíkt er samræm- minst að tala um valdabrask, í það minnsta ekki meðan Her- mann Jónasson er formaður Framsóknarflokksins. Enginn ungur Framsóknar- maður nær kosningu Með þessu ,,gáfulega“ ávarpi ungra Framsóknarmanna: Svo er hitt atriðið „Fram- fylgdu einnig myndir af ung- sóknarflokkurinn ann ekki um Framsóknarmönnum í fram valdabraski“. Oll saga Fram- boði. Ungir Framsóknarmenn sóknarflokksins vitnar gegn hafa margsinnis í votta viður- þessari fullyrðingu Tímadrengj vist lýst því yfir, í sambandi anna. Því að saga Framsókn- við viðræður, sem fram hafa arflokksins er fyrst og fremst farið milli stjórnmálafjelaga saga um svívirðilegt valda- ungra manna í Reykjavík um brask tækifærissinnaðs stjórn- sameiginlegan æskulýðsfund, málaflokks, sem eingöngu hef- að aldurstakmark samtaka ur hugsað um það, að koma sinna væri 30 ár og að þeir ákveðnum mönnum í vellaun- gætu ekki tekið þátt í sameig- aðar valdastöður. inlegum fundum, nema að þetta aldurstakmark væri ákveðið. Reyndar vildu þeir ekki heldur að flokkurinn taka þátt í sameiginlegum fundi hefur með öllu verið stefnulaus 1 ef aldur ræðumanna væri á- Sporin hræða. Vegna þess, ið í málflutningi ungra Tíma- rnanna. Þessa öldruðu menn bjóða Framsóknarmenn svo æskunni og skora á hann að kjósa þá, en flokkurinn hefur komið því svo haganlega fyrir, að allir þessir menn eru boðnir fram á þeim stöðum sem telja má alveg vonlaust að þeir nái kosningu. Þannig er þó umhyggja Fram- sóknar fyrir æskunni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aftur á móti marga unga menn í öruggum sætum og er mjög líklegt að fleiri ungir menn komi til með að sitja á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkir.n næsta kjörtímabil, heldur en nokkru sinni áður. Og er Sjálfstæðis- flokkurmn eini flokkurinn, sem sendir unga menn á þing. Eru fjelagar F. U. F. innan við hundrað? Fyrir nokkru síðan skrifaði þjóðmálum og fylgismenn kveðinn 25 ár, svo að eftir skiln Friðgeir Sveinsson form. Sam- flokksins engar hugsj. haft til ingi þeirra voru ungir menn, að berjast fyrir og barátta hans aðeins á aldrinum 25 til 30 þar af leiðandi verið háð fyrst ára. og fremst fyrir menn en ekki j Hefði nú mátt ætla, að Fram- málefni, þá hefur ríkt stöðug sóknarmenn fylgdu þessu ald- sundrung í flokknum, sem urstakmarki. sem samkv. þeirra margsinnis hefur leitt til klofn sögn er bundið í lögum sam- ings. I takanna og teldu unga menn AHir ™na hvernig fór fyrir aðeins til þrítugs, en svo er þó Re^kjavík hefur fjelagatalan Tryggva Þorhallssyni. Asgeiri ekki, þessir ungu Framsóknar- fjórfaldast á tveimur árum“. Asgeirssym og Jónasi Jónssyni menn sem taldir eru upp í Tím- , ^ þessari sömu síðu eru —-------------------- ------------------—------------ frjettir af fjelagssarfssemi fje- eins verður þessi stefna valin, að Sjálfstæðisflokkurinn fái hrein- ^aSa ungra Framsóknarmanna an meirihluta á Alþingi, því að aðrir flokkar sjá ekki út yfir hjer í bænum. Og þar stendur | eftirfarandi: „Fjelag ungra bands ungra Framsóknar- manna grein á æskulýðssíðu Tímans, þar sem hanr. lætur mikið af vaxandi æskufylgi Framsóknarflokksins. ■— Hann segir m. a.: „Þúsundir æsku- manna hafa gengið í fjelög ungra Framsóknarmanna. — í höftin. Þau eru þeirra sjóndcildarhringur. Ungir Sjálfstæðismenn heita á unga fólkið í landinu að fylkja liði til baráttu fyrir sigri hugsjóna Sjálfstæðisstefnunnar. Sjálfstæ*ðisflokkurinn hefur með starfi sínu sýnt það og sannað að hann vill búa sem best í haginn fyrir ungu kynslóðina. Hann hefur einnig veitt æskunni meiri viðurkenningu og traust en nokkur annar íslenskur stjórnmálaflokkur með því að velja fleiri unga menn til framboðs en nokkur annar. Þetta traust mun æsk- an kunna að meta. Hún muh við þessar kosningar veita Sjálf- Framsóknarmanna starfaði með miklum ágætum á s.l. vetri og telur það nú hjer um bil 350 fjelaga“ Friðgeir segir að fjelágatal- an hafi fjórfaldast á tveimur síðustu árum og samt er hópur- inn ekki nema 350. Það þýðir, að fyrir fjórum árum hafa ekki stæðisflokknum maklega viðurkenningu fyrir ötula baráttu hans hundí'að manns verið í fjelag fyrir bættum lífskjörum þjóðarinnar og óhvikula varðstöðu hans um hin dýrmætustu mannrjettindi íslensku þjóðarir 'ar. íslensk æska. Minnstu þess, að þú átt að erfa UnJið. Not- aðu því samtakamátt þinn nú við þessar kosningar '11 þess að tryggja lífsafkomu þína og frelsi í framtíðinni. Sýndu það við þessar kosningar, að þú treystir þeim best, sem treystu þjer inu. En um kosningarnar 1946 sagði Tíminn frá því, að fjöldi manns hefði gengið í F. U. F. Er ekki eitthvað bogið við þennan hálflutning? Væri ekki betra fyrir Framsóknarmenn að hætta að tala um æskufylgi sitt, best. Verum öll samtaka um að tryggja Sjálfstæðisflokknum og j heldur en að opinbera á svona augljósan ' hátt, hvað þeir eru raunverulega fylgislitlir meðal þar með vorum eigin hugsjónum sem glæsilegastan sigur. STEFNA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ER STEFNA FRAMTÍÐARINNAR SIGUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ER SIGUR ÆSKUNNAR Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna. æskunnar. Æskan hefur kveðið sinn dóm yfir ' Framsóknarflokkn- um. Hvorki blekkingar loforð Frh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.