Morgunblaðið - 05.11.1949, Blaðsíða 16
VEPURUTLIT — FAXAFLÓI:
Austan-gola eða kaldi. Sums-
.staðar dálítii rigning.
GLÆPAFARALDUR í Frakk-
landi. — Sjá grein á bls. 9.
254. tbl. — Laugardagur 5. nóvcmbcr 1949.
%
ætt við skömmtuiEaz1’
stjóra um smjörskort
Hoilenskt smjör og danskt vænt-
anlegt bráðlega.
UM NOKKURT skeið hefur sem kunnugt er, verið hjer til-
finnanlegur skortur á smjöri. í gær átti Mbl. samtal við Elís
Ó. Guðmundsson skömmtunarstjóra, um þetta mál. — í sam-
talinu skýrði skömmtunarstjóri m. a. svo frá, að erlent smjör
F.je væntanlegt til landsins kringum 20. þ. m.
Astæðan til smjörleysisins. '
Astæðan -- fyrir smjörleysi
því, sem ríkt hefir undanfarið,
er fyrst og fremst sú, sagði
.skömmtunarstjóri að margar
matvöruverslanir hafa nú þeg-
ar afgreitt smjör út á smjör-
skömmtunarseðil nr. 3, sem
ekki má þó afgreiða smjör út
á, fyrr en eftir 15. þ.m.
Smjörmagnið, sem til var í
landinu hefði átt að endast til
að fullnægja sölu þess út á
smjörseðil nr. 2, sagði skömmt
unarstjóri.
Hollenskt og danskt smjör
Síðan gerði skömmtunar-
stjóri nokkra grein fyrir því,
hvaða ráðstafanir hafi verið
gerðar af hálfu hins opinbera
til að bæta úr smjörleysinu. —
Skýrði hann svo frá, að fest
hefðu verið kaup á fyrsta flokks
smjöri, bæði í Danmörku og
Hollandi. Þetta smjör mun
koma til landsins um eða eftir
20. þ. m.
Danir bækkuðu smjörið
Nokkur dráttur varð á smjör
kaupunum, sem upphaflega
áttu að gerast í Danmörku. •—■
Þegar gengisbreytingin varð á
dollarnum, þá hækkuðu Danir
verðið á smjörinu að mun. ís-
lensk yfirvöld urðu þá að leita
fyrir sjer annarsstaðar um
smjörkaup. Tókst að festa
kaup á fyrsta flokks smjöri í
Hollandi og við lægra verði en
Danir kröfðust nú.
Reitirnir 2 og 3.
Þegar smjör þetta kemur í
verslanirnar hjer, verður það
selt gegn smjörreitunum báð-
um, nr. 2 og 3, því tryggja verð
ur það, að fólk, sem enn á ann-
an eða báða þessa seðla í fór-
um sínum, fái smjörskammt
þann sem því ber, út á reiti
þessa.
Jeg vil að lokum undirstrika
það, sagði Elís Ó. Guðmunds-
son, að skortur sá, er nú ríkir
á smjöri, er fyrst og fremst
vegna þess, hve mikið er búið
að afgreiða af því út á smjör-
seðilinn nr. 3, sem þó gengur
ekki í gildi fyrr en 15. nóvem-
ber.
Wý bráðskemlileg
íramhaldssaga
í DAG byrjar í blaðinu ný fram
haldssaga, sem hlotið hefur
nafnið „Sekt og sakleysi". Sag-
an er eftir skáldkonuna Char-
lotte Armstrong og fjallar sag-
an um ástamál og eins og nafn-
ið bendir til sekt og sakleysi í
sakamáli. Sagan er lipur, at-
burðaröðin hröð, án tilgangs-
lausra málalenginga — „eitt-
hvað skeður“ á hverri blaðsíðu.
í einu orði sagt, spennandi.
Varla fer hjá því að lesendur
verði strax forvitnir um sög^-
þráðinn, en sagan er þannig
bygð upp, að erfitt er að gera
sjer í hugarlund um úrslit fyr
en sögunni er lokið.
í enskumælandi löndum
i
varð þessi saga strax metsölu- ,
bók er hún kom út og búið er
að taka kvikmynd eftir sög-
unni, sem væntanlega verður
sýnd hjer á landi. í kvikmynd-
inni leikur Claude Rains eitt
aðalhlutverkið, en hann þykir
nú með betri skapgerðarleikur-
um í Hollywood.
Lesendum skal ráðlagt að
fylgjast með frá byrjun, því til
þess að hafa sem mest gaman
af sögunni þarf að fylgja sögu-
þræðinum frá byrjun.
Slofnþlng NLFI
hefsf hjer í dag
1 DAG klukkan 2 hefst stofn-
þlng Náttúrulækningafjela'gs
Islands. — Að stofnun þess
standa sex náttúrulækningafje
Jog, er samtals telja um 1800
i.-.eðiimir. Mættir eru 30 fulltr.
Kinn nýi Bolungarvíkunregur. ÍSFISKUR FYRIR
.í
ÍSFISKSALAN til Þýskalands
í októbermánuði síðastl. mun
V|qf„ n’-^-'ið um 8.8 milj. Togar-
arnir fóru 40 söluferðir þang-
aó í mánuðinum og lönduðu
ahs kringum 9.994 smál.-af ís-
vörðum fiski,
Til Bretlands fóru aftur á
móti ekki nema tveir togarar,
er seldu fyrir rúmlega 12.000
sterlingspund samtals. — Var
Haukanes annar og seldi hann
fyrir um 4096 pund og hinn
var Maí er seldi fvrir um
8094 pund. — Fimm lítil fisk-
flutningaskip seldu fyrir um
7.618 stp. samtals.- V.s. Gull-
faxi var söluhæst þeirra.
í síðustu viku seldu fáir tog-
arar í Þýskalandi, en Kaldbak
ur frá Akureyri var með mest-
an afla beirra, 303 smál. Hinir
togararnir eru þessir: Goða-
nes, sem seldi 233 smál., Júlí
251, Neptúnus 241 og Úranus
237 smál.
Hjer sjest hluti af hinum nýja þjóðvegi milli Rolungar-
víkur og ísafjarðar. Er hann sprengdur utan í snarbratt kletta-
belti. A þessum stað er ráðgert að reisa vígt krossmark. —
Sjá grein um Bolungarvíkurveg á bls. 5.
Ísland tekur þátt \
heimsmeistarakeppni
í handknattleik
ÍSLAND tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í handknattleik
innanhúss, sem fram fer í Svíþjóð í febrúar næsta ár. Tók stjórn
I. S. í. nýlega ákvörðun um þetta. Þetta er útsláttarkeppni,
þannig að það land, sem tapar einum leik, er úr keppninni.
Tilboðin í virkjun
i
VÆNTANLEGA munu öll til-
boð í hið nýja neðanjarðarorku
ver, virkjun Neðri fossa í Sogi,
liggja fyrir um næstu mánaða-
mót.
Steingrímur Jónsson raf- j
magnsstjóri, er nýfarinn vestur
til Bandaríkjanna, til viðræðna
við þær verksmiðjur þar, er 1
gera munu tilboð í vjelakost;
orkúversins og önnur tæki þess.!
Er rafmagnsstjóri væntanlegur
heim aftur kringum næstu mán I
aðamót. i
Jakob Guðjohnsen yfirverk- j
fræðingur, er nýlega kominn
heim frá Englandi og nokkrum
Evrópulöndum öðrum. Þangað
fór hann sömu erinda og raf- !
magnstjóri fór nú til Banda-
ríkjanna. I
Kviknar út frá
rafmagni í
SLÖKKVILIÐIÐ var í gær
kallað út að íbúðarskála í
Skólavörðuholti. — Flafði kvikn
a<J í út frá rafmagni. Skemdir
urðu mjög litlar.
Undirbúniugur hafinn.
ÍSÍ er búið að skipa fimm
manna nefnd, sem á að aðstoða
ÍSÍ í öllum undirbúningi í sam
bandi við þessa för. í nefndinni
eiga sæti: Sigurður Norðdahl,
Sigurður Magnússon, Hafsteinn
Guðmundsson, allir úr Reykja-
vík, Gísli Sigurðsson, Hafnar-
firði og Jón M. Guðmundsson,
Reykjum, Mosfellssveit.
Einn maður velur liðið
Þá hefir ÍSÍ og falið einum
manni, Sigurði Magnússyni, að
velja menn til æfinga undir
þessa keppni strax að Reykja-
víkurmótinu loknu, ráða þjálf-
ara, semja æfingarskrá og sjá
um að henni verði fylgt bæði
utan og á æfingum. Þá mun
hann og endanlega velja liðið,
sem fer til Svíþjóðar.
Þetta er nýmæli við val á
landsliði hjer hjá okkur og
sennílega ein heppilegasta að-
ferðin, þegar um slíkt er að
ræða.
Umferðabanni afljett
ANKARA, 4. nóv.: — Tyrkir
hafa í hyggju að afljetta um-
ferðabanni, sem hefir verið á 2
hernaðarmikilvægum svæðum í
grcnnd við landamæri Tyrklands
fyrir starlsfólk
D-listans
SJÁLFSTÆÐISFJELÖG-
IN í Reykjavík efna til
kvöldskemmtam í næstu
viku fyrir starfsfóll- D-
listans í kosningunum.
Þessar kvöldskemmt-
anir verða á þriðjud'-gs-
og fimmtudagskvöldi:, í
Sjálfstæðishúsinu og hefj
ast kl. 8.30.
Þeir, sem unnu fyrir
D-listann ,eru boðnir á
þessar skemmtanir og eru
menn beðnir að vitja að-
göngumiða á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í
Sjálfstæðishúsinu og hefst
afhending þeirra á mánu-
dag. —
Fluttar verða stuttar
ræður, — skemmtiatriði,
og dansað. — Vænta
stjórnir Sjálfstæðisfjelag-
anna þess, að þær geti
orðið til ánægju fyrir
starfslið flokksins.
Stormur á miðunum.
Síðustu þrjá daga hafa tog-
ararnir, sem nú eru á veiðumm,
ekkert getað aðhafst vegna
storms á miðunum.
Nú eru á leiðinni til Þýska-
lands með fisk, 12 togarar og
mun um helmingur þeirra
væntanlega selja á mánudag-
inn.
HemaSarhjáp Banda
rík janna til V-Evrópu
WASHINGTON, 3. nóv.: — í
dag hófust hjer samningaum-
leitanir við 8 ríki Vestur-Ev-
rópu á grundvelli þess sam-
komulags. að Bandaríkin munu
veita þeim hergögn fyrir 1000
milj. dala. Þau lönd, sem hjer
eiga hlut að máli eru Bretland,
Frakkland, Noregur, Danmörk,
Ítalía, Belgía, Luxemburg og
Holland. — Reuter.
Q
. I,,\ v.v-- J