Morgunblaðið - 22.11.1949, Side 4

Morgunblaðið - 22.11.1949, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. nóv. 1949. j Bom í virkiim degi eftir Ása Gruda Skard. Valborg Sigurðardóttir þýddi. — Bókaútgáfan Norðri. Akureyri 1949, 204 bls. JAFNAN eru fá rit á íslenska bókamarkaðinum, sem fjalla vim uppeldismál, allra síst rit, sem eru í senn vísindaleg og aðgengileg fyrir almenning. — Þessi bók sajneinar í ríkum mæli báða þessa kosti og er því að henni mikill fengur. — Höfundur hennar, frú Ása Skard, er dócent við háskól- ann í Oslo, og er hún kunn um oll Norðurlönd af rannsóknum sínum og ritum um uppeldis- leg og sálfræðileg efni. í þessu riti. sem hlotið hefur miklar vinsældir á Norðurlönd um, rekur frú Skard í megin- dráttum sálræna þróun barns- ins frá fæðingu fram á ungl- ingsár með hliðsjón af helstu uppeldisvandamálum, sem for- eldrar eiga við að glíma. — Bókin er rituð í þeim anda. sem jeg felli mig vel við, og er jeg sammála höfundi um öll þau atriði, sem máli skipta. Leiðbeiningar um uppeldi eru ekki settar fram sem ósveig- anlegar reglur, en þeim mun skýrar kemur fram, að flestar reglur í uppeldisfræði eru ein- ungis til hliðsjónar, því að þær verður að semja að sjereðli og þroska barrisins á hverju ald- ursskeiði þess. Á þetta leggur frú Skard hvarvetna mikla á- herslu. Allur einstrenginshátt- ur og' dauð reglufesta er fjarri henni. Venjumyndun og nám verða t.d. ávallt að fara fram I samræmi við þroska og ein- staklingseðli hvers barns. Með því að þvínga barnið til að temja sjer venjur, sem það hef ur ekki enn þroska til að til- einka sjer, má vinna því lang- varandi tjón, sem verður síðan tilefni til ýmissa örðugra upp- eldisvandamála. Sama máli gegnir um nám. Þar borgar sig ekki heldur að, hrista of snemma eplatrjeð. — Barnið verður að fá að lifa í sem fyllstu samræmi við þarfir sín ar og hneigðir á hverju ald- ursskeiði. Þó hneigist frú Skard ekki að þeim öfgum, sem slundum hefur skotið upp meðal nútímauppeldisfræð- inga, að veita barninu ótak- markað frelsi og láta í öllu undan duttlungum þess, því að með því móti er hætt við, að það verði hinn versti harð- stjóri. Uppeidi barnsins hefur það langmið framundan, að það verði siðferðilegur persónu leiki og fullgildur þegn í þjóð- fjelaginu. sem heimtar ekki oinungis rjett sinn, heldur virð ir einnig rjett annarra. — En þessi aðlögun barnsins að mönnum og menningu gerist smám saman •• og ekki þrauta- laust og mistakalaust, hvorki fyrir barnið sjálft nje upp- alendur þess. Árekstrarnir eru margir og margvíslegir. Til þess að stuðla að þvf að barnið nái þessu markmiði, verða for- eldrarnir fremur að beita við það lipurð og auðsýna því jástúð en beygja það til skilyrð- islausrar hlýðni við reglur. — Hinn fagri meginþráður í allri bókinni er þessi: Auðsýnið barninu framar öilu skilnings- ríka ástúð. Hvert það barn, sem fer á mis við nægilega ástúð í uppvextinum, hefur verið svipt hinu dýrmætasta, sem uppalendur þess hefðu getað látið því í tje. Það er furða, hve miklu efni höfundi tekst að koma fyr ir í ekki stærri bók, en þó er hún svo ljóst og alþýðlega rit- uð, að af ber, gersamlega laus við útþynningar og málaleng- ingar. En einmitt vegna þess, hve bókin er í senn efnismikil og ljós, l.eynir hún á sjer, ef svo má segja, og er ástæða til að vara menn við að lesa hana í flaustri, leggja hana svo á hilluna með þeirri sannfær- ingu að þykjast vita allt, sem í henni stendur. Hún þarf að lesast oft og lesast með gaum- gæfni. Auk þess, sem ritið á erindi til foreldra og alls al- mennings er það ágætlega fall- ið til kennslu í húsmæðra- og kvennaskólum og bætir þar úr brýnni þörf, því að naumast var áður til hentug kennslu- bók við hæfi slíkra nemenda. Frk. Valborg Sigurðardóttir hefur lagt mikla alúð við þýð- inguna. Málið er vandað, en þó alþýðlegt, orðaval smekk- legt, hvergi seilst eftir torskild um orðum. Á hún þakkir skild ar fyrir að hafa veitt almenn- ingi kost á því að gera þessa merku bók að andlegri eign sinni. Nokkrar myndir prýða ritið og er útgáfa þess öll hin snotr- asta. Símon Jóli. Agústsson. Cl 325. <lagu,' ársins. Maríumessa. Ylir byrjar. ÁrdegisflæSi kl. 6,40. Síðdegisflæði kl. 19,03. Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, sími 5030. INæturvörður er i Ingólfs Apóteki simi 1330. Næturakstur annast Litla bílstöð in, sími 1380. □ Edda 59491122 7—1 I.O.O.F. Rb.st.I.Bþ.9811228i/2 O. Afmæli 70 ára er i dag frii Sigríður Ölafs dóttir, Lækjargötu 8, Hafnarfirði. Hjónaefni S.l. laugardag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Ruth Heiden frá Lúbecb og Gestur Jónsson, Hæli, Gnúpverja- hreppi. S.l. sunnudag opinberuðu trúlofun sina Hafdis Guðlaugsdóttir, hár- 1 greiðsludama, Þrastargötu 3, og 1 Ragnar Vignir, ljósmyndari, Sam- tún 40. Brúðkaup Laugardaginn 19. þ.m. voru gefin saman i hjónaband af sr. Jakob Jóns syni, ungfrú Guðrún Fjóla Sigurðar- dóttir, I.undi. Fljótum, Skagafjarðar- sýslu og Gunlaugur E. Hannesson, Litla-VTatnshorni, Dalasýslu. Heillaráð. Leigjendaíjelagið vill fylgjas! með úlfilufun Búsfaðavegshúsanna LEIGJENDAFJELAG Revkja- víkur boðaði til almenns fund- ar meðal leigjenda í bænum 16. þ. m. í Breiðfirðingabúð. Á fundinum flutti formaður fjel- agsins Kristján Hjaltason, er- I . indi, er útvarpsráð hafði synj- að um flutning á, um húsnæðis málin í Reykjavík. Ennfremur flutti Þórarinn Þórarinsson ritstjóri þar erindi. Allmiklar umræður urðu á eftir og var komið víða við. Fjelagið hefir beitt sjer fyrir og unnið að skráningu og lýs- ingu leiguíbúða í bænum. Auk þess hefir það samið nýtt frum- varp til húsaleigulaga, sem lagt hefir verið fram á Alþingi. A fundi þessum var auk þess samþykkt eftirfarandi til- laga varðandi bæjarhúsin við Bústaðaveg: . „Almennur fundur leigjenda í Reykjavík, haldinn í Breið- firðingabúð 16. nóvember 1949, skorar á Bæjarstjórn Reykja- víkur að hún veiti stjórn Leigj endafjelags Reykjavíkur, að- stöðu til að fylgjast með út- hlutun bæjarhúsanna við Bú- staðaveg og ennfremur að fylgj ast með notkun þeirra íbúða er losna við þessar ráðstafanir“. FLJÖTSMURT BRAUÐ. — Skerið nokkrar h veitibraijðssneiðal? í sömu stærð og spægipylsusneiðar. Steikið þær ofurlítið. Smyrj- ið þær og sctjið á þær spægipylsu, og yfir hana grænar baunir, eða tómatsneiðar með niðurskornum kartöflum og sinnepi. Eitt- hvað af þessu er til í hverjum elilhússkóp, þótt hann við fy^rstu sýn virðist herfilega tómur. Alþingi í dag Járnbrautarslys. BERLÍN, 21. nóv. I Fimnrmanns fórust í járnbrautarslysi á rúss- neska hernámssvæðinu í Þýska- landi í gærkvöldi. Efri dcild: 1. Frv. til 1. um viðauka við I. nr. 100 29. des 1948, um dýrtiðarráðs- stafanir vegna atvinnuveganna. 2. Frv. til 1. um breyt. á vegalög- um, nr. 34 22. april 1947. NeSri dcild: 1. Frv: til 1. um breyt. á lögum nr. 85 15. des. 1948, um aðstoð til síld- arútvegsmanna. er sildveiðar stund- uðu sumarið 1948. 2. Frv. til 1. um öryggisráðstafan- ir á vinnustöðyum. 3. Frv. til 1. um togarakaup rik- isins. 4. Frv. til 1. um breyt á 1. nr. 3 14. febr. 1949 um samkomudag reglu legs Alþingis 1949. 5. Frv. til 1. um viðauka við 1. nr. 15 8. mars 1948, um innflutning bú- fjár. 6. Frv. til 1. um breyt. á 1. nr. 35 1. apríl 1948, um sementsverksmiðju. 7. Frv. til 1. um breyt. á i. nr. 100 1948 um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna. Æska Reykjavíkur I ineir en 20 ár hefur Heim- dullur verið hrjóstfylking og bar- áitufjelag hinnar þjóðræknu, sjálf- stæðu o£ frjálslyndu æsku Reykja- víkur. Ganjiið í Heiindall o<s styðjið nieð því þá stjórnmálastefnu, seni ein er þess megnug að tryjifija filæsilega fraintíð íslensku þjóðar- Austfirðingafjelagið í Reykjavík heldur aðalfund sinn í Tjarnar- café annað kvöld kl. 8,30. —- Dansað að ioknum aðalfundarstörfum. Við hlutaveltu, sem haldin var fyrir Njarðvikur- • kirkju 19. nóv., komu eftirtalin happ- : drættisnúmer upp, sem enn hefur ekki verið vitjað: 258 — 645 — 1833. Munirnir eru geymdir hjá Sigurgeir Guðmundssyni, Akurgerði, Innri- í Njarðvík. ! Nöfn málaflutnings- mannanna tveggja, er voru sækjenduy og verj endur í málinu Tollstjóriim í Reykja vik f.h. ríkissjóðs gegn Steindóri Ein- arssyni, misrituðust þannig, að í 'stáð Ih'rnuiniis Jónsson er var sœkjandi stóð Hermann Jónasson ..og i stað Signrgeirs Sigurjónssonar, stóð Sig urgeir Sigurðsson. Flugferðir Loftleiðir h.f. j í gíer var flogið til Vestmanna- eyja, Akureyrar, Isafjarðar, Hólma- I vikur. Ennfremur var farið í sjúkra- flug til Skálmafjarðar. 1 dag er óætlað að fljúga til Vest- mannaeyja, Akureyrar, Isafjarðar, Patreksfjarðar og Blönduóss. Geysir er væntanlegur frá New York árdegis í dag. Áheit til kapellu háskóls j Hildur Blöndal kr. 35,00, dr. Sig- fús Blöndal kr. 100,00, — Ka:rar þakk ir, Ásmundur Guðmundsson. i Fi*ú Jóhanna Hróbjartsdóttir Reynimel 28. Reykjavík. Afmæliskveðja. Ljóssins faðir lýsi þjer; blessi þig og þina niðja. þess að vonum óska og biðja allir vinir eins og her. Barna lón þú hefir iiiotið. helstu g.i'fu þar með notið, sem að faist í heimi hjer. Ávöxt góðrar æsku berðu, uppskeruna þegar sjerðu leiðin fyrr en lokuð er. Yfir þína æfidaga árdagsljóma sa'r vor Saga. Þetta gjörla vitum vjer. V. Jak. Hlutavelta Ármanns Dregið var i happdrætti hlutavelt- unnar á sunnudagskvöld og komu upp þessi númer: i 134 Flugfar til út- landa. 8236 Islendingasögurnar 15 hindi. 12216 Ottomanskápur. 31831 Málverk. 22040 Lituð ijiismynd (Ak- ureyri). 25440 Frakki. 7742 Værðar- voð. 8700 F’rakkaefni. 27205 tslend- ingasögur (13 bindi). 2 3 464 Værðar- voð. 16383 Riddarasögur. 30943 Skíði 25946 Skiðastafir. 988 Ritverk Jóns : Thóroddsen. 14172 Bókasafn banda börnum. 11312 Værðarvoð. .30602 tJt- skorinn askur. 25600 Lituð ljósmynd. 4221 Drengjafrakki. 22652 Kastspil. Vinninganna sje vitjað í Körfugerð ina, Bankastræti, sem allra fyrst. SMpafrjettir Eimskip: | Brúarfoss fór frá Gautaborg 19. nóv. til Re.ykjavikur. Dettifoss fór frá Rotterdam 19. nóv. kom til Hull í gærmorgun. Fjallfoss er í Reykjavik. Goðafoss kom .til Akureyrar 19. nóv. frá Húsfiyik. Lagarfoss fór frá Reykja vik 19. nó.v. tii Hamborgar, Póllnnds og Kaupmannahafnar. Selfoss fór frá Hamhorg í gærkvöíd'tii Leith. Tröila foss kom til New York 19. nóv. frá Reykjavík. Vatnajökull fór frá Kéíla- vík 14. nóv. til London. E. & Z.: Foldin er í Reykjavík. Lingestroom er í Faereyjum. Ríkisskip • Hekla er á Akureyri. Esja for frá Reykjavík i kvöld vestur um iand í hringferð. Herðubreið fer frá Reykja-i vík i kvöld austur um land til Vopna- fjarðar. Skjaldbreið var i St.vkkis- hólmi í ga;r ó vesturleið. Þyrili er | Réykjavik. Hermóður var á Hólma-: vik í gær á norðurleið. Helgi fer frá Reykjavík i kvöld til Vestmannaeyja, Akraborg fór frá Reykjavík í gær- kvöld til Skagastrandar, Sauðárkróks, Hofsóss og Hriseyjar. Til bóndans í Goðdal Önefnd 100, G. E. og J. J. 200„ Til Strandakirkju. Z 1,500 Til Hallgrímskirkju í Saurbæ Z 1.500. Erlendar útvarpsstöðvar SvíþjóS. Bylgjulengdir: 1588 og 28,5 m. Frjettir kl. 18 og 21,15 Auk þess m. a.: Kl. 15,25 Jazzs fyrirlestur. Ki. 17,30 Stærsti yrkishóp urinn, fyrirlestur. Kl. 17,50 „Liile Bror“ Söderiundh syngur og leikur á gítar. Kl. 19,25 Hljómleikar. Danmörk. Bylgjuleng*dir: 1250 og 31,51 m. — Frjettir kl. 17,45 og kl. 21,00. Auk þess m. a.: Kl. 17,20 Leikrit eftir André Gide. Kl. 18.30 Johnnnes Brahms. Kl. 19,15 Gömul dansmúsik. Útvarpið: 8,30 Morgunútvarp. — 9,10 Veður- fregnir. 12,10—13.13 Hádegisútvarp, 15,30—16,30 Miðdegisútvarp. —- (15,55 Veðurfreguir). 18,25 Veðurj fregnir. 18,30 Dönskukennsla; II. —. 19,00 Enskukennsia; I. 19.25 Ibng- frjettir. — Tónleikar. 19,45 'Auglýs- ingar. 20,00 Frje.ttir. 20,20 Tónleik-i ar: Kvartett í C-dúr (K 465) eftir Mozart (piötur). 20.45 Erindi: Um Clemenceau; síðara erindi (dr. Simori Jóh. Ágústsson). 21.10 Tónleikar (plötur). 21,20 Gömul brjef: Úr brjef um Árna Magnússonar (Jakob Bene- diktsson magister). 21,45 Tónleikars „Ástardúettinn" úr óperunni „Tristan og Isolde“ eftir Wagner (plötur), 22,00 Frjettir og veðúrfregnir. 22,i(j Vinsad lög (plötur), 22,30 Dagsktár- lok.. iiimmiiniiiu imimmmiiii BERGUR JÓNSSON Mál/lntniii gsskrifstofa : Laugaveg 65, sími 5833. 1 *iiiiinimiiimmmiMriiiliimiiMiiiimmiiiiiiiii.imirH /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.