Morgunblaðið - 18.12.1949, Síða 1

Morgunblaðið - 18.12.1949, Síða 1
1 32 síðisr 36. árgangur. 294. tbl. — Sunnudagur 18. desember 1949. Prentsmiðja Morgur blaðsms Stærsta sjónvarpsstöð i heimi opnuð í gær LONDON, 17. des. — í dag var vígð í Bretlandi ný sjónvarpsstöð í grennd við Birmingham. Er hún sú „ stœrsta í heimi. Með opnun þessarar nýja stöðvar eýkst fjöldi þeirra, sem horft geta á sjónvarp í Bretlandi um 5 milljónir. Þar með er um 1/3 af íbúatölu landsins gefinn kostur á að færa sjer sjónvarpið í nyt. Gert er ráð fyrir, að 5 sjónvarpsstöðvar verði komn- ar upp að 3 árum liðnum, til nota fyrir 70% þjóðar- innar. Áætlað er, að eftir 5 ár verði komnar upp 10 stöðvar, sem 80% þjóðarinnar hafi not af. — Reuter. Á AFGREIÐSLU bögglapóststofunnar eru sömu þrengslin. — Það sjest greiniiega á þessari mynd, sem tekin var á dögunum. — (Ljósm. Mbl. Ól. K. Magnússon). Uppreisnarmennirnir grísku fáir heima fyrir Háskinn er þó yfirvofandi, meóan viðhorf nágrannanna helsf óbreyff. Einkaskeyti til Mbl. frá Reutei. AÞENA, 17. des. — Gríski yfirhershöfðinginn, Papagos, ljet Svo um mælt í Aþenu í dag, að r.ú væri ekki eftir í landinu nema 1200 uppreistarmanna í smáhópum. Ekki kvað hers- hqfðinginn allan háska þó vera favinn hjá garði, þar sem í ná- grannalöndunum væri enn allt að 12.000 uppreistarmanna. I Viðhorf Kominform óbreytt. Þessir uppreistarmenn, sem í nágrannaríkjunum dveljast, éru vís háski þjóðinni, sagði hershöfðinginn. Það er ekki Aóg, að okkur hefir tekist að sigrast á ólánsmönnunum heima fyrir. Viðhorf Komin- formríkjanna er óbreytt í okk- ar garð og við erum ekki ó- hultir, meðan svo er. Loks gat hershöfðinginn þess, að unnið væri að því, að upp- ræta þá uppreistarmenn, sem enn eru eftir í landinu. LARVIK, 17. des. — Eftir fiegn um að dæma, þá er mjög mikil hálka á flestum vegum Noregs og er færið hættulegt akandi, og gangandi. Þjóðverjar fá aðild að stjórn Ruhr BONN, 17. des.: — í dag var þýski fulltrúinn tilnefndur í alþjóðastjórn Ruhr-hjeraðsins. Fyrir valinu varð varaforsætis- ráðherra sambandsstjórnarinn- ar í Bonn, Blucher. Þessi alþjóðlega stjórn var sett á laggirnar fyrir ári síðan og skal hún hafa yfirumsjá með iðnaði hjeraðsins og fleira skal hún hafa með höndum. Það er fyrst nú, sem Þýskaland fær aðild að þessari stjórn. — Reuter. Vlðræðnm Bretlands og Norður- lando um efnahagsmál lokið iúlgarar ganga til gervikosninga í dag Mega velja eða hafna einum lista, sem skipaður er aðeins kommúnistum. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. SOFÍA, 17. des. — Á morgun (sunnudag) fara fram þingkosn- ingar í Búlgaríu. Þetta verða þó engar kosningar í skilningi lýðræðisþjóðanna, þvf að einungis einn listi kemur fram, og ei hann skipaður kommúnistum einum. Kjósendur eiga þess svo einn kost, að greiða honum atkvæði sitt eða hafna. Öryggisráðstafanir. Vegna kosninganna hefir ver ið gefin út sjerstök reglugerð, sem á að tryggja það, að ekki komi til óspekta í sambandi við þær. Mönnum er bannað að bera barefli eða vopn. Leikhúsum, kaffihúsum, kvikmyndahúsum og öðrum þeim stöðum, þar sem fólk kemur saman að jafnaði, vérður lokað í sólarhring. Á- fengissala er bönnuð. Almennir fundir og ræðuhöld eru og bönnuð. Skýrsla Svona er rjettarfarið í því kommúnislaríki - Ungverjalandi BUDAPEST, 17. des.: — Sendi- herra Bandaríkjanna^ í Ung- verjalandi skýrði frá því í kvöld, að bandarískur emb- ættismaður í Ungverjalandi, Jacobson, hefði verið tekinn fastur í gær. Var það öryggis- lögreglan, sém það gerði, en enn hefir ekkert verið látið uppi um, hvað manninum er gefið að sök. Hafa allar til- raunir sendiráðsins til að fá að vita sakargiftirnar verið unn- ar fyrir gýg. Þetta er annar Bandaríkjamaðurinn, sem hand tekinn er í Ungverjalandi á nokkrum vikum. — Reuter. um fölu faliinna á Malakka LONDON, 17. des.: — Skýrt var frá því í dag, að frá því neyðarástandinu var lýst yfir á Malakkaskaga í júní í sum- ar, hafi allmargir orðið fyrir barði ofbeldismanna. — Hefir 141 hermaður látið lífið á þessu tímabili, þar á meðal 17 liðs- foringjar. Á sama tíma særðust 196. — Reuter. Fjekk nýja sokka og sfutfbrækur með TRIER: — Ekki alls fyrir löngu var þýsk stúlka á kvikmynda- sýningu, og horfði á mymjlina ,,Hringjarinn“, sem gerð er eftir sögu Edgar Wallace. Fjekk myndin svo á stúlkuna, að hún spratt upp og skemmdi sokkinn sinn. Hún kvartaði við fram- leiðendur myndarinnar, og bað þá, að myndir þeirra yrðu ekki svo æsandi í framtíðinni. Fyrirtækið sendi henni nýja nylon-soka og nokkrar leður- brækur. Jafnframt baðst það afsökunar á því, að ekki væri hægt að fara vægara í sakirn- ar í myndunum en raun væri á. — Reuter. Danir leyfa flóttamönnun um að vera um kyrrt KAUPMANNAHOFN, 17. des.: — Danir hafa nú veitt þeim pólsku flóttamönnum, sem lentu á Borgundarhólmi í gær, leyfi til að dveljast í landinu. Tveir þeirra æskja eftir að hverfa heim. Ætlun hinna flóttamannanna var að halda ferðinni áfram til Bret lands, en pólski sendilierr- ann í Danmörku hefir and- mælt því, að þeir hafi frek- ari not af vjelflugunni, sem þeir komu í. Danir hafa því fallist á að afhenda hana Brezku tillogun- um var hafnai Nýr fundur sömu aðila vænfanlepr í janúar Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. STOKKHOLMI, 17. des. — Uræðum þeim um efnahags- mál, sem hafa staðið undan- farna daga í Stokkhólmi milli Breta, Norðmanna, Dana og Svía, lauk í kvöld. Bretar lögðu til, að sterlingspundið yrði notað sem gialdevrir milli Skandínavíulandanna og milli þeirra og Bretlands. Áfangi, ekki takmark. í sameiginlegri tilkynningu Svía, Norðmanna, Dana og Breta segir á þessa leið: ,.Til- lögur Breta miðuðu fyrst og fremst að því, að niður fjelli allir greiðsluörðugleikar milli hlutaðeigandi landa. Ekki var þó litið á þetta sem takmark í sjálfu sjer, heldur áfanga á leið inni til gagnkvæmra viðskipta og frjálsra gjaldeyrisskipta". Fundur í janúar. Norðurlöndin 3 gátu ekki fallist á tillögur Breta um nán- ari samvinnu í efnf.hagsmál- um, en ekki er öllu þar með lokið. Áreiðanlegar fregnir herma, að til nýs fundar verði boðað með þessum sómu aðil- um snemma í janúa: n. k. — Kann svo að fara þá, að komi til málamiðlunar miili Breta og Norðurlandanna í þessum málum. Engin höfn verður laus viS tundiH'dufl LONDON, 17. des.: — Stjórn þjóðernissinna á Formósa hefir lýst því yfir, að allar þær hafn- ir, sem kommúnistar ráða yfir á langri strandlengju Kína muni verða kvíaðar með tund- urduflum í framtíðinni. Hefir erlendum skipum af þessum sökum verið ráðið til að verða á brott eigi síðar en á þriðja degi hjef frá. — Reuter. Burma viöurkennir sfiórn kínverskra kemmúRista LONDON, 17. des.: — Burma- stjórn lýsti því yfir í dag, að hún viðurkenndi kommúnista- stjórnina í Kína. Var- svo um mælt, að Burma vildi eiga sem vinsamlegust skipti við Kína og svo yrði að líta á, að kom- múnista^tjórnin nyti stuðnings aftin- Pólverjum. — Reuter. þjóðarinnar. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.