Morgunblaðið - 06.01.1950, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 6. janúar 1950.
Sigurður Björnsson írá Veðramóii:
Björn og Tíminn
Tíminn og Björn
Fyrst að sóðinn flár í lund
fór með ljóð að geipa,
skal jeg óðan yfir hund
orða flóði steypa.
Svo sagði Sveinn, Elivoga, til
skoltahagyrðings, sem kastað
hafði kesknivísu til Sveins.
jEinhvern veginn vildi það
þannig til að þetta var það
fyrsta, sem mjer kom í hug,
þegar jeg hafði lesið greinar-
kcirn, illa hugsað og illa sagt,
effir Björn Guðmundsson í
Típianum 20. þ. m. og stefnt
er;til mín.
Jeg þekti þennan mann
nqkkuð fyrir mörgum árum,
norður í Skagafirði og var hann
þá þegar kéndtir við Tímann,
Enda var hann þá og alltaf síð-
an hans þjónustubundinn andi.
Sá var háttur Björns í þann
tírha, að setja sig aldrei úr færi
tiL að reyna að narta eitthvað
í jmig eða rjettara, eins og
stúndum er sagt, að hafa úti
síú horn til að hniþpa í mig
bæði á öllum fjelagsfundum og
fléiri mannafundum þar sem
þyí varð við komið Þessu lauk
svlo okkar í milli, að menn báru
þáð upp í sjer norður þar, að
jeg væri búinn að drepa Björn
af mjer pólitískt sjeð.
Ríkidæmi:
,’Eítt af ádeilum Björns á mig
á þessum áru.m var þáð, að jeg
væri svo ríkur, að þess vegna
væri ilt við mig að eiga. Auð-
vitað var það í hans munni
hreint skammaryrði. Við böðl-
uoumst þá báðir við búskap
nórður þar, hann niðri í mið-
sVeit, en jeg í mesta harðinda-
plássi upp til fjalla. Hver rík-
afi væri, eða rjettara hver fá-
tsékari væri. gerði jeg aldrei
upp. Að öðru leyti en því, eins
og jeg sagði honum eitt sinn á
fundi, að jeg væri ríkari af
börnum, því þá átti jeg þau
fimm á palli.
Alltaf að tana:
Nú segir Bjern, að jeg hafi alt
af verið að tapa, og lætur í það
skína, að einkum sje það í af-
stöðu minni til Framsóknar-
flokksins.
Annar var tónninn í Birni,
meðan hann var norður þar,
eða sá að sök mín væri ein af
mörgum sú, að jeg stæði mjög
í vegi fyrir gengi þeirra Tíma-
manna í Skagafirði. Enda fór
það svo, að hann hröklaðist það
an burtu fullur vonleysis um
sitt pólitíska gengi þar í sveit.
A grænni grein:
Nú finnst Birni, eða svo er
á honum að heyra, að hann sje
á grænni grein, þar sem hann
er orðinn innsti koppur í búri
í Grænmetisverslun ríkisins og
virðist telja það mikinn sigur
og góðan, fyrír sig sem Tíma-
mann, að hann hafi verið dubb-
aður upp í þessa aðstöðu og tel-
ur sig nú sigurvegara, en mig
sigraðan þar eð jeg er utangátta
við grænmetið og öll þau gæði,
sem því fylgja. Hann um það.
V.
Stóríbúðaskatturnnn:
Þegar Björn byrjar á nefndri
grein sinni, lætur hann það
verða sitt fyrsta verk, að setja
fram nokkra lýsingu á mjer
persónulega og kynni sín af
mjer, án þess það komi nokkuð
við grein mína, fyrir stuttu í
Morgunblaðinu um frumvarp
þeirra Framsóknarmanna um
stóríbúðaskatt. Ekki er langt
komið máli hans, þegar hann
byrjar á ósannindunum. Hann
kallar Yeðramót mitt, ættaróð-
al. Það sanna er ,að enginn í
minni ætt hefir átt Veðramót
fyr en jeg keypti jörðina af
Landssjóði. Þannig er áfram-
hald greinarinnar, alt missagn-
ir og rakalaust slúður, þar sem
eitt rekur sig á annars horn.
Framsóknarmenn:
Björn heldur því írain. að jeg
beri einhverja sjerstaka óvild
til Framsóknarmanna. Þetta er
eitt af því ósanna, því jeg á
margá góða vini í þeim flokki.
En pólitík þeirra hefi' jeg
aldrei getað viðurkennt, enda
ekki gott að átta sig á henni,
þar sem engin stefna er til,
því þeir eru allt í senn öllum
íhaldssamari öllum róttækari
og öllum illviljaðri í garð þeirra
manna, sem hafa einhverja
framtakssemi og dugnað, ef
þeir ekki fylgja þeim sem
hreinir blindingjar (í pólitík,
Þeir þykjast samvinnumenn
alveg 100% en eru þó margir
kaupmenn og heildsalar, bíla-
og húsabraskarar í stórum hóp-
um. En allt þetta nefna þeir
fordæmanlegar ódygðir í fari
annara flokka manna.
Sjerrjettindi:
Eitt af þessum kjánalegu á-
deilum Björns er sú, að jeg sje
í grein minni um stóríbúða-
1 skatt, að verja mín sjerrjett-
indi. Sannleikurinn er sá, að
jeg hefi engin sjerrjettindi að
verja. Jeg er aðeins að verja
almenn mannrjettindi, svo sem
heimilishelgi og heimilisfrið
ásamt skýlausum eignarrjetti,
Þetta eru engin sjerrjettindi
fyrir mig. þetta er almennur
þegnrjettur í okkar þjoðfjelagi,
löghelgaður og lögverndaður í
okkar stjórnarskrá. — Hvað
myndi Björn segja, e’f einhver
væri atvinnulaus, heimtaði að
Björn væri rekinn út úr græn-
m^tisversl., en sá, sem kröfuna
gerði, tekinn í hans stað og þetta
yrði gert án þess að nokkuð
væri hægt að finna að -störfum
Björns, en með fuilri reynslu
eða þekkingu á hinum mann-
inum, að hann reyndist í öllu
illa.
Rannveig og Björn:
Það er furðuleg tramhleypni
af Birni að ætla sjer að ganga
fram fyrir fröken Rannveigu,
þykjast henni færari til að
verja hana fyrir einhverju ill-
mæli, sem jeg hefi kastað til
hennar í Morgunblaðsgrein fyr-
ir síðustu alþingiskosningar.
Þetta er nú hrein flónska. í
fyrsta lagi af því, að jeg hefi .
í nefndri giein engum illmælum !
kastað til frökenarinnar. í
öðru lagi, af því, að ef svo hefði
verið, hversu miklu færari .
hefði hún ekki sjálf verið til
þess að bera af sjer. Nei. Astæð
an hjá Birni er ekki önnur en
þessi hneigð hans til að reyna
að ófrægja mig í vitund þeirra
sem Tímann lesa, það er þessi
merkilegi naglaskapur í hugsun
og athöfn, sem svo oft má sjá
í dálkum Tímans.
Ótraustir fætur:
Björn segir, að jeg hljóti að
standa ótraustum fótum í minni
sjálfsvitund í andmælum
gegn stóríbúðaskattinum. Jeg
held nú hitt, að Björn standi
ótraustum fótum í sínum skyn-
heimi, það lítill hann er, þegar
hann gerir svona ályktanir. —
Hvaða orsaka samband þarf að
vera milli starfs míns og af-
stöðu minnar til annarar eins
endaleysu í frumvarpsformi
eins og stóríbúðaskatts frum-
varpsins. Eins og frjálshuga
menn geti ekki og megi ekki
taka ákveðna afstöðu til al-
mennra mála, hver svo sem
staða þeirra er eða atvinna.
Fátæklingar:
Björn heldur því fram, að jeg
sem framfærslufulltrúi hljóti
að taka afstöðu með þeim fá-
tæku í ölluto málum og
það geri jeg oft. — Hann
skal ekki halda, að jeg
ætli mjer þá leið færa að núa
mjer upp við alla fátæklinga,
með því að segja, að þeirra mál
staður sje æfinlega rjettur og
málstaður hinna, sem betur
mega sín, æfinlega rangur. —
Þess utan kemur þessi hugs-
anagrautur Björn þessu máli
ekkert við því frumvarpið
vinnur á engan hátt fyrir þá
fátæku, eins og jeg sannaði í
grein minni.
Hverjir haía bygt yfir flesta:
Þrátt fyrir allt það, sem bær
og ríki og fjelagasamtök hafa
bygt á síðustu árum, eru það
þó húseigendurnir. einstakling-
arnir, sem hafa bygt yfir flesta,
Þeir hafa með sinni fyrirhyggju
dugnaði og einstaklingsfram-
taki bjargað þúsundum manna
frá húsnæðisvandræðum, með
því að byggja, ekki einungis
yfir sig, heldur yfir mikinn
fjölda annnara manna. Svo
gala þeir hæst um þessi mál,
sem aldrei hafa lagt neitt á sig
eða sína til að bæta úr vand-
ræðum annara, hvorki í hús-
næðismálum eða öðru, en æpa
til hinna, að þeir verði að gera
meira og meira, jafnvel hleypa
inn í sínar eigin íbúðir ó-
þekktu vandræðafólki. Þetta er
háttur allra lýðskrumara æfin-
lega á öllum tímum. Látast
vera vinir þeirra sem einhverja
aðstoð þurfa og í þessu tilfelli
heimta að aðrir leggi allt sitt,
í sölurnar til úrbóta, standi af
öllu svo sein heimilishelgi, heim
ilisfriði, eign sinni og öðru því,
sem þeir með dugnaði, drengi-
legri baráttu, sparsemi sinni og
ráðdeid hafa skapað sjer. —
Sjálfir vilja þessir herrar engu
fórna, en reyna með löngum
skrifum og hávaða ræðum, að
sannfæra fólkið um að þeir
sjeu vinirnir sem það megi
treysta sjer til brautargengis.
Hry ð juverkamenn:
Björn segir, að jeg hafi gefið
mig falan til fylgis við frum-
varpið með því að segja, að
minna en 90—100 ferm. megi
ekki ætla tveim. Ef jeg vissi til
að einhverjir hryðjuverkamenn
ætluðu í hefndarskyni eða af
hreinni þrælmensku að hand-
höggva einhvern af mínum sam
borgurum og jeg mótmælti harð
lega þessum verknaði, en þætti
þó uggvænt um að mjer t.ækist
a ðafstýra því og af þeim ástæð
urh krefðist þess, að þeir Ijetu
sjer nægja að taka vinstri hend
ina, þá myndi Björn segja með
sama hugsanagangi, að jeg væri
fylgjandi hryðjuverkinu, þann-
ig er allur hans hogsanagraut-
ur. —
Enga tilraun:
Enga tilraun gerir Björn til
að andmæla rökum mínum
gegn stóríbúðaskattinum held-
ur veður elginn aðeins um mig
persónulega og skal jeg játa,
að rjettast hefði verið af mjer
að gegna honum engu, en vegna
þess, að hann hefur áður í Tím-
anum, tvisvar eða þrisvar sent
mjer svipaða pistla, sem þenn-
an, síðan hann kom hingað og
jeg ekki gegnt honum neinu,
nenti jeg ekki að þegja við
þessu. Hitt læt jeg hann vita,
sem hann ætti að vita, að jeg
er löngu orðinn leiður á öllu
hans naglalega narti í mig. bæði
fyrr og síðar og læt því hjer
með lokið orðaskiftum við hann
í bráð.
Rvík, 27. des 1949.
Sig. A. Björnsson,
frá Veðramóti.
PENINGAR
Öruggt iðnfyrirtæki vantar fje til aukins reksturs.
Góðir vextir fúslega greiddir.
Tilboð merkt: „Góðir vextir“ — 0428, leggist inn í afgr.
blaðsins fyrir 10. þ. mán.
IBUÐ
Góð kjallaraíbúð til leigu í vor í hlíðarhverfinu. Fyrir-
framgreiðsla nauðsynleg. Tilboð merkt: „Hlíð — 445“
sendist afgr. Mbl. fyrir 10. þ. m.
Háskólanutii tæmisf
arfur
HINN 6. júlí 1949 andaðist
Guðmundur Thorsteinsson,
Bjarnarstíg 12, níræður að
aldri. Hann var fæddur í Fífu-
hvammi 24. mars 1859; voru
foreldrar hans Þorsteinn .bóndi
Þorsteinsson og Guðrún Guð-
mundsdóttir. en hún var systir
Þorláks alþingsmanns í Fífu-
hvammi. Foreldrar Guðmundar
fluttust að Heiðarbæ í Þing-
vallasveit, og þar ólst Guð-
mundur upp og tók síðar við
búi. En árið 1888 fluttist hann
með konu sinni, Vigdísi Þor-
leifsdóttur frá Efri-Brú í Gríms
nesi, til Kanada og gerðist þar
bóndi. Efnaðist hann skjótt,
enda var hann hinn mesti bú-
höldur, en er heilsu hans tók
að hnigna, seldi hann eignir
sínar og fluttist til Reykjavík-
ur árið 1903. Ekki festi kona
hans yndi hjer og fóru þau vest
ur aftur 2 árum síðar. En Guð-
mundur þoldi ekki loítslagið
vestra og hvarf hingað t.il lands
um 1912, en kona hans varð
eftir og skildu þau síðan að
lögum. Átti hann síðan heima
hjer í bæ, lengst af á Njáls-
götu 40.
Guðmundur var - löngum
heilsuveill og fyrir 22 árum
gerði hann erfðaskrá sína, þá
nálega sjötugur, og arfleiddi
Háskóla íslands að öllum eig-
um sínum, að frátalinni dán-
argjöf til ráðskonu sinnar, er
staðið hafði fyrir búi hans og
stundað hann í veikindum hans.
Var hún hjá honum meðan
hann lifði. Á gamlársdag af-
hentu skiftaforstjórar búsins,
þeir Ólafur prófessor Lárusson
og Einar B. Guðmundsson hrm.
háskólanum arfinn, og var
hann kr 154.278.81, þegar dán-
argjöfin og erfðafjárskattur
voru greitt
Samkvæmt erfaskránni skal
af þessu fje stofne sjóð, sem
r.efnist „Gjafasjóður Guðmund-
ar Thorsteinssonar". Tilgangur
sjóðsins er:
1. Að styrkja efnilega, fátæka
stúdenta, sem stunda læknis-
fræði, lögfræði eða verkfræði,
við háskólann
2. Að styrkja vísindalegar
rannsóknir eða vísindastarf-
semi, einkum þá, er varðar lög-
fræðileg efni, íslensk náttúru-
vísindi og heilbrigðismál.
3. Að styrkja útgáfu vísinda-
legra rita og vel saminna alþýð-
legra fræðibóka.
Háskólaráð hefur á hendi
stjórn sjóðsins og setur honum
skipulagsskrá.
•—»wiimwnimnfinMninninim. n»w«niWMinmiwtmrr
RAGINAR JÓNSSO'N,
hœstarjettarlögmaður.
Laupaveg 8, sími 7752.
f.ögfræðislörf og eignainnsýsla
Gæfa fylgir
trulofunar
liringunum
frá
SIGURÞÓR
Hufnarstræt: 4
Keyk javik
Vfargor gerftír
Si-ndir (fegn póstkröfu hvcrt ú land
sein er.
— Senrfffl nákvavmt mál —