Morgunblaðið - 29.01.1950, Side 11

Morgunblaðið - 29.01.1950, Side 11
Sunnudagur 29. janúar 1950 MORGVNBLAÐIÐ 11’ Húsmæðraskóli krata í Hafnarfirði F FramboSsfundur á Akranesi: Forkélfar ÁlþýðufSokksins ær- ast undir ræðu bæjarstjóra Æsa upp unglingspilta og spilla fundarfriði ALÞÝÐUFLOKKSMENN státa mjög af stjórn sinni á Hafnarfjarðarbæ, þrífæti og 400 metra götuspotta, sem er eina fullgerða gatan þar í bæ. — Stór afrek eftir aldarfjórungs meirihluta t bæjarstjórn. — Hjer sjáið þið mynd af einu afreki þeirra í viðbót — Húsmæðraskóla Hafnar- •'jarðar, — sem byrjað var að ,,byggja“ fyrir 3 árum.— Kostnaður til þessa: 107 þúsund krónur. Áframhaldandi illviðri og fiskleysi á Halanum Eftir 16-17 daga úlivisl með lílinn afla. I SÍÐUSTU viku seldu aðeins tveir togarar ísvarinn fisk á markað í Bretlandi. Er þetta afleiðing langvarandi storma og aflatregðu. Að undanförnu hefur ísfiskmarkaðurinn þar í landi verið hagstæður. Lítill afli. — Löng útivist. Allur þorri togaraflotans er á veiðum, en aðrir á leið til Englands og hafa þeir yfirleitt lítinn afla, þrátt fyrir langa úti- vist. Má þar til dæmis nefna Karlsefni, sem er með um 2000 kit eftir 17 daga útivist og Geir með álíka mikinn afla, einnig eftir 17 daga útivist. Þessir togarar lögðu báðir^af stað til Englands í gærdag. Tvær sölur. Um miðja síðustu viku seldi Akureyrartogarinn Svalbakur um 240 tonn af fiski fyrir 12.626 sterl.pund. Var hluti farmsins úr Kaldbak. Þá seldi Reykjavíkurtogarinn Skúli Magnússon í fyrradag rúmlega 200 tonn af fiski og átti Hall- veig Fróðadóttir hluta af fiski þessum. Skúli seldi fyrir 9.800 pund. Afli glæðist. í fyrradag tók afli að glæðast vestur á Halamiðum. Fengu þá sumir togaranna töluverðan þorskafla. Meðal þeirra Hval- iell og Mars. Togararnir Akurey, Neptún tis og Úranus, sem legið hafa hjer í Reykjavíkurhöfn um 10 -—14 daga skeið, vegna illviðr- ana og fiskileysisins, fóru á veið ar í gærj er frjettist um batn- andi aflahorfur vestra. í gærkvöldi frjettist að dauf- ara hafi verið yfir aflabrögð- unum í gær en í fyrradag. Síðasti mán. erfiður. Síðastliðinn mánaðartíma hef ur verið verra veður á Hala- miðum og minni afli hjá tog urunum en nokkurntíma síðan fyrir stríð. Hafa þar komið slík stórviðri, að hinir traustbyggðu nýsköpunartogarar hafa orðið fyrir skemmdum. Hjer í Reykja vík liggja nú til viðgerðar tog- arinn Keflvíkingur, er varð fyr ir áfalli á Halamiðum og togar- inn Goðanes, er varð fyrri áfalli út af suðurströnd landsins. Veitingasalir Sjálfstæð- ishússins eru opnir í dag fyrir stuðningsmenn D-listans. Sjálf stæðishúsið SO þús. refaskinn seld í Oslo í gær í GÆR fór fram í Osló uppboð á refaskinnum og minkaskinn um. Meðalverð það er fjekkst fyrir skinnin, er talið mjög sæmilegt. Seld voru 50.000 skinn. Meðalverð á silfurrefaskinn- um var 170 kr., platínu-refa- skinn 219, blárefur 100 kr., •— minkur 85 kr. og úrvalsminka- skinn 150 krónur. Búist er við að Norðmenn selji öll sín refaskinn í ár og verður næsta uppboð á þeim í febrúarmúnuði. G. A. Frá frjettaritara Mbl. Á FRAMBOÐSFUNDI á Akra- nesi í fyrradag, sem var útvarp að, skeði sá fáheyrði atburður, að frambjóðendur kratanna þar töpuðu alveg sönsum und- ir snjallri og rökfastri ræðu, sem bæjarstjóri, Guðlaugur Ein arsson, flutti í umræðum um bæjarmál. Bæjarstjóri sýndi fram á með Ijósum rökum, hve ger- samlega kratarnir hefðu van- rækt fjármálastjórn sína í sam- bandi við byggingu verka- mannabústaða á Akranesi. Þrjú ár væru nú liðin síðan síðasta útborgun á lánsfje til þessara bygginga hefði farið fram og því jafnlangur tími síðan hægt var að gera upp reikninga bygg ingarfjelags verkamanna, og gefa út skuldabrjef fyrir upp- hæðinni. Hvorugt væri ennþá gert, og ekki nóg með það. Heldur væru reikningar f jelagsins ekki komn ir í það horf að endurskoðun gæti farið fram. Fyrir þessa sök væri nú svo komið að hver einasti eigandi íbúðar í verkamannabústöðun- um á Akranesi þyrfti að greiða 4 til 5 þús. krónum meira fyrir íbúð sína heldur en ella hefði þurft að vera, ef gengið hefði verið frá reikningum og.skulda brjef gefið út fyrir upphæðinni fyrir þeim þremur árum sem liðin eru síðan byggingu bú- staðanna var lokið. Sagði bæjarstjóri að þetta litla dæmi sýndi glögglega, hvers væri að vænta frá kröt- um, ef svo ógæfulega færi að þeir næðu meirihluta á Akra- nesi ásamt kommúnistum og Framsóknarmönnum. Fjármál- um bæjarins myndi verða teflt í hreinan voða og upplausn arástand sigla í kjölfar þess. Er bæjarstjórinn var hjer kominn í ræðu sinni, ærðust frambjóðendur kratanna með öllu og kölluðu svívirðilegustu orðum til bæjarstjóra, svo sem: „Þú ert kvikindi“, „þú ert ræf- ill“, og þaðan af verra. Einn frambjóðendanna, Hall- freður Guðmundsson, glataði svo algerlega sjálfstjórn sinni, að hann greip vatnsglas og kast aði því af alefli í næstu borð- plötu, svo glerbrotin ruku um allt leiksviðið sem frambjóðend urnir sátu á. Hinir frambjóðendurnir, Halfdan Sveinsson og Guðmund ur Sveinbjöimsson, æstu ungl- ingspilta, sem þeir höfðu hóp- að saman til fundarins, upp til óspekta og að lokum var svo ■ ■ |j komið að ekki heyrðist eitt orð • af.því, sem bæjarstjóri sagði og jafnvel ekki í útvarpinu, þótt hann talaði alveg inn i hljóð- nemann. Almenningur á Akranesi for- dæmir þetta háttalag þessara forustumanna kratanna og er mikil gremja ríkjandi í bænum vegna þessa hneykslis og ekki' sist fj'rir þá sök að þetta er i fyrsta skipti sem umræðum um;, bæjarmál er útvarpað frá Akra nesi. Munu kratar gjalda mikið afhroð við koosningarnar vegna þessa fádæma skrílsæðis, enda . er slíkum mönnum ekki trúandiu fyrir einu eða neinu af velferð- . ar- og framkvæmdamálum staðarins. Það hafa þeir ræki- lega sannað með þessu fram- ferði sínu. Vofan í klauslrlnu RYE, SUCCSEX: — Þjóðsag- an um reimleikana í gamla klaustrinu hjerna, sem segir frá svip munks nokkurs sex feta hás, hefir nú komist á kreik á ný. F. Parris, sem hefir gætt klaustursins um 16 ára skeið, heldur því fram, að hann haíi sjeð vofuna. Honum segist svo frá, að hann hafi verið á leið til klaust ursins, en er hann tekur í hlið- grindina, verður hönd hana dofin. „Jeg leit við og rjett að baki mjer var vofan, 6 feta há, klædd munkakufli. Jeg gat horft i gegnum hana á nokkra rósa- runna, sem voru fyrir aftan hana. Meðan jeg horfði á hana, leið hún á burt og gegnum vegg ina á kofanum mínum“. — Reuter. Sluðnlngsmeim D-listans Hafið í huga hvar þið vor- uð til heimiiis á manntaii í árslok 1948. — Eftir því heimilsfangi fer það í hverjum hinna þríggja skóla þið eigið að kjósa. D-listinn. SjálfsUeðismenn! - Ijósii nú snemma í icif - Veirið getur versnað — Tryggið sigur D-Iistans fyrir kvöldið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.