Morgunblaðið - 23.05.1950, Blaðsíða 12
V. ST. skrifar um 960 ára af«
VEÐURÚTLIT. FAXAFLÓI:
NV. gola eða kaldi, sums-
staftar Ijettskýjað.
115. tbl. — Þriðjudagur 23. maí 1950.
5 ára drengur iersl
ai slysförum
,ÓLAFSVÍK, 21. maí. — Það
.slys varð í Ólafsvík klukkan
uri 22 í gærkvöldi að Vigrrir
Albert Ottósson, 5 ára, varð
fyrir vörubifreiðinni P—130 og
andaðist samstundis.
Samkvsemt upplýsingum frá
Jhreppstjóra voru atvik þau, að
drengurinn ætlaði að henda sjer
,upp á vörupall bifreiðarinnar,
.en missti takið, fjell niður og
vai'ð undir afturhjóli bifreiðar-
innar. Bílstjórinn vissi ekkert
um drenginn eða slysið fyrr en
það var um garð gengið.
Ók á mann og lenti í
árekstri, en skeytti
því ekki
Á FÖSTUDAG ók ölvaður mað-
ur vörubifreið á mann á Skýla-
götu rjett við Borgartún, en
ók síðan áfram án þess að
skeyta því og upp Snorrabraut.
Á gatnamótum Njálsgötu og
Snorrabrautar lenti hann í á-.
rekstri en hirti ekkert um það
og ók enn áfram.
Lögreglan hafði hendur í hári
ökumanns þessa, en rannsókn-
arlögreglan óskar eftir að hafa
tal af manninum, sem ekið var
á á gatnamótum Skúlagötu og
Borgartúns.
ISLANЗFIHHLAND
Danssýning nem-
enda dansskófa
I.Í.L.D,
LAUGARDAGINN 20. þessa
mánaðar, kl. 3 síðdegis sýndu
nemendur dansskóla Fjelags ís
lenskra listdansara listdans í
Þjóðleikhúsinu.
Voru þar sýndir ýmsir hóp-
dansar og sólódansar, margir
samdir af kennurum skólans,
• og kom fram dansfólk á ýmsum
aldri, allt frá yngstu nemend-
um skólans, sem eru um fjög-
urra ára að aldri,, og til þeirra
elstu, sem eru um og yfir tví-
tugt.
Húsið var fullskipað áhorfend
um, sem tóku sýningunni mjög
vel, og varð að endurtaka flest
atriðin. í lok sýningarinnar
voru kennarar skólans kallaðir
.fram, en það eru þær Sigríður
Ármann, Sif Þórz, Ellý Þorláks
son og Sigrún Ólafsdóttir.
Þýskir kommar
senda áróður í pósti
FRANKFURT — Kommúnistar
> Austur-Þýskalandi hafa nú
foyrjað nýja áróðursherferð.
Senda þeir í pósti áróðursrit til
vestur-þýskra borgara, og ekki
verður sjeð að þar sje fylgt
riokkru sjerstöku kerfi.
Menn úr öllum stjettum,
pólitískir sem ópólitískir fá rit
-þessi, en þau innihalda meðal
annars ræður kommúnista aust
an járntjalds og heiftarlegar á-
rásir á stefnu Vesturveldanna í
Þýskalandi.
Áróðursbrjefin eru póstlögð í
Berlín, en ekkert er vitað um
höfunda þeirra, nema hvað
beir eru sýnilega kommúnist-
fcskir áróðursmenn. — Reuter
fruman gefur
skýrslu um S. Þ,
WASHINGTON, 22. maí. —
Truman forseti gaf Bandaríkja-
liingi. í. .dag skýrslu um starf-
tiemi Sameinuðu þjóðanna. —
Gagnrýndi hann Rússa harð-
lega, fyrir þá afstöðu þeirra
að neita að taka þátt í störfum
S. Þ., yegna þarveru fulltrúa
kínvefsku þjóðernissinnastjóm
arinnar..
Taldi forsetinn þetta brót á
jgerðum samningum.
Truman fór viðurkenningar-
orðum um Sameinuðu þjóðirn-
ar fyrir starfsemi þeirra í Indó-
tiesíu, Palestínu og Kashmir og
komst svo að orði, að S. Þ.
h&íð,u þar bjargað mörgum
iiiannslífum. — Reuter.
Fiðluhljómleikar
Ruth Hermanns
á Akureyri
AKUREYRI, 22. maí — Ruth
Hermanns hjelt fiðlu hljóm-
leika á vegum Tóniistarfjelags
Akureyrar í gær í Nýja Bió
með aðstoð dr. Urbantschitsch.
Verkefni voru eftir Bach,
Mozart, Beethoven, Szymanow
sky. Rachmaninoff, Dvorak og
De Falla. Aðsókn var ágæt og
var hrifning tilheyrenda mjög
mikil. Barst listakor.unni fjöldi
blómvanda og ennfremur und-
irleikara. Ungfrú Hermanns
ljek eitt aukalag.
Að loknum hljómleikum
hjelt Tónlistarfjelagið sam-
sæti. Þakkaði formanni, Tón-
listarfjelagsins, ' Stefán Ág.
Kristjánsson ungfrúnni fyrir
hljómleikana með ræðu og
einnig fyrir prýðilegt kennslu-
starf hennar. Ennfremur þakk-
aði hann dr. Urbantschitsch fyr
ir velvilja hans og aðstoð við
starfsemi fjelagsins frá því
fyrsta. — H. Vald.
Lie ræðir við
Bidaull
PARÍS, 22. maí — Trygve Lie,
aðalritari S Þ., Sem nú er stadd
ur i Frakklandi, ræddi í dag
við Bidault utanríkisráðherra.
Á morgun (þriðjudag) mun
Lie halda til Lundúna og ræða
þar meðal armars við Attlee og
Bevin, en halda til Bandarikj-
anna á miðvikudag.
Brýn nauðsyn á
einahagshjálp iil
Asíu
LONDON. 22. maí — MacDon-
ald, aðalfulltrúi Breta í Suð-
austur-Asíu, átti í dag viðræð-
ur við frjettamenn í Canberra.
Lagði hann á það áherslu; að
brýna nauðsyn bæri til að hafa
hraðan á um efnahagslega að-
stoð til þjóðanna í Suður- og
Suðaustur-Asíu, ef þær ættu
ekki að verða kommúnismanum
að bráð. *
Hann kvað engan vafa á því,
að Rússar væru byrjaðir að
veita leppstjórnum sínum í As-
íu fjárhagslega aðstoð.
Loks skýrði hann frá því aS
búast mætti við, að byrjað yrði
fyrir áramót að styrkja ofan^
greindar þjóðir efnahagslega,
og þá mundi engin ein þjóð j
verða látin sitja í fyrirrúnU. . ‘
Finnska landsliðið í handknattleik.
Lnndsleikur við Finna
í hnndknnttleik í kvöld
Finnarnir komu hingað með Gulliossi
i í KVÖLD fer fram á íþróttavellinum landskeppni í handknatt-
j leik milli Finna og íslendinga. Finnska landsliðið kom hingað
' með Gullfossi s. 1. laugardag. í liði Finna eru margir þekktir
j bandknattleiksmenn, sem keppt hafa fyrir Finnland mörg
j undanfarin ár, t. d. Juhani Jánte og Helge Forsberg, sem
keppt hafa níú landsleiki og markaðurinn Erik Spring, sem
keppt hefir átta landsleiki.
Ók norður í land
á stoinum bíl
SÍÐASTLIÐIÐ laugardags-
kvöld fengu tveir menn sjer
leigubifreið í Hafnarfirði og
fóru í henni austur í Hveragerði
og síðan austur að Selfossi og
fengu þar gistingu fyrir sig og
bifreiðarstjórann.
Þegar bílstjórinn vaknaði um
morguninn austur á Selfossi,
jvarð hann þess var að stolið
ihafði verið frá honum 100 kr.
og bifreiðin er horfin Kemur
á daginn að annar farþeginn,
Guðjón Atli Árnason, var einnig
horfinn og hafði hann stolið
bílnum.
Var auglýsi eftir bifreiðinni
í útvarpinu og fer að frjettast
til ferða hennar uppi.í
firði og Borgarfirði og svo norð
ur á Hvammstanga. Sýslurnað-
ur Mýra- og Bargarfjarðar-
sýslu og sýslumaður Húnvetn-
inga gerðu ráðstafanir til að ná
bifreiðinni og bílar voru fengn-
ir til að elta hana en árangurs-
laust.
Er frjettist til stolnu bifreið-
arinnar á suðurleið aftur, fór
sýslumaður Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu áleiðis norður á
móti henni, en hafði áður !átið
loka veginum við Fornahvamm.
Um miðnætti kom hann að bif-
reiðinhi hjá Grænumýrartvngu.
Hafði hún þá brætt úr sjer. en
ökumaðurinn var horfinn. —
Hann kom síðar um nóttina að
bænum Fögrubrekku við vest-
anverðan Hrútafjörð, og þar
handtók hreppstjóri Bæjar-
hrepps hann.
Guðjón Atli hafði skipt um
númer á bílnum, er nann stal
honum.
Þetta er önnur landskeppni
íslendinga í handknattleik, en
í fyrsta sinn, sem keppt er við
Finna. Finnar og íslendingar
eru álitnir mjög svipaðir í hand
knattleik, þannig, að reikna má
með fjörugum og jöfnum leik.
íslenska landsliðið er skipað
nær sömu mönnum og fóru ut-
an í janúar s. 1., nema hvað
Orri Gunnarsson og Þorleifur
Einarsson eru nýir. ■
í finnska landsliðinu leika
þessir menn: Erik Spring, Olli
Nieminen, Johani Koskinen,
Matti Pylkkánen, Helge Fors-
fcerg, Juhani Jántti, Thor
Grannenfelt, Börje Forsten,
Helge Kohnen og Tomo Reini-
kainen.
íslenska landsliðið: Sólmund-
ur Jónsson, Magnús Þórarins-
son, Sveinn Helgason, Kristján
Oddsson, Birgir Þorgilsson,
Orri Gunnarsson, Sigurhans
Hjartarson, Sig. G. Norðdahl og
Þorleifur Einarssson. — Vara-
menn eru: Guðm. Ge^rgsson,
Haukur Bjarnason, Snorri Ólafs
son og Hilmar Ólafsson.
Dómari verður Halldór Er-
lendsson.
Leikurinn í kvöld hefst kl.
8,30. Þar sem gera má ráð
fyrir mikilli aðsókn, skal á-
horfendum bent á að mæta ekki
á síðustu stundu.
Drengur slasasf
í bílslysi
SÍÐASTLIÐTNN föstudag varð
það slys á Njarðargötunni rjptt
austan við Barónsstíg að níu
ára gamall drengur varð fyrir
fólksbifreiðinni R-2012, og
skarst talsvert á handleggjum.
Rannsóknarlögreglunni er
kunnugt um, að tveir menn á
jeppa-bifreið komu þarria að.
Biður hún þá og aðra sjónar-
votta að gefa sig fram sem
allra fýrst.
mæli Qslo-foorgar á bls. 2.
___________________________3
-aúí - ít
Vísiialan 105 stig 3
SAMKVÆMT útreikningi kaujt
lagsnefndar var framfærslu-
vísitalan 1. maí 105 stig, et
reiknað er með vísutölunni 10®
stig 1. marz. Hefir hún þannig
hækkað um 5 stig.
Vísitalan 1. apríl var 102 st.
Heifa vatnlð jóks!
í einni borholu
SNEMMA í þessum mánuði
jókst hitaveituvatnið í einni
borholunni : Mosfellsdal um 28
sek. lítra án þess að það minnk-
aði í nokkurri annarn holu, sem
oft kemur fyrir i slíkum til-
fellum. Er betta því hrein
au.kning á hitaveituvatninu.
Gefur þessi hola nú 48 sek.
lítra í stað 20 áður. Var verið
að bora í holunni, þegar aukn-.
ing þessi varð.
Unnið er nú að þvi að erafa
fvrír nýjum hitaveitugevmi á
Öskjuhlíð og verður hann
reistur í sumar.
Nær II þós. manns
skoðuðu Gullfoss
Á SUNNUDAGINN var Gull-
foss hinn nýi til sýnis fyrii al-
menning frá kl. 10—12 f ‘h.
og 1—6. Alls komu um borð
10,950 manns, eða að meðaltali
1500 á klukkustund. Var tilhög
un öll við sýninguna vel undir-
búin af hálfu Eimskipafjelags-
ins og komu menn um borð f.
skipið eftir röð og fóru í hóp-
um undir leiðsögn kunnugra
manna stafna á milli, en dvöld-
ust ekki óþarflega lengi um
borð. Verðir voru víða um
skipið, en það verður að segja
gestum til hróss, að þeir gengu
yfirleitt mjög vel og prúðmann
lega um skipið.
Kominn fi! Holiands
HAAG, 22. maí: — Forsætisráð-
herra Burma, sem undanfarið
hefir dvalið í Bretlandi, kom í
dag til Hollands, til viðræðna
við stjórnarvöldin þar.
Hann mun dveljast í Hollandji
í fjóra daga. — Reuter.