Morgunblaðið - 01.08.1950, Side 6
6
MORGVNBLAÐIB
Þriðjudagur 1. ágúst 1950.
JXnpiUtiMt
l'lR DAGLEGA LÍFINU
Útg.: H.f. Arv*kurr Reykjavfk.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Rltstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgöara.,1
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundssoru
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinssoc.
Kistjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Lesbók: Árni óla, sími 8045.
Askriftargjald kr. 14.00 & mánuði. Innaniands,
! lausasSla M aura sintakið. 85 aura mtð Lesbók.
Hernaðarbandalag
kommúnista
MOSKVASTJÓRNIN hefir það efst á stefnuskrá sinni að
leggja undir sig allar hinar vestrænu þjóðir með vopnavaldi
Og tortíma menningu þeirra. Þetta vita allir.
■ Þjóðviljinn reynir að leiða athygli lesenda sinna frá þess-
ari staðreynd. Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir að
stjórn hins austræna einræðisríkis sendi þriggja miljóna her
Sinn vestur fyrir Járntjald, er að Moskvamenn sannfærist
Um það í tíma, að sú árásarstyrjöld, sem þeir hafa undir-
búið síðan síðustu Evrópustyrjöld lauk, verði þeim svo dýr
að hún borgi sig ekki fyrir þá sjálfa. Um aðra hugsa þeir
Ókki, sem kunnugt er.
Fyrir nokkrum dögum benti Churchill á að Bretar yrðu
að hafa það í huga, að kommúnistar hefðu alveg eins getað
fcyrjað áhlaup sitt vestur á bóginn eins og austur á Kóreu-
skaga. Samtök Atlantshafsþjóðanna hefði orðið til þess, að
þeir hefðu slegið þessari fyrirhuguðu árás sinni á frest.
Hver veit hvað það verður lengi?
Málgagn Moskvavaldsins hjer á landi reynir að ásaka ís-
lenska fylgismenn hins vestræna lýðræðis fyrir það, að þeir
jkafi ráðið því, að ísland gekk í varnarbandalag Atlantshafs-
þjóða, því þessi samtök sjeu hernaðarlegs eðlis.
En hverir Islendinga hafa gengið í hernaðarbandalag?
' Kommúnistar, fylgismenn og liðsmenn Moskvavaldsins
fcjer á landi. Kommúnistar allra þjóða, sem innritaðir eru í
flokkinn, hafa ekki einasta tjáð sig fylgjandi því, að „herra-
þjóð“ þeirra leggi lýðræðisþjóðirnar undir sig með vopna-
.valdi. Þeir eru beinlínis gengnir í þjónustu þess herveldis,
sem vinnur að því, að þær varnir sem hinn austræni her á
að ráðast á, verði sem allra veikastar.
Kommúnistar allra landa hafa staðfest, með endurteknum
loforðum sínum og skuldbindingum, gagnvart austrænum
húsbændum sínum, að þeir telji, að þeim beri bein skylda til
þess að verða rússneskum innrásarher hjálplegir hvenær
sem sú „gleðistund“ rynni upp, að Moskvastjórnin hefðist
handa til að leggja undir sig land þeirra.
Hamagangur ísl. kommúnistanna gegn þátttöku íslands í
'Atlantshafsbandalaginu stafar beinlínis af því, að það er
þeirra innileg ósk, að ísland verði hernumið af hersveitum
hins rússneska einvalds, „þegjandi og hljóðalaust“ eins og
þeir orða það og aðrar þjóðir ljetu sig það engu skifta.
Menn verða að gera sjer fulla grein fyrir því, að þessi af-
staða kommúnista er hin eina eðlilega. Þeir hafa ákveðið
að svíkja þjóð sína og reyna, eftir fremsta megni að koma
íslandi undir ok kommúnista.
Landráð kommúnista eru samkvæmt stefnu þeirra eðlileg.
"Vfirlýst stefna þeirra er, að svíkja land sitt. Bregðist þeir
trausti húsbændanna í þessu efni sviku þeir stefnuna, og fyr-
irheit sín við Moskvastjórnina. Þeir eru samskonar menn og
skemdaverkamennirnir sem forsætisráðherra Breta sagði
frá lun síðustu helgi er setja sand í vjelar herskipa og
sprengja skotfærabirgðir í loft upp, sem ætlaðar eru til þess
að verja sjálfstæði og frelsi Bretlands.
„íslenska þjóðin verður að vera á verði“ segir málgagn
kommúnista. Og það er satt. Hún verður að vera á verði
gegn þeim mönnum, sem lofað hafa erlendu herveldi því að
svíkja hinn íslenska málstað, svíkja frelsi þjóðar sinnar og
siálfstæði. Þjóðin verður að vera á verði gegn þeim mönnum,
sem vinna fyrir hið austræna herveldi.
Þjóðin verður að vera á verði. Sú varnarstaða verður þeim
mun eðlilegri, sem kommúnistar verða berari að falsi sínu
og fullkomnum undirlægjuhætti við hið austræna herveldi.
Samkvæmt skipun þykjast þessir yfirlýstu 5. herdeildar-
'menn vera friðarsinnar. En „herraþjóð" þeirra, sem þeir
þjóna af lífi og sál, hefir neitað að sporna gegn kjarnorku-
vopnum og yfirforingi þeirra neitað að stöðva Kóreustyrjöld-
ina, áður en úr henni verði heimsbál. Jafnframt því sem hann
Iviðurkennir að hann hafi þau ítök í norðanmönnum á Kóreu
að hann geti látið þá hætta bardögum ef honum sýnist.
A FERÐ OG FLUGI
FÓLKIÐ er á ferð og flugi um þvert og endi-
langt landið. „Menn böglast í bíl og á hrossi,
í brennivínslykt og hossi“, eins og Sigurður
Z. orkti forðum í Spegilinn. Nú stendur aðal
sumarleyfa tíminn yfir og nóg er að gera á
flestum gististöðum. Sumarleyfisfólkið bless-
ar, eða bölvar veðrinu, eins og gengur eftir
ástæðum. Þegar komið er í gististað að kvöldi,
eða búið er að reisa tjaldið og kveikja upp
á prímusnum, er farið að rabba um landsins
gagn og nauðsynjar, eða segja frá atvikum
og ævintýrum úr ferðalaginu.
•
FÁ ÓÞVEGEÐ ORÐ
EINN getur sagt frá bansettum bílstjóra-
þrjótnum, sem ekki vildi víkja, en ók lús-
hægt og hjelt heilli röð af öskrandi bílum á
eftir sjer allan Norðurárdalinn. Annar kann
þá að segja frá hve mörgum bilstjóranum er
illa við, .að víkja vel til hliðar, er hann mætir
öðrum bíl og segja frá atvikum þegar hurð
skall nærri hælum, af þessum ástæðum.
Þeir fá margir óþvegið orð bifreiðastjórarn-
ir, endá má segja með sanni, að enn vanti
mikið í umferðarmenningu hjá okkur, ekki
síst á þjóðvegum landsins.
•
GÓÐIR GISTI- OG
VEITIN G AST AÐIR
FERÐAFÓLK verður tíðræðast um þá veit-
ingastaði úti á landsbygðinni, þar sem viður-
gerningur er ljelegur, sóðaskapur áberandi
og okurverð er heimtað fyrir minsta greiða.
Af hinu fara ekki miklar sögur, þegar vel
er tekið á móti ferðafólki, enda tekið, sem
sjálfsögðum hlut. Víst er það satt og rjett,
að víað þarf umbóta við í gisti- og veitinga-
stöðum. En þeir eru líka nokkrir, sem eru til
fyrirmyndar og enginn þarf að skammast sín
fyrir.
•
í FORNAHVAMMI
FYRIR helgina skrapp sá er þetta ritar norð-
ur í land og kunnugur maður ráðlagði okkur
ferðafjelögunum, að reyna veitingarnar í
Fornahvammi. Fórum við að þeim ráðum,
þótt matartíminn yrði seinni, en við ætluðum
af þeim orsökum. En sáum ekki eftir því á
eftir.
•
ÞAR SEM SÓÐARNIR
SKAMMAST SÍN
í ÞESSUM gisti- og veitingastað er allt fágað
og hreint. Þjónustufólk snyrtilegt og kurteist.
Snyrtiherbergin eru eins og þau eiga að vera,
hrein og þokkaleg. Og það er staðreynd, að
sóðarnir, sem svína allt út, hvar sem þeir
koma, skammast sin á slíkum stöðum og.
veigra sjer við að ganga óþriflega um.
SÁ SIG UM HÖND *
MAÐUR nokkur, sem var að þvo sjer í hand-
laug í Fornahvammi hjer um kvöldið, hafði
verið óhreinn um hendurnar, eins og gengur
með ferðamenn. Er hann hafði þvegið sjer
var handlaugin orðin óhrein mjög. — Hann
gekk frá henni þannig, en svo var eins og
hann áttaði sig, er hann leit á hinar hand-
laugarnar, hreinar, og hann gekk til baka og
þvoði skálina sjálfur. Skyldi við hana eins og
hann kom að henni.
•
GESTRISNI OG HJÁLPSEMI
GESTRISNIN, sem íslendingar gátu hjer áð-
ur fyr svo rjettilega hælt sjálfum sjer fyrir,
er enn í heiðri höfð víða um landið. En því
hefur verið haldið fram, að íslenska gestrisn-
in væri að hverfa. eftir að samgöngur urðu
örari um landið, eh áour, svo annar hver bær
er svo að segja korninn í þjóðbraut.
En sem betur fer er'þetta ekki alveg rjett.
Enn er gott að koma á íslenskan sveitabæ
og þiggja greiða og gistinu. Allt það besta,
sem íil er í kotinu er tekið fram.
Og hjálpsemin er sú sama, sem áður var
fræg.
•
SJÁLFSAGT AÐ AÐSTOÐA
GEST OG GANGANDI
ENN þykir það sjálfsagt að aðstoða eftir föng-
um gest og gangandi feða akandi). Karl, bif-
reiðaviðgerðarmaður í Árnesi í Miðfirði telur
ekki eftir sjer að fara í vinnufötin og gera
við bil í lamasessi, pótt langt sje liðið á
sunnudagskvöld og hann hafi ætlað sjer að
fara að blusta á Borgarvirkishátíðina af stál-
þræðj í útvarpinu. Meira að segja átti, að út-
varpa söng karlakórs Húnvetninga. En af
þeirri skemmtun varð Karl vegna bílskrjóðs-
ins. —
*
ENN ER GOTT AÐ FERÐAST
ÓSKAR bóndi í Víðidalstungu telur það sjálf-
sagt að aðstoða skemmtiferðamenn úr Reykja
vík við að bæta sprungna hljólslöngu. Alveg»
á sama hátt og faðir hans eða afi, hefðu með
glöðu geði aðstoðað íerðamenn við að járna
hest, ef á þurfti að halda, þótt það væri á
hvíldardaginn.
Heildarsvipurinn af stuttu ferðalagi norð-
ur yfir Holtavörðuheiði, um há annatimann,
bendir til þess, að enn sje gott að ferðast á
íslandi, því hvarvetna mætir ferðamannin-
um gestrisni og hjálpsemi, ef hann sjálfur
brýtur ekki reglur velsæmis og sjálfsagðra
umgengnishátta.
Hvað skeður á meistara-
DBE^yAMEIST
mótinu
i kvöld?
MEISTARAMÓT Reykjavikur i
frjálsíþróttum fer fram á
íþróttavellinum í kvöld og ann
að kvöld. Mótið hefst kl. 8,15.
Er ætlunin að þá samtímis byrji
keppni í fjórum greinum.
í dag verður keppt í 400 m.
grindahlaupi, kúluvarpi, lang-
stökki, spjótkasti, 200 m. hlaupi
800 m. hlaupi, 5000 m. hlaupi
og hástökki.
Keppnin í 200 m. hlaupinu
með Guðmundi Lárussyni, Ás-
mundi Bjarnasyni og Hauk
Clausen, í 800 m. hlaupinu milli
Pjeturs Einarssonar og Magnús-
ar Jónssonar og í langstökkinu
milli Torfa Bryngeirssonar og
Arnar Clausen getur orðið sjer
staklega óviss og skemmtileg.
Huseby verður með.
Þá var tilkynnt í gær, að
Gunnar Huseby yrði með í kúlu
varpi, en óvíst var, hvort hann
gæti tekið þátt í mótinu.
Þar sem Evrópumeistaramót-
'ið nálgast nú mjög verður að
(sjálfsögðu fylgst af miklum
áhuga með móti þessu.
í hvert sinn sem Torfi keppir í
stangarstökki er Islandsmetið í
ihættu.
*
VESTMANNAEYJUM, 31. júlí:
Drengjameistaramót íslands fór
fram hjer í Vestmannaeyjum á
laugardag og sunnudag í mjög
óhagstæðu veðri. Rok og rigning
var báða dagana, en þrátt fyrir
það naðist sæmilegur árangur í
mörgum greinum. Gátu keppend-
ur oft varla hamið sig við keppn-
ina. — Flestir þátttakendurnir ut-
an bæjarins fara hjeðan í dag.
Urslit í 100 m. hlaupi fara fram
í Reykjavík og einnig fer 110 m.
grindahlaupið þar fram, enda eng
inn þátttakandi i því utan Reykja
víkur. Bestan tíma í undanrásum
í 100 m. höfðu: Reynir Gunnars-
son, Á, 11,3 sek., Rúnar Bjarna-
son, ÍR, 11,4, Þorvaldur Óskars-
son, ÍR, 11,4 og Alexander Sig-
urðsson, KR, 11,5.
Flesta drengjameistara hlaut ÍP
eða 5 alls, KA hlaut 3, Ármann 2,
ÍBV 1 og UMSE 1.
Úrslit
Helstu úrslit urðu þessi:
Langstökk: 1. Valdimar Örh-
ólfsson, ÍR, 6,21 m., 2. Árni Magn
usson, UMSE, 6,20, 3. Hörður Páls
son, UMSS, 6.13 og 4. Gylfi Gunn
arsson, ÍR, 6,04. — Þrístökk: 1.
Árni Magnússon, UMSE, 13,23 m.,
| 2. Hörður Pálsson, UMSS, 12,58,
Frh. á bls. 8