Morgunblaðið - 29.08.1950, Page 1

Morgunblaðið - 29.08.1950, Page 1
16 siður 37. árgangur 196. tbl. — Þriðjudagur 29. ágúst 1950. Prentsmiðja Morgunblaðsins Hvelja til iriðar — dn þess að slakað verði iil við kommúnista Samþykkt Evrópuþingsins í Strasbourg Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. STRASBOURG, 28. ágúst: — Sósíalistar á Evrópuþinginu í Strasbourg lögðu í dag fram tillögu, þar sem hvatt er til friðar. án þess þó að slakað verði til fyrir kommúnistum. Var tillaga þessi samþykkt með 82 samhljóða átkvæðúm, en þrír þing- fiilltrúar sátu hjá. Joseph Pholien Styðja S. Þ. í Koreu Það var breskur verklýðs- flokksþingmaður, sem lagði til- löguna fram. í henni er og kom ist svo að orði, að Evrópuþing- ið og þær þjóðir, sem fulltrú- a eiga á því, heiti Sameinuðu þjóðunum stuðningi sínum í á- tökunum á Koreu, auk þess sem lýst er yfir, að meðlimaþjóðir Evrópuráðsins sjeu fúsar til samvinnu sín á milli um allt það, er lýtur að hervörnum. Mótmæli vegna handtöku sendi- fulltrúa BUONES AIRES, 28. ágúst. — Samkvæmt áreiðanlegum heim ildum, hefur Argentínustjórn borið fram harðorð mótmæli í Varsjá, vegna handtöku argen- tínsks sendifulltrúa í Póllandi 16. þ. m. Maður þessi var handtekinn á flugvellinum í Varsjá og hafð- ur í haldi í 15 klukkustundir. ___________ — Reuter. Fimm farasf í bifreið- arslysi LONDON, 28. ágúst. — Sam- kvæmt fregn frá Innsbruck, fórust fimm menn í dag, er franskur langferðabíll ók út af austurrískum fjallvegi. 26 farþegar voru í bifreið- inni. Auk þeirra, sem fórust, slös- uðust 13 hættulega. — Reuter. Taka upp vinnu ef Kanadasljórn krefstþess MONTREAL, 28. ágúst —Leið- togar kanadiskra járnbrautar- starfsmanna lýstu yfir í dag, að menn þeir, sem nú eru í verk- falli, muni taka upp vinnu þeg- ar í stað, ef stjórnarvöldin fyr- irskipi það. Kanadaþing hefur verið kvatt saman til aukafundar á morg- un (þriðjudag), til þess að ræða verkfallið og afleiðingar þess. __________—Reuter. Sænskf farþegaskip reksf á fogara NEW YORK, 28 ágúst — Til- kynnt var í kvöld, að sænska skipið ,,Masen“ hefði rekist á bandarískan togara um 180 míl- ur austur af B >ston. Með Masen eru 108 farþegar, flestir flótta- menn frá Eystrasaltslöndunum. Enginn maður mun hafa far- ist við áreksturinn, og í ráði er að bandarískt varðskip fylgi sænska skipinu til Boston. —Reuter. Sendiherra WASHINGTON, 28. ágúst — Truman forseti skipaði í dag Raymond Hare sendiherra Bandaríkjanna í Saudi Arabíu. —Reuter. 60,000 gera verkfiall rSlríðsskaðabófaframleiðsla" Finna sföðvasf rr- Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. HELSINGFORS, 28. ágúst: — Yfir 60,000 finnskir járniðnaðar- menn hófu verkfall í dag, til stuðnings kröfum sínum um allt að 60 prós. launahækkun. Með því er að nokkru stöðvuð „skaðabótaframleiðsla“ Finna, en það er járniðnaðurinn finnski, sem skilar talsverðu magni af því, sem Rússar fá enn í „stríðs- skaðabætur“. Þrjár vikur Ef afhending skaðabótanna, sem Finnar mega greiða, enda þótt rússnesk-finnska stríðið hafi verið háð á finnsku land- svæði, dregst fram yfir umsam- inn tíma, hefir Finnland rofið friðarsamningana við Rússa. — Finnlendingar hafa þó um þrjár vikur til stefnu. Fleiri næstu daga í sambandi við verkfallið, er nú er hafið, hafa finnsku stjórn arvöldin hótað að beita her- mönnum, ef til uppþota og ó- eirða kemur. Síðar í vikunni er ætlunin að um 90,000 menn bætist í hóp verkfallsmanna. hinn nýi forseti ríkisráðsins Belgíu. Kanada kaupir or- usluflugvjelar I Bandaríkjunum MONTREAL, 28. ágúst — Opin berlega var skýrt frá því í dag, að Kanadamenn hafi afráðið að kaupa 100 Mustang-orustuflug- vjelar frá Bandaríkjunum. Koreustríðið: Snarpir bardagar d norðurvígstöðvunum Sókn kommúnista að Po- hang hefur verið stöðvuð Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TOKYO, 28. ágúst: — Njósnaflugmenn Sameinuðu þjóðanna i Koreu skýra svo frá, að mikið hafi verið barist á norðurvíg- stöðvunum í allan dag, einkum í nánd við austurströndina. —• Virðast herirnir þar skiptast á snörpum árásum og gagnárás- um, en vígstaðan er þó óljós og ógerlegt að segja, hvað þarna er framundan. Sókn norðanmanna að Pohang, en hún hófst á laugardag, hefir samt verið stöðvuð í bili, með margendur- teknum gagnáhlaupum varnarherjanna. En hersveitir kom- rnúnista eru komnar mjög r.ærri borginni og voru í dag sums- staðar í aðeins örfárra kílómetra fjarlægð. — Við Naktong- fljót hafa hersveitir úr Bandaríkjaher komið í veg fyrir nýjar tilraunir kommúnista til að koma auknu herliði yfir á austur- bakkann. „Formosavandamálið“ WASHINGTON. — Einn af tals- mönnum bandaríska utanrjkis- ráðuneytisins lýsti yfir í s.l. viku, að Bandaríkjastjórn sje meðmælt því, að Sameinuðu þjóðunum verði falið að rannsaka „Formosa vandamálið“. Stjórnin ei- þó and- víg því, að mál þetta verði látið ganga fyrir hinu þýðingarmikla Koreumáli. Ræft um viðskiptl Bret- lands og Argentínu LONDON, 28. ágúst — Bevin utanríkisráðherra ræddi í dag við sendiherra Argentínu hjer í London. Viðræður þeirra snerust um viðskip: i Breta og Argentínu- manna. . Þeir munu halda annan við- ræðufund innan skamms. —Reuter. Þing ,frjálslyndra flokka4 krefst algers sjálfstæðis til handa Þýskalandi Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. STUTTGART, 28. ágúst: — Á alþjóðaþingi ..frjálslyndra stjórn- málaflokka", sem lauk hjer í Stuttgart í dag, var samþykkt tillaga, þar sem þess er krafist, að Þýskaland öðlist þegar í stað algert sjálfstæði! 15 gegn 12 <s> Það var tyrkneskur fulltrúi, sem bar tillögu þeáfea fram, en þá var meir en helmingur hinna 125 fulltrúa, sem þingið sátu, frá 25 löndum, þegar lagður af stað heimleiðis. Tillagan var samþykkt með 15 atkvæðum gegn 12. 25 sátu hjá Þeir 12 fulltrúar, sem at- kvæði greiddu gegn tillögunni, voru breskir og skandinaviskir En um 25 fulltrúar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Norrænu ulanríkis- ráðherrarnir FLUGVJELIN, sem norrænu utanríkisráðherfarnir koma með, er væntanleg hingað til Reykjavíkur um hádegi í dag. Breskir orusluflug- menn þjálfaðir í Kanada LONDON, 28. ágúst. — Hend- erson, flugmálaráðherra Breta, skýrði svo frá í dag, að bresk- ir flugmenn yrðu sendir til Kanada til þjálfunar þar fyrir flugherinn í Bretlaftdi. Fyrsti flokkurinn fer vestur um haf í janúai næstkomandi. En alls er í ráði að þjálfa 200 flugvjelaáhafnir breskar í Kanada á komandi ári. —Reuter. Alþjóðabankinn WASHINGTON. — Einn af að- stoðarbankastjórum Alþjóða- bankans mun næstkomandi sept. fara í ferðalag til Noregs, Dan- merkur og Finnlands. í herstjórnartilkynningu frá aðalbækistöðvum MacArthurs hershöfðingja í kvöld segir annars á þessa leið: „Einu af herfylkjum fjand- mannanna tókst í gærdag að reka fleig inn í varnarlínu 6. herfylkis Suður Kóreumanna, en hefur nú verið neytt til að hörfa undan til nágrennis Sansong. Tvær óvinaherdeildir sáust á ferðinni í námunda við Koro (Koromyong), og þegar síðast frjettist, höfði S. Koreu- menn ráðist til atlögu gegn ann arri þeirra. „Fregnir berast og af fjöl- mennum óvinahersveitum fyrir vestan Naktongfljót, og njósna- flugmenn okkar skýra svo frá, að sjá megi mikið af fólki, sem heldur í austurátt eftir vegin- um frá Songju. „Norður Koreumenn halda áfram tilraunum sínum til að brjótast í gegnum varnir S. Þ. á Pohang-Kigye svæðinu, en engin veruleg breyting virðist þó hafa orðið á vígstöðunni þar um slóðir“. Því má bæta við þessa her- stjórnartilkynningu, að bardag ar hafa í dag verið vægir á suð- urvígstöðvunum. Útvarpssljóri Rússa flýr þá BERLÍN, 28. ágúst. — Leo Bau- er, forstjóri „Deutschlandsend- er“ útvarpsstöðvarinnar í Ber- lín, en hún er undir rússnesku eftirliti, er horfinn á dularfull- an hátt. Starfsmenn við útvarpsstöð- ina skýrðu frá þessu í kvöld. Bauer, sem var - meðlimur sameiningarflokks sósíalista (kommúnista) í Austur-Þýska- landi, hvarf 22. þ. m. Rannsókn leiddi í ljós, að hann hafði tekið út bensín fyrir skömmtunar- seðla tveggja mánaða. Talið er líklegt, að hann hafi flúið til Vestur-Þýskalands eða leitað pólitísks hælis í V.-Ber- lín. — Reutér. *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.