Morgunblaðið - 29.08.1950, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. ágúst 1950.
Yfirlýsing frá Tru-
man um Formosu
WASHINGTON, 28. ágúst —
Truman forseti ljet í dag aft-
urkalla yfirlýsingu frá Mac-
Arthur hershöfðingja viðvíkj-
andi hinni ’opinberu afstöðu
Bandaríkjamanna til Formosa.
í yfirlýsingu MacArthurs, er
fram kom í orðsendingu, sem
lesin var upp á ráðstefnu upp-
gjafarhermanna í Chicago,
komst hershöfðinginn meðal
annars svo að orði, að Formosa
yrði að halda áfram að vera í
vinahöndum.
Áður en yfirlýsingin var aft-
urkölluð, höfðu nokkur blöð í
Chicago birt hana.
í sjerstakri tilkynningu, sem
Truman forseti nú hefur birt í
sámbandi við þetta mál, segir
svo, að Bandaríkjastjórn hafi
þegar tekið þá afstöðu til For-
mosu, að gera verði hana hlut-
lausa, hvað stríðinu í Koreu
viðvíkur-. Því er bætt við, að
Formosa sje að alþjóðalögum
lándssvæði, sem bandamenn
hafi tekið af Japönum.
—Reuter.
— Bolungarvíkur-
vegur
Frh. af bls. 2.
fjargardjúp, að ljúka akvegi
meðfram allri strandlengju þess
og koma Vestfjörðum þannig í
beint samband við akvegakerfi
landsins.
Þingmaðurinn flutti vega-
málastjóra, verkstjóra og verka
mönnum þakkir fyrir starf
þeirra og biskupi íslands fyrir
þá vinsemd og virðingu, sem
hann sýndi Vestfirðingum með
því að taka upp það nýmæli,
sem fólgið væri í vígsluathöfn
þeirri, sem nú hefði verið fram-
kvæmd. Hann ljet að lokum í
Ijós þá ósk að hinn nýi vegur
yrði Bolungavík og hjeraðinu í
heild til farsældar og blessunar.
Þá flutti Axel V. Tuliníus,
lögreglustjóri, ávarp fyrir hönd
hreppsnefndar Hólshrepps. —
Vakti hann m.a. athygli á þætti
Bolungarvíkur í framleiðslu-
starfsemi þjóðarinnar.
Byggðarlagið verðskuldaði
því fyllilega þá umbót, sem því
yrðj að hinum nýja vegi. Flutti
hann öllum, sem að framkvæmd
þessarar samgöngubótar hefðu
unnið þakkir Bolvíkinga.
Að lokum minntist herra bisk
upinn þeirra, sem látið hafa líf
sitt á Óshlíð á liðnum árum."—
Risu samkomugestir úr sætum
sínum í virðingarskyni. Lauk
samkomunni í kirkjunni með
því að sunginn var þjóðsöng-
Urinn.
Samsæti fyrir verkamennina
Síðar um daginn hafði hrepps
nefnd Hólshrepps boð inni fyr-
ir verkamenn þá, sem unnið
hafa við Bolungarvíkurveg. —
Sátu vegamálastióri, biskup og
þingmaður hjeraðsins það einn-
ig- —
Þar fluttu ræður Steinn Em-
ilsson skólastjóri, Einar Guð-
finnsson útgerðarmaður, Geir
Zoega vegamálastjóri, Ingi-
mundur Stefánsson kennari og
Axel V. Tuliníus lögreglustjóri.
Um kvöldið gekkst stjórn fje-
lagsheimilis Blungarvíkur fyr-
ir skemmtisamkomum í sam-
komuhúsinu og barnaskólanum.
Sóttu það hundruð aðkomu-
fólks.
Fánar blöktu við hún á flest-
’um húsum í Blungarvík í tilefni
af vegarvígslunni.
Beinhákarlar vaSa
— en síldin ekki
RAUFARHÖFN, mánudag. —
Austan Langaness hefur í dag
verið mikil beinhákarla ganga,
svo að sjómenn munu ekki hafa
sjeð öllu meiri, Taldist mönn-
um yfirleitt vera allt að 20
stykki í hverri torfu.
í dag var sæmilega bjart yfir
öllu síldveiðisvæðinu og fór flot
inn alur út. Ekki höfðu í gær-
kvöld borist fregnir af neinni
veiði, nje heldur að síld hefði
sjest vaða. — Einar.
Gyðingar í Vínar-
borg móimæia
VÍNARBORG, 28. ágúst. —
Gyðingar hjer í borg hafa á-
kveðið að efna til fjöldafundar
á miðvikudag, til þess að mót-
mæla frumvarpi, sem nú ligg-
ur fyrir austurríska þinginu og
fjallar um eignir Gyðinga í
Austurríki.
Samkvæmt frumvarpinu er
meðal annars til þess ætlað, að
það land, sem Gyðingar eiga og
vinna ekki sjálfir, skuli gert
upptækt. — Reuter.
— Freðfbksaian
Frh. af bls. 6.
sjerverkaður fyrir þann markað
eins og tíðkast hefir. Þetta var
ekki ljeleg vara og ekki heldur
blandað saman við neitt. Ekki
var hjer heldur um neitt leyndar
mál að ræða. Samband ísl. sam-
vinnufjelaga seldi fyrst þennan
umrædda fisk til Bandaríkjanna
og síðar seldi Sölumiðstöðin sams
konar fisk þangað.
í þessu sambandi er rjett að
geta þess að Bretar voru í sumar
að selja samskonar íslenskan
fisk á Bandaríkjamarkaðnum.
Það er heldur ekkert launung-
armál að okkur hafa borist ýms
ar aðfinnslur um pökkun og frá-
gang á fiskinum frá Bandaríkj-
unum, sem jafnskjótt eru send-
ar til frystihúsanna og á þann
hátt reynt að koma í veg fyrir
frekari endurtekningu.
Að lokum teljum við þessi
skrif Tímans mjög óheppileg og
ekki vænleg til þess að vinna ís-
lenskri framleiðslu álits á er-
lendum mörkuðum.
Fjöldi fóiks fór til
berja um helgina
VEÐUR \ar hið ákjósanlegasta
til berjatínslu á sunnudaginn,
enda munu hundruð bæjarbúa
hafa notað sunnudaginn til þess
að tína ber. Yfirleitt virðist mik
ið af berjum vera, eftir því sem
frjettir hafa borist um, og fjöl-
margar og síendurteknar til-
kynningar landareigenda um að
berjatínsla sje bönnum í þeirra
landi, benda og til þess að svo
sje.
Ferðaskrifstofan efndi til
berjaferðar á sunnudag. Tóku
þátt í henni rúmlega 200 manns.
Mikill fjöldi fólks fór með
strætisvögnunum upp að Lög-
bergi og þar í kring og loká var
mikið af fólki upp í Heiðmörk.
í dag mun Ferðaskrifstofan
efna til berjaferðar að Hækings
dal í Kjós og verður lagt af stað
klukkan 1,15.
Flugdrekar valda
hætium
LONDON — Stjórnendur
breskra flugvalla skýra svo frá,
að flugdrekar barna í grend við
flugvellina hafi hvað eftir ann-
að stefnt öryggi farþegaflug-
vjela í beinan voða.
Svo langt hefur þetta geng-
ið, að lögreglan hefur í sumar
orðið að taka í taumana og
reyna að bægja „flugdreka-
hættunni“ frá Norholt- og
Croy donf lugvöl lunum.
Það er refsivert í Bretlandi
að fljúga flugdreka í námunda
við flugvelli. —Reuter.
Sigmundur Vigfús-
son kaupmaður
fimmlugur
FIMMTUGS afmæli átti í gær
Sigurður Vigfússon, kaupmað-
ur á Akranesi. Var mjög gest-
kvæmt á hinu myndarlega
heimili hans. Njóta þau hjón-
in, hann og kona hans, Jónína i
Eggertsdóttir, mikilla vin- s
sælda. Bárust Sigurði fjöldi i
skeyta bæði í bundnu og ó- j
bundnu máli. m
Síðasta leiknum lauk
með jafnfefli
í GÆRKVÖLDI, í fegursta
veðri, ljek þýska Rínarúrvalið
síðasta leik sinn hjer, við sam-
eiginlegt lið Víkings og Fram,
er að boði hins þýska liðs stóðu.
Fóru leikar svo, að jafntefli
varð, tvö mörk gegn tveimur.
Þjóðverjarnir settu bæði sín
mörk í fyrri hálfleik. íslend-
ingarnar settu annað marka
sinna í fyrri hálfleik. Ríkarður
Jónsson skoraði bæði mörkin,
hið síðara er komið var undir
leikslok.
í þessari leikför Þjóðverjanna
hingað, hafa þeir skorað 17
mörk, en fengið á sig 12, í fimm
leikjum við reykvíska knatt-
spyrnumenn. — Þjóðverjarnir
unnu þrjá leiki, töpuðu einum
og gerðu jafntefli í öðrum.
Tíu arabiskir smyglarar
drepnir
HAIFA. — Fyrir nokkrum dög-
um sló í bardaga milli herverð-
ar ísraelsmanna og arabiskra
smyglara. Árekstrar þessir urðu
á næturþeli og Ivktaði svo, að
10 Arabar ljetu lífið, en aðrir
10 voru teknir til fanga. Segir
í tilkynningu lögreglunnar, að
Arabarnir hafi smyglað feikn-
um af baðmull frá Indlandi til
Gyðingalands 24 úlfaldar voru
drepnir í bardögunum.
S
Eggert Claesses
f Gústaí A. Sveinssou
Iiæstfirjett'-rlögnien j.
OddfelloshúsiB. Sími 2171
. Allskonar lögfræBisíörf
— JarðfræÖingar
Framh. af bls. 9.
frábrugðnir Evrópumönnum yf
irleitt. Þeir eiga ákaflega
erfitt með, að koma föstu skipu
lagi á nokkurn hlut. Tiltölu-
lega fáir meðal þeirra, eru hæf-
ir til vísindalegra iðkana.
Frumstæð þjóð
Eftir að framfarir hófust þar
verulega, ef tir evrópiskum
mælikvarða, eða kringum 1850
hefur fólki fjölgað þar gríðar-
lega ört. Árið 1850 voru þar
fjórar og hálf miljón íbúa, en
árið 1940 var íbúatalan 10 föld-
uð var orðin 45 miiljónir. Fólks
fjölgunin heldur að sjálfsögðu
ekki áfram, e.ftir að þeir hafa
sjálfir tekið við stjórninni, hætt
er jafnvel við að fólki fækki
þar á næstunni.
Aðstaða þjóðarinnar til vís-
indaiðkunar kemur m. a. fram
í því, að meðal þessara 45 milj.
manna, sem í landinu búa,
munu ekki vera nema um 100,
sem hafa hlotið doktorsnafn-
bót fyrir sjálfstæðar rannsókn-
ir. En afstaða almennings til
evrópiskra vísinda má m. a. sjá
af smáatviki sem fyrir mig kom,
þegar jeg var drengur í skóla.
. Indónesi var sessunautur
minn í bekknum. ágætis piltur,
með skoðanir óg fordóma þjóð-
ar sinnar. Þegar okkur var feng
in í hendur stjörnufræði til að
lesa, skrifaði þessi skólabróðir
minn utan á bókina: „Stjörnu-
fræði eins og hún er, samkvæmt
hindurvitnum Evrópumanna“.
V. St.
— Gullbrúðkaup
Framh. af bls. 7.
gerðarmanninn Jón Auðun á
breiðri öldu velgengninnar, en
stundum sogað hann niður í
krappan öldudal. Hitt er meira,
að þau hjón hafa orðið fyrir
þungbærum ástvinamissi. En á
þeim hefir sannast hið forn-
kveðna: að gull reynist í eldi,
geðprýði í mótlæti. Og á þess-
um merkilegu tímamótum í æfi
þeirra, gleðjumst við vinir
þeirra yfir því, að gæfan hefir
langoftast verið þeim holl og
góð, og að þeim hefur tekist
með sóma að sanna það, að hver
er sinnar gæfu smiður.
Sigurður Kristjánsson.
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiæiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiifBniMfiiiHMn
■imnimniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii
Markús
& £k £t
Eftir Ed Dodd
iiiiimmiiimiiiiiM
1) — Bættu kolum á eldinn
Tommi. Við verðum að hraða
okkur, því að við erum að verða
of seinir.
2) Trítill bindur um hnjeð á
pabba sínum, en Markús og Val
ur dómari ríða framhjá. Valur
dómari segir:
— Það var leiðinlegt, að
Tryggur skyldi detta út úr
keppninni. Annars er jeg víss
um að hann hefði unnið. Hann
bar af hinum hundunum.
3) — Markús, jeg er hjerna.
Hvar er Tryggur.
4) Og á meðan bíður Trygg-
ur í varðstöðu á járnbrautar-
teinunum. .