Morgunblaðið - 02.09.1950, Síða 6

Morgunblaðið - 02.09.1950, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 2. sept. 1950 Útg.: H.f. Árvakur Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Áskriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók. Þeir elska friðinn Á ÖÐRUM stað hjer í blaðinu í dag er stutt samtal við utan- ríkisráðherra Norðmanna, Halvard Lange, um álit hans á friðarhorfum í heiminum. Hann lítur svo á, að ekki sje yfir- < vofandi hætta á því, að til styrjaldar komi í Evrópu. Ófriðar- bálið, sem kommúnistar hafa kveikt austur í Kóreu, muni ' ekki breíðast út hingað. A. m. k. ekki fyrsta sprettinn. í frásögn sinni gerir hann grein fyrir því, hvemig lýð- ræðisþjóðirnar, með sameiginlegum styrkum hervömum sínum, sjeu nú eftir fremsta megni að byggja friðarvörn þeimsins. — En hervarnirnar einar duga ekki, segir ráð- herrann. Tryggja þarf varnirnar gegn kommúnistahættunni áð innanverðu frá. Koma í veg íyrir, að f járhagslegt eymdar- ' ástand með einstökum þjóðum skapi þar jarðveg fyrir kommúnismann. i; f>að er engin tilviljun, að kommúnistar, jafnt hjer á Is- . landi sem annars staðar óska eftir, og stefna að, fjárhagslegu öngþveiti þjóða sinna. Með því eru þeir að plægja sinn pólitíska akur. Þeir vilja verkföll og vinnustöðvanir, vilja öngþveiti og ringulreið, vilja að almenningi í lýðræðislönd- unum vegni sem verst. Þannig hljóðar starfskrá þeirra og boðorð, er þeir hafa fengið frá yfirmönnum sínum. Þegar kommúnistar rjeðust á Suður-Kóreu í sumar, lustu 4 flokksbræður þeirra hjer á landi upp fagnaðarópi. Síðan hef- ur málgagn þeirra daglega flutt fregnir af Kóreustríðinu, 'þar sem olbeldinu er sungið lof og dýrð. j. En í hvert sinn sem minnst er á hervarnir Vestur-Evrópu ( þjóða í hinu sama blaði, þá er um þær talað eins og frá þeim stafi heiminum hin mesta hætta. Sannleikurinn er sá, að ef hægt er að tala um nokkra hættu sem stafi frá hervæðing Vestur-Evrópuþjóða eða lýð- ræðisþjóðanna yfirleitt, þá er það „hættan“ á því, að komm- .únistum takist ekki að hleypa heiminum í bál, takist ekki að leggja hverja lýðræðisþjóðina af annari undir sig. Og deild- um kommúnistaflokksins, „Fimmtuherdeildum“ Moskva- valdsins, takist aldrei að berjast í styrjöldinni, sem þeir von- ast eftir að verði háð, og sem á að koma heimsyfirráðunum í hendur kommúnistanna. Alþýðusambandið og Þjóðviljinn STJÓRN Alþýðusambandsins hefur afturtekið tilmæli sín, til fjelagsdeilda sinna, um það, að f jelögin segi upp samning- um smum, en slík tilmæli sendi Alþýðusambandið út þann 20. júlí síðastliðinn. — Segir í tilkynningunni frá stjórn Al- þýðusambandsins, að tilmæli þessi sjeu afturkölluð, vegna » þess, að ástæðurnar fyrir tilmælum þessum eru brott falln- ar. Ríkisstjómin hefur numið úr gildi bráðabirgðalögin, sem Alþýðusambandið taldi ekki sanngjörn og framfærsluvísi- talan er reiknuð út eftir grundvelli þeim, sem Alþýðusam- bandsstjómin óskaði eftir. Með því að láta að vilja stjórnar Alþýðusambandsms í þessu máli, hefur ríkisstjórnin sýnt sáttfýsi og sanngirni sem vera bar. En Alþýðusambandið hefur þá líka sýnt, að það tók þessa afstöðu ríkisstjórnarinnar til greina. Málgagn kommúnista hefur líka sýnt, að þó það hafi und- anfarnar vikur hamrað á því, að segja þyrfti upp samningum og efna þurfi til allsherjar vinnustöðvunar í þessum mánuði vegna þeirra bráðabirgðalaga, sem nú eru úr gildi numin, þá var tilgangurinn með verkfallskröfunum ekki sá að fá þessi lög á brott, heldur sá, að gera þjóðfjelaginu í heild . sinni og verkafólki sjerstaklega bölvun, með því að efna til minnkandi atvinnu, minnkandi framleiðslu, vaxandi vand- ræða, í aflaleysi og öðrum erfiðleikum landsmanna. Þjóðviljinn segir í gær, að Alþýðusambandið hafi „svikist aftan að verkalýðsfjelögunum“. En hann býst til þess, að kommúnistar hlaupi hjer undir bagga, og útvegi landsfólkinu » ’öll þau verkföll, sem þurfa þykir, til þess að útvega þær * vörur til landsins, sem nú eru lítt fáanlegar, vegna þess hve f Íítið það er, sem þjóðin hefur handa á milli til að selja, útvega verkafólki alla þá vesæld, sem menn uppskera, af því að at- vinnan og framleiðslan stöðvist. ÚR DAGLEGA LÍFINU NORÐLENDIÍíGAR — SUNNLENDINGAR HVERNIG ætli standi nú á því, að ekki má kalla hlutina sínu rjetta nafni í útvarpinu? — Fyrst eftir innrás kommúnista í Suður-Koreu var jafnan talað um kommúnista og ekkert dregið úr sannleikanum og Suður-Koreumenn voru nefndir svo, eða sagt var hersveitir Sam- einuðu þjóðanna eins og þær líka eru. En síðustu dagana er útvarpið eingöngu farið að nota „sunnanmenn" og „norðanmenn“. Þetta villir marga, sem ekki átta sig í skyndi á hverj- ir eru sunnan og hverjir norðan. Hvað ætli hafi hlaupið í þá útvarpsmenn að hætta að kalla hlutina sínum rjettu nöfnum? • RANGT EFTIR HAFT ÞEGAR Ríkisútvarpið hefir frjettir eftir út- varpinu í London ber því að sjálfsögðu að nota sömu orð og heiti og þar er gert. Lundúnaút- varpið j^allar Norðanmenn ýmist „uppreisnar- menn“, eða hreint og beint „kommúnista". — Hersveitir Bandaríkjamanna og Suður-Koreu- manna, ásamt hersveitum annara’þjóða, er sent hafa lið til að berjast undir fána Sameinuðu þjóðanna, nefnir Lundúnaútvarpið „herlið Sam- einuðu þjóðanna“. Sjeu önnur höfn og heiti notuð og sagt að frjettin sje úr Lundúnaútvarpinu, þá er rangt eftir haft. • BRJEF FRÁ BÓNDANUM Á SANDI ODDUR JÓNSSON bóndi að Sandi í Kjós hefir sent nokkrar línur í sambandi við brjefið frá Benedilct Ólafssyni, sem varð að greiða toll af því að hann viltist inn á einkaveg bónda fyrir skömmu. — Þykir rjett, að Oddur fái að gera grein fyrir sínu sjónarmiði í málinu. Oddur segir, að ekki sje það rjett, að ekki verði komist í berjaland Eyja, nema að aka eftir veginum, sem liggur heim að Sandi. „Þetta er missögn“, segir bóndi. „Þessi vegur liggur alls ekki annað en heim að Sandi, en hitt er annað mál, að hægt er að stytta sjer leið. ’ • YFIR SJÖFALDA GIRÐINGU „NOKKRIR menn hafa farið þessa leið, bæði með mínu leyfi og þó raunar fleiri í óleyfi“, heldur Oddur bóndi áfram. „Sumir þjösnast þarna yfir sjöfalda girðingu og sliga hana niður. Það er engu líkara, en að flestum mönnum þyki betra að fara yfir gírðingar, en að fara gegnum hlið’in, sem á henrii erú. • MERKING TILGANGSLAUS RJETT er, að æskílegast væri að eigendur einkavega merktu þá og bönnuðu umferð. — I fyrrasumar setti jeg upp skilti við vegamótin og bannaði ölíum óviðkomandi akstur eftir veginum. Gerði jeg það meðal annars með til- liti til þess að vegurinn var sjerstaklega blautur. En þessi aðvörun mín og bann var að engu haft. Umferðin var jöfn um veginn eftir sem áður, en margir sátu fastir í bleytunni og kom- ust hvorki fram nje aftur nema með hjálp frá okkur. — Þetta skeytingarleysi og ániðsla varð til þess, að jeg fór að heimta „tollinn". • ER ÞAÐ SANNGJARNT? AÐ LOKUM vill Oddur bóndi í Sandi skjóta því til lesenda, hvort þeim finnst það sann- gjarnt, að menn leggi vegi og haldi þeim við með ærnum tilkostnaði til þess að bráðókunn- ugt fólk geti sportað sig á þeim. Hafa menn nú heyrt mál beggja aðila og virðast báðir hafa nokkuð til síns máls. „Það er ekki til of mikils ætlast af mönnum, sem ekki kæra sig um umferð um land sitt, eða einkavegi, að þeir gefi það til kynna á ótví- ræðan hátt. En hitt er og jafn sjálfsagt, að menn hlýði slíkum fyrirmælum. Mun svo útrætt um þetta mál hjer í dálk- unum. • UNDRUNAREFNI GESTA ÞEGAR menn koma í ókunn lönd, er það alltaf eitthvað, sem undrar þá. Þetta kemur fyrir þig og mig. Oft er það lítilfjörlegt, sem menn undr- ast yfir, en stundum er gestsaugað líka glöggt. Tvennskonar undrunarefni erlendra manna, sem jeg hefi hitt hjer í sumar, tók jeg sjerstak- lega eftir: Annar sagði: „Jeg skil ekki hvernig hægt er að aka bifreiðum á götum Reykjavíkur án þess, að hafa það iögboðið, að bifreiðar hafi vegvísir“. — Hinn sagði: „Það sem undrar mig mest í Reykjavík er, að ekki skuli almennt vera brjefakassar á húsum. Hvar setja menn brjef- in?“ — Margir stinga þeím milli stafs og hurðar, sagði jeg. Þá óx undrun mannsins um allan helming. (Jm 5000 manns á land- námshátíðinni að Gimli í VESTUR-ÍSLENSKA blaðinu Heimskringla, frá 16. ágúst, er skýrt frá því að rúmlega 5000 manns hafi sótt landnáms- hátíðina í Gimli, en þar minntust Vestur-íslendingar 75 ára landnáms íslendingabyggða í Kanada. Þenna dag var veðrið mjög gott og þótti mörgum gestanna nóg um hitann Gimli-bær var skreyttur. Farin var skrúð- ganga um götur bæjarins og út að hátíðasvæðinu. Margar ræður. Allmargar ræður voru flutt- ar, og ljóð flutt í tilefni dags- ins. Ræðumenn voru þeir sjera Valdimar. Eylands forseti Þjóð- ræknisf jelagsins, en hann stjórn aði hátíðinni. Minni landnáms- ins flutti Thorbergur Thor- valdson. Pálmí Hannesson Menntaskólarektor, er var sjer- stakur fulltrúi ríkisstjórnarinn- ar á þessum merka degi, flutti kveðjur hennar og sjerstakt á- varp er undirritað var af for- sætisráðherra, Steingrími Stein þórssyni. Ávarpið er svohljóð- andi: Kveðja ríkisstjórnarinnar. „Ríkisstjórn Tslands sendir yður, Vestur-íslendingar, alúð- arkveðjur og árnaðaróskir á minningarhátíð yðar um sjötíu og fimm ára bygð í hinu nýja landi. Jafnframt þakkar ríkis- stjórnin og öll þjóðin tryggð yð ar við tungu vora og menningu, vináttu yðar í garð heimaþjóð- arinnar og þá sæmd, sem þjer hafið veitt Islandi með afrek- um yðar og orðstír. Vjer vonum að hin traustu bönd ættar og sögu tengi oss saman enn um langa hríð. Lifið heilir!“ Heklumyndin. Á hátíðasvæðinu fór fram kvikmyndasýning og sýndi Pálmi Hannesson rektor, þar hina stórkostlegu Heklukvik- mynd og flutti Pálmi skýring- ar með myndinni. Þótti hátíðar gestum þessi mynd mjög merki leg sem vonlegt er. Sungið var og Fjallkonan, frú Somerville, flutti ávarp. Júgóslavar dæma rússneskan njósnara BELGRAD, 1, sept. — Dóm- stóllinn í Belgrad dæmdi í dag Mihail Karagedragijev, blaða- fulltrúa rússneska sendiráðs- ins í Júgóslavíu. í tíu ára fang- elsi fyrir njósnir. — Reuter. Btaóamannaboð KAUPMANNAHÖFN, 1. sept. — Skýrt var frá því hjer í dag, að í ráði væri að bjóða þýskum og austurrískum blaðamönnum að heimsækja Skandinavíu. Utanríkisráðuneyti Dana, Norðmanna og Svía standa að boðinu. — Reuter. menn í verhfalli í VNskalandi FRANKFURT, 1. sept. — Verk- fall byggingarverkamanna, sem hófst hjer í Frankfurt fyrri hluta vikunnar, virðist nú vera að breiðast út. 25,000 byggingarverkamenn í þremur borgum hafa þegar lagt niður vinnu. Er hjer um að ræða alvarleg- ustu vinnudeiluna, sem upp hef ur komið í Vestur-Þýskalandi síðastliðin tvö ár. í sambandi við verkfall þetta, hefur Max Reimann, foringi vestur-þýskra kommúnista, birt ávarp, þar sem hann kemst meðal annars svo að orði, að vinnustöðvunin sýni andstöðu verkamanna gegn hernámslið- um Vesturveldanna. Foringjar verkfallsmanna hafa þegar svarað þessu og lýst yfir, að verkfallið eigi ekkert skylt við stjórnmál — sjerstak- lega ekki þá tegund stjórnmála, sem Reimann aðhyllist. — Reuter-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.