Morgunblaðið - 10.09.1950, Side 3

Morgunblaðið - 10.09.1950, Side 3
Sunnudagur 10. sept. 1950 MORGUNBLAÐItí 3 GUÐMUIMDUR ÁSBJÖRIMSSOIM SJÖTUGUR Á MORGUN verður sá maður sjötugur, sem lengur en nokk- ur annar hefur verið bæjarfull- trúi í Reykjavík, en það er Guðmundur Ásbjörnsson. Guðmundur er þó eigi fædd- ur hjer í bæ, heldur austur á Eyrarbakka. Má að vísu segja, að Eyrarbakki hafi á þeim ár- um verið einskonar fyrirrenn- ari Reykjavíkur. Hann var þá einn helsti verslunarstaður landsins og sóttu menn þang- að kaupstað úr hinum fjöl- mennu sveitum austan fjalls, sem síðar fluttu verslun sína að miklu leyti til Reykjavíkur. Á uppvaxtarárum Guðmund- ar var því mikið um að vera á Eyrarbakka. Þar var hin mikla Lefoli-verslun, en fyrir hana starfaði faðir Guðmundar löngum sem verkamaður. Guðmundur vandist sjálfur snemma ýmiskonar vinnu, og lagði ungur gjörva hönd á margt. Foreldrar hans, þáu hjónin Ásbjörn Ásbjörnsson og Guðrún Sigurðardóttir, veittu honum gott uppeldi, og hjá þeim iærði hann ungur að aldri að hver er sinnar eigin gæfu srniður. Þegar Guðmundur fór úr heimahúsum, átti hann hvorki auð nje frændstyrk sjer til framdráttar, en hann liafði lært að vinna og kunni góð skil á því, að leiðin ti! þess að verða settur yfir mikið er að vera trúr yfir litlu. Á þessum árum stundaði Guð mundur hverja þá vinnu, sem að höndum bar og leysa þurfti af hendi. Hann reri til sjávar og vann á eyrinni og stundaði sveitavinnu, en jafnframt lærði hann trjesmíði og tók sveins- brjef í þeirri iðn, þegar hann var á tuttugasta árinu. Skömmu síðar, eða árið 1902, fluttist hann til Reykjavíkur. — Um þær mundir var hann þó um nokkurt skeið sjómaður á skip- um Pjeturs Thorsteinssonar á Bíldudal, en hann var þá einn helsti útvegsmaður landsins. Haustið 1902 hóf Guð- mundur trjesmíðar hjer í bæ og stundaði þær um alllangt skeið. Eigin vinnustofu stofn- aði hann 1913 og nokkru síðar verslun í sambandi víð hana, og rekur hann þá verslun enn í dag. Verslunina Vísi stofnaði Guðmundur 1915, ásamt Sig- urbirni Þorkelssyni og ráku þeir hana í fjelagi allt þangað til þeir seldu hana nú fyrir nokkrum árum. Eru báðar þess- ar verslanir meðal hinna víð- kunnustu hjer í bæ, hvor í sinni grein. Þá hefur Guðmundur einnig tekið þátt í útgerð og meðal annars lengi verið formaður í hlutafjelaginu Hrönn, sem eins og kunnugt er á togarann Geir. Svo sem af þessu má sjá, hefur Guðmundur löngum haft með höndum umfangsmikinn atvinnurekstur, en hann hefur ekki látið við það sitja. Hann hefur einnig verið meðal aðal forystumanna í ýmsum mestu nytjasamtökum borgaranna. Hann hefur lengi verið í stjórn Eimskipafjelags íslands, í stjórn Sjóvátryggingarfjeiags Islands, í stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis frá upphafi og formaður hans eft- ir andlát Jóns heitins Þorláks- sonar, og í fulltrúaráði Utvegs- bankans. Þá var hann um eitt skeið í stjórn Triesmíðafjelags Reykjavíkur og Kaupmanna- fjelagsins gamla Á stiórnmálum hefur Guð- mundur ætíð haft mikinn á- Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar. huga. í gamla daga var hann eindreginn heimastjórnarmað- ur og mjög handgenginn for- ingjum þess flokks, einkum Lár usi H. Bjarnason, síðar hæsta- rjettardómara. Eftir að hin gamla flokks- skipan riðlaðist, hefur Guð- mundur ætíð skipað sjer í hóp þeirra, sem berjast fyrir frjálsu framtaki og alhliða framförum í landinu. Hann hef- ur þess vegna ætíð verið einn af helstu forystumönnum Sjálf- stæðisflokksins frá því að hann var stofnaður, og meðal annars er hann formaður útgáfufjelags aðalmálgagns flokksins, Morg- unblaðsins. Aðal stjórnmálastarf sitt hef ur Guðmundur þó unnið í bæj- arstjórn Reykjavíkur. I bæjarstjórnina var Guð- mundur Ásbjörnsson fyrst kjör inn í janúar 1918 og hefur átt þar óslitið sæti siðan, eða í full 32 ár. Sá, sem lengst hafði set- ið í bæjarstjórn á undan Guð- mundi Ásbjörnssyni, var Hall- dór heitinn Friðriksson yfir- kennari Hann átti þar þó ekki sæti nema 31 ár og er Guð- mundur því kominn árinu fram úr honum og á vonandi eftir að bæta mörgum við. Þá hefur Guðmundur nú ver- ið forseti bæjarstjórnar í ald- arfjórðung, og er það miklu Tengur en nokkur annar maður hefur gegnt því vandasama trúnaðarstarfi. Eru fyrirrenn- arar Guðmundar í starfinu þó engir aukvisar, því á meðal beirra eru Jón heitinn Magnús- son forsætisráðherra, Sveinn Björnsson, forseti Islands og Pjetur heitinn Magnússon fjár- málaráðherra. í bæjaeráði Revkjavíkur hef- ur Guðmundur setið allt frá "tofnun þess og fram á þenn- an dag. Er hann eini maðurinn. aem það hefur gert. Flestum öðrum trúnaðarstörf um innan bæiarstjórnar Reykjavíkur hefur Guðmundur ^egnt lengur eða skemur og væri það of langt, upp að telja að geta þess alls. Nú er það að vísu svo, að til frægðar skal konung hafa, en eigi langlífis. Það eitt stoðar því eigi til ágætis að vera lengi í embætti eða trúnaðarstöðum. En ástæðan til þess, að Guð- mundur hefur lengur gegnt þesum störfum en nokkur mað- ur annar er sá, að samborgarar hans hafa með engu móti viljað leyfa honum að losa sig við þau. Slíkt traust bera þeir til hans. Það ræður að líkum, að Guð- mundur Ásbjörnsson er fyrir löngu orðinn kunnugri bæjar- málefnum Reykjavíkur en nokkur maður annar, enda hef- ur hann oft orðið öðru hvoru að taka við störfum borgarstjóra, er þeir hafa verið forfallaðir. Guðmundur hefur ekki að- eins til brunns að bera kunn- ugleika á þessum málum um- fram alla aðra, heldur er hann einnig manna ráðhollastur, sanngjarn og víðsýnn. Hann er sannur framfaramaður og veit, að traustir skulu hornsteinar hárra sala. Þess vegna hefur hann verið allra manna lengst forystumaður í bæjarmálefnum Reykjavíkur, einmitt á þeim árum, þegar í Reykjavík hafa orðið meiri framfarir en á nokkrum stað öðrum í allri sögu íslandsbygfar. Allir bæjarfulltrúar mæla það einum rómi, að fundarstjórn Guðmundar Ásbjörnssonar sje með ágætum. Um skoðanir hans greinir menn á, eins og gengur. Það er þó sannmæli, að Guðmundur er í senn frjáls- lyndari og víðsýnni en flestir þeir, sem stundum hnýta í hann fyrir íhald, enda eru stór virki þau, sem bæjarstjórnin hefur beitt sjer fvrir á starfs- árum Guðmunder Ásbjörnsson- ar órækasta vitni þess, að þar hefur ekki ráðið andi kvrr- stöðu og íhalds, heldur fram- fara og frelsis. Guðmundur Ásbjörnsson er ókvæntur maður. Mætti því ætla, að hann hefði Josnað við bað. sem Churchill kallaði eitt sinn hið „gífurlega starf að halda saman heimili og ala unp börn“. Svo er þó ekki, Guðmundur hefur lengi átt vistlegt heimili og eru þeir ótaldir, sem þar og með öðrum hætti hafa notið umsjár hans og fyrirgreiðslu. Allt það, sem nú er tsflið, mundi vissulega nægilégt starf einum manni, og er þó enn ó- getið þess, sem sennilega stend- ur hjarta Guðmundar næst af öllum hans margháttuðu störf- um, en það er þátttaka hans í KFUM og ýmiskonar kirkju- legu starfi. Þeim þætti í starfi Guðmundar mun þó annar mjer hæfari gera skil og skal jeg eigi fjölyrða um það. Um leið og jeg að lokum óska Guðmundi Ásbjörnssyni allra heilla á þessum límamótum, vil jeg óska borgurum Reykjavík- ur þess, að þeir megi sem lengst njóta forystu hans og starfa með sama hætti og þeir hafa nú gert í meira en þrjá áratugi. Bjarni Benediktsson. ★ ÞAÐ ÞÓTTI engum tíðindum sæta, er Guðmundur Ásbjörns- son fluttist hingað til bæjarins. En nú er hugsað um starf hans á þann veg, að þar er fagur kapítuli í sögu Reykjavíkur. Rúmlega tvítugur kom Guð- mundur hingað. Hver vissi þá um framtíð hins unga manns? Það var öllum og þá einnig hon- um hulið. En eitt var honum ljóst: ,,Það er á mig kallað til starfa. Jeg veit ekki um morg- undaginn, en jeg veit, að í dag á jeg að starfa og nota hverja stundina“. Þessi aðferð var notuð. Með einbeittum áhuga gekk hann kjarkmikill að starfi. Nú sýn- ir saga hans, hvert komast má. Aldrei var skorast undan erf iðinu, en ávallt hendur fram- rjettar til nytsamra athafna. í ríkum mæli hefir Guðmund ur sjeð árangur góðrar iðju. En aldrei hefir hann gleymt því að safna sjer einnig andleg- um fjársjóðum. Guðmundi hefir verið það eðlilegt, að stunda iðn sína, fást við kaupsýslu og taka drjúgan þátt í stjórnmálum og bæjar- málum. En honum hefir verið það jafneðlilegt að taka þátt í andlegum störfum. Um áratugi hefir nafn hans verið á skrá í KFUM. En honum nægði ekki að vera þar skrásettur. Þar hefir hann verið sístarfandi. Trú hans hef ir sjest í verkinu. í fjelagsstarf inu er hann allur, með óskift- um huga. Þar hefir kröftunum verið beitt til eflingar góðu 'máli. Það er þessu hugarfari Guðmundar og margra sam- herja hans að þakka, að ekki hefir verið beðið um opinbera styrki kristilegu starfi til stuðn ings, heldur hefir verið talið sjálfsagt að starfa með fúsum fórnarvilja. Guðmundur hefir sótt fórn- arfundi KFUM og K með sama áhuga eins og fundi í bæjar- stjórn og í bæjarráði. Um 40 ára skeið hefir Guð- mundur verið í stjórn KFUM, og í Kristilegu fjelagi ungra manna og kvenna hefur hann oft flutt fróðleg erindi, bæði hjer í bæ og í Hafnarfirði. — Þangað fór hann oft fyrr á ár- um fótgangandi til þess að halda kvöldfundi í KFUM. — Sunnudagaskólastarf hafði hann á hendi í 25 ár og safn- aðarfulltrúi hefir hann verið í Hallgrímssókn frá því bænum var skift í sóknir. Hin kristi- legu æskulýðsfjelög hafa átt hauk í horni, þar sem Guðmund ur er. Snarræði hans og dugn- aði hefir alltaf mátt treysta. — Fyrir nokkrum árum skemdist hús KFUM og K í eldsvoða. — Þá sást hvers virði það var, að eiga þá báða að, Guðmund Ás- björnsson og Knud Zimsen. Þá og oft endranær var hressandi að vera með þeim á stjórnar- fundum fjelagsins. Ávalt var gott að hlíta ráðum þeirra. Margir eru þeir, sem leitað hafa ráða hjá Guðmundi. Á slíkum samtalsfundum kann hann að vera fáorður, en altaf gagnorður. Það er ekki altaf hátt um loforðin, en þvi meirá er varið í efndirnar. Þögull og athugull hlustar hann á vand- kvæði manna og spurningar, og eyðir ekki mörgum orðum að loforðunum. En hjer sannast, að þögnin er gull og það kem- ur skýrt í ljós, að honum er það mikil gleði, er hann fær leyst úr vandanum. Loforð Guðmundar eru betri en stafur á bók. Jeg trúi ekki öllu, sem prentað er. En jeg hefi reynt Guðmund að því, að orðum hans má treysta, þó að þau sjeu ekki á pappírinn sett. Svörin hafa sjest í framkvæmd- um. Reykvíkingar, og menn víðs- vegar um landsins byggðir, þekkja þrautseigju Guðmund- ar, sannfæringarkraft hans og áhuga. En ]»eir eru líka marg- ir, sem eru í þakkarskuld við hann, af því að hann hefir með fögnuði tekið þátt í kristilegu starfi. Þar sameinaðist starfið fórninni. Jeg tala fyrir munn margra, er jeg á 70 ára afmæli Guð- mundar þakka honum, að hann aldrei hefir farið í felur með trú sína, en áavlt starfað af alhug, uppvaxandi kynslóð þessa bæjarfjelags til mikilla heilla. í slíku starfi hefir hann unað sjer hið besta og þar hefir æskugleði hans fengið að njóta sín. Þessvegna er hann síungur, og því er það, að þróttmiklum æskumanni eru í dag fluttar árnaðarkveðjur. Jeg tel mjer það heill og heiður að hafa átt vináttu hans um svo langt ára- bil. Tryggum vini og samverka- manni árna jeg framtíðarheilla, og óska þess, að KFUM og K fái enn um langan aldur að njóta hinna frábæru starfs- krafta hans. Jeg veit, að það samrýmist vel hugsun og vilja Guðmundar Ásbjörnssonar, að vjer á afmælisdegi hans biðj- um þess, að „auðnan rík aldna prýði Reykjavík". Bj. J. ★ MEÐAL þeirra mörgu fjelags- starfa, sem Guðmundur Ás- björnsson hefur með höndum, er hann formaður í stjórn út- gáfufjelags Morgunblaðsins. — Hefur hann haft þessa for- mennsku á hendi í 15 ár sam- fleytt. Veit jeg, að jeg mæli fyrir munn allra samstarfsmanna minna, bæði þeirra sem með honum eru í fjelagsstjórninni, og annara þeirra, er við blaðið vinna, er jeg þakka honum sjö- tugum fyrir þá miklu hlutdeild, sem hann persónhlega hefur átt í velgengni blaðsins alla þá stund, sem hann hefur haft formennskuna á hendi. En ekki síst fyrir þann, mjer liggur við að segja ómetanlega skerf, sem hann hefur átt í þeim ráðstöf- unum, sem gerðar hafa verið til þess að tryggja sem best rekst- ur þessa fyrirtækis um langa framtíð. Frh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.