Morgunblaðið - 19.12.1950, Blaðsíða 2
morgvnbLaðið
"Þriðjxrdagur 19. "des. 1950, J
' Yetrarhfálpin hefir úthlutað
fyrir 1r3 miljónir kr. i 15 ár
Frásögn Stefáns A. Páissonarr sem hefir veiii
stofnuninni forsföðu öl! þessi ár
SÍÐASTLIÐIN 15 ár héfur Vetrarhjálpin í Reykjavík úthlutað
til bágstaddra fyrir samtals kr. 1.335.090.44 og eru þar af gjafir
trá bæjarbúum sjálfum kr. 797.651.11, en mismuninn hefur
bæjarsjóður Reykjavíkur greitt. Mestmegnis af gjöfum frá ein-
staklingúm eru peningar, en nokkuð klæðnaður og aðrar nauð-
synjar'Á þessu tímabili hefur verið úthlutað til samtals 13.100
fjölskyldna og einstaklinga frá Vetrarhjálpinni.
AÐALLEGA MATVÆLI
OG FATNÁÐUR
Þessar upjriýsingar eru frá-
Stefáni A. Pálssyni, sem hefur
veitt Vetrarhjálpinni forstöðu
undanfarin 15 ár, en hefur nú
látið af því starfi sökum anna.
Um úthlutunina segir Steíán,
að hún hafi verið þannig þessi
15 ár:
Matvæli fyrir kr. 810,787,98,
fatnaður fyrir kr. 373,816,06,
mjólk fyrir kr. 97,702,40 og kol
fyric 52,690.
Vetrarhjálpin hefur fyrst og
fremst styrkt atvinnulaust
fólk,. gamalt fyrirvinnulaust
fólk og einstæðings mæður.
ÚTHLUTUN í FYRRA
í fyrra vetur var úthlutað til
316 fjölskyldna og 562 einstakl
inga. Söfnuðust þá hjá bæjar-
búum kr. 76,488,35, en úthlutað
var fyrir kr. 136,771,30. Þar af
voru matvæli fyrir kr. 99,250,
rnjólk fyrir kr. 12,363,55 og fatn
aður fyrir kr. 2u,í»>,iu.
í raun og veru er verðmæti
gjafanna meira, en tölurnar
segja til um, því fatnaður og
aðrar gjafir til Vetrarhjálpar-
innar^ annað en peningar hefur
.að jafnaði verið metið nokkuð
lágt í peningum.
ÁNÆGJITT EG SAMVTNNA
Stefán A. Pálsson bað Morg-
unblaðið að flytja öllum þeim
fjölda mörgu, sem veitt hafa
Vetrarhjálpinni lið, sínar bestu
þakkir. Nefndi hann fyrst þá,
sem lagt hafa eitthvað af mörk-
«m þau ár, sem hann hefur
veitt Vetrarhjálpinni forstöðu,
þá aðstoðaríólk Vetrarhjálpar-
innar, eins og skátana, blöðin,
Híkisútvarpið, póstþjónustuna
<jg fleiri aðila.
Stefán sagði, að stundum
hefði starf sitt reynst nokkuð
vanþakklátt, en þó hefði aldrei
komið til neinna verulegra á-
rekstra.
Kvaðst hann vonast tíl þess,
að Vetrarhjálpin nyti í framtíð
inni sömu vinsælda bæjarbúa
Og hingað til og að þeir legðu
fram sinn skerf til að gleðja
hina bágstöddu um jólín og
hjálpa þeim yfir mestu erfið-
leika vetrarins. Það væri vel
gert, að styrkja Vetrarhjálpina,
það vissu þeir best, sem starfað
hefðu fyrir stofnunina og kynst
hve margir eru raunverulega
hjálparþurfi í þessum bæ.
Að lokum bað Stefán um, að
hlaðið færði öllum aðilum þakk
ir sínar fyrir það traust og þá
velvild, sem honum hafi jafnan
verið sínt í starfi hans, sem for
•stöðurmaður Vetrarhjálparinn-
ar.
Sfalin-frímerkið
í Buda-Pesf
FYRIR rokkru síðan voru gefin út
frímerki i Ungverjalandi með mynd
Stalins. 1 sambandi við frimerki
þetta kom fyrir atburður, sem gaf
tilefni til þess, að fiskisaga flaug um
landið. en hún var svona:
Stalin var í heimsókn í Buda-Pest
og vildi vita hvemig frimerkið. með
mynd hans sjálfs, seldist þar. Hann
kom því við i sölutumi og bað um
Stalin-frimerki á brjef, sem hann
hjelt á í hendinni.
—- Salan gengur sjálfsagt vel —
eða er ekki svo? spurði Stalin.
— Ne-ei, svaraði stúlkan, sem af-
greiddi.
— Hvernig stendur á þvi?
— Fólk segir að frimerkið tolli
ekki á brjefunum.
Stalin hrækti á limið, setti frí-
merkið á brjefið og sýndi stúlkunni
að enginn vandkvæði væru á að fá
það til að tolla.
— Sjáið til — Það tollir ágætlega,
sagði hann.
— Já, þegar svona er farið að, en
hjer í Buda-Pest er það nú venjan
að fólk spýti á hina lilið frimerkisins,
var svarið.
Jólapo'lar Hjálp-
ræðishersins
ENN Á NÝ eru hinir gömlu vel
þekktu jólapottar komnir á hina
vanalegu staði í borginni. Fram-
undan liggur nú jólahátíð með
annríki og spenningi. — Augu
barnanna tindra og lýsa, er þau
sjá jólaauglýsingarnar og vöru-
sýningarnar í búðargluggunum,
hvort heldur verslunin er stór
eða lítil, við aðalgötu borgarinn-
ar eða í úthverfum hennar.
Þau bíða jólanna með eftir-
væntingu, en það er undir efna-
hag heimiíanna komið, hvort þau
fá óskir sínar uppfylltar eða
hvort þau verða fyrir vonbrigð-
um.
Gamalmennin, sem hafa lifað
margar jólahátíðir, og sem sitja
nú einmana í einu litlu herbergi,
líta einnig með eftirvæntingu til
jólanna. Hver á að hjálpa þeim
til þess að uppfylla eftirvænt-
inguna, þar sem allt er svo dýrt,
og þau eiga örðugt með að fá
sínar daglegu þarfir.
Eins og áður hefur verið skrif-
að um, komu tveir líknarforingj-
ar hingað til Reykjavíkur í haust;
og eftir venju Hjálpræðishersins
í öðrum löndum, verður úthlutun
þeirra peninga sem koma í jóla-
pottana í höndum þeirra. Og
líknarsysturnar vonast eftir að
jólapottarnir færi þeim svo mik-
ið að þær geti orðið við þeim
óskum um hjálp, sem þær þegar
hafa méðtekið og fleiri til. Þær
óska þess að hið þögla mál jóla
| pottanna megi tala máli smæl
1 ingjanna, svo að allir þeir sem
hafa kringumstæður til þess vilji
| rjetta oss hjálparhönd til þess að
skapa hugnað og gleði hjá þeim,
sem þess þarfnast.
Pei
Aih. við Saura-Gísla sögu
r
Al.
urcnajiicy
' i
ðpinber heimsókn
BERLÍN, 18. des. Wilhelm
Pieck, forseti Austur Þýska-
lands, kom í kvöld ' r ‘ fyrstu
“Opinberu heimsókn sfria til
Varsjá. I fylgd með 'horíum var
yneðal annars Dértirigör titan-
yíkisráðherra. — Reuter.
Kristján Röðuls: Undir dægr-
auiu lítigi. Ljuu. Reykjavik
1950. Stuðningsmenn höf. gáfu
út.
ÞETTA er ungur höfundur, en
þó er þetta önnur_ljóðabók hans.
Árið 1947 kom út eftir hann bók-
in: Undir norrænum himni. Það
er auðsjeð á þessari nýju bók höf.
að hann er á öru framfarastigi,
því að hún má teljast mikið
stökk fram á við frá fyrri bók
hans, sem að ýmsu var áfátt.
í þessari nýju bók eru mörg góð
ljóð og sum ágæt, eins og t. d.
kvæðið Alþjóðlegt viðhorf og
mörg fleiri, þó rúm leyfi ékki
að nefna fleiri eða birta þau. —
Það eru viðbrigði að lesa þessi
ljóð hins unga höf undar, eftir allt
það moldviðri af rímlausu rugli,
sem ýmsir nútíma „höfundar“
eru að hnoða saman og gefa út
og kalla Ijóð. Þeir gleyma því
ekki að heimta rithöfundastyrk
út á slíkt hnoð. Hjer er tilvalin
bók fyrír ljóðavini að kaupa og
lesa um jólin. Hún flytur ýmsan
boðskap, sem of sjaldan heyrist
hjer og hún er ekki útþanin af
„pessimisma“ og ádeilum. Hún
túlkar lífið eins og það er, en
flíkar þó meir björtu hlið þess
en hinni dökku. Pappír og frá-
gangur allur á þókirini er hinn
prýðilegasti. Ekki má heldur
gleyma því, að hún er prýdd
mörgum ágætum listaverkum
eftir hinn ódauðlega íslenska
meistara myndlistarinnar, Jó-
hannes S. Kjarval og varla hefði
hann prýtt þessa bók með lista-
verkum sínum, ef hann hefði
ekki álitið ljððin í henni þess
verð.
Sá, sem vill gefa smekklega
jólagjöf, gefur vinum sínum bók-
ina Undir dægranna fargi.
J.
NEW YORK: — Fyrir skömmu
fundust í Catskill-fjöllum í
New York fylki, beinagrindur
af fimm mönpum, sem fórust
í flugslysi 20. júlí síðastliðinn.
Þessi fundur hefir nú haft í för
með sjer lögfræðilegt vanda-
mál, sem virðist ólevsanlegt.
Þrjú þeirra, sem fórust, voru
Anne Gill, 44 ára, og börn henn
ar tvö, Dee Ann og John Gill.
Frú Gill ljet eftir sig um 60.000
sterlingspund, og mikið veltur
nú á því, hvort hún eða börn
hennar haíi látist fyrst.
Ef hún ljetst á undan börn-
um sínum, erfir maðurinn henn
ar hana. En ef börnin ljetust á
undan henni, skiptist arfurinn
milli sex systkina hennar.
Allf um íjjróttir"
NEW York: — í fym raánuði
fóru ,i fyrsta skipti fram sjón-
vaiþSSehd'ingdr í litum í New
York,- ................
n
TÍMAMTIÐ „Allt um íþróttir",
6. hefti 1. árg., hefir borist blað
inu. Efni er m. a.: Gunnar Huse
by var kjörinn íþróttamaður
ársins 1950, Sigursælasta árið
í sögu íslenskra frjálsíþrótta er
senn liðið, rabbað við Benedikt
Jakobsson, Knattspyrnan 1950,
Frank Swift segir frá fyrsta
leik sínum á Wwmbley, Meist-
aramót Reykjavíkur í hand-
knattleik 1950, Sundmeistara-
mót Reykjavíkur, íslenskir í-
þróttamenn V: Hörður Óskars-
son, Fyrsti Sigurinn, smásaga,
Verðlaunagetraun, Besti árang
ur í frjálsíþróttum á Islandi
1950, Utan úr heimj o, fl.
Menn eru enn ekki
vonlausir hjá S. Þ.
! LONDON, 18. des. — Einn full-
trúi Breta hjá S.Þ. ræddi í dag
j við frjettamenn, er hann kom
flugleiðis til London. — Kvað
hann menn iþjá Sameinuðu
þjóðunum enn ekki vonlausa
um að takast mætti að leysa
Koi’eudeiluna á friðsamlegan
hátti... ♦, ..
PEGAR jeg las Saura-Gísla söguj
Oscars Clausen, véitti jég því at- j
hygli að höfundur fer afar-hratt |
yfir eftir að Gísli flyst til Skaga-
fjarðar, og virðist mjer að rang-
hermi kenni þar nokkuð, sem lík-
lega stafar frá skorti heimildar-
manna og ókunnleika. >
Fyrst er drepið á samninga Gísla
og .Bjarna Skúlasonar, sem gerð-
ist próventukarl Gísla, er ónýtt«
var gert með atfylgi Friðriks
Stefánssonar í Vallholti, svo
Bjarni fekk að mestu það, er
honum bar. Sagt er, að Bjarni
muni hafa átt börn, og ennfrem-
ur, að þegar hann fekk rjettindi
sín aftur, hafi hann verið orðinn
heilsulaus og dáið nokkru síðar.
Þetta virðist hafa gerst 1875 eða
1876. Það skiftir ekki miklu máli.
Víst var svo, að Bjarni átti börn.
Kann jeg nokkur skil á fjórum
þeirra og má vera að þau sjeu
hjer ekki öll talin. Ekki yeit jeg
um aldur þeirra, nema ein dóttir
hans hefur um þessar mundir
ekki verið nema sjö ára að aldri,
og önnur líklega yngri henni. Um
Bjarna er það með sannindum að
segja, að hafi hann misst heilsuna
hefuc hann fengið hana aftur. —
Lifði hann yfír 20 ár eftir þetta
og mun hafa dáið nálægt 1902.
Sá jeg Bjarna þegar jeg var barn
og þótti mjer hann kempulegur
á velli, sjerkennilegur, dragmælt
ur, þótti óheimskur og stund-
um meinglettinn í svörum. — A
hann allmarga afkomendur.
Þá segir í Gíslasögu, að næst
hafi Gísli átt í máli við Jón nokk-
urn, Jónssori í Saurbæ, út af meið
yrðum. Hjer mun átt við Jón
lækni Jónasson, er fluttist frá
Saurbæ til Vesturheims 1876 og
dó þar árið 1887. Hann var sonur
Jónasar hreppstjóra Jónssonar á
Vatni, er drukknaði í Svartá 1876,
og voru þeir feðgar mikilhæfir
á ýmsa lund.
Jlæst segir, að eftir að Gísli
kæmi í Skagafjörð, ætti hann
heimili á Ysta-Vatni og kæmist
inn á hjón, sem þar byggi. Ekki
er bóndinn nafngreindur en sagt
að konan hafi heitið Ingibjörg
og verið systir Jóns í Saurbæ.
Jón læknir átti systur, sem Ingi
björg hjet. Var hún kona Bjarna
Skúiasonar, sem jeg gat um áður.
Segir Gísla saga að Bjarni byggi
á Álfgeirsvöllum og varla mun
átt við hann og konu hans hjer.
Segir ennfremur að Gísli hafi
orðið hjónadjöfull á Ysta-Vatni,
flæmt bóndann brott og búið
með Ingibjörgu, þóst eiga marg-
falt vinnumannskaup hjá bónda
eftir árdvöl eða svo! Selt síðan
jörðina og fjenaðinn, skömmu
áður en hann fór til Ameríku og
Ingibjörg hafi jafnan orðið ein-
stæð eftir það.
Því miður hefi jeg ekki gögn
til þess að úrskurða, hvað mikið
er satt í þessu.
En eins og jeg hefi áður reynt
að sýna fram á, er nokkuð bogið
við kaflann í Gísla-sögu, sem
snertir veru hans og menn í
Skagafirði. Virðist mjer því, að
sá kafli þurfi endurskoðun, hvað
sem öðru líður. Gísli frá Saurum
var svo sjerstæður maður, að það
er skyldugt að saga hans sje sögð
svo rjett og ýtarleg sem framast
er kostur á, því það mun sann-
ast að hún verði lengi lesin, og
lifir ýmsar aðrar sögur.
Örn á Steðja.
1
Vilja ekki lengur
hafa útlendinga
ÍTÖLSKU knattspyrnusamtök-«
in hafa nú samþykkt að útilokgj
alla útlendinga frá keppni I
atvinnuliðunum ítölsku.
Verður fyrst byrjað á ann-
arri deild, þannig að eftir ári3
1951, leika þar eingöngu ítalsk-
ir ríkisborgarar. Síðan verður
I. deild tekin fyrir. í lok ársinsi
1952 verður þar heldur engino
útlendingur eftir.
ítalir hafa ,,keypt“ marga
góða knattspyrnumenn frá Sví-
þjóð og Danmörku. Verða þeiB
þá að leita sjer atvinnu í öðr-
um löndum, ef þeir halda áfram
að hafa knattspyrnuna sem lífs-
viðurværi.
VerSur Symlnglon
effirmðður
Harshalls! 1
WASHINGTON, 18. des.
Kunnugir hjer í Washingtorí
telja líklegt, að W. Stuart Sym-
ington verði landvarnaráðherra;
Bandaríkjanna, þegar GeorgQ
Marshall dregur sig í hlje.
S.vmington er nú formaðuE!
bandaríska hervæðingarráösins^
Menn eru þeirrar skoðunar,
að Truman geti ekki farið þess
á leit við Marshall, að hann
gegni embætti landvarnaráð-
herra um óákveöinn ríma.
Eins og kunnugt er, liafðl
Marshall hershöfðingi sagt slril
ið við opinbert líf, þegar for-
setinn bað hann að taka við aS
Louis Johnson.
Marshall verður sjötugur 31.
desember. — Reuter. ,
Þrír láfð !líi i
PRAG, 18. des. — I dag vaí
skýrt frá því, að þrír menr}
hefðu látið lífið og 36 slasast,
þar af 17 alvarlega, er farþega-
lest og vöruflutningalest rákus8
á í útjaðri Prag í gærkvöldi.
Lestirnar voru á hraðri ferð,
er slysið skeði.
Báðir lestarstjórarnir hafai
verið handteknir. — Reuter. »,
Innsfæður Kínakomma í
Bandaríkjunum frysfar \
WASHINGTON, 18. des. —
Stjórnarvöld Bandaríkjanna til
kynntu í gærkvöldi, að þari
hefðu ákveðið að frysta inn-
stæður kínverskra kommúnistai
í Bandaríkjunum.
Jafnframt er bandarískum
skipum bannað að sigla til kín-
verskra kommúnistahafna, „þa®
■4*1 annað er ákveðið.“ t
— Reuter«
Bretar semja um
kaup á aluminíum
LONDON, 18. des. — Bret-
landsstjórn og Aluminíumfje-
■ lag Kanada, hafa gert með sjer
samning um að Bretar fái
næsta ár 50,000 tonn af aluminí
um, til viðbótar þeim 150,000
tonnum, sem áður var um sam-
ið. Auk þess tryggir samning-
urinn Bretum um 200,000 tonn
af aluminíum frá Kanada næstu
,2Q árin..,.. . — .Rcuter. .
Fufffrúar féff ríkja á fundi
LAKE SUCOESS, 18. des. —.
Fulltrúar tólf þeirra þrettátJ
Asíuríkja, sem unidrrituðu til-
löguna um vopnahlje í Koreu,
komu saman á nýjan fund I
kvöld, eftir að stjórnmálanefncl
allsherjarþings S.Þ. hafði á-
kveðið að fresta umræðum sin-
um um Koreuvandamálið.
------------------- ,
Liðsauki til Indo-Kína I
PARIS: — Fyrir skömmu afrjeð
franska stjórnin að senda 400Q
manna lið til Indó-Kína. Liðs-
auki þessi á að fara austur eingi
fljótt og verða má. j