Morgunblaðið - 19.01.1951, Blaðsíða 5
Föstudagur 19. janúar 1951
MORGUNBLAÐIÐ
8
Ólafur Jónsson :
Útflutningsverslunin og sumtök frumleiðendu
FREÐFISKURINN
A FREÐFISKINUM er er alls eng'
ín einokim hvorki lögbundin nje
Jögvernduð.
Sölu hans á s. 1. ári önnuðust
— að mestu leyti 3 fyrii-tæki:
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna,
sem hefir 55 frystiliús innan
sinna vjebanda, Samband ísl.
Samvinnufjelaga, sem telur sig
umbjóðanda 22 frystihúsa og
Fiskiðjuver Ríkisins, sem hafði
aðeins sinn eigin fisk til sölu á
s. 1. ári.
Frystihús þau, sem eru með-
limir S. H., eru skuldbundin tíl
þess að afhenda fjelaginu allan
fisk sinn til sölumeðferðar. Sama
geri jeg ráð fyrir, að gildi um
hús þau, sem SÍS selur fyrir. —
Frystihús innan SH geta sagt sig
Úr fjelaginu um áramót og eru
þá frjáls að fela hverjum sem
er sölu á framleiðslu sinni,
SH hefir ætíð verið reiðubúin
að taka öll tilboð um kaup á frosn
um fiski til athugunar og leyft
einstaklingum og fjelögum að
bjóða afurðirnar þegar og þang-
að er hún hefir ekki álitið það
verða til tjóns. Hafa þannig
nokkur innlend og erlend firmu
selt frosinn fisk frá SH — án
þess að það væri fyrir milligöngu
erindreka eða umboðsmanna fje-
lagsins. En venjulegast hafa all-
ar slíltar fyrirspurnir og tilraun-
ir runnið út í sandinn.
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna
hefir verið sjerstaklega heppin
með erindreka 'þá, er fyrir hana
starfa. Hafa þeir verið hvor öðr-
um duglegri að ryðja íslenska
freðfiskir.um braut, annar vestan
hafs og hinn austan. Er íslenska
þjóðin í mikilli þakkarskuld við
þá menn, er slík brautryðjenda-
störf vinna.
En eins og flestum er kunnugt
var íslenski freðfiskurinn svo að
segja óþekkt vara úti í heimi fyr
ir stríð og spáðu margir, að íram
leiðsla hans hætti er striðinu
lyki. Sem sagt, væri aðeins
,.stríðsfyrirbrigði“.
I leiðara í „Tímanum" 10. þ.m.
stendur þessi klausa m. a.:
„Ef þörf krefði væri hægt að
nefna næg dæmi til að sanna
þetta“ (þ. e. hve ísl. afurðasölu
væri betur borgið væri hún ekki
eins ,,klafabundin“ og greinar-
höfundur vill vera láta). „Það
má aðeins sem sýnishorn nefna
það, hve siælega Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna hefir gengið
fram í því að afla markaða fyrir
frystan fisk i Bandaríkjunum.
Fyrst á þessu ári var að ráði
hafist handa um að framleiða
frystan fisk fyrir amerískan
markað".
Svo mörg eru þau orð — og
raunar rniklu fleiri. — Hvað er
svo iiæft í þessu?
Jón Gunnarsson fór til Amer-
iku fyrir SH í árslok 1944, —
Árið 1945 keyptu Bretar alla
freðfiskframleiðsiu okkar, þó
tókst að fá laust fyrir USA,
markað allt að 1000 tonnum, sem
tókst að selja þangað að mestu,
enda þótt fiskur þessi væri í
mjög óhentugum umbúðum —
að gerð og stærð — fyrir þann
markað.
Árin, sem fiskábyrgðin var,
eða 1947—1949, að þeim árum
báðum meðtöldum, var magnið
mjög takmarkað, sem leyft var
að selja til USA vegna þess, hve
verðið var óhagstætt og kostaði
ríkissjóð mikla meðgjöf. Enn-
frerhur krpfðust Bretar að fá
' mestan hluta ýsunnar þau ár
— settu það ,xð skilyrði fyrir
kaupum á þo skflökurn — JÞá
voru togarar heidur ekki by.rj-
aðir karföveið, fvrir innlend-
an markáð —- -V itar afla lítið
sem ekkert af k,' fa og lúðu-
veiði var mjög iíuð stunduð. SH
íramleiddi þó þrssi ár fyrir USA
markað allt, srtn hún mátti áf
þ< • .-skflökum og tókst að selja
þau öll og nokkurnveginn að
halda við vlðskiptamönr.ui um,
þrátt fyrir hinn tilfinnanlega
— Síðari
skort á góðfiski — a£ framan-'
greindum ástæðum.
Var t. d. einu sinni tekið til
þess bragðs að frysta karfa fyrir
vestan (í Ameriku) í umbúðir
SH og selja hann þar til þess að
halda við kaupendum og missa
ekki viðskiptamenn yfir til ann-
arra, sem fjölbreyttari tegundir
höfðu að bjóða.
Þessi ár seldi SH frystan fisk
til USA, sem lijer segir:
1946 ....... 2115 smál.
1947 1900 smál.
1948 ....... 1800 smál.
1949 ....... 2320 smál.
Þess skal getið að árið 1946
var engin ábyrgð á fiski nje upp-
bætur greiddar og tapaði SH það
ár um 2Vz millj. króna á fiski
þeim, sem seldur var til U.S.A.
Orsakaði þetta tap, að meðalverð
á þorskflökum til frystihúsa
innan SH, varð árið 1946 aðeins
kr. 1,06 pr. enskt pund fob., en
hjá fyrstihúsum, er SÍS seldi
fyrir, varð meðalverðið það ár
kr. 1,10 pr. enskt pund fob. —
Enda fórnaði SÍS engum fiski
til þess að vinna markað í Banda
rikjunum.
Það er fyrst s. 1. ár, eftir að
fiskábyrgðin er afnumin og
genginu er breytt, sem unt er að
framleiða óhindrað fyrir Amer-
íkumarkað — og þó ekki óhindr-
að því umbúðaskortur hefir oft
-hamlað, sem bæði hefir stafað
af tregum veitingum innflutnings
leyfa og löngum afgreiðslufresti
— sem oft hefir dregist fram
yfir gefin loforð. Þá hefir s. 1.
ár verið mun mikið meira af
„góðfiski", ýsu, karfa og lúðu,
sem fengist hefir til frystingar,
en nokkru sinni áður. (Ekki held
jeg að það sje samt Mr. Cooley
að þakka, eins og einhvers stað-
ar var haldið fram).
Alls hefir SH sent til USA af
framleiðslu ársins 1950 yfir 5000
tonn og er allur þessi fiskur seld
ur, — nema farmurinn í „Goða-
foss“ nú — og þótt meira hefði
verið, því skrifstofuna í N.Y.
hefir vantað tilfinnanlega fisk
framan af ári og í haust. — Eftir
er óafskipað ca. 700 tonnum af
karfaflökum.
En hvað þá með SÍS? Jú, 1950
er fyrsta árið, sem þeir góðu
menn selja frystan fisk í USA
og hafa þó haft þar skrifstofu
allan tímann.
„Sjer hann ekki sina menn,
svo hann ber þá líka“.
HVAR ER EINOKUNIN,
PUKRIH OG SVINDLIÐ?
Eins og sjest á því, sem hjer
hefir verið sagt að framan, er
raunverulega hvergi um hreina
„einokun" eða einkasölu að
'ræ&a nema þá helst hvað snertir
saltsíldina. Sú einkasala hefir þó
verið þannig framkvæmd, að
töluvert af saltsíld hefir verið
flutt út af öðrum í smáum ílát-
um og einnig hafa aðrir aðilar
selt nokkuð af saltsíld í tunnum,
þótt formsins vegna hafi Síldar-
útvegsnefnd þá verið útflytjandi.
Flestar slíkar sölutilraunir hafa
þó farið út um þúfur, þar sem
fiö m.n hefir ekki tekist að ná
en'.-; óagstæðu verði og Síldarút-
vegsnefnd hefir selt fyrir. Þess
skal getið, að þótt Síldarútvegs-
nefnd ■ selji mlkið magn af síld
fyrirfram, er áyaUt þannig geng-
ið frá sanmingum,..að opið er að
selja síld tíl annaraöú eftir —
að ií;su marki.
Öhæi mun að fullyrða, áð salt
síldarverð undanfarinna ára
(eftir str.íð) rayndi hafa verið
mun mikið lægra hefði sala síld
arinnar verið frjáls öllum. ís-
ionska sahsíldin hefir undaníar-
in a selst œun hærra.verði en
iiokku önnur saltslld. Fyrir
stríð var þó skotsica matjessíidin
pein —
ætíð í talsvert hærra verði. —
Vafasamt tel jeg, að saltaðar
hefðu verið yfir 130 þús. tn. af
Faxasíld í ár og seldar á svo
góðu verði, sem raun varð á,
hefði salan verið alveg frjáls.
SIF er stofnað 1932 með frjáls-
um samtökum helstu saltfiskút-
flytjenda, sem þá voru. — Var
fjelagið stofnað vegna neyðar-
ástands, sem skapast hafði vegna
verðhruns á saltfiski erlendis,
sem átti að mestu rót sína að
rekja til mikils framboðs og
undirboða og áttu íslendingar
sinn þátt þar í. Margir saltfisk-
framleiðendur urðu strax til þess
að fela fjelaginu sölu á fram-
leiðslu sinni. Síðan var fjelaginu
með lögum falinn útfliitningur
á 88 prós. af saltfiskframleiðslu
landsmanna — Hawes Ltd. hafði
þá 12 prós., síðan það fjelag
hætti, hefir SÍF haft á hendi
sölu á öllum saltfiskinum (með
þeim undantekningum er áður
greinir) og verið löggilt til þess
af atvinnumálaráðherra frá ári
til árs.
Strax eftir að SIF hóf starf-
semi sina hækkaði það verð á
ísl. saltfiskinum til muna og
hækkaði þá annarra þjóða fisk-
ur í kjölfar þess íslenska. Það
eru til ummæli erlendra manna
frá þessum tíma, er sanna það,
að það voru einmitt sölusamtök
íslendinga, sem lyftu upp verði
saltfisksins á heimsmarkaðnum
á þessum árum. T. d. sagði hinn
merki Færeyingur Poul Nicla-
sen í skýrslu, er hann sendi Lög-
þinginu 1933, eftir að hafa ferð-
ast um Portugal og Spán, að op-
inberri tilhlutun, til þess að
rannsaka markaðsástand þar:
„Þegar samtök íslendinga hóf-
ust í fyrra sumar 1932 var verð
ið á Spáni komið svo lágt, að alls
ekki varð komist hjá tapi, hvorki
fyrir færeyska nje íslenska út-
flytjendur og á fiskmarkaðnum
var í rauninni mesti glundroði.
Það geta ekki verið skiptar skoð
anir um það, að hið íslenska Sölu
samband hefir einnig haft heppi-
leg áhrif á verðlagið á Færeyja-
fiskinum. Að mínu áliti væri
mjög illa farið, ef svo skipaðist,
að færeyskur fiskur yrði notaður
til þess að gera hinum íslensku
samtökum örðugt fyrir, því að
við Færeyingar eigum þeim mik-
ið að þakka“.
Það var margt fleira, sem
Niclasen sagði í svipuðum anda,
en þetta verður að nægja hjer.
Nú hafa Færeyingar svipuð sam-
tök um sína saltfisksöslu og við.
Sama er að segja um aðra keppi-
nauta okkar, þeir hafa flestir
tekið upp samsölu á saltfiski í
svipuðu formi og íslendingar —
enda fyrirmyndin fengin hjeðan.
Það hefir heyrst, að tilgangur
Tímans með skrifum sínum und-
anfarið um útflutningsverslun-
ina, sje fyrst og fremst sá að
„undirbúa jarðveginn" undir að
SIS dragi sig út úr SÍF með
saltfisk, er kaupfjelög og aðrir
hafa, er SÍS ræður yfir. — Muni
Framsókn viija nota sjer óá-
nsegju þá, sem nú ríkir meðal
saltfiskframleiðenda — og áður
er lýst í þossari grein af hverju
stafar. — Með því að ala hæfi-
lega á þessari óánægju og .slá
jafnframt ryki í augu almenn-
ings, muni skapast hæfilegur
grundvöllur til þess að kljúfa
fjelagssamtökin.
Ekki vil jeg tuúa fyrr en á
reypir, að þetta sje rjett. Það
myndi áreiðanlega leiða til stói
tjóns fyrir íslenska saltfiskfram
leiðendur og landið í heild, vrð.
SÍF klofið eða splundrað. Kljúfi
SÍS sig iit, úr samtökunum, er
jeg hræddur um, að íleiri fari á
■ "tlr. T. d. hafa Faxaflóamenn
:gum verið óánægðir rneð að
þurfa að greiða stóraukin flutn-
ingsgjöld fyrir saltfisk sinn
vegna þess, að flut.ningaskipin
hafa oft orðið að sigla umhverfis
allt landið til þess að tína upp
smáslatta svo að segja á hverri
höfn. Dragi SlS sig út úr og hafi
ekki samvinnu við SÍF myndi
þetta verða ennþá tilfinnanlegra,
þar sem SÍS myndi taka hluta
af saltfiskinum á flestum stöð-
um úti á landi — en óvíða allt —
sem þýddi, að skipin fengju enn-
þá minna á hverjum stað en áð-
ur. Með öðrum orðum: Fleiri
skip kringum landið, ennþá hækk
að flutningsgjald vegna aukinna
viðkomustaða.
Ekki er því óliklegt, að Faxa-
flóamenn vildu njóta sinnar góðu
aðstöðu vegna þess mikla magns,
er þeir hafa á fáum höfnum, til
þess að fá lægri flutningsgjöld
fyrir sinn fisk og stofna því sitt
eigið samlag, ef SIS klýfur sig út
úr samtökunum (SÍF).
Hvað snertir frysta fiskinn, þá
er mjer ekki ljóst, hvaða breyt-
ingar Tíminn vill fá fram í sam
bandi við sölu á honum, og því
siður, hvað hann ætlast til af
hinu opoinbera í því sambandi.
Sölumiðstöð Hraðfrystihús-
anna eru algjörlega frjáls sam-
(ök frystihúsaeigenda. Þar hafa
öll frystihús fengið inngöngu,
sem þess hafa óskað. SII sinnir
öllum tilboðum sem út berast,
sjeu þau hagstæð, ennfremur
leyfir hún öðrum að leita fyrir
sjer um sölu á afurðunum, þar
■ sem það ekki kemur i bága við
| gerða samninga eða samninga-
umleitanir.
j Hvað vill Timinn frekar? Vill
hann kannske banna samtök
frystihúsanna. Eða er það
kannske eitthvað í sambandi
við sölufyrirkomulag SÍS, sem
hann vill breyta?
Það væri sannarlega æskilegt
að sjá einhvern tíma annað í
blaði forsætisráðherra en dylgj-
ur og rangfærslur um jafn þýð-
ingarmikinn atvinnuveg og
frystiiðnaðurinn er fyrir þjóðar-
búið.
ESPHOLIN
Jeg get ekki skilið svo við
þetta mál, að eg ekki minnist
aðeins á Ingólf Espholin og
10 þús. tonna söluna hans á
frystum fiskflökum til Banda-
ríkjanna, sem Tíminn skýrð'i frá
á 1. síðu, með feitu letri, á s. 1.
hausti.
Hvaða fisk var Espholin að
selja þar og hver hafði falið hon-
um sölu á honum? Var það
kannske fiskur frá SÍ-S? — Við
SH hafði Espholin ekki talað þá.
Fyrsta skilyrði til að geta versl
að er þó að hafa eitthvað að
selja.
Þessi sala Espholins minnir á
atvik, er skeði út í A.-Þýskalandi
s. 1. vetur, er verið var að reyna
að selja þar ísl. afurðir og rætt
vay m. a. um ull og gærur. —
Kváðust þá Þjóðverjar vera
búnir að kaupa af íslensku firma
ull, gærur og skinn fyrir ca.
1 millj. dollara og vildu þeir
gjarna fá það afgreitt áður en
þeir gerðu frekari kaup. Heima
kannaðist enginn við, að um-
ræddu firma hefði verið falin
sala á þessum vörum.
’ Svipað mun vera um söluna
I hans Espholins. Hún getur gert
óleik, eins og; í nefndu tilfelli og
auk þess beinlínis orðið til tjóns,
ef hún næði svo langt, að hann
fengi útflutningsleyfi fyrir
nefndu magni, en um .það kvað
hann sífellt vera að sækja og
heyrst hefur að ríkisstjórnin
væri í miklum vanda yfir hvað
'era skyldi!!!
Ka.mske jeg gæti fengið nú
’U’ útflutningsleyfi fyrir 10
. tonnum af síldarmjöli, sem
jtg hefi hugsað mjer að selja og
æti . 5 fá hjá Síldarverksmiðj-
um 'í nns og Kveldúlfi á kom
andi s: rri?!!!
Þess skal getið, að verð það,
er sagt var, að Espholin hefði
selt fyrir, eða gæti selt fyrir, er
mun lægra en núverandi mark-
aðsverð í USA, en sennilega lít—
il trygging fyrir, að kaupin haldí,
ef markaður fellur niður fyrir
söluverðið.
LOKAORÐ
Þetta er nú orðið mun lengra
mál en ætlunin var í fyrstu, en
mörgu mætti þó við bæta. Jeg
vil að lokum taka það fram,' að
jeg er mjög hlynntur frjálsræði
í framleiðslu og verslun, en í
störfum mínum undanfarin ár
við útflutningsverslunina og
sjerstaklega í sambandi við
samningagerðir erlendis, hefi jeg
þráfaldlega rekið mig á, hve
nauðsynlegt er, að sjerstakar teg-
undir af okkar einhæfa útflutn-
ingi sjeu á einni og sömu hendii
og að ávallt er til tjóns, að margir
aðilar sjeu að bjóða sömu vöru-
tegund á sama stað.
Fiestir okkar keppinautar i
sjávarafurðum virðast hafa kom-
ið auga á þetta sama, ef dæma
má eftir því, hvernig þeir „organi
sera“ sína utanríkisverslun með*
nefndar sjávarafurðir.
Hirísvegar viðurkenni jeg það
fúslega, að viss hætta er á stöðv-
un þegar einn eða tveir aðilar
fara með sölu ákveðinna vöruteg-
unda og getur það leitt til minni
sölu, en ef fleiri aðilar fara með
söluna. Þessa held jeg, að hafi
þó lítið eða ekki gætt ennþá i
okkar útflutningsverslun, enda
haga „einokunarhringarnir“ sjer
þannig, að þeir leyfa undaníekn-
ingarlítið öðrum að spreyta sig
einmitt á þeim mörkuðum, þar
sem þeir standa ekki sjálfir föst-
um fótum.
Sú reynsla, sem íslendingar
hafa áður fengið af saltfisk- og
saltsíldarsölum, er verslun með
þær vörutegundir, var alveg
frjáls, ætti að vera nægjanleg
viðvörun til þess, að þeir ekki
hleyptu sjer aftur út í slík ævin-
•týr að þarflausu.
Hinsvegar geta einnig reglu-
legar einkasölur — sem illa er
stjórnað — verið stórhættulegar
og höfum við jafnframt sorglega
reynslu af því.
En frjáls samtök framleiðenda,
jafnvel þótt ríkið þurfi að veita
þeim einhverja stoð með laga-
setningu, held jeg, að verði okk-
ur aldrei hættuleg heldur ávallt
hið gagnstæða.
Væri framkvæmd innflutnings-
verslunarinnar að sínu leyti eins
hagkvæm fyrir þjóðina og fram-
kvæmd útflutningsverslunarinn-
ar er, þá væri vel. En þar á lög-
gjaíinn mikla sök, að svo er ekki.
Á jeg þar ekki hvað síst við laga
setninguna um Fjárhagsráð, þar
sem innílutningurinn er „bund-
inn á klafa“ án þess, að nokkurt
tillit sje tekið til útílutnings-
ins.
Reykjavík, 14. jan. 1951.
Ólafur Jónsson.
Tvö
til sölu. Uppl. í sima 6391. |
= 5
1 Vjebtióra |
l yanan June Mui i-.llvje’ 'etur |
I fengið atvinnu sl mx á úti u |
; -s,\ . ,rf að vera tilbúimi í i
= n.i tu viku. Ly uhafendur send i
| n A(i .< eigr. i ... fyrir I
| «. ■ mtUG.pr iperkt: „l tu '. |
~ ?
EF WFTVh TVR I* EKKt
Þ A ER ?