Morgunblaðið - 19.01.1951, Side 8
WE'LL LET OLD C^OR
KIN& LEAD US TO LOS! cOAL
ISLAND AND THCN.... POO<'/
TNE OLD &UV AND Aií, .
\ SECRETARV CiSAPPEAR/ í
ÖUT V/HAT J
AQOUT 1NE
REAL DRUJLY
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 19. janúar 1951
Markús
Eftir Ed Do<k
SO DRUPV'S ON A
‘’PREE AND WASN'I
HIRED A CREW FOR
RIGMT, < TNlS GUY ÐRURY ? THEN .
LANE ) íXl CHANGE MY NAME TO
WE'LL TAKE 1
CARE OF HIM
RtGHT NOW'
•1) - .Fvo þessi Diðrik er 2) —Og King prófessor hef-l 3) — Sjáið þið til fjelagar.j 4) — En hva jum við að
inúaa á túr . ,hefur svikist um ur aldrei sjeð þennan Diðrik? Við látum King prófessor vísa gera við Diðrik?
•<tf ráða áhófn á s.’dpið? Jæja, þá breyti jeg nafni mínu okkur leiðina til Selaeyju og — Við skulum gsnga strax
Það er einmitt það, Láki.,'bara í Ðiðiik or rr.5 áhöinina svo er víst líiill Vandi að láta frá honum.
á skipíð. *.ltarlinn og cinkaritarannj
, hverfa. |
Vofheysverkunin
iil Árna 0 Eylands
í HAUST ritaði Árni G.
Eylands nokkrar greinar um
votheysverkun, er birtust í
Morgunblaðinu og Isafold. —
Greinar þessar Vöktu mikla
athygli og var af mörgum ósk-
að að þær væru sjerprentaðar.
Er það að vonum og gleðilegt, að
hagnýt skrif úm þetta mikla
velferðarmál eru bæði lesin
með íhugun og að bændur vilja
tryggja sjer að hafa lifandi og
greinagóða fræðslu um það
handbæra.
Morgunblaðinu var Ijúft að
verða við ósk bænda um að
sjerprenta greinar þessar, og
hafa þær nú verið gefnar út
sem smárit (52 bls.).
Þeir bændur og aðrir, er vilja
eignast ritið Votheysverkunin,
eftir Árna G. Eylands, geta
sent Morgunblaðinu línu um
það, og verður ritið þá sent
þeim að kostnaðarlausu.
Þess verður víða vart, í fregn
um af Norðui’landi og Austur-
landi, að bændur hafa mikinn
hug á að standa ekki jaín höll-
um fæti í næstu óþurkum, varð-
andi heyskapinn, eins og þeir
gerðu alltof margir síðastliðið
sumar.
Þannig skrifai greinagóður
bónd.i í afskekktri sveit á Aust-
fjörðum:
,.Það, sem nú ætti að gera, er
að byggja votheyshlöður í rík-
um mæli og tryggja þannig
fóður fyrir gripina, og ætti að
láta það sitja í fyrirrúmi fyiúr
ýmsu öðrU, t. d. vegagerð'
Og annar skrifar:
„Jeg er að hugsa um að
leggja í kaup á mótum fyrir
búnaðarfjelagið, og hafa svo 5
—6 manna flokk, sem fer bæ
frá bæ. Hvað mun hringlaga
mót kosta 4 m þvermál, hæð
2 m?. Þessi mót svo færð upp
þar til komið er 8 m.“
Slíkir þangar góðra bænda
tala sínu mál. Það er sannarlega
ómaksins vert að rjetta þeim
hendina; þó ekki Sje nema ein-
faldar upplýsingar. Þær eru ef
til vill það fyrsta, sem þörf er
á, en auðvitað þarf fleira og
meira að fara þar á eftir, svo
að til farsælla framkvæmda
dragi.
j Drengjabuxur
| stuttar og síðar úr útlcndu efni.
ÁLFAFELL
Hafnarfirði. Simi 9430.
S?
VMtmimifMiimiiimuiiiiiiiiiiiiimimmnmMinKcniin
Margir á skíðum
SKÍÐAFJELAG Reykjavlkur
og Skíðadeild KR fóru fyrstu
sameiginlegu ~ skíðaferðiria s. 1.
laugardag frá hinni nýju af-
greiðslu þeirra í Hafnarstræti
21 (áður bifreiðastöðin Hekla).
Var þátttaka góð, svo að á laug-
ardag og sunnudag fóru um 150
manns á vegum þeirra.
Veður var sjerstaklega íagurt
og færi gott.
Skíðalyftan dró til sín unga
fólkið og var hún stöðugt í gangi
báða dagana, en þegar skyggja
tók, var brekkan upplýst cg
mátti þá nota færið eins og dag
ur væri.
Afmæli
Frh. aí bls. 7
Hans þjóðernislcga náttúra af ull
og skinni sem vœttir sáu í öndverðu,
þótti ekki þingtæk eftir það á Islandi
j og þessvegna slapp hann við „þulu“
bændanna síðan þá tíð, í svokölluðu
forustuhlutverki í landbúnaðarmál-
um á Alþingi.
En heima i hjeraði hefur hin þjóð
ernislega náttúra Jóns notið sin. 1 :
trúu starfi og við frjóa gestumgleði I
hefur þessi maður dregið að sjer l
hugi. 1 Islendingslegri karlmennsku
og æðruleysi hefur öllum þótt gott
honum að mæta. 1 óvenjulegu glað-
lyndi og góðlyndi hefur öllum þótt'
gott með honum að dvelja. Og, „svo 1
hlaut virðing sjerhvers manns. sann- I
girni og vilið hans“.
1 nærfellt 50 ár hefur Jón fært
hreppshækur Jökuldals og sáttabók- |
ina. Þessar einkennilegu bækur með i
sinni hrjúfu handskrift, sem er allra
rithanda auðlesnust, vegna frábærrari
stílfestu, hefur sá sem þetta ritarj
fyrir skemmtilestur á Hvanná. likki'
liefur Jón sinnt öðru bókínenntaverki |
um dagana. Þó liggur heima hjá
honum þýðing úr ensku á hinni
miklu sögu Dickens, „Our mutual
friend". En þrátt fyrir talsvert
merkilegt bókasafn biður maður ætíð
um hreppsbókina til að lesa sig í
svefninn á Hvanná. Jón ljet Hvanná
í hendur sonum sínum Einari og
Benedikt fyrir nærfelt tuttugu árum.
Reka þeir í fjelagi eitt stærsta bú
austanlands.
Jón á Hvanná er orðinn áttræður og
það liggur f.yrir Jóni að verða mikið
eldri._ Óhilaður að öllum kröftum er
oddviti Jökuldalshrepps ennþá, og
það leiðir enginn huga að neinurn
oddvitaskiftum þar í sveit fyrsta
sprettinn. Áttatíu ár hafa skilið Jón
frá samfylgd margra merkilegra
manna ó Jökuldal, en nýjir menn
hafa komið i staðinn. I hópi jieirra
er hann ókrýndur konungur. I dag
leita hugir í Hvanná. Margir eiga
þaðan glaðar minnirigar, en angurs
engir. Og i margslunginni minningu
á öllum leiðum sveitalifs, á Jökuldal
og Hjeraði, mæta þessir hugir Jóni,
með þakklæti og virðingu, og vita
það að minningin um hann sjálfan
mun liggja í sólbaði sveitarinnar
sögu frain.
Beriedikt Gíslason
frá Hofteigi.
Tímariiið „The lce-
landic Canadian"
TÍMARITIÐ „The Icelandic
Canadian“, sem gefið er út árs-
fjórðungslega, er prentað á
ensku. Er það fyrst og fremst
ætlað þeim Vestur-íslendingum
eða fólki af íslenskum ættum,
sem ekki skilur íslensku og get
ur ekki lesið íslensku blöðin
sjer að gagni. í tímaritinu eru
frjettir um menn af íslenskum
ættum og greinar um íslend-
inga fyr og síðar, eða íslensk
málefni.
Formaður ritnefndar er frú
Hólmfríður Daníelsson. — í
haustútgáfu tímaritsins eru
meðal annars þessar greinar:
„Reflections on the seventy
fifth Anniversary Gelebration“,
grein um afmæli (slensku land-
nemanna í Kanada. Höfundúr
er Lindal dómari, sem hefir
sýnt mikinn áhuga fyrir „The
Icelandic Canadian og fyrir
að efla þekkingu meðal Kanda
manna og Bandaríkjamanna
af íslenskúm ættum á öllu, sem
íslenskt er. Þá er birt ræða
eftir pi’ófessor Skúla Johnson
er hann flutti að Gimli og sem
hann nefndi „Arfur vor“. Jón
K. Laxdal ritar um Nýja ís-
land 1875—1950. Ýmsar fleiri
greinar eru í þessu hefti.
Umboðsmaður ritsins á ís-
landi er frú Ólöf Sigurðardótt-
ir, Vesturgötu 26C. Á íslandi
kostar árangur ritsins 18 kr.
Það væri ekki einungis stuðn
ingur við gott málefni, ef rit
þetta yrði keypt hjer á landi,
heldyr myndu og þeir, sem á-
huga hafa fyrir að fylgjast með
íslendingum Vestan hafs og
lesa ýmsan fróðleik um Vestur
íslendinga, hafa ánægju af að
lesa ritið. í. G.
Fundur í íiskimálanefnd
If.V.'Afianfshafsrðkja
WASHINGTON, 17. jan. —
Utanríkisráðuneytið í Wáshing-
ton tilkynnir að bráðlega verði
boðað til fundar í fiskimála-
nefnd NV-Atlantshafsríkjanna.
Nefnd þessi var stofnuð í febr.
1949 og er ísland aðili að samn-
ingum, sem þá voru gei’ðir á-
samt Kanada, Danmörku,
Frakklandi, Ítalíu, Noregi,
Portúgal, Spáni, Bretlandi og
Bandaríkjunum.
Nefnd þessi á að fylgjast með
friðun fiskistofnsins við strend-
ur Gi’ænlands, austurströnd
Kanada og Nýja-Englands og
gera fiskrannsóknir á þessu
svæði. Nefndin hefur aðeins til
lögurjett til viðkomandi ríkis
stjórna.
— Alþingi
Framh. af bls. 6
því er það snertir að styrkja að
stöðu lögreglumanna í baráttu
þeirra við leynivínsölu í bilum,
sem farið he'ur mjög í vöxt upp
á síðkastið. Frv. um þetta efni
hefur með einróma samþykki
hlotið afgreiðslu í neðri deild, og
vænta má, að svo verði það einn-
ig í efri deild. Er þess að vænta,
að þróun í þessum málum á AI-
þingi gangi í þessa átt, og er það
vissulega vel farið.“
John F. Dulles og
Malik ræðasl við
WASHINGTON, 15. jan. —
Utanríkismálaráðuneytið hefur
tilkynnt að John Foster Dulles
hafi s. 1. laugardag átt viðræð-
ur við Jakop Malik í New
York. Ræddu þeir um væntan-
lega friðarsamninga við Japan.
Góð gleraugu eru fyrir öllu.
•
Afgreiðum flest gleraugnarecept
Austurstræti 20.
og gerum við gleraugu.
Augun þjer hvílið með gler-
augu frá
TÝLI H.F.
Vöií skrifstofustú Ika
O S K A S T í nokkra mánuði. Eiginhandax’umsókn
með upplýsnngum um aldur, menntun, fyrri störf, ásamt
meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist afgreiðslu blaðs-
ins fyrir 25. þ. mán., merkt: Vandvirk — 139.