Morgunblaðið - 19.01.1951, Qupperneq 12
Yeðurúflif í daq:
NA-kaldi, Ijettír til,
Alvinnumál
Frá umræðum um atvinnu-
mál í bæjarstjórn á bls. 2.
t>rjú þjófnaðarmál hafa
veriu upplýst á Akranesi
Pilturinn þræiti í lengstu lög
Á AKRANESI var ungur piltur þaðan úr bænum ný:lega hand-
tekinn, grunaður um að hafa framið þar tvo meiriháttar pen-
ingaþjófnaði. Pilturinn neitaði alveg í fyrstu að hafa átt nokkurn
blut að þjófnuðum þessum. Um síðir játaði hann þó að hafa
framið þá.
VANTAÐI HJÓLBARÐA
Skömmu eftir áramótin var
pilturinn handtekinn og við
rannsókn máls hans kom í Ijós,
að hann hafði á síðastliðnu
sumri farið út að bænum Galt-
arvík í Skilmannahreppi ásamt
fjelaga sínum. Þar stálu þeir
undan bíl er stóð skammt frá
bænum, sínum hjólbarðanum
hvor, og settu þeir þá undir
bíla sína.
S200 KR. SKEMMTIFERÐ
Annar piltanna hjelt svo á-
frám að stela. Það var dag einn
í ágústmánuði, að hann vantaði
peninga til að geta farið í
skemmtiferð norður í land. Þá
braust hann inn í skrifstofu
bílaverkstæðis Daníels Friðriks
sonar. Hann sprengdi upp lás-
inn á útihurðinni. Síðan braut
hann upp skáp í skrifstofunni
og tók þar úr vindlakassa, sem
í voru 1200 krónur og brá sjer
síðan í vikuskemmtiferð um
Norðurland.
i BÍÓHÖLLINNI
Nokkru eftir áramótin brýst
hann inn í Bíóhöllina á Akra-
nesi, og gat komist inn í að-
göngumiðasöluna og þar rændi
hann um 2250 kr. þar af var
133 króna ávísun, er hann
brenndi.
Þegar pilturinn loksins ját-
aði þcssi innbrot á sig, hafði
hann eytt um 800 krónum, en
eftir eigin tilvísan hans fund-
ust hinir stolnu peningar þar
sem hann hafði geymt þá.
Mjög veigamikið atriði í sam-
bandi við uppljóstrun máls
þessa var að í Bíóhöllinni tókst
að ná fingraförum, sem rann-
sókn leiddi í ljós að voru eftir
piltinn er hann var þar í ráns-
ferðinni-.
„Vísir' frá Rvík sökk,
er hann var að
bjarga öðrum báti
Um miðnætti í fyrrinótt, kom
svo mikill leki að vjelbátnum
Vísi frá Reykjavík, er hann Var
staddur um 4 sjómílur út af
Grindavík, að skipshöfnin varð
að yfirgefa hann. Er þetta
vildi til, var Vísir með vjel-
bátinn Hilmi frá Keflavik í
eftirdragi, en Hilmir hafði feng
ið tó í skrúfuna.
Sjólag var vont, er lekinn
kom að Vísi og sýnt þótti að
bátnum yrði ekki bjargað. VjeV
báturinn Oðinn kom á vett-
vang um þetta leyti, bjargaði
mönnunum úr Vísi og tók síðan
við drætti Hilmis. Kom Óðinn
með bátinn hingað til Reykja-
víkur í gær.
Ekki er öruggt, að Vísir hafi
sokkið alveg. Því gaf Slysa-
varnafjelagið í gær viðvörun til
skipa, sem stödd eru á þessum
slóðum.
Heildartekjur þjóð-
arinnar 1199,3 milj.
kr. 1948
í NÝÚTKOMNUM Hagtíðind-
um er frá því skýrt, að heild-
artekjur þjóðarinnar hafi num-
ið 1199,3 milljónmu ki’óna árið
1948, en það er nokkru lægri
upphæð en árið áður, en þá
voru þær 1216,5 milljónir.
Eignir skattskyldra einstak-
linga töldust 1177,4 milljónir í
ársbyrjun 1948. en 1222,0 millj.
í ársbyrjun 1949.
Árið 1949 var tekjuskattur
ásamt tekjuskaltsviðauka og
stríðsgróðaskatti 48,6 millj. kr.,
en árið áður námu sömu skatt-
ar 60,8 milljónum. Hafa því
þeir skattar lækkað um einn
fimmta frá árinu áður.
Meðaltekjur skattskyldra ein
staklinga voru 18500 krónur
1947, en 18200 krónur 1948,
Farsóttir í Reykjavík
vikuna 7.—13. jan,
SAMKVÆMT skýrslu frá skrif
stofu borgarlæknis í gær, voru
farsóttartilfelli, sem hjer segir
vikuna 7.—13. janúar. í svig-
um eru tölur frá næstu viku á
undan:
Kverkabólga ......... 44 (57)
Kvefsótt ............ 95 (218)
Gigtsótt ............. 1 (0)
Iðrakvef ............ 31 (49)
Hvotsótt
(myositis epid.) .. 0 (1)
Kveflungnabólga .. 4 (4)
Taksótt............... 0 (1)
Rauðir hundar .... 2 (0)
Skarlatssótt.......... 0 (1)
Munnangur ............ 2 (2)
Kíkhósti ............ 14 (55)
Hlaupabóla ........ 16 (52)
Blöðrubóla
(pemphigus) .... 0 (3)
Þetta er samkvæmt skýrslum
23 sta*fandi lækna í Reykjavík.
Vikuna þar áður bárust skýrsl-
ur frá 26 læknum.
Skákþing Reykja-
víkur hefst 28. jan.
SKÁKÞING Reykjavíkur hefst
28. janúar n. k. og verður þar
teflt í þremur flokkum, meist-
araflokki, I. flokki og II. flokki.
Keppnin fer fram í Þórscafe.
Skákþing Reykjavíkur hefir
ætíð verið með mestu skákmót-
um, sem haldin eru hjer. í fyrra
tóku t. d. 24 meistaraflokks-
menn þátt í mótinu. Reykjav.de
urmeistari varð þá Guðmundur
S. Guðmundsson.
Þátttöku í mótinu verður að
tilkynna fyrir kl. 1,30 sama dag
og motið hcíst, en þá verður,
dregið um röð keppenda.
Offé erkiherfogi
GufugossB óbreyff í Krýsuvík |
wirlpii ákvein innan skams
VONIR standa til, að um næstu mánaðamót verði hægt aí5
i leggja fram áætlun um virkjun gufuborholunnar í Krísuvík,
j sem stöðugt hefur gosið síðan í byrjun september.
Regina, prinsessa af Sachen-
Meiningen, hefur heitið honum
eiginorði. Ottó stendur næst að
erfa austurrísku krúnuna. —
Hann á nú heima í Bandaríkj-
unum, en dvelst í Þýskalandi
í bili.
Bæjarstjórn telur
vínveitingakröfur
Á FUNDI bæjarstjórnar var bor
in fre^n eftiríarandi tillaga, sem
samþykkt var með meirihluta
atkvæða og mótatkvæðalaust:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
telur með öllu ósæmandi, að
eigendur eða forráðamenn sam
komuhúsa setji það að skilyrði
fyrir að lána húsin til skemmti-
halds, að þeir, sem skemmtan-
irnar halda, útvegi vínveitinga-
leyfi. og skorar fastlega á þessa
aðila, sem sett hafa slík skil-
yrði, að hverfa með öllu frá
slíkum venjum, en reyna oess
í stað, að hindra eftir föngum,
að áfengissala og áfengisnautn
fari fram í þeim húsum, sem
þeir ráða yfir“.
Flutningsmenn tillögunnar
voru Sigfús Sigurhjartarson,
Guðrún Guðlaugsdóttir og
Magnús Ástmarsson.
ENDURSKOÐA ÞARF
FYRIRKOMULAGIÐ
Jóhann Hafstein lýsti því
yfir, að hann væri samþykkur
efni tillögunnar. Hann væri for
maður í hússtjórn samkomu-
húss Sjálfstæðisflokksins og
vildi geta þess, að forstöðu-
menn þess samkomuhúss hefðu
aldo.ji sett það að skilyrði-fyrir
láni á samkomusölum, að leig-
endur útveguðu vínveitinga-
leyfi. Hinsvegar kvaðst Jóhann
hafa lýst yfir skoðun sinni á
þessum málum á Alþingi ný-
lega og þeirra hefði verið getið
í blöðunum og væru því kunn-
ar. Hann teldi að endurskoða
þyrfti fyrirkomulag áfengissöl-
unnar. — Af þessum ástæðum
myndf hann ekki hafa afskipti
af atkvæðagreiðslunni.
Kær allir í „kjaiiar-
anutn" vegna
SAMKVÆMT fangabók lög-
reglunnar í Reykjavík hafa 120
menn verið færðir í fanga-
geymsiu lögreglunnar á tíma-
bilinu 1.—17. jan. 1951, þar af
119 vegna ölvunar og jafnframt
annarra afbrota. (Frá Áfengis-
vamanefnd Reykjavíku. ).
Félk slasasf í bíla-
FYRRINOTT varð allharður
j bílaárekstúr hjer í Miðbænum
munu þrír farþegar í öðrum
bílanna, sem var leigubíll, hafa
hlotið meiðsl.
Áreksturinn var á gatnamót-
um Tjarnargötu og Vonar-
strætis. Farþegana í leigubíln-
um sem meiddust við árckst-
urinn flútti anriar bíll til læknis.
Grunur Ijek á að sá sem ók
hinum bíínum, sem er einka-
taíll, hafi verið drukkinn.
Rannsóknarlögreglan biður
farþegana sem meiddust og á er
minnst hjer að framan, að koma
til viðtals hið fyrsta.
Valgarð Thoroddsen rafveitu
stjóri í. Hafnarfirði, . skrifaðí
fyrir nokkru ýmsum verksmiðj
um, bæði hjer í Evrópu og eins
í Ámeriku, í sambandi við virkj
un jarðgufunnar, sem upþ úr
borholunni hefur streymt af
sama krafti, síðan daginn sem
gufugosið hófst. Svörin frá
verksmiðjunum muriu væntan-
lega hafa borist um næstu mán.
aðamót.
Þá hefur rafveitustjóri stað-
ið í brjefaskxiítum við ítaíska
sjerfræðinga á sviði jarðgufu-
virkjana og hafa þeir tjáð sig
fúsa til að veita aðstoð sína, e£
þess yrði óskað.
Samkvæmt mælingum á gu íu
gosinu, þá nægir það til fran;-
leiðslu á.um 4000 kw. rafmagns,
en það mun vera nokkru meira
en raforkuþörf Hafnarfjarðar
er í dag.
Æski!ecj§ d endurnýja sfrætis-
vagnani - m ekki aulprl
GUNNAR THORODÐSEN borgarstjóri sagði á bæjarstjórnar-
fundi í gær, að það væri mjög æskilegt, ef hægt væri að endur-
riýja slrætisvagná bæjarins með 20—25 nýjum vögnum þegar
í stað. En reynsla sín væri, að nógu erfitt hefði reynst að íá
einn til tvo vagna nýja árlega undanfarið, vegna gjaldeyris-
örðugleika.
Hinsvegar sagðist borgar-
stjóri ekki vera þeirrar skoð-
unar, að kaupa ætti eina tcgund
vagna, heldur t. d. tvær, þar
sem of mikið væri i húfi re; nslu
laust, að kaupa fjölda vagna af
einni tegund. Það væri hins-
vegar rjett, sagði borgarstjóri,
að vegna þess hve strætisvagn-
arnir væru nú af mismunancli
tegundum væri allt viðhald
þeirra mjög dýrt og óhentugt.
TILLAGA UM
STÓRFELLD VAGNAKAUP
Borgarstjóri lýsti þessum
skoðunum sínum á strætisvögn
unum vegna tillögu, sem kom
fram á bæjarstjórnarfundinum
í gær frá fulltrúum Alþýðu-
flokksins, þar sem lagt var til,
að bæjarstjórn samþykkti að
kaupa 20—25 nýja strætis-
vagna af einni og sömu gerð
til endurnýjunar á þeim stræt-
isvögnum, sem nú eru til, vegna
þess hve dýrt viðhald þeirra
væri bænum. Talsmaður fyrir
tillögunni, Benedikt. Gröndal,
gat þess, að vísu, að hann ætl-
aðist ekki til þess, að vagn-
arnir yrðu allir keyptir á sama
ári, en vildi samt láta sam-
þykkja tillöguna strax og
hamra á fjárhagsráði að veita
gjaldeyris og innflutningsleyfi
fyrir þeim.
ÞYKIR EINKAREKSTURINN
VÆNLEGASTUR
Þórður Björnsson, bæjarfull-
trúi Framsóknar tók til máls
um strætisvagnana og taldi þá
hina mestu byrði fyrir bæinn
og mætti bæjarstjórn eiga von
■á því, að fjalla um málið al-
! varlega áður en langt liði.
Hann kvaðst vilja lýsa þeirri
skoðun sinni einu sinni enn, að
rekstur strætisvagna hjer í baa
væri slíkum erfiðleikum buna-
inn, að hann treysti engum tii
að annast aksturinn nema ein-
staklingum.
Slys.um jólin
Washington: — Um jólin ljet-
ust 724 manns af slysförum í
Bandaríkjunum, þar af 545 í
bifreiðarslysum. í Los Angeles
handtók lögreglan 362 drukkna
* ,(/// , • . * ',•*» |
■ <£?&: ■
.'.'•'. ■ ■>f' '■ 3*3
©1053