Morgunblaðið - 20.03.1951, Blaðsíða 16
Veðurútiit í dag:
N' stinningskaldi, ljettir held-
ur til.
Noregsbrjel
! Frá Skúia Skálssyni á bls, 9
f járkúgarar handteknir í
Sendiherra íslands hjá forsela Finnlands.
f#rnsöiu í isiyúiHS&kræfi
/ánnar þeirra iögreglumaður hinn sfræiisvagnasij.
TVEIR MENN voru s. I. föstudagskvöld handteknir hjer í bæn-
um, sakaðir um að hafa ætlað að beita fornsala einn fjárkúg-
un. Annar þessara manna er lögregluþjónn og hefir honum ver-
ið vikið úr starfi. Fjárkúguninni hugðust þeir þeita fornsalann
í sambandi við vínkaup hjá honum. Mál þetta er í rannsókr.
Menn þeir, sem hjer eiga hlut^
að máli, eru Hjálmtýr Guðvarð-
arson, en hann rekur fornsölu
í Ingólfsstræti 11, og þar gerð-
ist atburðurinn. Fjárkúgunar-
mennirnir eru Sigurbjörn G.
Björnsson lögreglumaður og
Sigurjón Maríasson. strætis-
vagnastjóri.
VÍNBLANDAN
Þetta gerðist fyrrihiuta föstu
dagsins. Kom þá strætisvagna-
stjórinn Sigurjón Maríasson og
Sigurbjörn G. Björnsson í forn-
söluna til Hjálmtýs. Lögðu þeir
f jelagar þar fram efnagreiningu
á vínandablöndu, sem Sigurjón
sagðist hafa keypt af honum.
Þessa vínblöndu átti Sigurbjörn
lögregluþjónn. Ætlaði hann að
hafa vínið á þrítugsafmæli sínu,
er var s.l. sunnudag.
HEIMTUÐU 2000 KRÓNUR
Þeir íjelagar kröfðu Hjálmtý
um 2000 kr. í peningum, ella
munu þeir kæra hann fyrir
áfengissölu. Sigurjón hefur bor
ið fyrir rjetti, að hann hafi áð-
ur keypt vín hjá Hjálmtý, en
hann hefur ekki viðurkennt
það, nje heldur að hafa selt hon
um þessa vínblöndu.
Ekkj varð úr að Hjálmtýr
greiddi þá þegar fjárupphæðina
sem hann var krafinn um. Bað
hann þá koma aftur um kvöldið
'til að sækja peningana. í sam-
talinu var rætt um allverulega
lækkun á mútufjenu. 1500 kr.
og jafnvel 1200 kr.
E»RÍR HLUSTUÐU
Um kvöldið er þeir Sigurjón
Og Sigurbjörn koma til Hjálm-
týs, hafði hann viðbúnað, sem
rannsóknarlögreglan , hafði
skipulagt, því til hennar hafði
Hjálmtýr kært þá fjeiaga. Þrír
menn voru í felum í fornsölunni
og hlustuðu þeir á allt samtalið
sem fram fór milli Hjálmtýs og
mannanna tveggja, en nokkuð
var þrasað um „skaðabótarupp-
hæðina“. En þessum viðskíptum
lauk mjög snögglega og án þess
að Hjálmtýr greiddi þeim mútu-
fjeið. Mennirnir þrír, sem vott-
ar höfðu verið að samtalinu
komu nú fram í verslunina, en
jafr.framt var nærstöddum lög-
reglumanni gert aðvart og voru
þeir Sigurjón strætisvagnastjóri
og Sigurbjörn lögreglumaður
báðir handteknir.
f 000 KRÓNUR RJETTLÁTAR
„SKAÐABÆTUR“
Þeir hafa svo fyrir rjetti við-
urkenn-t, að hafa ætlað að kæra
Hjálmtý, ef hann ekki greiddi
þeim einhverjar „skaðabætur“.
Lögregluþjónninn, sem var i
fullmn embættisbúningi, er
hann kom í fyrra skiptið, taldi
rjettlátt að Hjálmtýr greiddi
sjer 1000 kr. í skaðabætur, en
eins og skýrt er frá hjer að
framan, þá átti lögregluþjónn-
inn vlnblönduna.
Yfirheyrslur í máli þessu
jtóðu langt fram undir morgun'
á laugardag, en á föstudags-
kvöldið var Sigurbirni G.
Björnssyni lögreglumanni, vik
ið úr embætti.
LandsfundiirVinnuveif-
endasambandsins
UANDSFUNDUR Vinnuveit
endasambands íslands held-
ur áfram í dag í Hamarshús-
inu og hefst kl. 2 e. h.
Nefndir skila áliti, en síð-
an verða umræður.
Laugardaishreppur
selur Sogsbrjef fyrir
>100 þús, krönur
: HREPPSNEFND Laugardals-
hrepps í Ái’nessýslu hefir til-
kynnt fvamkvæmdastjóra láns-
útboðs virkjananna, að þar í
hreppi hafi nú selst Sogsvirkj-
unarskuldabrjef fyrir um 100
þús. kr. Er þetta fjórði hreppur
inn, sem nær þessu marki, Hin
ir þrír hrepparnir eru Garða-
hreppur í Gullbringusýslu,
Grímsneshreppur í Árnessýslu
og Austur-Landeyjahreppur í
Rangárvallasýslu,
Rafmagns er ekki enn komið
í Laugardálinn, en þangað á að
leiða rafmagn frá hinni nýju
Sogsvirkjun.
| (Frjettatilkynning frá lánsút
| boði virkjananna.
Rúinl. 15.000 sler-
lingspunda sala
Á LAUGARDAGINN náði tog-
arinn Mars mjög hagstæðri sölu
á farmi sínum í Grimsby. -
Togarinn landaði þar 248 tonn
um af fiski og nam sala farms-
ins 15,393 sterlingspundum.
Þetta er þriðja hæsta ísfísksal-
an á þessu ári hjá ísl. togara.
Stórliríð í Kanada
AI.BERTA, 19. mars. -- A.m.k. 9
maims ljetu lífið i stórhríð. ‘em geis
að hefir i Kanada í 2 daga. Var
þetta versti bylur i manna tninnum.
Fangi brýsl út
í FYRRINÓTT braust einn
fangi út úr hegning'arhúsinu
í Hafnarfirði. Hann hafði
ekki fundist í gærkvöldi.
Hjer er um að ræða 18 ára
gamlan pilt. Hann komst út
úr klefanum á þann hátt, að
brjóta gluggarimlana frá —
Ekki varð þess vart fyrr en
um seinan og komst fanginn
Undan.
Þetta er í annað sinn á
skömmum tíma, sem fangi
þessi brýst út úr hegningar-
"húsinu í Hafnarfirði.
EYRIR NOKKRU afhenti hinn nýi sendilierra Islands í Ilelsingfors, Helgi P. Briem, Paasí-
, kivi Finnlandsforseta embæítisbrjef sitt. Var þest-i Ijósniynd iekin við þaö tækifæri. Á henna
1 sjást talið frá vinstri: Paasikivi forseti, Ilelgi P. Briem sendiherra, WiiJikaugas sendiherra,
sem kynnir erlenda sendiherra fyrir forsetaníim,. Áke Gartz utanríkisráðherra og Ekman
hershöfðingi. —
Vilhjálmur Sfefánsson viil að
bókasafn sift flyfjisf hinpð
Það rnyndi skapa hjer skilyrii fyrir mjög
víðiækri rannsóknarmiðslöð.
ER BISKUP landsins, dr. Sigurgeir Sigurðsson, ferðaðist
um Bandaríkin nú í vetur og heimsótti dr. Vilhiálm
Stefánsson landkönnuð, Ijet Vilhjálmur í Ijós áhuga sinn á
því, að safn hans gæti með tíð og tíma orðið eign Islc’d.nga, |
ef þeir hefðu áhuga á. Safn landkönnuðsins er hið mesta og ■
besta, sem til er um heimsskautaiöndin.
Miðiunarliliaga
í 5VR-deiiunni
UM klukkan fimm í gærdag,
boðaði sáttasemjari, fulltrúa
deiluaðila \ strætisvagnadeil-
unni, á sinn fund. Stóð fund-
urinn aðeins skamma stund. —<
Sáttasemjari lagði þar fram
nýja miðlunartillögu í deilunni,
en hún hcfir nú staðið í um
það bil mánaðartíma.
I dag milli kl. 1 og 6 verður
gengið til atkvæða um miðlun-«
artillögu þessa.
Innbrof í Hsfnarfirði
Biskupinn skýrði frá þessu í'
útvarpserindi um Bandaríkja-
för sína, er hann flutti á sunnu-
dagskvöldið.
TEKUR SENN
ÁKVÖRÐUNINA
Er biskupinn heimsótti dr.
Vilhjálm Stefánsson, sagði hann
biskupi, að hann myndi senn
taka ákvörðun um ráðstöfun
safnsins. En með því, að jeg
ann Islandi og íslenskri menn-
ingu, sagði Vilhjálmur, þá vil
jeg að safnið flytjist til ís-
lands. Og ef íslendingar teldu
sjer hag í slíku og myndu vilja
koma upp hjá sjer norrænni
vísinda og rannsóknarmiðstöð í
norrænu, jarðfræði, jarðskjálfta
fræði, hvera- og laugarann-
sóknum, grasafræði, jökla- og
hafrannsóknum.
Vilhjálmur Stefánsson Ijet
þess og getið við biskup, er þeir
ræddu þessi mál, að ísland væri
sjerlega heppilegt fyrir slíka
rannsóknarmiðstöð.
UM 38,000 BINDI
Vilhjálmur Stefánsson sýndi
biskupi safn sitt, en í bví eru
nú 38.000 bindi og er það í sjer-
stöku húsi áfast við bústað land
könnuðarins, Voru þar þá að
störfum vísindamenn úr Har-
vardháskóla. Þrjátíu þúsund
bindanna í þessu stórkostlega
bókasafni, fjalla einvörðungu
um heimskautalöndin. Það eru
200 bindi um ísland og um 6000
er fjalla um sambandið milli
Evrópu og Bandaríkjanna, fyrir
daga Columbusar. Þá er þar
1 að finna öll þau brjefaviðskifti
er dr. Vilhjálmur Stefánsson
hefur átt við vísindamenn út um
allan heim s.l. 40 ár.
ÓVENJULEGT STÓRMÁL
Biskupinn gerði það að lok-
um að tillögu sinni í þessu
merka máli, að ríkisstjórnin
skrifaði landkönnuðinum þetta
varðandi, og reynt yrði að fá
dr. Vilhjálm liingað til viðtals.
Var það að heyra á biskupi,
að hann teldi ekki rjett að draga
það á langinn, því hjer væri
um alveg óvenjulegt stórmál að
ræða.
.Súðln' á nppboói
ALDURSFORSETI ískenska
skipaflotans, Súðin, verður seld
á nauðungaruppboði þann 30.
apríl, til lúkningar fjárnáms-
kröfúm, tæpl. 42,000 krónur. —
Frá þessu er skýrt í Lögbirt-
ingablaðinu og er skipið þar
sagt þinglesin eign Útvegs h.f.
Hliitafjelag þetta hafði for-
göngu um Grænlandsveiðar fyr
ir tveim árum og var Súoín þá
móðurskip leiðangurs þessa. —
Skipið liggur hjer í Reykja-
víkurhöfn.
í FYRRINOTT var brotist inn
í rakarastofu Einars Sigurjóns-
sonar í Hafnarfirði og stolið 40
—-50 kr. í skiptimynt.
Brotist var inn um glugga a
bakhlið hússins. Málið er í rana
sókn.