Morgunblaðið - 28.03.1951, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.03.1951, Blaðsíða 8
8 MGRCUNBLAÐlfí Miðvikudagur 28. mars 1951. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: fvar Guðmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna með Lesbók. Ný tímamót í Kóreu NÝ TÍMAMÓT eru nú runnin upp í Kóreustyrjöldinni. Her- sveitir Sameinuðu þjóðanna og Suður-Kóreumanna hafa aftur náð allri Suður-Kóreu á sitt vald. Eru hersveitir þeirra nú komnar öðru sinni að 38. breidd argráðunni. Herir kommúnista, sem undanfarið hafa nær ein- göngu verið skipaðir Kínverj- um, hafa beðið hvern ósigur- inn á fætur öðrum og ekki átt annars kost-en að flýja norður á bóginn. Taflinu hefur þannig verið snúið við í Kóreu. Sameinuðu þjóðunum hafði að vísu tek- ist að hrekja ofbeldislið komm- .únista út úr Suður-Kóreu. Meginhluti Norður-Kóreu var einnig á beirra valdi. En þá hóf Pekingstjórnin kínverska þátt- töku í stvrjöldinni. Kínverskir kommúnistar sendu miliónaheri á hendur Sameinuðu þjóðun- um. Allur var þessi skollaleik- ur leikinn með fullu samþykki og stuðningi Rússa. Um skeið leit svo út sem ofurefli komm- únistaher j anna mvndi buga hinn fámenna liðsafla S. Þ. í Kóreu. Mikill hluti Suður- Kóreu komst aftur á vald komm únista. Stalin marskálkur og Mao Tse-Tung töluðu digur- barklega um að herjum Sam- einuðu þióðanna yrði kastað í sjóinn. Kommúnistar ættu nú sigur vísan. En allt hefur þetta orðið á aðra lund. Herir S. Þ. hafa ekki verið hraktir í sjóinn. Þeir hafa hvert á móti snúi'5 vövn sinni í sókn. Kommún- istar hafa beðið mikinn ósig- ur í Suður-Kóreu. Þeir hafa verið hraktir öfusir út úr landinu. Þetta hefur gerst þrátt fyrir það að lið S. Þ. hefur verið stórum fámenn- ara en kommúnistaherirnir. En það hefur verið vel vopn- nm búið og notið stuðnings öflugs flughers og flota. Það eru hinir tæknilegu vfirburð ir herja Sameinuðu þjóðanna sem ráð’-ð hafa úrslitum í baráttunni undanfarna mán- uði. Sú spurning vakir nú efst í hugum manna, hver muni verða næsti háttur Kóreustríðsins. MacArthur, yfirhershöfðingi S. Þ. hefur lýst því yfir nú, þeg- ar hersveitir hans standa við 38. breiddarbauginn, að hann sje fús til þess að ræða vopna- hlje og málamiðlun í þessari deilu, sem teflt hefur heims- friðnum í geigvænlega hættu. í sambandi við umræður um 38. breiddarbauginn verður að minnast þess að skioting Kóreu bygðist á svikum Rússa við það samkomulag, sem gert var á sínum tíma um framtíð Kóreu. Samkvænit því var ákveðið að öll Kórea skvldi gerð að friálsu og sjálfstæðu lýðveldi. Rússar hindruðu framkvæmd þessa samkomulags. Þeir komu í veg fýrir lýðræðislegar kosningar í öllu landinu. Þeir tröðkuðu á allri viðleitni S. Þ. til þess að sameina land og þjóð um óháða og fullvalda, Kóreu. í stað þess settu þeir á laggirnar komm- únistiskt leppríki í Norður- Kóreu. í sama mund var stofn- að sjálfstætt lýðræðisríki í Suður-Kóreu. Þannig varð 38. breiddarbauf'urinn að landa- mærum milli tveggia ríkia. Þessi breiddargráða er þess- vegna fvrst og fremst tákn kommúnistisks ofbeldis og yfir- gangs. Friðelskandi þjóðir óska þess eins að ófriðarbálið verði slökkt í Kóreu. En bær vilia ekki að ofbeldið hrósi þar neinskonar sierri. Sam- tök hinna Sameinuðu þjóða hafa tekið unn baráttu við það. Það er mikils um vert að þeim hepnnist bað mikil- væ<ra hlutverk. sem þær hafa tekist þar á hendur. Á því veltur framtíðarörvegi þeirra bié.ða, sem njóta vilja persónufrelcjs og mannrjett- inda í skjóli lýðræðisskipu- lagsins. OheppHeaf skipulag sfrandferðar í SAMBANDI við hraðferð strandferðaskipsins Heklu til Vestfjarða og Norðurlandsins nú um páskana er ástæða til þess að gaenrýna það skipulag, sem Skipaútgerð ríkisins hefur á þessari ferð. Vitað er að meeintilgangur hennar er að sjá fólki fyrir fari á hina árlegu skíðaviku, sem haldin er á ísafirði. — Mikill fiöldi fólks notar hana að jafn- aði og að bessu sinni munu á briðia hundrað manns hafa far- ið með Heklu til ísafiarðar. — Þrátt fyrir þetta er skipið látið koma við á hverri einustu höfn á Vestfjörðum á vesturleið og á öllum nema einni á suðurleið. Þetta er fráleitt fjnirkomu- lag. Það er ekkert óriett.læti gagnvart öðrum Vestf jarðahöfn um þó að þessi eina ferð væri farin beint til ísariarðar. Hundr uð manna, bæði Vestfirðin«ar hier í Reykjavík og annað fólk notar páskalevfi sitt til bess að fara á skíði í náerenni Isafiarð- ar. Að þessu sinni var einnig háð þar landsmót í skíðaíbrótt. Það er alger áþarfi að þvæla bessu fólki á margar hafnir í báðum leiðum. Með þessari eagnrýni er eng- an veginn verið að draga riett annara Vestfiarðahafna en ísa- fjarðar til skioaferða um þetta leyti. Skipaútgerðinni væri í lófa lagið að láta eitthvert ann- að skipa sinna fara páskaferð á hinar smærri hafnir. Þess má einnig geta að í þetta skipti sendi hún annað skip á þessar sömu hafnir rjett eftir Heklu, sem flutti skíðafólkið til ísa- fjarðar. Þetta er klaufalegt og ófært skipulag. Verður að vænta þess að úr því verði bætt í framtíð- inni. "w,ill>lil,,; ÚR DAGLEGA LÍFINU „SKINHELGIDAGAR“ MARGIR munu vera fegnir því, að páska- helgin er liðin hjá í þetta sinn, Páskahaldið er þannig hjá okkur á íslandi, að hvergi í heiminum mun önnur eins deyfð og dauðans ró ríkja í jafn marga daga. Alt er lokað og læst dögum saman. Dag eftir dag má ekki sýna kvikmyndir, leikrit, halda dansleiki nje aðrar opinberar samkomur, hvort sem er til fróðleiks eða skemtunar. Upphaflega mun dymbilvikan hafa verið róleg af trúarlegum ástæðum, en því miður er ástæðan ekki sú sama lengur. Má vissulega til sansvegar færa, að páska- helgin hafi verið gerð að skinhelgidögum hjer á Iandi. • VEL ÞEGIÐ VETRARFRÍ HITT ER ANNAÐ mál, að vinnandi fólk og þá ekki síst skrifstofumenn, sem lítil tæki- færi fá til að vera úti, fagna páskafríinu og nota það vel flestir, þegar vel viðrar. Páska- helgin er vel þegið vetrarfrí, enda gengur það næst sjálfu sumarleyfinu hvað tímalengd ina snertir. • ÞEIR FÖLU OG HINIR BRÚNU ÞESST DAGANA skera þeir úr, sem not- uðu páskafríið til að fara á skíði, brúnir á hörund og hressilegir á svip, þótt einn og einn af skíðamönnunum haltri. Hinir eru flestir fölir og súrir á svipinn og er þeim ekki láandi sem eyddu páskahelg- inni við að hlusta á hátíðahljómleika út- varpsins. Mun flestum hafa þótt nóg um. • BRÚSAMJÓLK — FLÖSKU- MJÓLK OG ENGIN MJÓLK Á PÁSKADAGSMORGUN heyrði jeg litla telpu kalla til vinkonu sinnar: „Það er ekki til nein brúsamjólk, en nóg til af flöskumjólk, ef þú flýtir þjer“. Við nánari athugun komst jeg að því, að húsmæðurnar hafa undanfarið talað um þrennskonar mjólk: Það er brúsamjóík, flöskumjólk og engin mjólk. Og alt er þetta sitt-hvað. • < UMBÚÐIRN^/VR SKIFTA MESTU MÁLI „ENGIN-MJÓLK“ er þegar ekki er hægt að halda Krísuvíkurveginum opnum með 3—4 ýtum og hinar austurleiðirnar eru ekki færar af sálfu sjer. Það er skiljanlegt og lítið K.vört- unarefni, þótt ilt sje. En hitt eiga menn verra með að skilja, að brúsamjólk og flöskumjólk þurfi að aðskilja þannig, að komi maður með brúsa oe ekki er til nema flöskumjólk, þá fæst ekki dropi, og öfugt. í mörgum mjólkurbúðum neita stúlkurnar að hella mjólk úr flösku í brúsa, eða mæla á flösku. — Það er svosem ekki vevið að gera fólki hægara fyrir! • LOKSINS ALLAN DAGINN í gær stóðu menn í hópum í Kirkjustrætinu og horfðu á menn, sem voru; að rífa rústirnar, þar sem brann fyrir 2 (/> ári. Flestir munu hafa verið orðnir úrkula- vonar um, að þessar gapandi brunarústir myndu nokkru sinni hverfa. En betra er seint en aldrei og enginn örvænta skyldi.... eins og þar stendur. Margur maðurinn gat heldur ekki variöt því, að segja: loksins, er hann sá þessi tilþiif. • HÁTÍÐASVIPUR l YFIR REYKJAVÍK ÞEIR, SEM VORU á ferðinni í sólskininu í bænum á páskadag tóku eftir því, að einhver sjerstakur hátíðasvipur var yfir bænum. Það stafaði af því, að fáni var við hún svo að segja á hverri einustu flaggstöng í bænum. Enginn mun hafa verið í vafa um hvers- vegna var flaggað þann dag, en á föstudag- inn langa, þegar fánar voru í hálfa stöng víðasthvar, voru það þó nokkrir, sem spurðu: — Hver er dáinn? Þið skiljið hvað jeg átti við með orðinu „skinhelgidagar“ hjer að framan. Sykur kemur bráðlega aftur í búðirnar UNANFARIÐ hefur verið þurrð á molasykri, en nú er innan skamms von á þessari vöru aftur í búðirnar og mun verðið heldur lægra en áður var. Alþýðublaðið var með illkvittn islegar dylgjur á dögunum um að heildverslanirnar hefðu hætt að selja sykurinn, þegar skömmtun- inni var afljett, í þeim tilgangi að setja hann síðar á markaðinn og þá með hækkuðu verði. — Mbl. hefur aflað sjer upplýsinga um þetta atriði og er öll frásögn AI- þýðublaðsins uppspuni frá rót- um, eins og vænta mátti. Mola- sykur var genginn til þurrðar hjá innflytjendum áður en skömmt- uninni var afljett og eins og get- ið er um hjer að ofan mun sykur fremur lækka í verði en ekki hækka, þegar hann kemur bráð- lega aftur á markaðinn. Alþýðublaðið situr sig ekki úr færi að sverta í augum almenn- ings þá rýmkun á innflutningi til landsins, sem nú er að kqmast í framkvæmd og eru ósannindin um sykurinn einn liður í þeirri herferð. Það er óhætt að segja, að allur almeningur fagnar því að útlit er fyrir, að vöruskortin- um ljetti og höftum fækki þó verðlag sje og verði hátt vegna ört hækkandi verðs á heimsmark aði og margvíslegra annara erfið- leika. Það er hinsvegar ekki í fyrsta sinn að Alþýðuflokkurinn grípur til þess í málefnafátækt sinn að gera eitt og annað áróð- ursefni að hreinum og 'beinum rógsmálum, sem aðrir en þeir eiga frumkvæði að og fram- kvæma öllum almenningi til hags bóta, eins og á sjer stað um rýmkun innflutningsins. — Má vafalaust rekja gengisleysi Al- þýðuflokksins að verulegu leyti til þess að menn eru orðnir leiðir á þessum sífelldu vindhöggum. Sem betur fer hafa menn yfir- leitt áttað sig á því fyrir löngu, að það er ekkert að marka stór- yrði Alþýðublaðsins, því það er margþekkt, að það blað blæs upp stórfelld rógsmál, sem ekki er flugufótur fyrir, eins og nú á sjer stað gagnvart innflytjendum með sykur, og hættá menn þá að von- um að trúa blaðinu, þó það spari ekki feitt letur og stórar fyrir- sagnir. Sijérn B álykiun 4333 úflendingar komu fi! fsndsins s.l. ár SAMKVÆMT skýrslum út- lendingaeftirlitsins, sem birtar eru í síðustu Hagtíðindum, komu hingað til landsins 4383 útlendingar árið sem leið,. en 5125 útlendingar fóru af landi burt á sama tíma. Bandaríkjamenn eru lang- flestir og voru það samtals 1340 sem komu til landsins, en 1581 fóru af landinu á árinu. Stafar þessi fjöldi að sjálfsögðu af þvi að með eru taldir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli. Næstir eru Danir að fjölda til og komu til landsins 973 Dan- ir, en 1163 fóru. Þá eru Bret- ar 717, sem komu og 888 sem fóru. 360 Svíar komu og 357 fóru á árinu, 337 Norðmenn komu og 396 fóru, 154 Finnar komu, en 157 fóru. 200 Þjóð-j verjar komu og 278 fóru. I Rússar komu 32, en 31 fór.' Einn Júgóslafi kom og einn fór, 3 voru ríkisfangslausir, sepi j komu til landsins og jafnmarg- ir, sem eins var ástatt fyrir fóru (sennilega sömu menn- j irnir). FRÁ stjórn BSRB hefir blaðinu borist: Með tilvísun til samþykktar er gerð var á fundi stjórnar BSRB, þann 8. janúar s. 1. og afhent hæstvirtri ríkisstjórn, hefir stjórn bandalagsins gert eftirfarandi álvktun á fundi sín um 19. mars 1951. Frá því um áramót hefir vísi- tala framfærslukostnaðar hækk að um 3 til 5 stig og munu meiri hækkanir í vændum bæði sökum verðhækkana erlendis svo og ráðstafanir er gerðar hafa verið bátaútveginum til hjálpar. Stjórn BSRB telur að kjör meginþorra launafólks sjeu nú slík að frekari kiararýrnun beri að afstýra eftir öllum hugs anlegum leiðum. Fvrir því bein ir bandalagsstjórnin þeim til- mælum til hæstvirtrar ríkis- stjórnar að hún láti nú þegar fara fram sjerfróðra athugun á því, hvaða leiðir kynnu að vera tiltækilegar til að tryggja hlut- fall milli launa og raunveru- legs framfærslukostnaðar er ekki sje óhagstæðara en var um síðastliðin áramót. Fulltrúar launþegasamtakanna eigi þess kost að fylgjast með niðurstöð- um þeirra athugana jafnóðum og þær liggja fyrir, og verði þannig leitast við að finna grundvöll tíl viðunandi úrlausn. ar kjaramálum launafólks. Að öðru leyti ítrekar stjórn BSRB, samþykkt sína frá 8. janúar s. 1. svo og samþykktir 13. þings bandalagsins um dýr- tíðarmál. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.