Morgunblaðið - 04.04.1951, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.04.1951, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 4. apríl 1Ð51 Ctg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna með Lesbók. FfeSagisheimili og Rómsmálasfé^ua' Ivær verslanir í sama hjeraði SÚ YFIRLÝSING kaupfjelags-1 stjórans í Vík í Mýrdal, að hann telji það „óþarfa lúxus fyrir Vestur-Skaftfellinga að vera að burðast með tvær verslanir“, er þess eðlis, að vert er að taka hana nokkru nánar til athugunar. Hver er í raun og veru grunn- tónn þeirrar skoðunar, sem þessi ummæli byggjast á? Hann er sá, að samkeppni um viðskipti og verslun sjeu ekki að- eins einskis virði fyrir almenn- ing heldur og „óþarfur lúxus“. Hagsmunir fólksins sjeu best tryggðir með því að einungis ein verslun sje í hverju hjeraði og þá líklega einnig í hverjum kaup stað. Það telur kaupfjelagsstjór- im, líklegustu leiðina til þess að verslunin sje sem hagstæðust. Hvað segir nú reynsla íslend- inga í verslunarmálunum um þetta? Hún segir það, að mcðan sam- keppni var engin um verslun og viðskipti í landinu, var verslunin óhagstæð. Á meðan að hvert hjerað átti öl! sín viðskipti undir eina verslun að sækja var auðvelt um vik að skammta vöruverð á inn- lendri og erlendri vöru. Fólk- ið var i raun rjettri varnar- laust gegn geðþótta þessa eina aðilja, sem drotnaði yfir því, og gat boðið því hvaða kjör, sem honum sýndist í skjóli ein okunaraðstöðu sinnar. Þessi saga er ekki orðin svo gómul að hún sje ekki þjóðinni í fersku minni. íslendingar minn ast þess ein -ig að þetta einok- unarvald í versluninni var brot- ið á bak aftur af íslenskum kaup mönnum og samvinnufjel.ögum, sem hófu samkeppni við selstöðu verslunina. Áhrif hennar komu fljótt í ljós í bættri og hag- kvæmari viðskiptaháttum. Síð- an að hin erlenda eða hálfer- lenda selstöðuverslun varð að láta undan síga hefur svo sam- keppnin um verslunina staðið milli innlendra verslana, einka- verslana og kaupfjel. Allir vita að sú samkeppni hefur einnig orðið þjóðinni til góðs og átt rík- an þátt í að stuðla að framförum og umhótum í ’andinu Þegar á þetta er litið sætir vit hefur á verslun, að sam- vinnuverslun, sem engan kappi- naut hefur, getur meir en auð- veldlega misnotað einokunarað- stöðu sína. Kralan um eina verslun í hverju hjeraði á sjer þessvegna engan skynsamlegan grundvöll. Hún byggist á furðulegri þröng- sýni og fádæma frekju. Gegn henni hljóta öll þau öfl að taka eindregna afstöðu, sem vinna vilja að heilbrigðri verslun í þessu landi. íslendingar vilja ekki hverfa aftur til neinskonar einokunar. Af henni hafa þeir sárbitra reynslu. Þeir þurfa þvert á móti að stefna að aukinni og beilbrigðri samkeppni um versl- un sín og viðskipti. í hverju ein- asta hjeraða landsins verður al- menningur að geta valið á milli viðskipta við fleiri en eitt versl- unarfyrirtæki. Þetta val getur staðið á milli einkaverslunar og fjelagsverslunar, tveggja eða fleiri einkaverslana og tveggja eða fleiri fjelagsverslana. Verslunin má aldrei færast í það horf að cinstakur aðili geti ginið einn og án allrar samkeppni yfir öilum viðskipt um almennings. Þegar svo væri komið, væri lítið orðið úr því verslunarfrelsi, sem á öllum tímum hlýtur að vera höfuðtakmarkið í baráttunni fyrir heilbrigðum og hagstæð- um verslunarháttum. STÚDENTARÁÐ Háskólans, sem kosið er á hverju hausti er sá aðili, sem beitir sjer mest fyrir eflingu fjelagsiífs meðal háskólastúdenta. Það eru jafnan nokkur áraskifti að því, hve-vel þetta tekst, en ef- laust má segja að það ráð, sem nú situr hafi unnið hjer vel þrátt fyrir ýms önnur aðkallandi verk- efni. Auk þess eru svo starfandi fjelög innan hverrar deildar, en þær eru nú fimm, sem hafa sama hiutverki að gegna. Að síðustu má svo telja nokkur áhugamannafje- lög svo sem íþróttafjelagið, o. fl. I Eins og áður var sagt hvílir aðal- ' ábyrgðin á herðum stúdentaráðs. Það er skipað níu fultlrúum, og sitja það nú í ár fjórir fulltrúar frá Vöku, fjelagn lýðræðissinnaðra stúdenta, einn fulltrúi fyrir Fje- lag lýðræðissinnaðra sósíalista, einn fyrir Fjelag frjálslyngra stúd enta, tveir frá Fjelagi róttækra stúdenta og einn fyrir verkfræði- nema. Stúdentaráð hefur nú í vet- ur haldið allmarga dansleiki svo sem venja er til á skemmtistöðum hjer í bænum, en auk þess tekið I upp þá nýbreytni að efna til kvöld ; vakna í einhverju af samkomuhús- um bæjarins, þar sem ölvun og áfengisneysla hefir algerlega ver- þau uuUi ii»iiii iUii/U itU miðri tuttugustu öld skuli finnast íslenskur maður, sem skrifar um nauðsyn þess að komið sje í veg fyrir að fleiri en ein verslun starfi í heilu sýslufjelagi. Hvert er maður- inn að fara? Um það verður varla villst. Ilann vil hverfa aftur til hins liðna tíma þegar seistaðan setti svip sinn á verslun fslendinga. Hann vill geta ráðið því alveg einn, ó- náðaður af allri samkeppni, hvar hjeraðsbúar hans versla, hvaða vörur þeir fá og við hvaða verði. Nu ma búast við því, að einhver skarpvitur Tímamaður segi að alveg sje óhætt að trúa •binum lítillátu og hógværu kaup- fíelagsstjóra íyrir allri verslun í hjeraði hans. Verslun hans sje Scuuvnmuxyrirtæki, sem bænd- or og hjeraðsbúar ráði. Þá gegni alTt öðru máli en ef um einka- versfim sjé að ræða. Þá fyrst komi hættan til greina. í þessu SEmbandi verður að benda á það, i ð sú samkeppni, sem kaupfjeiags stjórínn télúr. „óþarfa luxus“, stafar éinmitt' fiá annari sam- vinnuverslun í hjeraði hans. Auk þ^ss dylst engum, sem eitthvað Endurskoðun éfengislöggjafsr- innar. EINS OG KUNNUGT er var á síðasta Alþingi flutt tillaga til þingsályktunar um endurskoð- un íslenskrar áfengislöggjafar með það fyrir augum áð stuðla að úrbótum á því ástandi, sem nú ríkir í áfengismálum okkar. | Þingnefnd sú, sem fjallaði um þfcssa tillögu ,lagði til að hún jyrði samþykkt. En vegna þess, hve áliðið var orðið þings, er álit hennar kom fram, tókst ekki oð ljúka afgreiðslu málsins. — Dómsmálaráðherra lýsti því yfir við umræður um tillöguna, að hann teldi eðlilegt og sjálfsagt. að endurskoðun áfengislöggjafar- innar færi fram. Virðist því mega | vænta þess að ríkisstjórnin geri I ráðstafanir til þess að fram- kvæma hana á þessu sumri, þann- ig að tillögur geti legið fyrir r.æsta Alþingi um skynsamlegar breytingar á þessari löggjöf, sem mjög hefur borið á góma urid- amarið. Stúdentafjelag Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum i fyna- kvöld svohljóðandi tillögu vaið- andi þetta mál: „Fundurinn skorar á ríkis- stjórnina að láta fram fara endurskoðun á áfengislöggjöf- inni og leggja fyrir Alþingi tillögur til úrbóta á því á- standi áfengismálanna, sem nú ríkir, svo sem aff gerð verði tilraun mcð frarr.Ieiðslu áfengs ölr í lándinu." Þessi tillaga var samþykkt meff yfirgnæfandi meirihluta atkvæffa. Er óhætt að full- yrða, aff afstaða aímennings sje mjög á sömu lund og síúd- enta í þessu máli. ið bönnuð. Þá gekkst stúdentaráð og fyrir því, að leikfjelag stúdenta var end urreist nú í vetur og var í ráði að sýna leikinn „Alt Heidelberg“ í Þjóðleikhúsinu, ef hægt yrði. Nú þykir þó útsjeð um, að ekki verði af því á þessu skólaári, en vonir standa til að takast megi að upp- færa leikritið strax næsta haust með aðstoð góðra manna. f þessu skyni var og, nú siðari hluta vetr- ar, stof'naður kór með söngelskum stúdentum. Æfir kórinn nú af kappi undir stjtórn Carls Billich, hljómsveitarstjóra. Bridge-keppni fór fram í febr- úarmánuði á Gamla-Garði. All- margar sveitir tóku þátt í keppn- inni og varð sveit stud jur. Stefáns Guðjohnsen hlutskörpust. Franski skákmeistarinn Rosso- limo tefldi einnig fjölskák við stúd enta þegar hann var hjer á ferð. Keppnin fór fram á Gamla-Garði og kom það mönnum nokkuð á ó- vart hve úrslitin urðu hagstæð sútdentum. NAMSLANASJOÐUR Annað mesta áliugamál háskóla stúdenta er stofnun námlánasjóðs. Alþingi hefir um langt árabil veitt órlega nokkra f járveitingu til þess að styrkja efnalitla námsmenn, er nám stunda við Háskólann. Hefir þessu fje síðan verið úthlutað ár- lega af þar til skipaðri nefnd eftir þvi, sem umsóknir hafa borist. Nú þykir einsýnt, að annað skipulag muni betur fallið til að ljetta stúd- entum námið fjárhagslega en þetta. Bæði er það, að framlög af almannafje, sem veitt eru til þessa eru allmjög takmörkuð, 250.000 kr. árlega, og svo hitt, að úthlut- unarreglurnar þykja svo rangar, að þeir stúdentar, sem mesta þörf hafa fyrir fjárhagslegan stuðning, sjeu engu bættari með þá hýru, sem þeir þó fá. Því er það hug- myndin, að á fót verði komið sjálf stæðum lánasjóði stúdenta, og renni í hann allt framlag ríkis- sjóðs og nokkuð aukaframlag, ef fæst. Geta þá þeir stúdentar, sem í mestum kröggum eru, fengið þar lán, er komi þeim að verulegum notum. Lánin munu verða vaxta og afborgalaus allt þar til stúd- entinn hefir lokið námi, en eiga þá að greiðast upp á löngum tíma. Falla þá hinir óendurkræfu, lágu námsstyrkir niður. Með þessu nýja fyrirkomulagi á að reyna að tryggja það, að enginn stúdent þurfi að veigra sjer við því, að byrja á námi eða neyðist til að hverfa frá því í miðum klíðum sök- um cfnaskorts. 1 þeim áætlunum, scm gerðar hafa verið, er gert ráð fyrir, að minnst 100 stúdentar á ári geti fengið allt að 5000 kr. hver. Frumdrættir að skipulagi og stofnskrá sjóðsins hafa verið sendir öllum deildarfjelögum Há- skólans, og er það einróma álit þeirra, að stíga beri þetta spor í styrkjamálum stúdenta. Er nú unnið að athugun á heppilegasta fyrirkomulagi sjóðsins, en að því loknu er ætlunin að leggja málið fyrir almennan stúdentafund, áð- ur en það verður lagt fyrir þingið. Vaxandi dýrfíð veldur órca ssnskra Saisnþega STOKKHÓLMUR, 3. apríl —- í blaðinu „Metallarbetaren", sera er málgagn stærsta verkalýðsfje- lags Svíþjóðar, er skýrt frá því í dag, að nokkur órói sje,nú i sænskum launþegum, vegna vax- andi dýrtíðar. Blaðið segir meðal annars. að í ljós sje komið, að launahækk- anirnar, sem veittar voru um s.í. óramót, hafi ekki verið nógu miklar. — NTB. - Yíkverji skrifar:--------------- VR DAGLEGA LÍFIISiV FJELAGSHEIMILI Það mál, sem efst er á baugi nú á meðal stúdenta, er bygging fje- lagsheimilis. Góður húsakostur er undirstöðuskilyrðið fyrir því, að mögulegt sje að halda uppi f jelags- lífi að nokkru marki. Þó Gamli- Garður hafi hingað til verið mið- stöð þess að leyst þar úr brýnni þörf, er húsakostur hans þó hvergi nærri svo hentugur sem skyldi, nje húsrými þar nóg. Þörfin fyrir veg legt fjelagsheimili stúdenta verður því brýnni þörf með hverju árinu, sem líður og eftir því sem stúd- entum fer f jölgandi. Það myndi verða stúdentaráði ofviða að standa í svo umfangs- miklum byggingai-framkvæmdum jafnhliða hinum daglegu störfum sínum, og hefir því nú nýlega ver- ið skipuð föst byggingarnefnd til að hrinda þessu máli í fram- kvæmd. Rektor Alexander Jó- hannesson. hefir tekið að sjer for- ystuna, eén aðrir nefndarmenn eru: Ásgeir Ásgeirsson, alþm., Einar L.' Pjetursson cand. jur. frá Stúdentafjelagi Reykjavíkur, Höskuldur Ólafsson, stud. jur., og Sigurbjörn Pjetursson stud. odont. frá Stúdentaráði. V æntanlega verða ennfremur í nefndinni full- trúar frá Verkfræðingaf jelagi ís- lands og Lögfræðingafjelaginu, en hverjir það verða, hefir ekki cnn þá verið ákveðið. Nefnd bessi hefUr nú starf sitt með tvær hendur tóriiar. Reynslan | hefir þó sýnt, að þegar allir stúd- entar háfa lagst á eitt í húsbygg- ingarmálum sínum, hafa áætlan* imar! orðið að vei-uleika og þess [ er að vænta, aC svo verði einnig hjcr. Niffurlægine- íslcnskrar glítnu MIKIÐ HAFA þær kynslóðir þcssa lands. sem uppi eru á , 20. öld, á samviskunni, ef þeim i tekst að koma íslenskri glímu í glatkistuna fyrir fuit og alt. En að dómi þoirra manna, sem best | þekkja þessa íþrótt og þykir vænst um hana eru miklar líkur til að svo fari. ) íslensk glíma er sú íþrótt, sem . varðveitst hefir hjer á landi ^ sennilega svo að segja óbjöguð í þúsund ár. — Ásamt tungunni er glíman eitt af þeim sögulegu verðmætum, sem íslenska þjóðin á ein og enginn á að geta frá henni tekið. Bolabrögff o» lyftingar GAMAN ER að heyra gamla glímukappa eins og t.d. Jó- hannes Jósefsson tala um glím- una. — Fyrir slíkum mönnum er glíman list, frumleg og fullkom- in íþrótt. Þessum mönnum finst glímunni hafa hrakað mjög hin síðari ár og segja að íþróttin hafi verið stórskemd með nýjum regl- um og fyrirmælum þeirra manna, sem-nú telja sig þess umkomna að segja fyrir um hvernig eigi að glíma. „Islenska glíman er o-ðin að bolabrögðum og lyftingum sterkra karla, þar scm aflið e;tt ræður, en ekki leiknin. — ís- lensk glíma er þó í eðli sínu ein fullkomnasta jafnvægisíþrótt, sem til er“, segja þessir sömu menn. Þíngeyinvar dönsuffu á glímuvelli EGAR Þingeyingar glímdu * hjer áður fvr, dönsuðu þeir „vals“ á glímuvellinum. Glímu- t mennirnir voru á sííeldri hreyf- ingu og sættu lagi með giímu- l brögðum cð feRa andstæðing | sinn, þannig að hann misti jafn- I vægið", sagði Jóhannes Jósefs- , son við mig á dögunum, er við I vorum að tala um glímuna. „Nú virðist hinsvegar vera að- alatriðið hjá plímumör'num að , standa sem fcstas* í bóða tæt,ur oa nevfp aDs. — Það er ekki ís- lensk glíma“. var sýningaratriði á Olympíuleik. unum í London 1908 finst ein- kennilegt, að þessi forna íþrótt skuli ekki fást sýnd á Olympíu- leikum nú. Það væri sómi þeirra manna, scm nú fást við glímumálin, ef þeir hæfu þjóðaríþróttina til vegs og virðingar á ný. Þeir æítu að sækja ráð til glímukappanna, er hekkja glímuna og unna hcnni. Það eru nógir til: Jóhannes Jós- efsson, Ólafur Davíðsson, Ilall- grímur Benediktsson og Sigurjón Pjeturss. svo nokkrir sjeu nefndir Rljólkurmælingar R. JÓN Sigurðsson hefir þetta að segja um mælingar á míólk, sem ge-ð befir verið að'um talsefni hjer í dálkunum: „í dálkum vðar h. 31. f. m. er því haldið fram, að það sje fyrir bann heilbrigðisyfirvmlda bæjar- ins „að ekki me«i mæla miólk á flöskur, nje heldur úr flöskum í önnur ílát í miólkurbúðum". Hinn 23. febrúar 1943 sam- þykkti heilbrigðisnefnd að banna notkun trekta við mælineu miólk ur og rjóma, en þetta hafði í för með sjer, að ekki var lengur hægt að fá mjólk eða rióma mældan á flöskur í mjólkurbúð- um Þar eð trektarnar vo-u aff staðaldri færðar úr mjóikur- flösku kaupanda til annars, var betta sjálfsögð heilbrigðisráðstöf- 4401 II Ráð gömlu kappanna EIM glímuköppum, sem komu því til leiðar, að íslensk giíma Ekki bannaff aff hella úr flöskum 'INS VEGAR hafa heilbrirð- isyfirvöld bæjarins, að þvi er jeg get sjeð, aldrei lagt bann við, nje heidur óskað eftir því, að ekki sje helt úr mjólkurflöskum í önnur ílát í mjólkurbúðunum. Er sú ráðstöfun því heilbrigðis- yfirvöldum bæjarins óviðkom- andi“. Gleðitíffindi ÞESSAR upplýsingar borgar- læknis munu vera húsmæðr- um gleðitíðindi hin mestu. Eftir- leið’s ættu br“” rfj "et'’ ue]t m;ó'k úr flöskum í brúsana sína í mjólk urbúðinni, ef svo stendur á, að þær hafa komið með brúsa og ^ekkert ér> til nema flöskumjó'k. Hingað til hafa þær verið rekn ar heim eftir flöskum, hvcrjum svo scm þc.ð er að kenna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.