Morgunblaðið - 18.09.1951, Page 2
MORGUXBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. sept. 1951 ^
3>
H>rír tónlislarmenn
lenda í stórhríí
é Vaðiaheiði >
eÍÐASTLIÐINN í«studag brast
íi fárviðri inikið Tiieð feikna úr-
Itomu á Nor$tirlandi. Það Irvöld
fijeit tingíri Guðrún 4. :Símonar
oönpskemmtun á Húsayík, við
ágæta aðsókr. og ágætar viðtökur,
^ins og fvrr hefir verið sagt frá
í Morgunblaðinu. Að henni lok-
in'ni, laust fyrir kl. 11, lagði söng-
líonan upp þaðan í bifreið áleiðis
til Akureyrar, en þaðan hafði
Þ.án komið tii Húsavíkur fyrr um
daginn í siarkfæru veðri, ásamt
$>eim í ritz Weisshappel, píanó-
• eikara, og Björgvin Guðmunds-
íiyni, tónskáldi, sem fyrír vináttu
r;akir slóst með í förina frá Akur-
«yri.
í fyrstu sóttist ferðin ail sæmi-
lega, nema hvað allir vegir voru
■brnir mjög blautir og gengu því
♦ikvettur, jafnt og þjett, yfir bif-
geiðina, eins og í hafsjó væri. En
<>r komið var upp á Vaðlaheiði, var
•ukollin þar á stórhríð með frosti
®g dengdi niður snjó. Haldið var
«arnt áfram, þrátt fyrir veður-
ofsann, sortann og þunga færð,
Pem varð æ erfiðarí, eftir þvl sem
*iær dió háheiðina, Loks stöðvað-
>st bifreiðin alveg, hún stóð föst
í djúpum skafli og byrjaði þegar
nð skafa að henni. Myndi hún
lu-átt vera keffent, ef ekkert væri
-iðhafst, en þeir einir, sem í slíka
raun hafa komist, vita, hvað ömur-
l<gt það er og háskasamlegt að
vera þannig staddur, uppi á fjöll-
ira, langt frá mannabyggðum, í
.'.tórhríð og svarta myrkri, iiafandi
<-kki gfci't ráð fyrir neinum slík-
vim töfum og því ekki hugað að
sjer, hvað klæðnað og fleira snert-
ir.
„Nú ent góð ráð dýr“, segir
•jiýrtiðarstjórinn, „og hefi jeg haff
l?að fast í huga í dag að skile
Jjes suíii verðmæta fanni Ó3k'ödd-
«ðum heirn til Akureyrar aftur“.
Þarf svo ekki að orðiengja það
-ið fyrir atorkusemi bifreiðaistjór-
nns og haiðfylgi fyrst og fremst
■tóksj að losa bifreiðina úr ekafl
ínum. Síðan snjeri „hann henn'
Við á hinni mjóu braut, með snar
ræði og útsjónarsemi,"o£ ók þv
iiæst niður að næsta bæ, vakti þa?
upp og símaði til Akureyrar efti'
-iðstoð. Án nokkurrar frekari við
rívalar á bænum, var tafarlaust
Jialdið á heiðina aftur. Frá Akur-
eyri fóru þegar fjórir menn í
jeppa og tókst þeim að moka brau'
f gegnum dýpstu skaflana. Ti'
Ákureyrar komu svo báðar bifreic
-amar ki. 5 á laugar^agsmorgur
og hafði listamennina ekkert sak
■að, __________Ahureyrivgur;
Zalopek setur enn
Ivö heimsmei
BEELlN, 17. sept. — EmiJ
Zatopek setti tvö hý heimsmet
Prag í gær. Hann hljóp 20 km. i
1 kist. 01.16 mín. og hljóp enn-
fremur 19.558 m. á einni klukku-
«tund.
Finninn Viljo Heino átti bæð'
Jjessi heimsmet. 20 km. hafði hanr
tiiaupið á 1 klst. 07.57,4 mín., of
19,339 m. á einni klukkustund.
- - . - - —NTB-Eeute
Haldkvæm J í bárálfunni
\fíð umferðarsíysin
FRANKFURT, 12. sept. — Þjóð
veijir.n Walter Westermann
Frankfurt heldur því fram, a-
,-;jer hafi tekist að finna haldgot
tæki í baráttunni við umferðai
.jlysin. Það er sjerstök Ijósmynd
vjel, sem er í sambandi vi'
íiemia. hljóðhorn og bjöllur ;
Ihlum, bif- og reiðhjólum. Sjálí
krafa tekur tæki þetta mynd a !
veginum fram undan jafnskjót
og' hemlað ""er eða gefið hljóð
: imerki.
WesteiTnann Tiyggst fá einka
leyfi á tsekinu og sfcgif.Taó meí
janyndum megi aúðvelcllega kom |
.ist að.raun um, hvef þafkýtt >ö! i
sá iuííeÆafslyskíu.' —• *%x3r
Viðreisn S-Kóreu á að
hefjast þegar næsta ár
Hú eru 4 milijónir flóiiðmanna í landinu
Haukur Cluusen hluut
6663 stig í tugþraul
Vaidimar Örnéifsson seiii nýtf drengjamet
NEW YORK — Fyrir skömmu sendi Donald Kingsley fram
kvæmdastjóri -hjáiparstofnunar S. Þ. í Kóreu, skýrslu tihS. Þ. um
hversu mikið tjón hetur orðið af hernaðaraðgerðum í landinu og
hvernig viðrcisnarstaríiö verði best skipulagt.
8 3VIILL.TARÐA ----------------
.FJARHAGSTJON
ívingsley segir í skýrslu sinni að
3-Kórea hafi nær cingöngu verið
landbúnaðarhjcfað. Þess vegna
hafi tjón í þeim hlúta ' landsins
;kki verið svo ákaflega mikið
fjárhagsiega. Metur hann það þó
á 8 milljarða dótlara. Víða cru
heil hjeruð lögð í rústir og er
mest aðkallandi að jeisa ibúðar-
hús.
SJÁLFKRAFA VIÐREISN
LANDBÚNAÐAR
En Iiingsley leg'gur og til að
S-Kóreumönnum verði hjálpað til
að koma upp talsvert meiri iðn-
aði en þeir áður höfðu. Mest að-
kallandi er bygging áburðarverk-
smiðju, því að fái bændur nógan
áburð og þak yfir höfuðið, fyigir
viðreisn iandbúnaðarins sjálf-
krafa í kjölfarið.
4 MILLJÓNIR FLÓTTA-
MANNA
Hjáiparstofnynin telur sig í
fyrstu þurfa 250 mllijónir dollara
til viðreisnarstarfsins og hefur
þegar til umráða 220 miiljónir.
Nokkuð af þessu fje hefur þegar
verið notað til nauðsynleguStu
hjálparaðgerða, svo sem til mat-
gjafa, ev í S-K&reu eru J, milljón•
ir fláttamauna ad vísu margir frá
N-K6reu, en kringum ein milljðn
óbreytira borgara hefur látið lifið
i hamförum etrideins.
VIÐREISNARSTARF
Á NÆSTA ÁRI
Klngsley i-æðir um það að við-
reisnarstaríið skuli -hafið þegar á
næsta ári og þá lögð aðaláherslan
á að koma upp íveruhúsum og
reisa landbúnaðinn við.
/Eska og rannsóknir
OSLÓ; — Sögufjelagið í Guð-
brandsdal vill fá börn og ungl-
inga með í rannsóknarferðir í
byggðum landsins. í skólunum
Verða gefin stílaverkefni úr átt-
hagafræði.
ÁRícríSííur feikflokkur hjer
Leikflokkurinn á Þjóðleikhúströppunum s. 1. laugardag. Eins og
má á myndinni eru gestirnir vel klæddir, enda bjuggust þeir við
ið veðrið yrði kalt, sem það og var. •— Til hægri á rayndinni sjást
islensku leikararnir, en næsíur þeim er fararstjórinu Tommy
fhompson. —•
Bandariskur ieikf lokkur i heimsókn
Á FÖSTUDAGINN var kom til Keflavíkurflugvallarins banda-
rískur leikflokklir, 14 stúlkur og 8 karlmenn. Flokkur þessi er á
vegum stjórnarinr.ar í Washington og eru meðlimir hans ungt fólk
og starfar það sem sjálfboðaliðar, undir stjórn Tommy Thompson.
Flokkurinn sjer um skemmtiatriði víðsvegar, þar sem bandarískir
hermenn dvelja.
’.KO»A ÞJÓDLEIKHÚSIÐ <
Flokkurinn kom hingað til
íeykjavíkur síðastliðinn laugar-
iag. Leikararnir Haraldur Á.
Ugurðsson, Alfreð Andrjesson og
ndriði Waage tóku á móti þeim,
1. a. sýndu þeir þeim Þjóðieik-
úsið. Gestirnir votu ákaflega
rifnir af leikhúsinu og svo vel
ildi til að leikæfing stóð yfir og
ar gestunum leyft að fylgjast
neð henni um stund. Aliir voru
■eir sammáia um að Þjóðleikhús
ð væri stórkostlega fallegt og
llum hlutum haganlega fyrir
omið.
ÆIKSÝNTNGAR
V FLUGVELLINUM
Sýningar flokksins minna helst
. sýningar Bláu stjörnunnar hjer
já okkur. Koma fram margvís-
;g skemmtiatriði, taka við hvert
if öðru, svo sem töfrabrögð, list-
-ans (ballet), söngvar, akrobat-
iskur dans, o. m. fl. þess háttar.
Undirrituðum gafst kostur á að
sjá eina sýningu og var auðsjeð
að listamennirnir voru mjög
leiknir og var ijettur og mjög
geðþekkur biær yfir allri fram-
komu þeirra.
ÁHUGAFÓLK
Enda þótt ekki sæjust þess
nein merki að hjer væru við-
vaningar að verki, þá er þetta
allt áhugafólk og gegnir það
margvíslegum störfum í daglegu
lifi.
Tommy Thompson gat þess í
iok sýningarinnar, að þetta væri
allt ungt fólk frá Washington og
hefði sjer tekist að sameina það
í þennan flokk. — Því er ekki
greidd nein þóknun fyrir þann
skerf, sem það leggur fram, en
fær að sjálfsögðu greiddan alian
kostnað. — A. Bj.
HAUKUR CLAUSEN sýndi það á laugardag og sunnudag, að hanrí
tr ágætur fugþrautarmaður, en þá keppti hann í tugþraut meist-
aramóts Reýkjavikur. Haukur sigraði auðveldlega og hlaut 6663
'stig, sem eri mjög góður árangur, hvað.þá í fyrstu tugþrautinnu
— Örn bróðir hans hlaut t. d. 6444 stig i fyrsta sinn, sem hann
keppti í þrautinni.
Næstur Hauk var Ingi Þor-'®'
steínsson, KR, mcð 5755 stig, en
þriðji varð Valdimar Örnólfsson,
ÍR, með 5678 stig. Er þetta nýtt
drengjamet hjá Valdimar, 301
stigi hærra en fyrra metið, sem
Gylfi Gunnarsson, ÍR, átti.
Fjórði varð Bjarni Linnet, Á,
5200 stig, 5. Ólafur Þórarinsson,
FH, 5119 stig og 6. Jafet Sigurðs-
son, KR, 5049 stig.
Keppendur voru óvenju marg-
ir, eða 11 talsins, en tveir hættu
áður en keppninni lauk.
Árangur Hauks í einstökum
greinum var sem hjer segir:
100 m. hlaup 10,4 sek., langstökk
6,74 m„ kúluvarp 12,01 m„ há-
stökk 1,75 m., 400 m. hlaup 52,9
sek„ 110 m. grindahlaup 15,8 sek.,
kringlukast 38,44 m„ stangar-
stökk 2,80 m„ spjótkast 43,42 m.
og 1500 m. hlaup 4.53,8 mín.
Árangur Inga: 100 m. 10,9 sek.,
langstökk 6,25 m„ kúluvárp 10,47
m„ hástökk 1,50 m„ 400 m. hl.
54,0 sek., 110 m. gr.hl. 15,0 sek„
krgl. 30,86 m„ stangarst. 2,62
m., spjótkast 37,37 m. og 1500
m. 4.43,6 mín.
Árangur Valdimars: 100 m. hl.
11,0 sek„ langstökk 6,56 m„ kúlu-
varp 12,31 m„ hástökk 1,60 m, 400
m. hl. 58,2 sek„ 110 m. grhl. 17,1
sek„ krgl. 30,56 m„ stangarst. 3.00
m„ spótkast 39,21 m. og 1500 m.
4.56,8 mín.
Veður var hvasst og kalt á
laugardag. Tíminn í
en þau stig, sem kepper.dur
græddu á því hafa þeir áreiðan-
ilítUKUÍ LulUiStll.
lega tapað aftur í 400 m. hlaup-
inu og sennilega meiru til. —-
100 m. hlaupVeðrið á sunnudag var heldui*
inu er hagstæður vegna vindsins,betra.
Víirlýsflsigar vegna broffvikn«
ingar nememia
EFTIRFARANDI yfirlýsingar
frá skólastjóra Reykjaskóla,
fræðslumálastjóra og skólanefnd
Iíeykjaskóia hafa blaðinu borist
til birtingar:
Frá Reykjaskóla.
Jeg leiði hjá mjer að skrifa um
brottvikningu nemenda úr skólan-
um s. I. vetur, þótt tilefni hafi
gafist.
Jeg lít þannig á, að mál, sem
þessi, sjeu síst til þess fallin, að
um þau sje deilt í blöðum.
Þó þykir mjer og stjóm skólans
rjett að eftirfarandi yfirlýsingar
sjeu birtar.
Guðrnundnr Gislason,
skólastjóri.
Yl’irlýsing fræðslumálastjóra.
(Úr brjefi fi-æðslumálastjóra).
Vegna blaðaskrifa um brott-
vikningu nemenda úr skóla yðar
síðastliðinn vetur vil jeg taka
þetta fram:
Jeg tel að aðgerðir yðar í máli
þessu hafi verið rjettar, þar sem
nemendur þeir, eem vikið var úr
skóla, höfðu gerst sekir um al-
varleg brot á skólareglum og
áframhaldandi vera þeirra í skól-
anum hefði orðið til þess að spilla
þar aga og starfsfriði. Lít jeg svo
lýsi vanþekkingu á högum oghátt
nýsi vanþekkingu á högum og hátt
um heimavistaskóla og aðdróttan-
ir í yðar garð um óhæfni í starfi
hafi verið ómaklegar og sýni
glöggt hversu ókunnugir greina-
höfundar hafa verið störfum yðar
og umhyggjusenú fyrir velferð
nemendanna.
Hel'ji Elíasson.
(sign.)
Yfirlýsing skólancfndar.
Að gefnu tilefni vill skólanefnd
Reykjaskóla í Hrútafirði taka
fiam eftirfarandi um brottvikn-
úr Reykfaskól i
ingu nemenda úr skólanum s, 1»
vetur:
1. Slcólanefndin hefir kynnt sjev
þetta mál frá upphafi og að-
gerðir skólastjóra og kennara-
funda, sem um það fjölluðu. Er
skólanefndinni það kunnugt n&
skólastjóri gerði ítrekaðar til-
raunir til þess að fá þessa íem-
endur til að bæta ráð sitt. Vill
skólanefndin lýsa yfir því, að»
brottvikning nemendanna hafí
verið óumflýjanleg, enda geiíi
í fullu samráði við fræðslu*
málastjóra.
2. Nefndin vill vekja athygli s
því að veita verður þeim nem*
endum sjálfsagt öryggi, seirt
nota vilja skólavistina til náma
og þroska. Ætti aðstandend-
um nemenda og öllum hugs-
andi mönnum að vera það Ijósk
að hjer er um lofsverða lögg-
semi að ræða til þess að haldaj
uppi aga og velsæmi í skólan*
um.
3. Skólanefndin vítir ábyrgöar-
laus blaðaskrif manna,
ekki hafa kynnt sjer mála-
vöxtu og skákað hafa í skjóll
þess að hjer er um viðkvæaij
vandamál að ræða, sem skóla-
mönnum jafnt og foreldrum ei*
óljúft að ræða á opinberunj
vettvangi.
Skólanefnd Reykjaskóla. [
Heræfingar i Þýskaiandí
LONDON 17. sept. — Eisen-
hover yfirhershöfðingi er kom-
inn til Hannover á hernámssvæðS
Breta. Þar mun hann verði við-
staddur heræfingar sem yfir 10®
þús. hermenn frá 7 Atlantshafs-
ríkjum taka þátt i.
Montgomery hershöfðingi ver3
ur og viðstaddur æfingarnar, og
kom hann í þeim erindum tU
Hannover í gæráag. — Reuter,