Morgunblaðið - 18.09.1951, Síða 11
M 6 R G V X BL Á Ðl D
r Pri'cjudagur 18. sep*. 1931.
'f '--’rr
T
11.1
fHinningsmrð :
PJETUB KÚLD PJETURSSON
9,Einn kynlegur halur hæru-grár
i hólmanum ysta bjó,
fnjög hversdagsgæfur, en heldur
! fár
<ng hafðist við mest á sjö.“
!Á GAMLÁRSDAG árið 1874
fæddist í Svefneyjum á Brejða-
firði drenghnokki. Sá var dökk-
UJr yfirlitum, brúneygur og fag-
toeygur og að öllu hinn fongu-
Jegasti. — En þó svo væri, var
feoma hans í þenna heim ekki öll-
asm óblandið fagnaðarefni, For-
jeldrarnir voru ungir elskendur,
en ógift, og mun svo hafa verið
íil ætlast, a. m. k. af sumum, er
r. ærri stóðu, að þau yrðu aldrei
Bijón. — Þetta fór þó á annan
jveg, þau Sveinsína Sveinsdóttir
frá Vesturbúðum í Flatey og
í'jetur Hafliðason í Svefneyjum,
jEn svo hjetu foreldrarnir, giftust
s, ð tólf árum liðnum, gerðust
foúendur í Svefneyjum og Hval-
Bátrum á Breiðafirði, eignuðust
átta gjörvuleg börn, lifðu í far-
;sælu hjónabandi til æviloka og
gátu sjer hinn besta orðstír í
Sivívetna. — Pjetur Hafliðason
idrukknaði á Breiðafirði 29. sept.
1910, en Sveinsína andaðist á
Keykjum í Mosfellssveit hjá Ingi
Ljörgu dóttur sinni og manni
fiennar Guðmundi Jónssyni skip
gtjóra, 28. jún>' 1928.
I Drengurinn, sem fæddist á
gíðasta kveldi þjóðhátíðarársins í
Svefneyjum, var skírður Pjetur
Kúld. Hann ólst upp þar í eyj-
unum hjá afa sínum og ömmu,
Ólínu Friðriksdóttur og Hafliða
hreppstjóra Eyjólfssyni. Þegar
ihann óx úr grasi gerðist hann
torátt augasteinn og eftirlæti afa
síns, og er mjer sagt af manni
er þar mátti vita glögg deili á, að
toelst mundi Hafliði hafa kosið að
styðja þennan efnilega sonarson
sinn til einhverra mennta. Af því
varð þó ekki. Hugur drengsins
stefndi brátt í aðra átt og fjár-
toagur gamla mannsins gerðist
,toá helst til þröngur. Sjómennska
®g veiðiskapur urðu kærustu við-
fangsefni Pjeturs, þegar í æsku.
Og tækifærin til að glæða þann
áhuga skorti ekki. Þau eru lokk-
ændi breiðfirsku eyjasundin á
sumrin. Og tíðförult varð þeim
feðgunum kringum eyjarnar á
Sítilli skektu, sem Hafliði átti.
Stunduðu þeir þá flyðruveiðar óg
annað góðfiski og undu báðir vel
sínum hag. — Feitustu flyðru,
sem Pjetur sagðist hafa verið
sneð að fá, dró afi hans við svo-
nefndan Klofningsboða, ekki all-
iongt frá lendingunni í Svefn-
isyjum. Þegar hún kom í Ijósmál
rog þeir sáu, hvað skepnan var
Stór,' sagði garnli maðurinn;
a,Þessi held jeg að verði okkur
ol'urefli, Pjetur minn. En þegar
Jþú setur í svona skepnu á litlum
í)át, þá skaltu ævinlega taka hana
snn við hnýfil, allra helst ef ylgja
<er, báturinn þolir ekki annað“.
Og vel lánaðist þeim að vlnna
fiyðruna, en afturhlaðin var þá
Sleytan. ■— Hafliði smíðaði handa
Pjetri litla ár til notkunar í
fyrstu sjóferðunum, þvi svo var
toann þá stuttur, að lítt náði hann
lipp fyrir borðstokkinn á bátn-
um og gat ekki valdið venjulegri
toátsár í keipnum. Tíðum ljet
toann Petur stýra í þessum sjó-
ferðum og sagði honum gjörla
til um alla sjómennsku á opnum
bátum, sjólag, og báíaleiðir á
Breiðafirði. Þar kló sá er kunni,
jþví Hafliði var jafnan talinn með
ailra fremstu sjómönnum á
Breiðafirði, og nemandinn í list-
Snni mun hafa verið frábær. Sagð
ist Pjetri oft svo frá, að það litla
sem hann kynni til sjómennsku
ætti hann afa sínum að þakka.
<Og það held jeg, að aldrei hafi
Pjetri þótt vænna um nokkurn
snann en afa sinn, svo mikil hlýja
og virðing var jafnan í tali hans,
J>egar hann minntist á hann, enda
var Hafliði frábært ljúímenni og
vel látinn af öllum er honum
kynntust.
Þegar jeg man fyrst eftír Pjetrf
Kúld, átti hann heima í Skál-
tyjum. Hann bjó þar í gömlum
jþæ og var autt og óþiljað rúm
undir baðstofugólfi. Hann stund-
aði þá sjóinn nær allt árið, eins
og jafnan fyrr og síðar á ævinni.
Reri í Bjarneyjum, undir Jökli
á vetrum, en var til sjós á skút-
i.m öll vor og sumur. En framan
af vetrum, þegar hann var heima
tjekkst hann oft við smíðar á
gólfinu undir baðstofuloftinu, því
hann var vel hagur. Gerði meðal
armars að bátum, bæði fyrir sjálf
an sig og aðra og þótti þar vel
liðtækur sem annars staðar.
Hann var iðjumaður, sem sjald-
an fjell verk úr hendi.
Nokkru seinna fluttist Pjetur
í Bjarnareyjar og bjó þar „í hólm
anum ysta“ í mörg ár, eða þang-
að til að útþráin og los tímans
höfðu sópað öllu unga fólkinu
burtu úr eyjunum — og fór þá
þessi gamla verstöð í eyði
skömmu síðar. — Oft kom hann í
Skáleyjar eftir að hann fluttist
þaðan, í heimsókn til frænda og
vina og var jafnan aufúsugestur.
Það kom fyrir að hann var við
skál í þeim ferðum, því hann var
ölkær maður og ljet þá sitthvað
fjúka, þó fáskiftinn og hversdags
gæfur væri þessutan. Upp á hann
rnátti með fylista sanni heim-
færa þessar ljóðlínur Arnar:
þegar vínið vermdi sál
voru ei svörin myrk nje hál
ekkert tæpitungumál
talað yfir fylltri skál.
Jafnan kom hann færandi
hendi í Skáleyjar. Hann var mik-
ill aflamaður og ekki fastur á
fje, ef það var fyrir hendi. Þau
voru ósmá og ótalin ryklings-
strengslin og rafabeltin, sem
hann miðlaði öðrum um dagana.
Ekki síst frændfólkinu, því svo
var hann ættrækinn að fátítt er
um þessar mundir. — Bú hans
í Bjarneyjum var jafnan lítið,
Býlið leyfði ekki annað og með-
fætt örlæti hans bauð honum að
ala hverja skepnu til fullra nytja.
Það var farsælla. Og það sem
mestu skipti, hann „átti búið
sjalfur“, eins og hann komst einu
sínni svo snilldarlega að orði.
En þótt Pjetur byggi vel, að
því leyti sem áð frarnán er greint
þá verður hans þó ekki lengi
minnst sem bónda. Og mjer er
nær að halda að þó hann hefði
fengið til þess aðstöðu í æsku,
að reisa bú á góðri jörð þá hefði
hann ekki orðið mikill bóndi —
seint gróið við torfuna. Hafið og
sjósóknin mundu jafnan hafa
seitt hann til sín. Hann var fyrst
og fremst sjómaður, veiðimaður,
farmaður. Á því sviði var hann
frábær og verður lengí minnst.
Sjóferðasaga hans verður þó ekki
rakin hjer, til þess er hvorki
staður nje stund og kunnugleika
skortir mig líka. En einu atviki
úr lífi hans vil jeg þó bregða
upp — einni sjóferðasögu — því
bún lýsir svo vel skaphöfn hans
og innsta eðli.
Það var einhverntíma meðan
Pjetur átti heima í Skáleyjum,
(iíklega veturinn 1908) að hann
reri undir Jökli vetrarvertíðina.
Þeir urðu samferða í verið, hann
og Sveinn Jónsson frændi hans
úr Skáleyjum. Fyrst komust þeir
í Bjarneyjar. En á leiðinni þaðan
út á Sand hrepptu þeir hið versta
veður. Á þá skall suðvestan rok
og þreifandi bylur. Þeir urðu, þá
að snúa aftur og náðu loks iandi
á Hallbjarnareyri í Eyrarsveit,
eftir djarfa og hættulega sigl-
ingu. í þeim hrakningi misti
Pjetur bát sinn og allar færur, en
Sveinn gat bjargað honum og há-
setum hans á síðustu stundu.
Ekki æðraðist Pjetur þennan
skaða sinn og ljetu vermenn sem
ekkert væri. Og þegaf veður
batnaði var haldið út á Sand og
róin þar vertíðin til enda. Um
vorið komu þeir heim. Þá var
það einn dag, er Pjetur var stadd
ur í Flatey, að ungur frændi hans
spyr hann, hvað hann hafi nú
e;ginlega hugsað þarna langt út
á Breiðafirði, í vestanroki, nætur
myrkri og þreifandi byl, á sökkv
andi bát, þegar engar skynsam-
legar líkur voru til þess að hon-
um yrði bjargað frá bráðum bana
„Jeg held nú, að jeg hafi ekki
hugsað margt, frændi“, svaraði
Pjetur samstundis, „en jeg studdi
við árahlummana, því jeg hjelt
að Guði ga’.nla kæmi hetur, í.ð
það væri andæft meðan flyti.“
Af þessu má hver draga þá
áiyktun sem vill. Jeg minnist
ekki, að hafa nokkru sinni heyrt
opinskárri eða karlmannlegri trú
arjátningu. Hin óbilandi karl-
mennska Pjeturs, þrek hans og
æðruleysi, birtist svo dásamlega
í þessu svari. — Aldrei að gefast
upp. Ef hann skyldi deyja þarna
út á miðjum Breiðafirði í blóma
lífsins, í stórsjó og næturmyrkri,
þá skyldi hann koma til dyranna
eins og hann var hertygjaður
mitt í stríðinu. Mæta Guði sín-
um með árarnar í höndunum og.
segja: Hjer er jeg. Nú get jeg
ekki meira. Tak þú nú við og
sjáðu fyrir framhaldinu.
Pjetur fór marga bratta báruna
eftir þennan atburð, svo sem
nærri má geta. Og loks á gamals
aldri, þegar margar af þeim eyj-
um á Breiðafirði, sem mest var
sóttur úr sjór fyrrum, voru komn
ar í eyði, og illt orðið að fá há-
seta, reri hann einn á bát heiman
frá sjer úr Bjarneyjum og Flat-
ey. Var slíkt þó enganveginn
hættulaust, því heilsa hans var
þá mjög tekin að hnigna. En alltaf
komst hann heill í höfn. Ægir
karl kom honum aldrei svo mikið
sem á knje. Og ekki munu þeir
hafa verið margir dagarnir frá
því að hann fór sína síðustu sjó-
ferð og þangað til hann dó. Hann
andæfði sannarlega meðan flaut.
Pjetur var jafnan glaður og
reifur í vina hóp, og aldrei heyrð
ist það á honum að honum þætti
sjer ekki fullkosta, eða væri ó-
ánægður með lífið. — Þó er mjer
nær að halda að hann hafi aldrei
verið á rjettum stað í tíma og
rúmi — ekki verið á rjettri hillu
í lífinu.
Þlann fæðist tólf árum áður en
æskilegt þótti, fer kornungur að
stunda sjó á opnum bátum og
skútum. Gerist formaður heima
fyrir haust og vor, skútukarl á
sumrin og smábóndi á vetrum.
Þetta fer honum allt vel úr hendi.
Og loks, kominn langt „yfir lög-
aldur sakamanna“ gerist hann
togarasjómaður um nokkur ár í
Reykjavík. Þar gerist sama sag-
an, hann er með fremstu mönn-
um hvar sem taka þarf til hendi
á sjónum. En það er sama, hann
er ekki á rjettum stað, ekki tólf
árum á undan tímanum, heldur
heilum mannsaldri. Hefði hann
ekki fæðst fyrr en íslendingar
höfðu eignast kaupskip og sigla
um öll heimsins höf, hefði hann
áreiðanlega ekki álið allan aldur
sinn í Breiðafirði. Saga hans
hefði þó orðið allt önnur og
kannske meiri. Hafi nokkur mað-
ur haft eðli og upplag til þess að:
fara á brott með víltingum,
standa upp í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svo til hafnar,
þá var það Pjetur Kúld.
Enginn hefði sómt sjer betur í
brúnni á hinum glæsilegu ís-
lensku kaupskipum en hann.
Enginn verið öruggari stjórnari.
Vöxturinn, yfirbragðið, framkom
an, minnti á fyrirmanninn, höfð-
ingjann er svo vel hefði sómt sjer
Framh. a bis. 12.
Hifsefii
Jóns Trausfa
Átta bindi bundin í skinnband, kosta aðeins 640 krónur.
Ritsafnið fæst með mánaðarlegum afborgunum — eitt
hundrað krónur á mánuði.
Ritsafnið fæst hjá
Bókaútgáfu Guðjóns O., Hallveigarstíg 6 A. Sími 4169.
íslendingasagnaútgáfunni, Túngötu 7. Sími 7508.
BÓKAÚTGÁFA GUÐJÓNS Ó.
Lögt ak
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengn-
um úrskurði verða lögtök látin fram fara án. frekari
fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að
átta dögum liðum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyr-
ir eftirtöldum gjöldum: Tekjuskatti, tekjuskattsviðauka,
eignarskatti, stríðsgróðaskatti, fasteignaskatti, slysa-
tryggingariðgjaldi, námsbókagjaldi og mjólkureftirlits-
gjaldi, sem fjellu í gjalddaga á manntalsþingi 31. júlí
1951, almennu tryggingasjóðsgjaldi, er fjell í gjalddaga
að nokkru í janúar 1951 og að öðru leyti á manntals-
þingi sama ár, gjöldum til kirkju og háskóla og kirkju-
garðsgjaldi fyrir árið 1951, svo og lestargjaldi fyrir árið
1951, áföllnum og ógreiddum veitingaskatti, skemmt-
anaskatti, gjaldi af innlendum tollvörum, skipulagsgjaldi,
útflutningsgjöldum, skipaskoðunargjaldi, vitagjaldi, sótt-
varnargjaldi og afgreiðslugjaldi af skipum, svo og trygg-
ingariðgjöldum af lögskráðum sjómönnum.
Borgarfógetinn í Reykjavík, 17. sept. 1951.
Kr. Kristjánsson.
Odýrar kápur
kr. 495
(niður setí verð)
Feldur h.f.
Austurstræti 10.
IVIarkverðasti viðburður
vorra daga
JÚLÍUS GUÐMUNSSON flytur erindi um ofan-
greint efni í Aðvent-kirkjunni, 1 ÐAG, 18. sept.,
klukkan 20,30.
ALLIR VELKOMNIR
Kjarakaup - Prjónavörur
I DAG hefst sala á allskonar Prjónafatnaði — S
(ekki úr erlendu garni), er seljast fyrir hálf- 5
3
virði og þar undir. 5
PRJONLESBUÐIN,
Freyjugötu 1.