Morgunblaðið - 03.01.1952, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.01.1952, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. janúar 1952 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstraeti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 18.00 á mánuði, innanlands. lausasölu 1 krónu eintakið. Kr. 1,25 með Lesbók. Þrjár n ýársóskir Flngmaðuriini er leitaði appi iórn- urlamb sitt og baist iyrirgelningar ÓLAFUR THORS, formaður Sjálfstæðisflokksins, lauk ára- mótahugleiðingum sínum hér í blaðinu með þessum orðum: „Á þessum tímamótum óska ég íslendingum öðru fremur þessa: Að bilið milli heimstefnanna þrengist, að íslenzk landhelgi víkki, og að sern flestum íslend- ingum lánist að temja sér að taka skynsamlega því, sem að hönd- um ber.“ Um það þarf ekki að ríkja ágreiningur, að hið mikla djúp, sem óbrúað er á milli tveggja höfuð andstæðna í stjórnmálum heimsins, er hin raunverulega or- sök þeirrar óvissu og öryggisleys- is, sem ríkir um þessar mundir. Annars vegar er hið vestræna lýðræði og þær þjóðir, sem byggja líf sitt á grundvelli þess, hins vegar hið austræna einræði og þær þjóðir, sem því fylgja eða hefur verið þröngvað til að búa við það. Tortryggnin, sem ríkir milli þessara andstæðu fylk- inga hefur lagt grundvöllinn að þvi ofsalega vígbúnaðarkapp- hlaupi, sem nú er háð og kostar gífurlegt fé og þungar byrðar á herðar flestra þjóða. Það bæri ekki vott miklu raun- sæi að gera ráð fyrir öðru en að þetta vígbúnaðarkapphlaup hljóti fyrr eða síðar að leiða til ófriðar. Sá spádómur á við sterk rök að styðjast úr mannkynssög- unni. Það er að vísu svo að hinar vestrænu lýðræðisþjóðir eiga þess engan kost annan en að víg- búast. Þær hafa ekki árásaráform í huga. En með því að vigbúast búast þær við að geta dregið úr þeirri hættu, að á þær verði ráð- izt, og skapað sér möguleika til þess að verja frelsi sitt og mann- réttindi, ef til styrjaldar kæmi. Kjarni málsins er sá, að ef ekki tekst að skapa bætta sambúð milli hinna tveggja þjóðfylkinga, minnka bilið á milli heimsstefnanna, hlýtur vígbúnaðurinn að halda á- fram. En ef svo verður um langan tíma vofir hættan á því að byssurnar byrji að skjóta stöðugt yfir rnannkyn- inu. f raun og veru hefur styrjöld þegar hafizt rnilli hinnar vestrænu lýðræðis- hyggju og kommúnismans. í Kóreu hefur verið barizt í hálft annað ár. Þar hafa kraftarnir þegar verið reyndir. Hinum frjálsa heimi hefur tekizt þar að mæta ofbeldisárás með öfl- ugri vörn, sem hefur leitt til ósigurs ofbeldisaðiljans. Það, sem gerzt hefur í Kóreu, gef- ur miklar vonir um að öflugar varnir lýðræðisþjóðanna geti um nokkurt skeið hindrað á- rásir á aðrar frjálsar þjóðir. i En til þess að byrðum vígbún-' aðarins verði létt af þjóðunum þarf tortryggnin að þverra milli hins austræna og vestræna heims. Djúpið milli lýðræðis og einræð- is verður að vísu aldrei brúað. Trú á það væri alger sjálfsblekk- ing. Milli kúgunarstefnu komm- únismans og vestrænnar frelsis- hyggju hlýtur alltaf að verða mikið djúp staðfest. En með auk- inni samvinnu milli austurs og vesturs er hægt að draga úr tor- tryggninni, minnka bilið milli þeirra stjórnmálaleiðtoga, sem eru leiðtogar þjóðanna og í raun og veru halda á fjöreggi heims- friðarins. Sameinuðu þjóðirnar eru sá vettvangur, sem líklegastur er til þess að vinna þetta verk á. Þrátt fyrir allt sitja þó forystumenn flestra þjóða heimsins þar ennþá við samningaborð. Þar skortir að vísu ekki stór orð og heitingar. En meðan þeir sitja þar hefur dyrunum þó ekki verið lokað til friðsamlegrar lausnar vandamál- anna. r ★ Um þá nýársósk Ólafs Tfcors að íslendingum takist á næst- unni að víkka landhelgi sína, hlýtur öll þjóðin að vera sam- mála. Þar er um að ræða hags- munamál, sem ætíi að vera hafið upp yfir allar deilur og dægurbaráttu. Á það ber ekki að draga neina dul að vonir okkar um árangur í barátfunni fyrir víkkun landhelginnar hafa glæðst mjög við sigutf Norð- manna í deilunni við Breta. Alþjóðlegur dómstóll hefur viðurkennt rétt ákveðinnar þjóðar til þess að víkka land- helgina fyrir nokkrum hluta strandlengju sinnar. Af því hlýtur að leiða, að aðrar þjóð- ir, sem hliðstæðra hagsmuna eiga að gæta, geti framkvæmt svipaðar ráðstafanir. Auðsætt er af ummælum brezkra blaða, að þau gera ráð fyrir því að íslendingar muni hagnýta sér úrskurð Haagdóm- stólsins til þess að halda áfram að framkvæma þá stefnu, sem þeir mörkuðu með setningu reglu gerðarinnar um vernd fiskimið- anna fyrir Norðurlandi. Telja þau dóminn mikið áfall fyrir brezka útgerð og engan veginn séð fyrir, hverjar afleiðingar hans kunni að verða. Nýlega var haldin í Belgrad ráðstefna gamalla hermanna. Aledal þátttakenda var handar- íski flugmaðurinn Joseph Gol- dyn. Danskur ritstjóri átti tal [ við hann á ráðstefnunni. Saga Goldyn birtist í Berlingske Aft- | enavis og er hér lauslega þýdd. ! —o— BJARTAN og fagran sclskins- dag í marzmánuði 1945 hóf sveit amerískra sprengjuflugvéia sig til flugs frá flugvelli einum í Ev- rópu. Sveitin hafði fengið þá fyr- irskipun að losa farm sinn yfir olíuhreinsunarstöðvum í ausíur- ríska smábænum Mcssbier- baum. Affermirgin gekk samkvæmt áætlun, en í hinu bjarta veðri voru flugvélarnar auðvelt skot- mark loftvarnabyssuskyttunum á jörðu niðri. Margar þeirra hurfu því ekki til baka en aðrar kom- ust þó aftur til bækistöðvanna sumar allmikið laskaðar og með látna og særða menn irman- borðs. Undir þá nýársósk formanns Sjálfstæðisflokksins, að íslend- ingum megi lánast að temja sér, að taka skynsamlega því, sem að höndum ber, er að lokum á- stæða til þess að taka. Framhjá þeirri staðreynd verður ekki gengið, að ekkert þjóðfélag er svo fullkomið, að starf og barátta fólksins beri ekki misjafnlega góðan árangur á ýmsum tímum. En einstaklingarnir verða að kunna að mæta hinum erfiðu tímum, ekki síður en þeim góðu. Þeir mega ekki æðrast þó á móti blási. ■ íslenzka þjóðin hefur mest- an hluta ævi sinnar lifað við þröngan kost. Hún hefur brot- izt frá sárri fátækt til nokk- j urra bjargálna. Hún hefur nú betri mögu- leika til þess en nokkru sinni fyrr að bjarga sér og lifa góðu lífi í landi sínu. Þess vegna má hún ekki láta stundar- j andbyr dreifa kröftum sínum ' um of. Hún má ekki láta hat- rammar innbyrðis deilur Iama mótstöðuþrek sitt. Henni ber þvert á móti að taka erfið- leikunum af manndómi og festu. Ef hún gerir það mun hún sigrast á þeim og halda áíram að skapa sér öryggi um afkomu sína og bætta aðstöðu til þess að lifa menningarlífi í landi sínu. Þetta verðum við að gera okkur Ijóst. Á því að flestum einstaklingum íakist það, veltur framtíðarhagur þessar- ar þjóðar. Joseph Goldyn. Hér hefst sagan um Joseph Goldyn, eins og hún var sögð af honum sjálfum. — Eins og svo margir aðrir aldist ég upp í stórborg. Fædd- ist í Chicago árið 1925 og ung- dómsár mín voru í engu frábrugð in æskuárum milljóna annara drengja, sagði Goldyn. Skóla- gangan var eins og skólaganga alltaf er. Frístundunum eyddum við á íþróttavöllum eða í k’/ik- myndahúsum með vinstúlkum okkar, og ófriður og stríð voru óþekkt hugtök meðal okkar. En í marzmánuði 1944, var ég, 19 ára gamall, kvaddur í herinn, erfiðar æfingar tóku við og síðan var flugsveitin flutt til Evrópu. Við fórum ýmsar ferðir inn yfir Þýzkaland, en ég slapp alltaf — þar til fararinnar til Moosbier- baum. Sem vélbyssuskytta í nefi flugvélarinnar var ég óvarinn fyr- ir kúlubrotum frá loftvarnabyss- unum. Þau hittu mig og ég missti meðvitundina. EILÍFT MYRKUR Þegar ég vaknaði til lífsins lá ég í sjúkrahúsrúmi og fékk innan stundar að vita, að það myrkur, sem í kringum mig væri, myndi vara allt til loka lífs míns. Ótal sinnum á næstu mánuðum var ég gripinn algeru vonleysi. — Stundum heltók hug minn reiði til þess, er gefið hafði mér s.jón mína til þess eins — að mér virtist — að svipta mig henni aftur. En smám saman tók bilið milli mín og lífsins að minnka aftur. Ég lærði aftur að ganga, lærði að sitja við borð og matast hjálpar- laust og lærði að þroska hæfileika annarra skilningarvita. Ég lærði aftur að lesa, gekk á háskóla og lauk þaðan prófi. Síðan hef ég haldið áfram lærdóminum og von- ast til þess, að geta innan skamms lokið magisterprófi og fcyrja kennslu í ensku. Ég þekki það af reynslu, að blindir menn hugsa á annan veg en þeir, sem sjá. Ég er þakklátur, þakklátur fyrir að vera fengið í henctur hlutverk sem ég get leyst, að fá að vinna að einhverju mál efni með öðrum fyrir aðra, cins og ég hef reynt að gera innan félagssamtaka blindra manna og samtaka gamalla hermanna. Þessi störf, er ég hef unnið síðan ég varð blindur, hafa orð- ið til þess, að vekja mig til um- hugsunar unr, að á sama hátt og ég varð fyrir óhappinu, hafa sprengjurnar, sem við vörpuð- um niður, einnig krafizt fórn- arlamba. Loks tók ég ákvörð- un um að fara til Moosbier- baum, leita uppi einhvern þeirra, er líkt var á komið og mér og skýra honum frá því, að ég, sem með sprengjuvarp- inu hefði aðeins gert skyldu mína, bæðist fyrirgefningar eins og ég hefði fyrirgefið loftvarna- skyttunum. Ég fór til Austurríkis, þar sem ég hafði uppi á ungri stúlku, sem í sprengjukastinu I hafði misst annað augað, auk j þess, sem annar fótur hennar stórskaddaðist. Hún leið enn ! þungar kvalir af völdum slyss- ins. | Við tókumst í hendur og gleymdum íortíðinni. HÆGT ER AÐ SKAPA FRIÐ Þetta er ef vil vill ómerkileg saga, en mér fannst sem að með þessu hefði ég gert mitt til þess að skapa nýja framtíð og nýjan frið. Ég trúi því, að ef mennirnir fást til þess að rétta hvor öðrum höndina yfir landamærin og fást til að talast við komi aldrei til ófriðar. Þetta gildir einnig um hina rússnesku þjóð. Ef við aðeins lcæmumst í samband við hana og gætum fullvisað hana um að leiðtogar hennar ljúga, er þeir segja henni, að við viljum stríð. Hversvegna skildum við, sem vit um gerla hvað stríð þýðir, sem höfum beðið óbætanlegt tjón af völdum stríðsins, hversvegna skyldum við æskja stríðs, sem aldrei hefur sigur í för með sér, heldur aðeins fórnir og nafnlausar þjáningar. Við megum aldrei þreytast á að endurtaka þetta og á allan hátt að reyna að segja hinni rússnesku þjóð, að þetta er okkar alvara. Framh. á bls. 11. Velvakandi skrifar: ÚE DAGLEGA LÍFINU Meðtalið verð varahluta og efnis I'TTVARPSNOTANDI á Akra- J nesi hefir orðið. Kæri Velvakandi. Þú birtir fyr ir mig í vetur smágrein um við- gerðarkostnað útvarpstækja. Út af því hefir einn af starfs- mönnum Viðgerðarstofu Ríkisút- varpsins gefið mér eftirfarandi upplýsingar og óskað birtingar á þeim. Viðgerðarmaðurinn segir, að í þeim kostnaði, er ég tilgreindi, hafi verið fólgið verð varahluta og annars efnis til viðgerðar og nemi það oft Vx—V2 kostnaðar. Halli varð á Akranesferðinni STYRKUR er ekki veittur til viðgerðarferða við Faxaflóa, heldur aðeins til hinna, sem lengra eru farr.ar. Er tímakaupið krv 30,00, en ekki kr. 35,00. I bréfi mínu fyrr i vetur gat ég þess, að meðalkostnaður við þau 60 útvarpstæki, sem viðgerðar- mennirnir hafi gert við hér á Akranesi, hafi verið kr. 100.00. Engu að síður varð halli á ferð- inni. Telur viðgerðarmaðurinn þó vinnast betur í þessum ferðum út á land en í viðgerðarstofurn í Reykjavík. — Útvarpsnotandi11. Bréf frá svörtum sauði. ÍTÆRI Velvakandi. Líklega er »- þér kunnugt um, að bindindis félög skólaæskunnar hafa nú fært út kvíarnar og tekið upp baráttu gegn reykingum skólafólks. Ég er þér að segja einn af svörtu sauðunum, og varð því heldur en ekki glaður, þegar ég rakst nýlega á viðtal við tíræðan Austurríkismann í erlendu blaði. Oldungurinn var eir,s og lög gera ráð fyrir inntur eftir hverju hann þakkaði þennan háa aldur, og var svar hans eitthvað á þessa leið: Vísbending til tíræðra íslendinga og eldri. ¥jAÐ er af því að ég hef reykt svo mikið tóbak um dagana. Ég heí slyndrulaust reykt píjpu | frá því í æsku, og því hefur lækn ir aldrei komið inn fyrir mínar dyr. Ég tók að reykja í laumi þriggja ára og frá 14 ára aldri hef ég daglega reykt frá því ég kom á fætur og þar til ég gekk til rekkju. Ég á það hinu góða austurríska tóbaki að þakka, að ég varð svo gamall". Þarna var gamlinginn séður, því að daginn eftir sendi tóbaks- einkasalan, — því að þeir hafa* tóbakseinkasölu eins og við — honum heiðursgjöf, 10 kg. af reyk tóbaki og vindlum. Þetta gæti líka verið vísbend- ing til okkar öldunga. Rakósý lokaði „Bláu stjörnunni“. FVAKÓSÝ hinn aimáttki í Ung- verjalandi hefur skipað að loka „Bláu stiömu" beirra Ung- verjanna vegna stórmóðgunar við alþýðulýðveldið. „Bláa stjarnan" sýndi smáleik- þátt, þar sem saman eru komnir sex menn. Sá, sem er fvrir þeim félögum, ávarnar >>ina fimm svo felldum orðum: Við skulum nú útkljá þetta mái okkar í sam- ræmi við bið aippra frelsi, er við njótum hér í lanrli. Þeir, sem eru andvígir tillö^u minni, setjist, en hinir standi, sem pru henni sam- þykkir. .... T’fti- nokkra þögn bætir hann við: Fa sé, að allir fallast á tillögu mína, úr því að enginn sezt. Þá sprakk nú bPðran, og áhorf endur veltust um í hlátri. Það var nefnilega engir.n stóll á svið- inu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.