Morgunblaðið - 04.01.1952, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 4. janúar 1952
f 2
finns Jónssonsr og Jóhanns!
lyjóSfssonar minnzS á álþlngi
FTJNDIR hófust á ný í Alþingi í
gær, eftir jólaleyfi þingmanna.
Á fundi í sameinuðu þingi mipnt-
ist Jón Pálmason forseti sam.
fjings Finns Jónssonar alþm., sem
lézt-Júnn 30. des. s. 1., og Jóhanns
'Eyjólfssonar frá Sveinatungu,
íyrrv. þingmanns Mýramanna, er
lézt 21. des. s. 1.
Vottuðu þingmenn þessum
tátnu mönnum virðingu sína með
■því að rísa úr sætum.
Fer hér á eftir ræða Jóns
Pálmasonar:
Á næstsíðasta degi ársins, sem
JLiðið er, hinn 30. desember, and-
* aðist að heimili sínu hér í bæn-
um Finnur Jónsson, alþingismað-
<ur og fyrrverandi ráðherra, eftir
«ærri 4 mánaða þunga legu í
vsjúkrahúsi, 57 ára að aldri. Tví-
yegis var gerður á honum upp-
*kurður, en sjúkleikinn var þess
eðlis og hafði grafið svo um
^iig, að ekki varð bót á ráðin.
Finnur Jónsson fæddist á Harð
♦>ak á Sléttu 28. september 1894,
^onur Jóns bónda þar og síðar
fcónda og verkamanns á Ak-
«reyri, Friðfinnssonar bónda
ii Barði á Akureyri og konu
tians Þuríðar Sigurðardóttur
fcónda í Miðkoti í Svarfaðar-
<lal Jónssonar. Hann lauk gagn-
íræðaprófi á Akureyri 1910 og
^erðist sama ár póstþjónn á Ak-
■vreyri. Því starfi gegndi hann
til 1918, en verzlunarstörfum í
.sama bæ næstu tvö árin, 1919
—1920. Þá var hann skipaður
jpóstmeistari á ísafirði og hafði
t>að embætti á hendi til 1932. Þeg
ar á þeim árum lét hann mjög
þil sín taka í stjórnmálum, at-
yinnu- og félagsmálum, var kos-
inn í bæjarstjórn 1921 og átti
t>ar sæti í yfir 20 ár, hafði for-
göngu um stofnun Samvinnufé-
lags ísfirðinga, sem rekur báta-
vtgerð, og var framkvæmda-
jstjóri félagsins frá upphafi 1928
-og þar til hann varð ráðherra
1944. ísfirðingar kusu hann á
|>ing 1933, og átti hann þar sæti
til dauðadags, sat alls á 24 þing-
<im. Þar var hann þegar og æ
.síðan ötull málsvari þeirrar stétt-
ar, sem hann var runninn úr og
fcar jafnan einkum fyrir brjósti
liag sjómanna og verkamanna.
Vegna margháttaðrar reynslu og
þekkingar í viðskiptamálum og
^kki sízt sjávarútvegsmálum
varð hann sjálfkjörinn fulltrúi
ilokks síns til ýmissa vandasamra
-og ábyrgðarmikilla trúnaðar-
istarfa á þessu sviði. Hann var
íormaður Síldarútvegsnefndar
í 7 ár og í stjórn Síldarverk-
.smiðja ríkisins frá öndverðu,
1936, til 1946. Hann var og um
langt árabil formaður sjávarút-
vegsnefndar neðri deildar Al-
%>ingis, sat um skeið í fjárhags-
ráði og í útflutningsnefnd ríkis-
ins var hann skipaður 1939.
Finnig átti hann sæti í milli-
þankanefnd. Hann var félags-
og dómsmálaráðherra í 2. ráðu-
xieyti Ólafs Thors frá 21. október
1944 til 4. febrúar 1947. Hip
■síðustu ár, frá því á öndverðu
ári 1949, var hann forstjóri Inn-
kaupastofnunar ríkisins. Oft átti
Jhann sæti í samninganefndum
<tim viðskipti við erlend ríki, og
þegar íslendingar áttu fyrst full-
irúa á þingi sameinuðu þjóð-
ánna, var hann einn meðal
þeirra. Á ísafjarðarárum sínum
var hann ritstjóri Skutuls 1931
—1935. Hann átti um langt skeið
áæti í stjórn Alþýðusambands ís-
Iands og í stjórnum verkalýðs-
félaga.
, Það má öllum vera minnisstætt,
þekktu Finn Jónsson, að
Úann var maður mjög einarður,
fylginn sér og oft hvassyrtur, en
þó rökvís í málafylgju og glögg-
kýnn á kjarna hvers máls. Með
ikapfestu sinni, eljusemi og harð-
fylgi, ,samfara góðum gáfum,
hófst hann af sjálfum sér til
.staðgóðrar menntunar og til for-
ustu í þjóðrnálum. Jafnótrauður
tók hann að lokum hinum þung-
bæra sjúkdómi sínum, fylgdist
með þjóðmálum og tíðindum öll-
um fram til hins síðasta og lét
sem ekki væri, þó að honum hlyti.
að vera ljóst, að hverju fór.
Þjóð og þingi má vera það
harmsefni, að Finnur Jónsson er
fallinn frá fyrir aldur fram.
Vér skulum, samþingismenn
hans, votta honum virðingu óp
ástvinum hans samhryggð með
því að rísa úr sætum.
---o----
Daginn eftir að hlé var gert
á fundum Alþingis, eða 21. des-
em’ber, andaðist hér í bænum í
hárri elli Jóhann Eyjólfsson fyrr-
um alþingismaður, nærri niræð-
ur að aldri.
Jóhann Eyjólfsson fæddist í
Sveinatungu í Norðurárdal í
Mýrarsýslu 13. janúar 1862 og var
lengst af kenndur við þann bæ,
enda rak hann þar síðar búskap
um langt skeið. Foreldrar hans
voru Eyjólfur bóndi í Sveina-
tungu, síðar í Hvammi i Hvítár-
síðu, Jóhannessonar Lunds
bónda og smiðs í Gullbringum
Jónssonar og kona hans Helga
Guðmundsdóttir bónda á Sáms-
stöðum Guðmundssonar.
Jóhann naut ekki skólagöngu
í æsku, en menntaðist að mestu
af sjálfsdáðum og gerðist snemma
námfús og bókhneigður, enda var
hann vel viti borinn og skáld-
mæltur sem faðir hans. Hann
ólst upp í föðurgarði og var þeg-
ar á ungum aldri hinn mesti
dugnaðarforkur til allra verka,
bæði í búi foreldra sinna og við
sjóróðra, sem hann stundaði á
vertíðum, 27 ára að aldri keypti
hann jörðina Sveinatungu og
reisti þar bú, hóf þar mikið rækt-
unarstarf og aðrar umbætur, að
ógleymri húsagerð. Ibúðarhús
mikið úr steinsteypu reisti hann
þar árið 1895, hið fyrsta af þeirri
gerð hér á landi, við hinar verstu
aðstæður um alla flutninga og
án annarrar reynslu en þeirrar,
er hann hafði af afspurn. Þótti
það mikið íræði og mun braut-
ryðjendastarf hans í þessu efni
verða lengi minnzt. í Sveina-
tungu bjó Jóhann í 26 ár, til
1915, en þá keypti hann jörðina
Brautarholt í Kjalarnesi, fluttist
þangað búferlum og bjó þar í 3
ár, til 1923, en þá fluttist hann
til Reykjavíkur, rak þar um
skeið fornsölu, en stundaði hin
síðari ár bókband í heimahús-
um, en þá handiðn hafði hann
numið á æskuárum. Á Alþingi
átti Jóhann sæti á tveim þing-
um, 1914 og 1915, var þingmaður
Mýramanna. Þar beitti hann sér
meðal annars fyrir því, að æva-
forn löggjöf allt frá dögum Giss-
urar biskups ísleifssonar, um fá-
tækratíund af fasteign og lausa-
fé, yrði úr lögum numin og fékk
því framgengt, sýndi fram á, að
réttlátara væri að jafna því, er
sveitarsjóðir misstu í við þá
breytingu, niður á hreppsbúa
eftir efnum og ástæðum. Fjöl-
mörgum trúnaðarstörfunj gegndi
Jóhann og í héraði, var m. a.
um langt skeið hreppsnefndar-
oddviti og sýslunefndarmaður.
Jóhann Eyjólfsson brauzt í
mörgu um ævina, enda var hann
stórhuga framfaramaður og ham-
hleypa að hverju sem hann gekk,
fjörugur í hugsun og starfi, hrein
skilinn og hreinskiptinn, góður
heim að sækja og vinsæll. Með
honum er til moldar genginn
einn hinna umsvifamestu manna
í bændastétt vorri.
Ég vil biðja háttvirta þing-
menn að votta minningu þessa
merkismanns virðingu sína með
því að rísa úr sætum.
A•*-r.;»?>,AuA^ i»t/. *
Nýjar vélflugur
LÚNDÚNUM: — Árið 1951 voru
reyndar í Bretlandi 20 nýjar teg-
undir vélfluga.
Unnið er nú að því á Ítalíu að brjóta niður mikið land, sem áður hefir verið óræktað. Eru notaðaí
til þess stórvirkar vélar, eins og meðfylgjandi my nd sýnir. — Land þetta er ætlað jarðnæðislausum
bændum.
Siórvirkar iandbúnaðarvéJar
Hver er maðurinn?-Svör
MARGlR höfðu gaman að myndagetrauninni Hver er maðurinn?
stm birtist í jólablaði Morgunblaðsins. Sumir hafa þó kvartað yfir
því, að hún hafi verið full erfið og kann svo að vera. Við-valið
var reynt að taka með fulltrúa sem flestra landa eða landahópa,
eri jafnframt með hliðsjón af þeim viðburðum, sem mest hefur gætt
í heimsfréttum ársins 1951, og kann það að hafa valdið nokkru
um. Mennirnir voru þessir:
1. Warren Austin, fulltrúi
Bandaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum.
2. Talal, hinn nýi konungur
Transjordaníu, sonur Ab-
dullah konungs, sem myrtur
var á s.l. ári.
3. Einar Gerhardsen, fyrrv.
forsætisráðherra Neregs, sem
sagði af sér mjög óvænt fyrir
skömmu.
4. Mao Tse Tung, forseti Kína.
5. Syngman Rhee, forseti Suð-
ur-Kóreu.
6. Dalai Lama, þjóðhöfðingi
Tíbets, sem kommúnistar
lögðu undir sig nýlega.
7. Ridgway, yfirhershöfðingi
Sameinuðu þjóðanna í Kóreu.
8. Dr. Louis Padilla Nervo,
forseti Allsherjarþings S. Þ.
9. Anna Pauker, utanríkisráð-
herra Rúmeníu.
10. Omar Bradley, formaður
SAIGON — Áreiðanlegar fregnir
frá aðalstöðvum kommúniskra
uppreisnarmanna í Indo-Kína,
herma aó þar fari jiú fram víð-
tæk hreinsun innan flokksins. Ho
Chi-minh, sem verið hefur for-
seti ríkismyndar þeirrar, er
kommúnistar hafa stofnað í norð
urhluta landsins og formaður mið
stjórnar fiokksins hefur nú verið
sviptur síðarnefnda starfinu og
gerður að heita má valdalaus.
Það eru flugumenn frá Moskvu,
sem eru undirrót þessara athafna.
OF ÞJÓÐERNISSINNAÐUR
Það hefur verið fundið að
stjórnarstefnu Ho Chi-minhs að
hún væri of þjóðernissinnuð og
gæti of lítinn gaum að hinum al-
þjóðlega kommúnisma. Það sem
hér er að gerast, er aðeins einn
liður í þeirri ailsherjar hreinsun-
arherferð, sem nú er hafin um
allan hinn kommúniska Éeiirt. í
Póllandi bíður fyrrverandi aðstoð
arforsætisráðherra "Wladyslaw
Gomúlka dóms fyrir nákvæmlega
sömu afbrot og eitt aðal ákæru
efnið á hendur Slansky hinum
tékkneska er Títóismi eða of mikl
ar Þjóðernislegar tilhneigingar.
herforingjaráðs Bandaríkj-
anna.
11. William Faulkner, banda-
ríski Nóbelsverðlaunarithöf-
undurinn.
12. De Gasperi, forsætisráðherra
Ítalíu.
13. Jules Moch, fulltrúi Frakka
hjá S. Þ.
14. Richard Butler, fjármálaráð-
herra Breta.
15. Jakob Malik, fulltrúi Rússa
í Öryggisráðinu.
16. Mossadeq, forsætisráðherra
Persíu.
17. Mustafa E1 Nahas Pasha,
forsætisráðh. Egyptalands.
18. Klement Gottvald, forseti
Tékkóslóvakíu.
19. Erik Eriksen, forsætisráð-
herra Dana.
20. Kim II Sung, forseti Norður-
Kóreu.
TRUONG CHING
Eftirmaður Ho Chi-minh heitir
Truong Ching, 43 ára gamall
tryggur Stalíndýrkandi. Verður
nú hafin undir forustu hans víð-
tæk hreinsun þjóðernislega sinn-
aðra afla innan flokksdeildanna.
Ekki hefur þó enn fengizt stað-
festing á þeirri fregn, að Ho Chi-
minh hafi verið fjarlægður með
annarlegum hætti.
Styrjaldarrekstur kommúnista
í Indó-Kína hefur ekki gengið að
óskum að undanförnu og hefur
óánægja mjög tekið að gera vart
við sig meðal hermanna á upp-
reisnarliðinu. Malaría, blóð-
kreppusótt og hverskyns fár herj
ar nú liðið og skortur er á öllum
nauðsynjum, fæðu, klæðum og
lyfjum. Baráttukjarkurinn er
þrotinn og hermenn famir að
gera sér ljóst tilgangsleysi upp-
reisnarinnar með þeim afleiðing-
um að þeir hlauþast undan merkj
Um í stórhópum.
Liðhlaupar hafa upplýst að
matarskarnmtur hermannanna
hafi verið minnkaður nýlega í
200 gr. af hrísgrjónum á dag, sem
er aðeins fimmti hluti. þgss, sem
talizt getúí lágmarks skammtuv.
Jólatrésfagnaður !
í Keflavík i
KEFLAVÍK, 3. janúar. — Eins og
undanfarin ár fór fram jólatrés-
fagnaður fyrir börn í Keflavík
og Njarðvíkum hinn 27. des.
Fyrir fagnaðinum stóðu Ung-
mennafélag Keflavíkur og Rauðt
kross Bandaríkjanna fyrir hönd
hermannanna sem dvelja á Kefla
víkurflugvelli. Önnuðust Ung-
mennafélagar um allan undirbún
ing í húsi sínu, en Bandaríkja-
menn gáfu sælgæti og gjafapakka
Nær 1200 börn sóttu skemmt-
unina, sem hófst klukkan 13.30 qgj
var skipt í 4 aldursflokka og stóS
yfir til miðnættis.
Skemmtanirnar fóru allar mjög
vel og ánægjulega fram, jólasvein
ar léku og dönsuðu við börnin og
gáfu þeim gjafir. — Annar jóla-
sveinninn var Ingvar Guðmunda
son, kennari en hinn .Tón Ás-
mundsson, Vestur-íslendingur frá’
varnarliðinu á flugvellinum.Þótti
börnunum gaman að þeim, enda
komu þeir færandi hendi.
Yfirmaður varnarliðsins, Gen*
eral Mac Gaw, kom í óvænta
heimsókn til tveggja yngstu ald
ursflokkanna og flutti jólaóskii’
frá börnunum í sínu heimalandi,
sem sendu iólaglaðning til barn-
anna hér í Keflavík. Einnig mælti
hann nokkur orð til þeirra full-
orðnu, sem með börnunum voru.
Hershöfðingjanum þótti mjög
ánægjulegt að koma á jóla-
skemmtunina, því siálfur á hanrj
barna-börn heima hjá sér. Sama
er að segja um nokkra aðra varn-
arliðsmenn sem litu inn á jóla-
faenaðinn.
Þeir sem mest unnu að uodir-
búningi jóJafagnaðarins ásamf!
Unemennafélögunum voru þeir
William Anderson, fvrir Rauða'
Krossinn og Howard Watson og
Josef Tillotson fyrir hermennina.
Keflavíkur- og Njarðvíkurbörrf
eru afar þakklát fvrir þessa ióla-
hátíð og þann velvilja og hlvhug,
sem nábúarnir á flugvellinutn
hafa sýnt þeim undanfarin ár.
Það er saklaus og skiljanleg
skemmtun manna sem dvelja
fiarri heimilum sínum, að gleðja
börn á jólunum. Og eiga þeir og
Ungmennafélagið allar beztrf
þakkir skilið fyrir veglegan jóla«
fagnað — Hsi.__________ j.
Bandaríkjamenn ætla
ekki að búa fil ey
í Allanlshafinu
WASHINGTON, ^3. jau,
mælgndi Ba.ndaríJcjastjórnai' neit<
aði í dag þeim ummælum þýzka
blaðs, að Bandaríkjamenn hafi i
hyggju áð hua til ey út'i í Atlants-
hafinu. Átti að sögn blaðsins afS
ráðagt í þetta ve(k til að auðveldai
f!r.jfsumgöngur. iÍRmtter-NTB. j
Hreinsun í liði kommúnista í Indó-Kína
Fæðuskorlur og sjúkdómar þjá uppreisnarmenn
Ho (hi-minh of þjóðernissinnaður