Morgunblaðið - 16.01.1952, Blaðsíða 8
s
MORGUNBLAÐtÐ
Miðvikudagur 16. jan. Í952
Afgreiðsia nokkurra
inála í Nd< í gær
FRUMVARP ríkisstjórnarinnar
um ráðstöfun á greiðsluafgangi
ríkissjóðs 1951 var samþykkt til
þriðju umræðu á fundi neðri
deildar í gær. Breytingartillögur
stjórnarandstæðinga við frv.,
stm voru um að hækka framlög
ríkissjóðs, voru felldar, enda ekki
hægt að semja lög um að ráð-
stafa meira fé en til er.
Greiðsluafgangurinn mun
verða allt að 50 millj. kr. skv.
upplýsingum fjármálaráðherra. í
frv. er lagt til að af þeirra upp-
hæð veiti ríkissjóður 38 millj.
kr. til ýmissa bráðnauðsynlegra
framkvæmda en afgangurinn
rennur til greiðslu á skuldum
ríkissjóðs.
Á sama fundi var frv. um að
heimila bruggun áfengs öls fyrir
hið erlenda varnarlið samþykkt
sem lög frá Alþingi.
Hefur samþykkt frv. í för með
sér auknar tekjur fyrir ríkissjóð
og bæjarsjóð, en tollar og skattar
af þessu öli verða eins og af öðru
öli, sem framleitt er hér á landi.
Lög þessi eru eins og þau lög,
sem giltu hér á stríðsárunum,
því að þá var heimilað að brugga
hér áfengt öl fyrir hina útlendu
hermenn, sem hér dvöldu.
Er í þessu frv. eins og eldri
lögum skýrt ákveðið, að hið
áfenga öl megi aðeins selja hinu
erlenda varnarliði, en ekki ís-
lendingum.
Einnig var á þessum sama
fundi neðri deildar samþykkt að
vísa frv. um ráðstöfun erfðafjár-
skatts og erfðafjár ríkissjóðs til
vinnuheimila til þriðju umræðu.
Voru þá samþykktar breytingar-
tillögur fjárhagsnefndar við frv.,
en frá þeim var skýrt hér í blað-
inu fyrir nokkrum dögum.
— Hitaveituvatn
Framh. af bls. 7
ITITAVEITIIVATNIÐ
VAR HÆTTULAUST 1947
Prófessorinn ræðir að lokum
um hitaveituvatnið og kemst m.
a. svo að orði:
í öllu hveravatni er fluor, en
mismikið. — Hitaveituvatnið í
Reykjavík var rannsakað fyrir
fluor 1947 af próf. Trausta Ólafs-
syni og fann hann sem næst 1
hluta fluors í milljón hlutum
vatns. Samkvæmt því ætti að
vera hættulaust að nota hitaveitu
vatnið í Reykjavík til neyzlu.
Síðan hefur verið bætt í það
vatni úr annarri uppsprettu, en
ekki er líklegt að það breyti
miklu að þessu leyti. Ekki er
vitanlegt að hveravatn hafi verið
rannsakað annars staðar á land-
inu. Að svo stöddu er naumast
unnt að mæla almennt með notk-
un þess, þótt ekki sé kunnugt um
tannskemmdir neins staðar á
landinu, sem stafi af fluor-eitrun.
Slíkar tannskemmdir, sem koma
af of miklu fluor í vatninu, koma
fram sem brúnir blettir á tönn-
unum, án þess þær skemmist að
öðru leyti.
IIIÐ RÉTTA FLUOR-INNIHALD
Rétt væri að endurtaka rann-
sóknina á hitaveituvatninu hér,
og ef svo reynist að í því sé
um það bil einn hluti fluors í
milljón hlutum vatnsins, þá er
það einmitt það magn, sem ráð-
lagt er að setja í vatnið þegar
það er fluoriserað og ætti þá að
hvetja almenning til þess að nota
það til neyzlu. Sérstaklega væri
athugandi, hvort ekki væri rétt
að fyrirskipa að hitaveituvatn sé
notað í þá sætu gosdrykki, sem
börnin drekka mest, svo sem
Coca-Cola, Appelsín og aðra slíka
drykki, ef það kynni að vega
eitthvað upp á móti skaðsemi
þeirra fyrir tennurnar.
Creitt fyrir lögfræðingum.
PARÍS — Til þess að veita lög-
fræðingum frá öllum löndum
heims auðveldari möguleika íil
að kynna sér löggjöf annarra
landa og stuðla að samvinnu, hef-
ur UNESCO í hyggju að koma
upp alþjóðlegri nefnd fyrir sam-
anburðar-lögfræði.
Samband Mafreiðslu
og framreiðslU'
manna
ÞAÐ var í janúarmánuði íyrir
réttum 25 árum, að sjö ungir
menn komu saman að Hótel
Heklu hér í bæ, allir voru þeir
starfandi að matreiðslu- og fram-
reiðslustörfum, ýmist á farþega-
skipum eða við gisti- og matsölu-
hús. Þessar atvinnugreinar voru
þá tiltölulega ungar að árum hér
á landi. Þess vegna áttu þeir
menn, sem þessum störfum
gegndu, við ýmsa byrjunarörðug-
leika að etja, ekki sízt vegna fá-
mennis stéttarinnar og fjarlægð-
ar atvinnustaða. En margir þess-
ara manna unnu störf sín á hafi
úti á hinum islenzku farþega- og
fiskiskipum. Mönnum þessum var
öllum ijóst, að eitthvað varð að
gera til þess, að stétt þeirra
mætti ávallt njóta trausts og virð
ingar og eflast með árunum.
Sundraðir máttu þeir sín lítils,
en sameinaðir hugðust þeir greiða
götu sína við hlið annarra stétt-
arfélaga. Þeir sjömenningarnir
hófust því handa og stofnuðu fé-
lag, sem þá var nefnt Matsveina-
og veitingaþjónafélag íslands.
Vildu þeir sameina um þann fé-
lagsskap sem flesta starfandi
matreiðslu- og framreiðslumenn
íslenzka. Þeir nutu til fram-
kvæmda þessara áhugamála
sinna ágætrar forystu hins giæsi-
lega og vel mennta manns Ólafs
heitins Tónssonar, veitingaþjóns.
Hann hafði unnið lengi og víða
erlendis á beztu hótelum og far-
þegaskipum og naut einnig hér
heima virðingar og trausts allra,
sem honum og störfum hans voru
kunnugir, ekki sízt starfsbræðra
sinna. Honum entist því miður
ekki aldur til að líta félag sitt 25
ára, en merki þess hélt hann hátt,
meðan heilsa og kraftar leyfðu.
Síðan hafa margir góðir drengir
haft forgöngu um velferðarmál
þessa félagsskapar, sem er orðinn
allfjölmennur og finnur, að í
mætti samtakanna býr sigur hans
í öllu, er varðar heill og heiður
þessara stétta.
Samband Matreiðslu- og fram-
reiðslumanna er 25 ára um þess-
ar mundir. Það getur því með
ánægju litið yfir farinn veg. Það
hefur unnið marga sigra í baráttu
f.yrir bættum kjörum ng betri
menntun félaga sinna. En þeir
eru nú vel menntir í sinni iðn til
jafns við það, sem bezt þekkist
í rágrannalöndum.
í vissu um, að félagið haldi
áfram að vaxa og dafna, siálfu
sér og þióð sinni til hagsældar,
óska ég því gæfu og gengis urn
alla framtíð Anton Halldórsson.
Sirangar varúðar-
reglur^^f-,
OSLÓ ■— M jiíg r.tramgftr váfúð-
arreglur hafa verið settar í Noregi
til varnar því að gin- og klaufa-
veiki berist til landsins. Enginn
útlendingur eða Norðmaður er
kemur frá svæðum þar sem veik-
innar hefur orðið vart fær land-
gönguleyfi fyrr en komumaður
sjálfur og farangur hans hefur
verið sótthreinsaður.
Suðtarheimsktautið
— Hverf jall
Framh. af bls. 2
mýrum, þá fæst aldurinn á þess-
um öskulögum sjálfum.
Þessir amerísku vísindamenn
hafa fengið þrjú sýnishorn til
rannsókna sinna, til að ákveða
aldurinn. Eitt þeirra er frá kola-
lagi undir Laxárhrauni í Laxár-
gljúfri. Og mósýnishorn, sem
tekin eru undir þessum báðum
öskulögum.
í Suður-Þingeyjarsýslu eru tvö
önnur fjöll af sömu gerð og
Hverfjall, Lúdent, sem er
skammt suðaustur af Hverfjalli
og Hrossaborg, skammt vestan
við Jökulsá á Fjöllum, sunnan
við veginn milli Reykjahlíðar og
Grímsstaða. Bæði þessi fjöll eru
mynduð á sama hátt og Hver-
fjall, en eru mun eldri, frá ís-
aldarlokum eða skömmu þar á
eftir.
BOÐIÐ TIL BRETLANDS
Dr. Sigurður Þórarinssyni hef-
ii verið boðið til Lundúnahá-
skóla til að flytja þar fyrirlestra
um jarðfræði íslands. Var frá því
boði gengið í fyrra, á meðan hann
gegndi prófessorsembætti við
Stokkshólmsháskóla. Siðar hafa
honum borizt boð frá háskólun-
um í Oxford, Cambridge og Ed-
inborg. Einn fyrirlestur á hann
líka að halda um sama efni á
landfræðingamóti, sem haldið
verður í Nottingham 2. apríl. —
Leggur hann upp í þessa fyrir-
lestraferð í miðjum febrúar, og
kemur heim aftur í byrjun
apríl.
— Verðlagið
Framh. af bls. 5
að reyna að færa klukkuna aftur
á bak og innleiða hina gömlu
verzlunarhætti með hámarksverð,
skammtanir og alls konar inn-
flutningshöft og þar af leiðandi
biðraðir og brask, sem þróaðist'
í skjóli haftanna.
Þeir tímar eru liðnir og koma
vonandi ekki aftur, hvað sem
l.aftaþjónar Alþýðubláðsins vilja.
Framh. af bls. 7
fariri fiýrd aftur epíakassa, sem
hann hafði skilfð þar eftir fyrí'r
fjórtón árum. Eplin voru gadd-
frosin, en þegar þau höfðu verið
þýdd, voru þau prýðilegasta æti,
ekki ósvipuð ávöxtum, sem steikt
ir eru í ofni. Má því vera, að þsss
háttar köld steiking sé mjÖg
heppileg fyrir epli og annað græn
meti.
HEILSULYND
FRAMTÍÐARINNAR?
1 þessu ríki snævarins á landa-
merkjum tímans mætti ef til vill
koma upp heilsuhælum. Hvergi á
jörðu er hreinna loft eða þurrara.
Útfjólubláir geislar drepa alla
sýkla. Einkennileg var reynsla
leiðangursmanna í leiðangri Byrd’s
aðmíráls. Eftir að komið var suð-
ur í ísinn hurfu kvef og inflúenza
gjörsamlega. Flugvélarnar, sem
lentu við birgðastöðina, sem nefnd
var Litla Ameríka, fluttu með
sér bigrðir af sýklum frá löndum
siðmenningarinnar. Greip þá um
sig kvef, og stóð við svo búið í
tæpa viku. Eftir það voru allir
við góða heilsu, unz lagzt var í
höfn á Nýja Sjálandi.
I
SPRENGINGAR í ÍSNUM
i Brezkir könnuðir, sem voru við
I rannsóknir á skriðjökli nokkrum
upp af Ross hafi, urðu varir við
eitt hið ægilegasta þeirra íyrir-
brigða, sem um getur á Suður-
skautslandinu. Við hlið þessa
jökuls var himingnæfandi fjall.
Þegar skuggi fjallsins lagðist yfir
jökulinn á sólskinsdegi, urðu í yfir
borði hans gífurlegar sprengingar,
svo að hávaðinn minnti á viður-
eign stórskotaliða í styrjöld.
Stundum stóðu ósköpin yfir í nær-
feilt hálfa klukkustund.
FJÖLSKRÚÐUGT DÝRALÍF
Ef til vill er hvergi í víðri
veröld ríkulegri gróður en í höf-
unum umhverfis sunðurskautsland
ið, enda eiga þar samastað ýmis
af stærstu sjávardýrum veraldar-
innar, og þurfa sum þeirra allt að
tonn á dag sér til viðurværis. Þar
eru óteljandi milljónir örsmárra
sjávardýra, sem hvalahjarðirnar
lifa á. Þégar sýnishom af sjó úr
suðurhöfum er skoðað í smósjá,
sézt þar ótölulegur f.jöldi, ör-
smárra lífvera, sem aðrar verur,
örlítið stærri, gleypa. Síðan eru
þær sjálfar étnar af fiskum, sel-
irnir éta fiskana, hvalirnir selina.
Flestar hinna smærri vera eru
einfrumungar með kísislskel. Sum-
ar þeirra lifa og tímgast í ís-
jökum. Stundum leggja þær ur.d-
ir sig heilar ísbreiður og veita
jþeim rauðbrýrian lit. Þessari verí-
'ur eru taldar lifa við kuldalegustu
^skilýfði allra þeirra, sem á jörð-
jinni eru. .. ,
FYRR------------
Að öllum líkindum hefur frum*
maðurinn aldrei stigið fæti sínum
á suðurskautslandið. Af stein-
gerðum jurtalevfum má glöggt
sjá, að þar hefur eitt sinn vorið
temprað loftslag. En byljir mili.jón
Vetra hafa nú lagt sinn hvíta hjúp
yfir það land, sem áður var vaxið
grænum skógum.
S
OG NÚ-----------
Nú eru þar aðeins endalausar
glitrandi hjarnbreiður, milli hárra
fjalla, sem gnæfa yfir auðnina,
eins og legsteinar í kirkjugarði.
Að minnsta kosti tveir þriðjung-
ar þessa svæðis eru ókannaðir, og
það litla, sem kortlagt hefur ver
ið — einkanlega strandsvæðin —
jhafa menn einungis séð frá hrað-
fleygum flugvélum.
Þannig er Suðurskautslandið.
Þetta kaldasta land veraldar, sem
að flatarmáli er jafnstórt Banda-
ríkjunum og Ástralíu. Jafnvel á
sumardegi er hitastigið sjaldan
yfir frostmark út við ströndina,
og talið er að frost geti þar mest
orðið um 100 gráður FH. Er það
mun kaldara en á norðurskauts-
Ísvæðunum.
Suðurskautslandið er ríki töfra
I og ævintýra — þar opnast okkur
heimur kynlegra fyrirbæra, feg-
urðar og hættu.
Framh. af bls. 5
skyldan er hér á einu máli. Ég
veit, að þetta tekst með hjálp góðra
vina. Ég er hræddur um aðeins
eitt — það, að bókasafnið verði út
undan, vegna annarra brýnna
nauðsynja. Það cr langsótt fyrir
mann á Þorsteins aldri að safná
enn bókum í 35 ár.
Ég geng upp á skrifstofu mína
og hripa þessar línur. Ég geri
það vegna sjálfs mín, vegna ykk-
ar, sem lesið þetta — vegna þess
fyrst og fremst, að það mega ekki
líða mörg ár, þangað til þrír stór-
ir skápar með úrvali bóka og tíma-
rita prýða nýjar stofur á Úlfs-
stöðum.
Einar Guðnason.
fjölritarar og
-f ui til
fjölritunar.
Einkaumboð Finnhoiri Kjananason
Aasturstræt) ’ Simi 5544.
Heimilisdagbóki
fæst nú aftur í bóka og ritfangaverzlunum.
ÞaA ætti að vera hcilög skylda hverrar húsmóður að halda heimilisreikning og fylgjast þannig með daglegum út-
gjöldum á þessum tímum dýrtíðar og verðbólgu. — Það bsinlínis sparar peninga.
Markús:
ák
£k
&
r Ed Dodd,
■■•1111111111111111111
iiiiimiiniiiB
- r---T
-v. /jf JgS ^-V
1) Birnan öskrar móti Matta, að henni og kastar snöru um 2) — Nú reyni ég að fara af jbaki og biri.
en Markús ríður þá hinum m.egin hausinn. 1
ia rækilega.