Morgunblaðið - 16.01.1952, Blaðsíða 12
Veðurúiiif í dag:
Vaxandi NA-átt og víðast Iétt
skýjað.
12. tbl. Miðvikudagur 16. janúar 1952.
Hverfjall
Sjá grein á bls. 2.
&
Slær í hart við bómla, er
neitar að skera fé sitt
Hann skemmdi bíl eflirlitsmannsins
með skammbyssuskolum
AUSTUR í Hrunamannahreppi hefur dregið til tíðinda. — Bóndinn
ae Skipholti hefur alveg neitað að fara að lögum um niðurskurð
á fjárstofni sínum. — Hefur verið reynt að fara vel að bónd.anum,
en slíku hefur hann mætt með hinni mestu vonzku og gripið til
hinna fáránlegustu ráða.
í Árnessýslu fór niðurskurður'
á fé bænda fram nú í haust, í
sambandi við fjárskiptin. Bónd-
inn að Skipholti, Stefán Guð-
mundsson, sem á 17 kindur, neit-
aði að skera þær.
Á ÞORLÁKSMESSU
Gekk svo fram til jóla að ár-
angurslaust var hann beðinn að
fara að settum fyrirmælum. Á
Þorláksmessu fór eftirlitsmaður
rr.eð framkvæmd niðurskurðar-
ins, heim að Skipholti til fundar
við Stefán bónda.
SKAUT Á BÍLINN
Meðan efíirlitsmaðurinn hafði
þar viðdvöl, gerði Stefán sér lít-
ið fyrir, tók kindabyssu sína og
skaut gat á slla fjóra hjólbarða
bílsins og einnig braut hann rúð-
ur í honum með skothríð sinni.
Eftirlitsmaöurinn varð þaðan
að hverfa an pess að úr niður-
skurði á kindum Stefáns bónda
yrði. — Eru þær enn á lífi. —
Eftirlitsmaðurinn kærði þessa
árás til sýslumannsins á Sel-
íossi.
SLÆM FÆRÐ HAiWLAR
Svo sem kunnugt er hafa verið
illviðri og vegir erfiðir yfirferð-
ar, frá því um jólin. Hefur yfir-
valdið ekki aðhafzt í málinu, en
til þess mun nú draga innan
skamms, ef fært verður að Skip-
holti.
Mannamyndasaln
Sigurjóns Ólafssonar
1 MYNliLISTASALNUM við
Freyjugötu verður í dag opnuð
sýning á höggmyndum eftir Sigur-
jón Ólafsson. Eru þarna sýndar
mannamyndir .einvörðungu, er
hann hefir gert á alllöngu ára-
bili. Þar er t. d. myndin af móður
hans, mynd af Jóni Krabbe stjórn-
arfulltrúa, frá fyrri árum og frá
síðustu tímum er m. a. myndin af
sr. Bjarna Jónssyni og dr. Páli
Isólfssyni.
Alls eru þarna hátt í 20 myndir.
Geta menn af sýningu þessari
kynnst þessum þætti í verkum Sig-
urjóns. Margar af þessum mynd-
um hans eru snilldarverk.
Framfærsluvísitalan
153 slig
KAUPGJALDSNEFND hefir
reiknað út vísitölu framfærslu-
kostnaðar í Reykjavík fyrir janúar
mánuð og reyndist hún vera 153
stig, eða tveimur stigum hærri en
í desember, en þá var hún 151
stig.
Kauplagsvísitalan er nú 144 stig.
ÁlfndnDs og brenno ó
íþrótfnvellinum í kvöld
EINS OG kunnugt er höfðu íþróttafélögin Ármann, Í.R. og K.R.
undir'oúið álfadans og brennu, sem halda skyldi á þrettándakvöld,
er. varð að rfesta vegna veðurs. En nú fer þetta fram í kvöld kl. 8.
UM 80 álfar munu stíga dans með uodirleik lúðrasveitar. í hópnum
eru að sjálfsögðu myndarleg konungshjón, Álfakóngur og drottning
og einnig Grýla og Leppalúði. Þar að auki eru púkar og ýmiss
konar annarlegir gerfingar, sem munu skemmta áhorfendum.
SÖNGUR v
OG FLUGELDAR
Telpnakór skipaður 50 telpum
mun syngja og Erlendur O. Pét-
ursson, form. K. R., flytja prolog
og stjórnar fjöldasöng. Eru áhorf
endur beðnir að taka vel undir
bæði í viðlögum álfasöngslaganna
og í fjöldasöngnum. Að lokum
verður svo flugeldasýning.
STÓR BÁLKÖSTUR
Bálkösturinn verður að þessu
sinni með þeim stærstu, sem hér
hafa sézt, og álfarnir dansa á
svæði, sem er upplýst með marg-
litum kastljósum.
BÚIÐ YKKUR VEL
Brýnt skal fyrir fólki, bæði
börnum og fullorðnum, að búa
sig vél.
Fylgdu lækni sínum
HAAG — Læknir var rekinn frá
sjúkrahúsi í Hollandi, en hann
virðist hafa verið óvenjuvinsæll,
því að yfir hundrað sjúklingar
fylgdu honum til sjúkrahússins, er
hann fékk starfa við. Af þeim voru
20 rúmliggjandi.
5menn létusl, en 142'
slösuðusl í bíla-
árekslrum s.l. ár
Á ÁRINU 1951 lentu 1850 bif-
reiðar í árekstri hér í Reykjavík
og nágrenni, sem rannsóknarlög-
reglan hafði afskipti af. 1 16 íil-
fellum var um þrjár bifreiðar að
ræða í sama árekstrinum. 40 bif-
reiðar lentu þrisvar í árekstri á
árinu, 14 fjórum sinnum, 2 fimm
sinnum, ein sjö sinnum og ein níu
sinnum.
A árinu slösuðust 142 menn
meira og minna og fimm af
þeim biðu bana, fjórir karl-
menn og ein kona. Karl-
mennirnir, sem slösuðust
voru 87 en konurnar 55. 24
bílstjórar, sem í árekstri
lentu, voru ölvaðir eða und-
ir áhrifum áfengis.
Valur Gíslason hyllt-
ur í Þjóðleikhúsinu
í gærkveldi
FRUMSÝNING Þjóðleikhússins á
„Anna Christie", eftir Eugene
O’Neill fór frarn í gærkveldi fyr-
ir fullu húsi. Var til þessarar sýn-
ingar efnt í tilefni þess að Valur
Valur Gíslason í hlutverki Chris
Christopherssons.
Gíslason átti þann dag 50 ára
afmæli og 25 ára leikafmæli.
Leikhúsgestir tóku leiknum for-
kunnarvel, en sérstaklega hylltu
þeir þó ákaft afmælisbarnið, sem
lék annað aðalhlutverk leiksins,
Chris Christophersson, skipherra.
Að leikslokum voru leikendur
kallaðir fram hvað eftir annað og
hyiltir af áhorfendum, og þá sér í
lagi Valur Gíslason.
Fluttu honum þar ávörp Guð-
laugur Rosinkranz, bjóðleikhús-
stjóri, formaður Þjóðleikhúsráðs,
Vilhjálmur Þ. Gíslason og Brynj-
ólfur Jóhannesson fyrir hönd Fél.
ísl. leikara. Afhentu þeir honum
fagrar blómakörfur og auk þess
afhenti Vilhj. Þ. Gíslason honum
fagran silfurbakka sem gjöf frá
Þjóðleikhúsinu.
Að því búnu tók Valur Gísla-
son sjálfur til máls, þakkaði þau
ávarpsorð, sem að honum hafði
verið beint og góða vináttu og
skilning, sem hann hefði notið frá
fyrstu tíð bæði af hendi starfs-
bræðra sinna og áhorfenda.
Var auðséð og auðheýrt, að allir,
sem voru viðstaddir kunnu að meta
að verðleikum hina miklu leik-
hæfileika Vals og hið merka starf,
sem hann hefir unnið í þágu ís-
lenzkrar leiklistar.
Eftir leiksýninguna var Valur
heiðursgestur Félags ísl. leikara
í hófi í Þjóðleikhúskjallaranum.
Hæslu vinningarnir
í Varðarhúss-
umboði
í GÆR var dregið í fyrsta flokki
Happdrættis Háskóla Islands, cn
í honum eru 550 vinningar, sam-
tals að upphæð kr. 252.500.
Hæsti vinningurinn 25.000 kr.,
kom upp á M-miða nr. 17795. Voru
þeir í umboði frú I’álínu Ármann
í Varðarhúsinu. — Næst hæsti
vinningurinn 10.000 kr., kom upp
á %-miða, einnig í Varðarhúss-
umboðinu, nr. 1083. — 5000 kr.
vinningur kom á %-miða í um-
boðinu í Stykkishólmi. I þessum
flokki hlaut síðasti miðinn sem
dreginn var út 5000 kr. auka-
vinníng. Hér var um %-miða að
ræða nr. 10652 og kom hann á 300
króna vinning. — Þessir miðar
voru í umboðinu hjá frú Pálínu
Ármann og hjá Helga Sívertsen í
Austurstræti. A bls. 7 cr vinninga-
skráin birt í heild.
Ráðizt að Farfuglaskála
og framiii þar spellvirki I
Allar hurðir broinar upp og snjó rutf inn í skálann j
ÞEGAR Guðmundur Bjarnason bóndi að Lögbergi kom að far*
fugiaskálanum Heiðarbóli síðdegis s.l. fimmtudag, var þar ófagurt
um að litast. Brotin hafði verið rúða í skálanum og allar dyr
brotnar upp og skildar eftir upp á gátt. Þá hafði og allmiklu a£
snjó verið rutt þangað inn. ,
Eldborgin náðistá
ilot í gær
IJNNIÐ hefir vcrið að því
undanfarna daga að ná Eld-
borginni scm rak á land í
Borgarncsi í óveðrinu 5. þm.,
aftur á flot.
Var það verk ýmsum erfið
lcikum bundið, en síðdegis í
gær tókst að ná skipinu á
flot. Stjórnaði Kristján Gísla
son, járnsmiður, því verki.
Skemmdir á Eldborginni
munu sáralitlar.
Raflækjum slolið
í fyrrinóll
I FYRRINÓTT var innbrots-
þjófnaður framinn í raftækja-
verzlunina Rafmagn h.f. að Vest-
urgötu 10. — Var þar stolið ein-
um borðlampa, einni ryksugu,
tveim vöflujárnum, einni brauð-
rist og tveim strokjárnum. Auk
þess var stolið milli 10—20 krón-
um x skiptimynt.
Xrabbameln algeng-
asta banameinið
í SlÐASTA Fréttabréfi um heil-
brigðismál er þess getið að krabba-
mein sé orðið algengast allra bana-
meina hér á landi. Árið 1949 dóu
140 manns hér á landi úr krabba-
meini. Er það svipað hlutfall og
hjá Noiðmönnum, en þar létuzt
af völdum krabbameins 137 manns
árið 1946. Á Spáni dóu 69 manns
árið 1947. Eru þessar tölur miðað-
ar við 100,000 manns.
Fasteignamatsfrum-
varpið úr sögunni á
þessu þingi
MIKLAR umræður hafa spunnizt
um frv. fjármálaráðherra um
endurskoðun fasteignamatsins, en
ef það yrði að lögum myndi það
hafa í för með sér stórhækkun
á opinberum gjöldum. í gær fór
fram atkvæðagreiðsla í neðri
deild um málið og kom fyrst til
atkvæða tillaga frá Jóhanni Haf-
stein um að vísa málinu frá með
rökstuddri dagskrá, þar sem ráð-
gert væri að heildarendurskoðun
skattalaganna færi fram á þessu
ári -og þá eðlilegt að taka afstöðu
til þessa máls samhliða þeirri
endurskoðun. — Þessari tillögu
greiddu atkvæði allir viðstaddir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins. — Framsóknar-
menn allir og kommúnistar voru
á móti og var tillagan felld með
16 atkv. gegn 17. Tillaga Áka
Jt kobssonar um að vísa frv. frá
var aftur á móti samþykkt með
12 atkvæðum gegn 11.
Er frv. þannig úr sögunni á
þessu þingi.
■' Meðai annars höfðu tvöfaldar
dyr, sem liggja út á svalir við
skálann, og negldar eru aftur að
vetrinum til, verið rifnar upp.
Húsgögn voru ekki brotin og
ekki skemmd að öðru leyti en
því, sem bleytan af snjónum
hafði orsakað.
i
NÝ FÖR í SNJÓNUM
Greinilegt virtist, að verknaður
þessi hafði verið framinn þá uirt
daginn, þar sem förin í sijónum
voru alveg ný. Ef þessa hefði
ekki orðið vart svo fljótt, sem
raun varð á, er ekki ósenniiegt,
að skálinn héfði stórskemmst í
ofviðrum þeim, sem verið hafa
undanfarna daga, en Guðmundur
bóndi að Lögbergi negldi allar
dyr aftur og kom þannig í veg
fyrir meira tjón.
/1
ÓSKILJANLEGUR ' j
VERKNAÐUR
Heimildarmaður blaðsins sagði
að grunur léKí á, áð unglingar,
sem vitað væri úbn að farið hefði
á skíði þenhan dag upp að Lög-
bergi, hefðu framið þennan óskilj
anlega verknað. Einnig mun fiug-
maður, sem flaug þarna yfir um
dsginn, hafa tekið eftir ungling-
um við skálann. En slík fram-
koma sem þessi er furðuleg, hver
sem í hlut á. ,
-------------------- I
Áhafnir ilugvélanna
bólusettar I
í FRÉTTABRÉFI um heilbrigðis-
mál er skýrt frá því, að hér á
landi hafi í fyrsta sinni verifi
bólusett við hinni ægilegu drep-
sótt: Gulu sóttinni, sem lækna-
vísindin hafa nú sigrazt á, en í
gamla daga stráfelldi þessi sótt
fólk þar sem hún kom upp.
Þeir sem hér hafa verið bólu-
settir fyrir þessum sjúkdómi er
starfsfólk Flugfélags Islands, því
að áhafnir flugvéla, sem eiga vott
á að fljúga um allar heimsálfuiv
eru öruggari um heilsu sína með
því að vera bólusetta við þessari
skæðu veiki. Bóluefnið kom flug-
leiðis á tveim dögum hingað frá
Ozwaldo Cruz-stofnuninni í Rio
de Janeiro. i