Morgunblaðið - 02.02.1952, Blaðsíða 1
16 síður
j' 39. á^gangor.
27. tbl. — Laugardagur 2. febrúar 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsin^ 1
Wtr,
FORSETI fSLANDS
SVEINIM BJÖRIMSSOIM
Gæfa þjóðar-
innar að
njófa hans
FORSETI ISLANDS Sveinn
Björnsson, varð nærri 71 árs.
Var fæddur 27. febrúar 1881, en
lézt aðfaranótt 25. janúar s.l.
Hann var mikill hamingjumað-
ur og- mun lengi verða minnst
sem eins af merkustu mönnum
okkar lands. Hann var sonur
stjórnmálaskörungfsins Björns
Jónssonar ritstjóra ísafoldar og
síðar ráðherra og konu hans Elísa-
betar Sveinsdóttur. Æskuheimili
sínu hefur Sveinn forseti sjálfur
lýst í minningargrein um móður
sína. Þar var reglusemi og fyrir-
myndarbragur á öllu. Þar voru
rædd þjóðmál af miklum áhuga.
Börnin drukku í sig ást og virð-
ingu fyrir sjálfstæði lands og þjóð-
ar. Sá holli skóli var þýðingar-
mikil gæfa fyrir hinn unga mann.
Og honum stóð opin leið að allri
þeirri menntun, er þá var bezt
hægt að fá í landi voru. Hann
tók stúdentspróf úr Latínuskólan-
um 19 ára gamall og lögfræðípróf
frá Hafnarháskóla sjö árum síðar.
Undirbúningur Sveins Björnsson-
ar undir hið mikilvæga lífsstarf,
var því góður. Það var hans fyrsta
gæfa. Hann tók líka brátt við
miklum vandastörfum í höfuðborg
Islands. 1 bæjarstjórn, sem al-
þingismaður og forystumaður í
mörgum félögum. Hann varð
fyrsti formaður í vinsælasta fé-
lagi landsins, Eimskipafélagi Is-
lands, og hann var málflutnings-
maður við landsyfirréttinn. Allt
þetta sýndi mikið traust, miklar
vinsældir, mikla gæfu.
Árið 1920 var hann svo skip-
aður sendiherra Islands í Dan-
mörku. Því starfi gegndi hann í
tuttugu ár. Árið 1941 var hann
kjörinn ríkisstjóri og 1944 forseti
Islands, sem hann var til dauða-
dags eins og kunnugt er.
Það má því segja, að þessi mað-
ur gengi jöfnum og stórum skref-
um upp stiga virðingar, trausts
og valda. Hann kvæntist góðri
konu og eignaðist álitlegan hóp
mannvænlegra barna.
Yið Islendingar getum nú
MINIMiNGARORÐ
5-' "
f dag fer fram útför Sveins Björnssonar forseta íslands. Öll hin íslenzka
þjóð minnizt gæfuríks starfs lians og mikilhæfrar forystu á örlaga-
ríkum tímum. Fyrir það flytur hún hinum látna þjóðhöfðingja sínum
einlægar þakkir. Um nafn Sveins Björnssonar mun um aldir leika liug-
þekkur bjarmi í hugum íslenzkra manna.
Morgunblaðið birtir hér minningarorð um hinn látna forseta frá
ýmsum mönnum er störfuðu með honum eða höfðu af honum persónu-
leg kynn]
með gleði minnst þess í
sorg 'vorri, við brottför þessa
okkar fyrsta innlenda þjóð-
höfðingja, að hann var gæfusam-
ur maður, sem þjóðin hafði gæfu
af að eiga og fá að njóta svo
lengi.
Það fór saman hjá honum
góð ætt, gott uppeldi, mikil mennt-
un, miklir hæfileikar og þeir mann
kostir, sem líklegastir eru til að
skapa vinsældir og traust. Má þar
til nefna stillt skaplyndi, alúð,
prúðmannlega framkomu og mikil
áhugamál. Allt fór þetta saman
og allt stuðlaði það að því, sém
varð, að maðurinn var talinn svo
sjálfsagður í æðsta embætti, sem
Island hefur nokkru sinni átt, að
hann varð sjálfkjörinn hvað eftir
annað. Það þýddi samstöðu allr-
ar þjóðarinnar, og var landi voru
og þjóðmálum mjög mikilsvert inn-
anlands og utan.
Alls þessa vegna blessar því
öll íslenzka þjóðin minningu
Sveins Björnssonar forseta. Það
gerir hún á útfarardegi hans í
dag, og það gerir hún vafalaust
um langan aldur.
Jón Pálmason.
Markaði
merkileg
spor á mesta
framfara-
skeiðinu
ENDA ÞÓTT menn gerðu sér
nýjar og betri vonir um heilsufar
forseta íslands eftir að hann,
nokkru fyrir áramótin, kom heim,
að afloknum uppskurði í London,
kom andlát hans þó tæplega þeim
á óvart, sem bezt þekktu til.
Þvert á móti höfðu þeir einmitt
all lengi óttazt um heilsu forset-
ans og kviðið því, sem nú er fram
komið.
En yfir allan þorra íslendinga
kom andlát forsetans sem mikil
og óvænt harmafregn.
í þessum fáu línum mun ég
Framh. 6 bls. 2