Morgunblaðið - 02.02.1952, Page 16
Yeðurúlli! í dag:
A-kaldi, víða skýjað.
27. tbl. — Laugardagur 2. febrúar 1952,
ERLENDAR
fréttir eru m, a. á bls. 9.
tJtíör íorseta íslands
fer fram í dag;-----------------
Rúmlega 40 far-
Hefst með húskveðju að þegar voru me5
I dag er mjólkur-
skammlurinn
hátfur lítri
Bessastöðum kl. 12.45
í DAG fer fram útför Sveins Björnssonar forseta íslands. Er gert
ráð fyrir því að öll vinna falli niður í dag um land allt eftir því,
sem komið verður við.
Útförin hefst með kveðjuathöfn í Alþingishúsinu kl. 2,15. Fyrr
vm daginn mun verða húskveðja að Bessastöðum, en þar verða
aðeins nánustu venzlamenn viðstaddir.
Úr Alþingishúsinu verður gengið í Dómkirkjuna. Að lokinni
athöfninni þar verður farið til kapellunnar í Fossvogi og lýkur
útförinni þar.
TILKYNNING
FORSÆTISRÁÐUNEYTISINS
Forsætisráðuneytið gaf í gær
út svohljóðandi fréttatilkynningu
um útför forsetans:
Eins og áður hefur verið aug-
lýst fer útför herra Sveins Björns
sonar, forseta, fram laugardaginn
2. febrúar n.k.
Húskveðja fer fram að Bessa-
stöðum kl. 12,45, en þangað fara
ekki áðrir en nánustu vanda- (
menn. Athöfnirini verður útvarp- .
að.
Kl. 2,15 hefst kveðjuathöfn í
Alþingishúsinu, að viðstaddri rík !
isstjórn, alþingismönnum og full-
' trúum erlendra ríkja.
Forsætisráðherra, Steingrímur
Steir.þórsson, og forseti samein-
aðs Alþingis, Jón Pálmason,
flytja kveðjuorð.
Karlakór Reykjavíkur syngur.
Síðan verður gengið í Dóm-
kirkjuna. Biskupinn, herra Sig-
urgeir Sigurðsson, fer með ritual
og flytur bæn. Ðómkirkjukórinn
undir stjórn dr. Páls ísólfssonar
og Karlakórinn Fóstbræður und-
ir stjórn Jóns Þórarinssonar,
syngja.
Frá Dómkirkju verður farið til
kapellunnar í Fossvogi og lýkur
athöfninni þar með þjóðsöngnum.
Allri athöfninni verður útvarp-
að og gjallarhornum komið fyrir
á þinghúsi, Dómkirkju og kap-
ellu. Ennfremur verða hátalarar
í Fríkirkjunni, svo að þar er hægt
að fylgjast með athöfninni.
Þegar líkfylgdin kemur frá
Bessastöðum mun hún fara um
MJÓLKUR og brauðsölubúðir
bæ.jarins verða opnar til kl. 12 á
hádegi í dag. 1 gær barst nokkru
meiri mjólk til Samsölunnar, svo
að ákveðið er, að mjólkurskammt-
urirrn verði í dag % lítri.
Auk þess sem mjólk barst úr
Árnessýslu, tókst í gær að ryðja
Kjalarnesið, Kjósina og Mosfells-
dalinn.
Gullfaxa
MeSal þeirra var
atvinnumálaráðherra
GULLFAXI sem var veðurteppt-
ur í Prestvík í tvo daga vegna
fannkomu hér, kom hingað til
Reykjavíkur um klukkan 2,30 í
gærdag og voru 44 farþegar með
flugvélinni.
Meðal farþeganna voru nokkrir
er tekið höfðu sér far með Pan
American flugvél, er var á . leið
til Bandaríkjanna og ótti að hafa
viðkomu í Keflavík, kvöldið sem
snjókoman var sem mest. — í
Prestvík stigu þessir farþegar af
flugvélinni, sem flaug vestur um
haf í fyrradag, án viðkomu hér.
Tóku farþegar þessir sér far með
Gullfaxa er beið þar heppilegs
flugveðurs. Meðal þeirra var
Ólafur Thors atvinnumálaráð-
herra, er verið hefur í erindum
ríkisstjórnarinnar í Bretlandi. —
Ennfremur Kjartan Thors fram-
kvæmdastjóri og Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri, er sátu ráðstefnu
þá er brezka stjórnin boðaði til
um fisklandanir þar í landi.
Erfiðlega gekk að opna
leiðirnar ■ nágrenni bæj-
arins vegna snjóþyngdar
Mjólkurbílarnir brjótast Krýsuvíkurleiðina
HELDUR erfiðlega gekk að opna vegi í nágrenni bæjarins í gær
vegna hins mikla fannkyngis. Allt var þó gert af hálfu vegagerð-
arinnar, sem hægt var til þess að ryðja vegina. í gær opnaðist
leiðin til Sandgerðis og Grindavíkur og vegurinn upp á Kjalarnes.
1 gærdag var Mosfellssveitar-
vegurinn ruddur að Brúarlandi og
Hringbraut, Sóleyjargötu, Frí-' haldið þaðan upp á Kjalarnes.
kirkjuveg, Lækjargötu, Austur-! Stóðu vonir til að vegurinn yrði
stræti, Aðalstræti og Kirkju- orðinn fær að Hálsi í Kjós seint
stræti að Alþingishúsinu. | í gærkveldi.
Isfisksalan i s.L viku
nora 3,4 milljónir kr.
í VIKUNNI sem leið seldu átta íslenzkir togarar ísvarinn fisk í
Bretlandi. Nam aflasala þeirra alls um 3,4 millj. kr., en togararnir
voru með um 2500 til rúmlega 3500 kit. — Hæsta sala nam 11,843
sterlingspundum, en lægsta sala 7722 pundurri.
Reitingsafli hefur verið hjá
togurunum undanfarna daga og
eru margir nú um það bil að
Ijúka veiðiför, en aðrir eru á út-
leið. — Munu 12 togarar selja í
næstu viku í Bretlandi.
SIÐUSTU SOLUR
TOGARANNA
Togararnir, sem selt hafa und-
anfarið eru: Röðull, sem var með
2517 kit og séldi fyrir 9406 pund,
Kaídbakur 3463 kit fyrir 11.843,
Pétur Halldórsson 2825 kit fyrir
8486 pund, Goðanes 3380 kit fyrir
9125 pund, Elliðaey 2824 kit fyrir
7722 pund, Fylkir 3579 kit fyrir
10201 pund. Bjarnarey 3110 kit
fyrir 8721 pund og Sólborg 3175
Jti: fyrir 9534 pund.
Eins og fyrr segir, er búizt við
að 12 togarar selji í Bretlandi í
næstu viku og er það óvenjulega
msrgir, á ekki lengri tíma. Þess-
ir togarar selja þá: Úranus, Sur-
prise, Keflvíkingur, Svalbakur,
Jón Baldvinsson, Jón forseti,
Júní, Geir, Neptúnus, Hafliði,
Ólafur Jóhannsson og Elliði.
SEX VEIÐA FYRIR
INNANLANDSMARKAÐINN
Nú eru sex togarar á veiðum
fyrir innanlandsmarkaðinn, það
eru Reykjavíkurtogararnir Þor-
steinn Ingólfsson, Skúli Magnús-
son, Akurey fyrir Akranes. ís-
borg, sem leggur upp á ísafirði,
Austfirðingur og Bjarni riddari,
sem kom til Hafnarfjarðar í gær
úr veiðiför.
MJÓLKURBÍLAR
Mjólkurbílarnir, sem lögðu af
stað frá Selfossi kl. 9,30 í fyrra-
morgun komu til Reykjavíkur um
kl. 4 um nóttina eftir nær 17 tíma
erfiða ferð. Þeir lögðu aftur ^.f
stað austur kl. 12,30 í gær og
voru um sex-leytið komnir suður
að Kleifarvatni, en færðin með-
fram vatninu að Krýsuvík er mjög
erfið. Bílarnir að austan voru þá
komnir að Krýsuvík, en þangað
er tiltölulega greiðfært frá Sel-
fossi.
ERFIÐ FÆRÐ AUSTAN
FJALLS
Færðin var erfið í Flóanum í
gær. Hafði skafið þar talsvert og
ekki aðstæður til að hefja mokst-
ur. Þurftu stórir bílar með drifi
á öllum hjólum að fara á undan
mjólkurbílunum þar. Bílar kom-
ust upp í Hreppa, en Holtin voru
alveg ófær.
Herðubreið beið
veðurs á Pafreks-
PATREICSFJÖRÐUR — 1 dag kl.
3,30 lagði Þór af stað héðan í
fylgd með strandferðaskipinu
Herðubrauð, sem kenndi grunn á
Skagaströnd, sem kunnugt er, og
er á leið til Reykjavíkur til við-
gerðar. Hér hefur skipið legið
vegna veðurs í hálfan þriðja sól-
arhring. —G.
Á FORSETÁSETRINU
Á Bessastöðum blaktir forsetafáninn í hálfri stöng.
Stórviðri veldur miklum
skemmdum á Siglufirði
M.a. fauk hlufi af þaki Tunnuverksmiðju ríkisins
n
SIGLUFIRÐI, 1. febrúar. — Eitt af mestu veðrum, sem hér koma,
geisaði síðustu nótt af norð-austri með skúrum. Skemmdir urðu
allmiklar hér í kaupstaðnum.
Þök fuku af húsum og gluggar brotnuðu. Þak tók af hluta
af tunnuverksmiðju ríkisins, m.s. Sigurður slitnaði frá
bryggju og rak inn í fjöru utan svonefndrar Ásgeirsbryggju.
Hann náðist aftur út á flóðinu óskemmdur.
□-
-□
kemur ekki út á morgun,
sunnudag, þar sem vinna fell-
ur niður við blaðið í dag vegna
útfarar forseta íslands.
Næsta blað kemur út þriðju
daginn 5. febrúar.
□-
-□
Hákon Noregskon-
ungur og Olav krón-
prins viðsfaddir
MINNINGARGUÐSÞJÓNUSTA
um forseta Islands verður haldin
í Akershus Slottskirke laugardag-
inn 2. febrúar kl. 2 síðdegis, og
verður Hákon Noregskonungur og
Olav krónþrins viðstaddir athöfn-
ina. Messuna flytur J. Smemo
biskup í Osló. Guðmundur Jóns-
son syngur einsöng með aðstoð
Arold Sandvold, organleikara
kirkjunnar.
Ríkisstjórn Noregs hefir fyrir-
skipað að flaggað skuli um land
allt á opinberum byggingum og í
flotanum.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
^ Fjölda margir urðu fyrir til-
finnanlegu tjóni af völdum þessa;
fárviðris.
Þurrkgrindur við nótarhjalla,
sem standa inni í firði, fuku með
öllu.
Rafmagnslaust var í ýmsumi
bæjarhlutum I nótt vegna bilun-
ar á innanbæjarkerfi. Símasam-
bandslaust var út úr bænum vegna
bilunar.
Harðast mun veðrið hafa verið.
um og eftir miðnætti. Þari og
annað rusl frá sjónum er suður,
um alla Eyri.
í dag er norð-austan stormur
og bleytuliríð. —Guðjón. {
Auðugur betlari.
RÓMABORG — ítalskur betlari,
sem lézt á sjúkrahúsi í Túrin fyr-,
ir skömmu, reyndist eiga sem
svarar 1.600 sterlingspundum £
banka og húseignir metnar á 7
þús. stp.
TÍLKYNNING
um umferðarsföðvun
á Reykjanesbraut
LEIÐIN frá Miklatorgi í
Reykjavík um Reykjanes-
braut og Álftanesveg að
Bessastöðum verður lokuð
fyrir umferð ökutækja laug-
ardaginn 2. febrúar frá
kl. 13.15 til kl. 14.00.
Lögreglustjörinn
í Reykjavík.
Sýslumaðurinn í
Gullbringu- og Kjósarsýslu.