Morgunblaðið - 13.02.1952, Qupperneq 1
39. árgangur.
35. tbl. — Miðvikudagur 13. febrúar 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
STJORIM ALIS MAHERS
'iTALIN VÖLT í STSSI
Bretar fundu vopn á Súez-eiði í gær
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB
KAÍRÓ 12. febr. — Forsætisráðherra Egyptalands kallaði stjórn
sína saman til fundar í dag mjög óvænt. Að loknum fundi gaf
h;:nn í skyn að svo gæti farið að þing yrði rofið, þar sem flokkur
Náhas Pasha, Wafd-flokkurinn, hefur meirihluta. Kunnugir menn
telja í Kaíró, að komið hafi til ósamkomulags meðal stuðnings-
minna hinnar nýju stjórnar, sem tók við völdum fyrir atbeina
Farúks konungs.
Lautílæphaldi
BRÚSSEL, 12. febr. — Fulltrúa-
deild belgiska þingsins beið lægra
hlut í atkvæðagreiðslu, sem fram
fór í dag um ályktunartillögu,
þar sem Baidvin konungur og
stjórn van Houttes voru gagn-
rýnd íyrir þá ákvörðun konungs-
ins að verða ekki sjálfur við-
staddur útför Georgs VI. Breta-
konungs, heldur senda Albert
prins í sinn stað.
NAUÐSYN GÓÐRAR <
S. IMVINNU
Ali Maher sagði að loknum
fundi, að rætt hefði verið almennt
um aðsteðjandi vandmál. Þegar
óvenjulegt ástand ríkti væru ó-
venjulegir fundir bein afleiðing
þess. Lagði hann áherzlu á nauð-
syn þess að gott samkomulag
væri með stjórninni og þinginu.
GÁLGAFRESTUR
Utanríkisráðherrann í stjórn
Nahas Pasha, sem talinn er
„sterkur maður" í flokknum,
sagði í öag, að Wafd-flokkur-
inn mundi styðja stjórnina
a.m.k. unz séð verður hvernig
forsætisráðherrann hyggst
taka á málum gagnvart Eng-
lendingum.
Amr Pasha, sem verður full-
trúi Farúks við útför Georgs VI.
mun gagna.á fund Edens, utan-
ríkisráðherra í Lundúnum og er
talið að utanríkisráðuneytið þar
sé mjög hlynt óformlegum við-
ræðum um Súez-málið.
VOPNALEIT
A Súez-eiði gerðu brezkar her-
sveitir vopnaleit í þorpi einu með
þeim árangri að 23 heimagerðar
sprengjur fundust í húsi einu.
Nokkrir menn voru handteknir.
Frá Port Said berast þær fregnir,
að egypzkir verkamenn séu nú
smám saman að hverfa til vinnu
sinnar á ný.
Bretar hafa enn látið lausa 12
hjálparlögreglumenn og 38 ó-
breytta borgara, sem handteknir
voru i átökunum á dögunum.
Gegn kynþáttahatri.
LUNDÚNUM — Nýlega var
stofnaður í Lundúnum félags-
skapur til að berjast gegn kyn-
þáttafordómum. Stofnandi var 77
ára gömul systir Attlees fyrr-
verandi forsætisráðherra.
Svisslendingar
aðvara flugu-
menn kom-
múnista
ÞESS hefur orðið vart í Sviss,
að leppríki Rússa hafi í vax-
andi mæli notað landið, sem
eins konar bækistöð fyrir
njósnabrölt og moldvörpustarf
semi kommúnista í Vestur-
Evrópu. Svissneska stjórnin
hefur í tilefni af þessu nýver-
ið snúið sér til viðkomandi
aðila og bent á, að mannrán
og aðrar villimannlegar að-
farir í sambandi við njósna-
starfsemi þessara ríkja verði
ekki þolaðar í landinu fram-
vegis.
Hefur svissneska stjórnin
liótað að gera landrækan
fjölda starfsmanna við sendi-
ráð leppríkjanna og nákvæmu
eftirliti með bankainnistæð-
um þeirra.
Verkfall kommúnista fór j
algerlega út um þúfiir 1
W
Bardagar við Renault-verksmiðjurnar
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB
PARÍS 12. febniar. — Verkalýðssamband kommúnista boðaði í dað
til sólarhrings allsherjarverkfalls í Frakklandi, til að mótmæla
þeirri ákvörðun dómsmálaráðuneytisins, að banna allar hópgöngur
og útifundi, sem halda átti til minningar um Parísaruppþotið 12.
febrúar 1934. Verkfallsboð kommúnista fékk litlar undirtektin
verkamanna, en á einum stað kom til blóðugra átaka milli komm*
únista og lögreglumanna.
Moch vi!l frest
PARÍS, 12. febr. — Umræðum
var haldið áfram í franska þing-
inu í dag um Schuman-áætlunina
og Evrópuhérinn. Jules Moch, fyrr
verandi landvarnaráðherra, sem er
fulltrúi Frakka í afvopnunarnefnd
inni, fór þess á leit að frestað
yrði öllum ákvörðunum um Evrópu
herinn til 1. júní, til þess að af-
vopnunarnefnd S. Þ. fengi tæki-
færi til að hefja starf sitt í þágu
friðar og afvopnunar áður en slík
vígbúnaðarsamþykkt yrði gerð. —
Faure forsætisráðherra og Bid-
ault landvarnaráðherra taka til
máls áður en til atkvæðagreiðslu
kemur. -—Reuter-NTB.
JEAN VAN HOUTTE
forsætisráðherra Belgíu
Við atkvæðagreiðslu um íillög-
una sameinuðust vinstri flokk-
arnir og frjálslyndir gegn stjórn-
inni með þeim afleiðingum, að til-
lagan var samþykkt með 91 atkv.
gegn 84. Telja jafnaðarmenn,
sem jafnan hafa verið andstæð-
ingar Leópolds, fyrrum konungs,
að ákvörðun Baldvins sé runnin
undan rifjum hans.
Að lokinni atkvæðagreiðslu
kvaddi forsætisráðherrann sér
hljóðs og sagði, að ekki gæti
verið um að ræða, að Baldvin
konungur færi til Lundúna,
þar sem honum hefði aldrei
verið boðið þangað í opinbera
heimsókn. Kvað hann sam-
þykkt þessarar tillögu ekki
þurfa að fela í sér vantraust á
stjórnina og mundi hann því
ekki biðjast lausnar.
I mótmælaskyni við þá skoðun
forsætisráðherrans gengu stjórn-
arandstæðingar af fundi.
— Reuter-NTB.
Tugir þúsunda
kvöddu konunginn
LUNDÚNUM 12. febrúar. — Yfir
50 þúsund manns gengu fram hjá
líki Georgs VI. Bretakonungs í
dag, þar sem það liggur í West-
minster Hall.
Á tímabili var sexföld biðröð
næstum kílómeter að lengd fyrir
utan.
9000 hermenn standa heiðurs-
vörð á götum Lundúnaborgar á
! föstudag, þegar lík konungs verð-
ur flutt til járnbrautarstöðvar-
innar. Um leið og líkfylgdin
leggur af stað frá Westminster
Hall mun Big Ben klukkan byrja
að slá með mínútu millibili 56
högg til minningar um konung-
inn.
I Tilkynnt hefur verið í Lund-
únum að öll flugumferð verði
stöðvuð innan vissra takmarka
yfir borginni meðan líkfylgdin
fer um göturnar. — Reuter-NTB.
Víðfækt eiturlyfjasmygl
í Bandaríkjunum
NÝLEGA komst upp um eitt
btórfelldasta eiturlyfjasmygl í
sögu San Fransiskó-borgar. —
Veittu tollverðir því athygli að
mikið barst af gömlum tíma-
ritum frá Hong Kong til manns
að nafni John R. Brown. Þótti
þeim þetta grunsamlegt og við
rannsókn kom í ljós að inni í
hverju hefti hafði verið skorið
út holrúm og komið fyrir
heróín-hylkjum. Tóku tollverð-
ir í sina vörzlu yfir 500.000
'daia virði af eiturlyfinu, og er
það verðmætasti smyglvarning-
ur sem um getur í sögu borg-
arinnar. 1 því skyni að hafa
hendur í hári smyglaranna voru
timaritin afhent viðtakanda,
sem þegar var handtekinn, er
hann veitti þeim viðtöku. Þeg-
ar til kom reyndist Bröwn að-
eins vera milliliður og gat
hann litlar upplýsingar veitt
aðrar en þær, að óþekktur aðili
hefði greitt honum 100 dali fyr-
ir hverja sendingu sem hann
kom áleiðis. Sagði hann að
smyglstarfsemi þessi hefði ver-
ið rekin með árangri undan-
farna mánuði. — Eiturlyfja-
neyzla unglinga er eitt alvarleg
asta vandamálið, sem heil-
brigðisyfirvöld eiga nú við að
etja í Bandaríkjunum. Heróín
er talið eitt hættulegasta eitur-
lyfið.
Nehru mælir
gegn ofbeldi
NÝJU DELHI, 12.* febr. —
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, sagði í dag, að Indverjar
mundu aldrei grína til þess óynd-
isúrræðis, að knýja fram lausn í
Kasmírdeilunni með vopnavaldi.
Tilefni þessara ummæla var sú
skoðun, sem fram hafði komið
frá einum fyrrverandi ráðherra,
að tímabært væri að beita nvium
aðferðum til að frelsa þann hluta
Kasmírs, sem nú er á valdi Pak-
istans. Við höfum lafft Kasmír-
deiluna fvrir Öryggisráðið og við
virðum bá grundvallarreglu, að
Sameinuðu þióðirnar eigi að
ráða slíkum málum t'l Jykta. —
Enda þótt þeir atburðir gerðust
á vettvangi S.Þ.. sem eklri væru
Indverium að skaDÍ, mundi s’íkt
engin áhrif hafa á þessa skoðuu
okkar. sagði Nehru. Hann lagði
áherzlu á, að íbúar þeirra lands-
svæða, sem Pakistan hefði sölsað
undir sig ættu sjálfir að taka á-
kvörðun um framtíð lands síns.
— Reuter-NTB.
100 kommúnisfar ?éilu
PANMUNJOM 12. febr. — Kyrrð
in sem ríkt hefur á vígstöðvun-
um að undanförnu var í dag rof-
in, er kommúnistar gerðu skyndi-
áhlaup af talsverðri hörku. 8.
herinn hefur tilkynnt, að 100
kommúnistar hafi fallið í viður-
eigninni og fjölmargir særzt.
) Við samningaborðið hafa komm
únistar boðað nýjar tillögur um
I verkefni væntanlegrar ráðstefnu
stjórnmálamanna, sem ráða á
Kóreum|lunum til friðsamlegra j
VIÐ RENAULT-
VERKSMIÐJURNAR
Kommúnistar bjuggu um sig
í dag viff Renault-verksmiffj-
urnar og höfffu viffaff aff sér
grjóti og járnarusli, til að
beita, ef til átaka kæmi. —
Þegar lögreglan kom á vett-
vang létu þeir dynja á hennl
járnbúta og hnullunga, meff
þeim afleiðingum að fjöldi lög
reglumanna hlaut áverka. —■
Síóð bardaginn í margar
klukkustundir áður en ró
komst á, en þá höfðu 12 lög-
regluþjónar særzt alvarlega og
40 hlotiff minni háttar meiffsl.
A sjötta hundrað lögreglu-
þjóna tók þátt í bardögun-
um. Rúmlega 50 menn voru
handteknir.
FÓR ÚT UM ÞÚFUR
Segja má að verkfall kommún-
ista hafi algerlega farið út um
þúfur og mættu flestir verka-
ménn til vinnu sinnar eins og
ekkert hefði i skorizt, enda var
athafnalíf að heita má með eðli-
legum hætti í Frakklandi.
Verkalýðssambönd .iafnaðar-
marnia oe kaþólskra tóku ekki
þátt í verkfallsboðinu og lýstu sig
andvíg því þegar í byrjun.
lykta.
Reuter-NTB.
Útflutningur Breia
LUNDÚNUM, 12. febr. — Úí-
flutningur Breta nam í s. 1. mán-
uði 250.000.000 sterlingspunda, og
er það 6% meira en meðal mán-
aðarútflutningur á árinu sem
leið.
Innflutningur nam 340 milljóti
sterlingspunda.
Reyndisf ekki vera Bormann
Þýzkur nýnazisti þóttist fyrir skömmu hafa hitt Martin Bormann
í Fransiskus-klaustri í Rómaborg og tekið af honum mvnd þá, ei?
hér birtist (t. h.). Talsmaður munkareglunnar vísaði þó algerlega
a bug þeirri staðhæfingu, að þetta væri Bormann. Myndin til
vinstri sýnir Bormann á velgengnisárum hans í Þýzkalandi þegar
hann var staðgengill Hitlers. Bormann var dæmdur til dauða —«
in absentia — í stríðsglæparéttarhöldunum í Nilrhberg. j
\