Morgunblaðið - 26.02.1952, Blaðsíða 6
6
M a'RGU N É LAÐ 1 Ð
ÞHðjudagur 26. febrúar 1952
* ©
í Þ ROTTI
© © ©
sMnpmir skutrs ntörpi fræg
KÚ að VI. Vetrarólympíuleikun- Iþakklæti skilið. í næsta skipti
um loknum, þar sem meðal geíum við krafizt meira af þeim.
fræknustu skíðamanna heims,
komu fram 11 íslenzkir skíða-
rnenn, er ekki úr vegi að líta
yfir getu þeirra.
GÖNGUMENNIRNIR
Sem kunnugt er, kepptu fjórir
íslendingar í 18 km göngu. Gunn-
ar Pétursson var nr. 32, Ebenezer
Þórarinsson nr. 40, Jón Kristjáns-
eon 45. og Oddur Pétursson 55.
Norska blaðið „Sportsmanden“
birtir tíma á 75 þátttakendum í
göngunni. Meðal keppendanna
voru 4 menn frá hverri Norður-
landaþjóð, nema Dönum.
18 KM GANGAN
Okkur ber að gefa því gauifi,
að Svíarnir L. Efverström og
Erik Elmseter urðu nr. 58 og 56
eða á eftir öllum fslendingunum.
Þýzku þátttakendurnir fjórir
urðu nr. 54, 59, 64 og 65. Og af
öllum þeim mörgu, sem urðu að
láta í minni pokann fyrir íslend-
ingunum, má nefna skíðamenn
frá Austurríki, Kanada, Banda-
ríkjunum, Japan, Rúmeníu og
Ástralíu. En geta íslendinganna
gagnvart þeim sænsku er þó at-
hyglisverðust.
50 KM GANGAN
í boðgöngunni urðu íslending-
arnir aftarlega nr. 11 af 13 er
gönguna hófu. (Voru á undan
Bandaríkjamönnum). í 50 km
göngunni reyndust þeir og eftir-
bátar annarra þjóða, voru í 29.
30. og 33. sæti, en 36 skíðamenn
hófu gönguna. Skylt er að taka
fram, að þetta er í fyrsta sinn,
sem íslenzkir göngumenn keppa
á erlendum vettvangi og þeir
koma til Noregs og keppa á
stærsta vetraríþróttamóti, sem
nokkru sinni hefur verið haldið.
SKÍÐASTÖKK
í skíðastökki keppti einn ís-
lendingur. Varð hann 35. af 44
þátttakendum. Þetta mun vera í
þriðja sinni, sem Ari Guðmunds-
son keppir í Holmenkollen-braut-
inni.
RRUN
í bruni karla kepptu fjórir ís-
lendingar. Haukur Sigurðsson
varð 49. á 3:06.0 mín., Stefán
Kristjánsson 50. á 3:06.1 mín.,
Ásgeir Eyjólfsson 52. á 308.3 mín.
og Jón Karl 54. á 3:10.1 mín. —
Tími sigurvegarans varð 2:30.8
mín. 72 keppendur luku keppn-
inni. Brautin var 2435 m með 300
m fallhæð. íslendingarnir duttu
allir nema Haukur. — Kom það
greinilega í ljós að þá vantar til-
finnanlega æfingu í brum. I
STÓRSVIG
í stórsvigi varð HauKur fyrst-
ur íslendinganna, nr. 51 á 2:57.0
rsæstur á eftir sænska meistar-
anum Jon Fridriksen. Jón Karl
var 57. á 3:01.5 mín. Ásgeir 63.
á 3:06.4 mín. og Stefán 68. á
3:12.5 mín. — Ásgeir datt tvisvar,
en hinir íslendingarnir stóðu. —
Keppendur voru 82.
SVIG
í svigi karla stóð Ásgeir sig
bezt, og sá eini ísiendinganna,
sem getið hefur verið um. Varð
hann 28. í röðinni og má geta
þess að austurríkismaðurinn
Pravda, sem varð 3. í bruninu og
2. í stórsviginu, varð næst^fc á
eftir Ásgeiri. .
Það er því -gpgaÁ veginn hægt
að ^þgéa,' að íslendingarnir hafi
farið erindisleysu til Osloar. Það
er ekki hægt að keppa á stærra
móti eða finna sterkari keppi-
pauta. — íslenzku piltarnir eiga
Norðmaðurinn Hjalmar Ander-
sen vann þrenn gullverðlaun.
ðjörti Baldursson
varð skautameislari
Akureyrar
AKUREYRI, 25. febrúar. —
Skautamót Akureyrar 1952 fór
fram á flæðunum sunnan við
Akureyri 23. og 24. þ. m. Urðu
úrslit í mótinu sem hér segir:
300 m hlaup drengja (innan 14
ára): 1. Gylfi Kristjánsson 53,2
sek., 2. Kristján Árnason 56.2
sek. og 3. Sigfús Erlingsson 57.1
sek.
500 m hlaup kvenna: — 1. Edda
Indriðadóttir 79,3 sek., 2. Hólm-
fríður Ólafsdóttir 87,4 sek.
500 m hlaup drengja (14—16
ára): — 1. Guðlaugur Baldursson
59,0 sek., 2. Ingólfur Ármannsson
76,5 sek.
500 m hlaup karla: — i. Þor-
valdur Snæbjörnsson 51,8 sek., 2.
Hjalti Þorsteinsson 52,3 sek. og 3.
Björn Baldursson 55,7 sek.
1500 m hlaup kvenna: — 1.
Edda Indriðadóttir 4.24,9 mín.,
2. Hólmfríður Ólafsdóttir 4.47,2
mín.
1500 m hlaup drengja (14—16
ára): — 1. Guðlaugur Baldurs-
son 3.48,9 mín. og 2. Ingólfur
Ármannsson 4.00,0 mín.
1500 m. hlaup karla: — 1. Þor-
valdur Snæbjörnsson 3.37,6 mín.,
2. Björn Baldursson 3.40,6 mín.
og 3. Hjalti Þorsteinsson 3.47,6
mín.
3000 m hlaup kvenna: — 1.
Edda Indriðadóttir 7.34,5 mín.,
(ísl. met).
I 3000 m hlaup drengja (14—16
ára): — 1. Guðlaugur Baldursson
___________Framh. á bls. 12.
Norcgur híaut itesi
stigá
unum
NORÐMENN urðu sigursæl-
astir á Vetrar-Ólympíuleikun-
um, sem lauk s.l. sunnudag.
Sex efstu löndin urðu:
1. Noregur . . . .. . 104,5
2. U. S. A. . . . . . 77,5
3. Finnland ... 63
4. Austurríki ... 54
5. Þýzkáland ... 41,5
6. Svíþjóð ... 29
Enska knattspyrnan
YFIRLEITT fóru leikar í 3. um-
ferð bikarkeppninnar ensku eins
og fvrir hafði verið spáð, 3. deild-
arliðin féllu út, og þau liðin, sem
[ mestar líkur eru taldar á að sigri
að lokum. komust, erfið'eikalaust
í gegn. Sigur Blackburns yfir
West Brimwich kom ekki á óvart
eftir frammistöðu liðsins í líg-
unni og bikarkeppninni síðustu
13 vikurnar.
Um 280 þús. sáu þessa 8 leiki,
en svo vildi til, að þau lið, sem
hafa stærri vellina, urðu að leika
■ að heiman, en þau ráða yfír völl-
um með helmingi stærri áhorf-
endasvæðum en heimaliðin. Arse
| nal bauð Leyton að leika á High-
bury en 3. deildarliðið kaus að
leika heima fyrir 33.000 áhorf-
endum. A.rsenal tryggði sér sig-
urinn strax í fyrri hálfleik með
2 mörkum og bætti því 3. við
í síðari hálfleik, er Leyton varð
, það á að missa knöttinn fyrir
,fætur innherja Arsenal, sem
!skoraði. Annars lét Arsenal sér
nægja að leika með hálfum hraða
og bíða eftir að blásið yrði af.
Southend hafði töluverða yfir-
burði yfir Sheffield United, sem
vegna smáleiks og hörku og ó-
vægni andstæðinganna fékk
aldrei í fyrri hálfleik tíma til
að ná tökum á leiknum. í hléi
var bersýnilega ákveðið að
breyta til og nota langar send-
ingar og árangurinn var ekki
lengi að koma í ljós, strax á 1.
mín., tókst h.úth. að jafna mark
Southends frá 27. mín., og stund-
arfjórðungi síðar tryggði Sheffi-
eld Utd sér sæti í 6. umf. Leik-
urinn var sérstaklega skemmti-
legur og tvísýnn frá fyrsta til
hlns síðasta, mörkin voru sífellt
í hættu, upphlaupin gengu á
víxl og á síðustu mín. skall hurð
nærri hælum hjá báðum, er mark
verðirnir björguðu hver um sig
mjög vel.
Aðeins eitt mark var skorað í
leik Swansea og Newcastle, gerði
það v.úth. Newcastle eftir 40
mín., eftir látlausa sókn Swan-
sea, sem fékk tækifæri eftir tæki
færi en mistókst alltaf, og það
sama endurtók sig eftir hlé, en
allt kom fyrir ekki. Flest upp-
hlaupin brotnuðu á vörn New-
castle, miðfrv. Brennan og mark-
v. Simpson, sem lék í brezka lið-
inu á Olympíuleikunum 1948.
Portsmouth skoraði hjá Don-
caster strax eftir % mín., og
hafði allan leikinn öll tök á
leiknum, sem endaði með 4—0.
í siðari hálfleik færðist mikil
harka í leikinn og varð dómar-
,inn að vísa fyrirliða Doncaster
jút fyrir háskaleik.
Leikur Barnleys gegn Liver-
pool var einnig allharður á köfl-
jum, en einnig skemmtilegur og
l.vel leikinn. Barnley skoraði á 2.
Imín. en á næstu 7 mín. tókst
[markverði þess nauðulega að
,bjarga 3 þrumuskotum frá h.úth.
Liverpool. Liverpool var án 2
j landsliðsframvarða sinna en
jhafði þó í fullu tré við Burnleý
júti á vellinum, þrándur í götu
j upphlaupanna var miðframvörð-
!ur Burnleys, sem „domineraði“
á miðjum vallarhelmingi lieima-
liðsins. Burney bætti öðru við
um miðjan síðari hálfleikinn.
Swindon skoraði á 3. mín. hjá
Luton og hugðist halda því með
að verja markið með öllu liði
sínu, en á 44. mín. tókst Luton
að koma marki og bætti síðan
2 við eftir hlé.
Eini jafnteflisleikurinn var
milli Leeds og Chelsea og þótti
hann með fádæmum lélegur. Lið-
in skoruðu sitt hvort markið eft-
ir um 35 mín. en verða að leika
að nýju á miðvikudag.
í I. deild sigraði Tottenham
Preston 1—0 og Sunderland sigr-
aði 0—3.
í IT. deild sigraði Coventry
Rotherham 0—1 og Southamp-
íon Leicester 2—0.
Norðmaðurinn Hallgeir Brenden, sem vann 18 km gönguna.
IMorðmenin hrepptu gull-
io og siltrið i stokkmu
Ari Ouðmundsson vítrð 35.
HUNDRAÐ og fimmtíu þúsund áhorfendur höfðu safnazt saman
við Holmenkollenstökkbrautina kl. 1.30 eftir hádegi á sunnudaginn.
Hátíðabragur var yfir öllu og konungurinn, sem nýkominn er heim
frá London, var hylltur með níföldu húrrahrópi eftir að honum
hafði verið heilsað með hinum venjulega konungssöng. í fylgd
með konungi voru Olaf ríkiserfingi, Harald prins og Ragnhild
prinsessa.
SÍÐARI UMFERÐ
RÉÐI ÚRSLITUM
Um gullið varð hörð barátta
milli Norðmannanna Arnfinn
Bergmanns og Thorbjörn Falk-
angers. Eftir fyrri umferðina
hafði Falkanger forystuna, en
báðir stukku þeir jafnlangt —
68 m. í síðari umferð tókst Arn-
finn að tryggja sér sigurinn með
jafnlöngu stökki, en Thorbjörn
náði hins vegar ekki eins löngu
stöJvki og í fyrri umferð.
ÚRSLITIN
Einn af beztu stökkmönnum
Þýzkalands féll í síðari umferð
og eyðilagði með því sína mögu-
leika til verðlauna. Á sömu leið
fór einnig fyrir hinum fræga
austurríska stökkmanni Josef
Bradel.
Helztu úrslit urðu þessi:
1. Arnfinn Bergmann, Noregi,
226 stig.
Finninn Veikki Kakulinen vann
50 km gönguna.
j 2. Thorbjörn Falkangen, Noregi,
I- 221V2 stig.
3. Karl Hallström, Svíþjcð,
219% stig.
4. Halvor Næs, Noregi.
5. Brotscher, Þýzkalandi, 216%
stig.
6. Arne Hoel, Noregi, 215 stig.
Síðan komu stökkmenn frá
þessum þjóðum: Finnlandi, Þýzka
landi, Finnalndi, Þýzkalandi, Sví
þjóð og í 12 sæti voru stökkmenn
frá Bandaríkj unum og Finnlandi.
Ari Guðmundsson frá Siglu
firði var eini íslenzki þátttak-
andinn í stökkkeppninni. —
, \ arð hann 35. í röðinni, en
1 keppendur voru alls 44 frá 13
j þjóðum.
GEKK FLJÓTT OG VEL
Dómarar voru fimm talsins.
Lægsta og hæsta stíleinkunirnar
voru ekki teknar með. Fram-
kvæmdin gekk mjög vel og voru
stig hvcrs keppanda tilkynnt jafn
óðum í útvarpí. Fyrri umferðinni
lauk á 25 mínútum og sú síðari
tók svipaðan tíma.
Það er varla nokkrum vafa
undiromið að þetta er einhver
mesta íþróttahátíð, sem fram hef-
ur farið nokkru rinni.
PYRJAÐI ÞEIGGJA ÁEA
Á SKÍRUM
| Arnfinn Bergmann er 23 ára
að aldri. Plann sigraði í unglinga-
| flokki á Holmenkallen-mótinu
11948 og hefur á s.l. ári unnið
jfjölda sigra. Að sjálfsögðu varð
jhann að koma að hljóðnemanum
I að keppninni lokinni og þar sagð-
j ist honum svo f rá að hann hefði
komið heim til Noregs frá Kan-
ada til þess að taka þátt í úrtöku-
keppninni fyrir Olympíuleikana.
Hann sagðist hafa stundað skiða-
íþróttina frá því hann var 3 ára
gamall, en þá fór hann á skíði
með föður sínum. Móðir hans var
meðal áhorfenda og kom einnig
fram í útvarpinu. Var hún að
vonum stolt yfir afreki sonar
síns. — G.A.