Morgunblaðið - 26.02.1952, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.02.1952, Blaðsíða 14
§ 14 MÖIIGÚNBLÁdÍb Þriðjudagur 26. febrúár 1952 *»• EFTIf? HIIDU LAWRENCE a !að*saiín^a á skermagrindug. \ '.Jvfejtiin '20. — Simi 7337. g ■ FerniingarkjóES til sölu. Miðtún 20. — Simi 7337. — í Framhaldssagan 16 Hann strauk hendinni yfir enni sér og leit á málverkið af Lauru Morey. „Ég held að ég sé orðinn ruglaður í kollinum", sagði hann við brosanai mynd- ina. Hann hrökk í kút þegar hann heyrði um leið rödd hennar: „Má ég tala við yður, herra East?“ Hún stóð í dyrunum sveipuð í dökkan morgunkjól. Hann stóð á fætur og hneigði sig í áttina til hennar. Hann var sér þess fylli- lega meðvitandi að föt hans voru óhrein og rifin og sjálfur var hann svartur í framan af sóti. Hann reyndi að þurrka það mesta framan úr sér með vasa- klútnum. Um leið virti hann hana fyrir sér. Nokkrum stund- um áður hafði hún komið inn í herbergi hans með sorgarfréttir. Hann velti því fyrir sér hvað hún mundi vilja honum nú. „Gerið svo vel að fá yður sæti“, sagði hún og settist sjálf í stólinn við hlið hans. „Væri yð- ur sama þótt ég spurji yður nokk urra spurninga. Morey gerir sér svo gamaldags hugmyndir um kvenfólk og alla þá r.ærgætni, sem verður að sýna því. Hann segir aðeins það sem hann held- ur að kvenfólkið þoli, og annað ekki. Þess vegna kem ég til yðar, vegna þess .... vegna þess að mig langar til að vita hvað skeði þarna niðri í nótt“. Hann sagði henni það og reyndi að tala um það eins og þetta hefði skeð fyrir mörgum árum og snerti þau ekki beinlínis. En það var erfitt, því hún var náföl í framan og einblíndi í augu hans allan tímann. Snöggvast datt hon um í hug að ef til vill væri hún hún blind, því augu hennar voru alveg kringlótt og tóm, og eins og stungið inn í andiit sem höggv ið var í marmara. Ósjálfrátt leit hann á myndina af henni á veggn um og þá sá hann að hún ívlgdi augr.aráði hans. Nei .... hún sá eins vel og hann. Honum létti óneitanlega. „Dáin“, endurtók hún. „Dáin í eldinum. .... Hvað haldið þér að fólk segi?“ „Fólk segi? Mér hafði satt ’að segja ekki dottið það í hug..“ „Ég get elcki skilið að það skipti nokkru máli, frú Morey“. Hann hafði ekki búist við slíkri spurningu frá henni. „Ég á við .. lækninn. Hvað segir hann?“ „Aðeins það sem ég hef sagt yður. Hún dó af brunasárum. Hvers vegna spvrjið þér að því. Eruð þér ekki ánægður með þá skýringu?" „Ó, jú .. jú. En frú Lacey .. mér finnst það svo ranglátt....“. „Það er ranglátt. En við getum ekkert við því gert. Þegar bið fáið skýrslurnar, þá munið þér sjá að ekkert var hægt að gera“. „Skýrslurnar ? “ „Mennirnir frá tryggingarfélag inu rannsaka allt mjög nákvæm- lega. Þeir koma hingað í fyrra- málið. Og lögreglustjórinn var hérna í nótt“. „.. ó, já .. rannsakar lögreglu stjórinn slíkt?“ „Já, þegar mannslíf glatast?“ „Ég vona .. ég vona að hann hafi ekki verði erfiður viðureign ar. Þér segið að ekkert hafi verið hægt að gera. Sá hann það ekki líka?“ „Hann sá allt sem var að sjá. Það getið þér verið öruggar um“. Honum fannst vera kominn tími til að hann legði nokkrar spurn- ^ ékk: viSrtcid. Þír ~Í '' ið það. Ég veit ekkert .... Ég var í herbergi mínu“. „Nei, ekki allan tímann. Þegar þér komuð inn til mín, þá voruð þár þegar sannfærðar um að ein- hver væri dáinn. Er það þess vegna sem þér hafið slíkan áhuga á skýrslunum? .. Vissuð þér að það var frú Lacey?“ „Vissi ég? Hvernig átti eg að vita það. Hvernig ..?“ „Ég veit það ekki, en þér sögð- ust vera sannfærðar um að ein- hver væri dáinn“. ',,Ég hef ekki verið með sjálfri mér. Ég var skelfingu lostin. Það var þessi hávaði og .. þér urðuð líka skelfdur, herra East. Hávað- inn var nógur til að vekja upp frá dauðum. Ég hlýt að hafa hugsað með sjálfri mér að það væri nóg til að vekja upp hina dauðu og ég hef sagt það .. sagt það upphátt. Þér hafið svo misskilið mig. Ég vissi ekkert um þetta fyrr en núna“. Hann var viss um að hún sagði ósatt og hugsaði með sjálfum sér að barni mundi takast betur að ljúga en henni. Ef til vill hafði hún ekki beinlínis vitað neitt, en aðeins grunað. En grunað hvað? Hafði hún búist við sjálfsmorði? Hann ætlaði að spyrja hana en hætti við það. Þegar hann leit á hana aftur, héit hún höndunum fyrir andlit sér, en hann sá bó að augu hennar voru full af tár- um. Þá mundi hann það sem hann þegar hafði vitað. Hún var veik, af einhverjum undarlegum og ó- þekktum sjúkdómi, sem kven- fólk fékk stundum eftir barns- burð. Morey hafði sagt honuh það. „Reynið að gleyma þessu“ sagði hann. „Auðvitað vissuð þér ekk- ert. Mér var ekki alvara, en satt að segja er ég ekki með sjálfum mér frekar en aðrir í þessu húsi núna, Við erum bæði breytt og við vitum varla hvað við segjum. En við megum ekki láta þetta hafa of mikil áhrif á okkur. Slíkt sem þetta skeður oft. Það er ekk- ert við því að gera. Ef þér viljið fara að ráði mínu, þá skuluð þér fara upp í rúm og reyna að hvíla yður“. | Hún stóð upp og brosti. „Þakka yður fyrir herra East“, sagði hún. „Hvað verðið þér lengi hérna hjá ' okkur?" ; Hann leit undrandi á hana. „Hvað lengi? Satt að segja veit ég það ekki“. Hún brosti aftur. „Góða nótt, herra East“. 4. kafli. Mjúk rúmin og hreinar silki- ábreiður, freistuðu ekki Violet og Florrie til að sofa lengi næsta morgun. Vísirarnir á litlu klukk- unni á borðinu í gestaherberginu sýndu að hún var sjö. Þær þvoðu sér og klæddu sig i myrkrinu megna þess að bær höfðu ekkert kerti. Þær notuðu ekki rafmagns Ijósið vegna bess að bær höfðu ekki vanist slíku. Niðri í herberg inu sem þær höfðu verið í, urðu þær að notast við olíulampa eða ' kerti. ov heima hjá þeim var bað þannig Hka. Þær genffu hljóðlega ! niður tröppurnar. skjálfandi af. kujda og rauðeygðar. í eldhúsinu var bjart og bar' logaði glatt á vélinni. Perrin var að burrka upp af gólfinu. Hann hafði þegar staflað saman hálf- brunnum við og járnarusli úti i húsagarðinum. Florrie leit ásak- andi á hann. „Þú ættir ekki að gera þetta, Perrin“, sagði hún. „Það gæti verið eitthvað í þessu rusli, sem lögreglan vildi sjá“. „Hvaða vitleysa“, sagði hann kuldalega. „Wilcox rannsakaði allt í nótt“. „Jæja, mennirnir frá trygg- ingarfélaginu þá. Eða herra Scott. Hann kemur núna, Verður hann ekki....“. ÆVINTÝRI MIKKA IV. Gíraldi Eftir Andrew Gladwin 19. Hann var næstum kominn að heystakknum, þegar hann heyrði eitthvert japl. Hann læddist nú fyrir annan enda heystakksins, en um leið og hann kom fyrir hornið sá hann tvo bleika hala hverfa fyrir hitt hornið. Mikki herti á sér. En Gíraldinn hélt áfram meðfram hinni hliðinni og fékk sér munnfylli af heyi í leiðinni og tuggði hana. Mikki elti Gíraldann og velti því fyrir sér á hvern hátt hann ætti að fanga hann. Hvort ætti hann að reyna að ná haldi á öðrum halanum eða kasta reipinu yfir hausinn. Þeir höfðu farið þrjá hringi í kringum heystakkinn, þegar Mikka kom skyndilega ráð í hug. Ef hann nú sneri við og færi hringinn öfugan, þá myndi hann kom á móti Gírald- anum, og þá ætti hann auðveldara með að kasta reipinu yfir haus hans, því Gíraldinn yrði áreiðanlega hvumsa við. Og án þess að hugsa sig frekar um, sneri Mikki við og gekk í gagnstæða átt. En þetta fór á annan veg en hann ætlaði! En annaðhvort hafði Gíraldinn orðið þreyttur á því að ganga alltaf sama hringinn eða þá að hann hafði reiknað dæmið alveg rétt, því Mikki varð þess fljótlega vís, að hann var ennþá að elta afturendann á Gíraldanum! — Nei, þetta gengur ekki, hugsaði Mikki. Ég ætla að standa kyrr og sjá hvað skeður. Mikki nam staðar og beið ákafur þess sem gerast myndi. Gíraldinn hélt áfram hringinn og eftir stutta stund var hann kominn að Mikka. Og nú var það Gíraldinn sem hrökk við. Hapjn; (ffí^aðj í^ih^ ojgi þqstur, reig upp á ^fturfæturnar og stókk svo i einni svipan upp á heystakkinn, nam þar < taðar Góð svefnherbergis húsgögn óslast keypt, mega vera not- uð. Tilboð, er greini verð og gæði, sendist Mbl., merkt: „Svefnherbergi — 128“. Óska að taka á leigu 1—2 herb. og eldhús Tvennt i heimili. — Tilboð skilist á afgr. blaðsins fyrir fimmtudagskvöld merkt: — „Ibúð — 127“. BERGSÆTT örfá eintök af Bergsætt hafa komið í leitirnar. Fást hjá Guðna Jónssyni, Drápuhlíð 3. Simi 2912. RenniEásar margar stærðir fyrirliggjandi Davíð S. Jónsson & Co. heildverzlun. Kaupmenn — Atvinnurekendur Reglusamur maður, þaulkunn ugur, óskar eftir atvinnu við akstur (hef meirapróf). Einn ig kæmi til greina innheimtu starf. Uppl. i sima 3203 kl. 12—1 e.h. ÍB8JÐ 2—-4 herbergja, óskast til kaups. Þarf ekki að vera laus til íbúðar strax. Upplýsing- ar í sima 4669. Óskast tiE kaLips FIús eða sumarbústaður til flutnings. Upplýsingar í sima 80825. íbúð óskast til leigu nú þegar. — Fyrir- framgreiðsla. Tilboðum sé skilað á afgr. Mbl. fyrir mánaðamót, merkt: „Strax — 133“. TIL LEIGU á Melunum tvö góð, sam- liggjandi herbergi, mætti elda í öðru. Umsókn merkt: „Reglusemi — 132“ leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyr ir fimmtudagskvöld. Góður Martinz Ssxofónn með Ottolink munnstykki til sölu. Upplýsingar á Laufás- vegi 26, kjallara, i dag og næstu daga frá kl. 4—6. i Bek„.píiaíia., . EJhv Elíasdótlir - 'Kamp Knöx D 4s?Simi &01S2 SVEFMSÓFI til sölu (með járnuni). Ein- holti 2. Tækifaerisverð. Bauaiir e lausu 5 kg. í pökkum, 3 kr. Hveiti i lausu 3,20 kg. í 10 lbs pokum 18.50 kg. Haframjöl í lausu og í pökk- um. — Fiskibollur 14 ds„ 4.50; i heildósum 7.40. Fiskbúðingur í l/z ds. 5.20. Kjötbúðingur í Yz ds., 9.10; í heildósum 19.00 kr. Molasykur 5.50 kg. Strásykur Búsáhöld, vatnsglös 2.75. Hitahrúsar 24.00 kr. Diskar, djúpir og gr„ 9.60. | Pönnukökupönnur 35.00 kr. og ýmislegt fleira. Ný brennt og malað Blöndu- kaffi. — Verzl. BLANDA Bergstaðastræti 15. Simi 4931. Til sölu 2 stk. helluofnaí* í ca. 14 og 16 ferm. herb. —- Upplýsingar frá kl. 6—8 í dag í Othlíð 13, neðri hæð. SVEIT! Unglingspiltur eða ódýr mað ur, vanur mjöltum og öðrum sveitastörfum óskast. Tilboð merkt: „K. K. — 135“ legg- ist inn á afgr. blaðsins fyrir fimmtudagskvöld. TIL LEIGU 2 herbergi og eldhús. Aðeins reglusamt fólk kemur til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 1. marz, — merkt: „Austurbær — 134“. GríiiitflbalS 29. febrúar fyrir eldri 'og yqgyi nomendur frá Ieikfimi- og dansæfingum. Leikfimi- nudd- og snyrti- stofan HEBA. —• Sími 80860 Hafnarfjörðue* Fermingarkjóll til sölu á háa og granna telpu. Til sýnis í ÁSBÍIÐ, Hafnarfirði. Vatnsslöng uv fyrirliggjandi, Í4” — og 1”. —- Einnig gasslöngur %” = HÉÐ!NN = 1 í f í 2 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.