Morgunblaðið - 04.03.1952, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. marz 1952
Framhaldssagan 22
Hún gekk á undan þeim og
leit við og við yfir öxlina eins
og til að fullvissa sig um að þeir
kæmu. Perrin var nú komin til
þeirra.
„Ég sá að frú Morey hljóp
út“, sagði hann við Morey.
„Takið við börnunum“, sagði
Morey stuttur í spuna.
Mark og Morey héldu. áfram
upp að húsinu. Einu-sinni stöldr-
uðu þeir við og litu við. Perrin
var að bursta snjóinn af Ivy-og
binda á hana húfuna.
„Þessi náungi er natinn við
börnin eins _og kvenmaður",
sagði Morey. „Ég skil ekki hvern
ig konan mín getur þolað hann“.
„Hefur nokkuð nýtt komið
fram í máli frú Lacey?“ spurði
Mark eftir nokkra þögn.
„Það hefur verið gengið frá
q!1u“, sagði Morey. „Jarðarför
in á að vera eftir tvo daga. Eg
sá hana ekki. Það er búið að loka
kistunni. Ég reyndi að ganga svo
frá eins og ég vissi að Daveport
vildi, en kunningjar og vensla-
fólk hennar vildu ekki að ég
kæmi þar nálægt".
Þeir voru komnir upp á pall-
inn fyrir framan stofurnar og
Morey opnaði dyrnar. „Þessar
dyr eru læstar á næturna. Hefur
nokkur haft hugsun á því að láta
yður fá húslykil?"
„Nei. Ég hef ekki þurft á lykli
að halda“.
„Ég skal láta yður fá lykil.
Nei, hvað er þetta?“
Hann tók bréfmiða sem lá á
borðinu í anddyrinu.
„Það er til yðar. Skrifað með
kvenhönd. Það er ef til vill bezt
að ég láti yður fá lykil strax“.
Mark^ stakk miðanum í vasa
sinn. „Ég ætla að fara upp til
Stoneman", sagði hann. — Hann
opnaði ekki bréfið fyrr en hann
var kopiinn upp í herbergið sitt.
Það var frá Violet. Amos hafði
hringt og beðið um að þeim skila
boðum yrði komið til Marks að
hann ætti pakka á stöðinni. —
Hann gæti komið og sótt hann
einhvern tímann í kvöld eða á
morgun. Hann vissi að hann
mundi ekki hafa fengið neinn
pakka, því hann hafði ekki látið
neinn vita, hvert hann hefði far-
ið. Amos var bara varkár af ein-
hverjum ástæðum. Hann mundi
komast fljótlega að því.
: Stoneman kom innan úr her-
bergi sínu. Hann néri saman
hcndunum og var hinn kátasti.
- „Sjáum til, piltur mimC „Yð-
ur hefur tekist að fá roða í kinn-
arnar“, sagði hann glaðlega.
Af einhverjum ástæðum varð
Mark illa við þessa kátínu. —
„Mér sýnist þér líka vera hress“
sagði hann þurrlega. „Og það er
ekki lítil breyting til batnaðar
frá bví í gær“.
' „Ég hef verið veikur í marga
daga, og í gærkveldi var ég satt
að segja svo skelfdur, að ég vissi
ekki mitt rjúkandi ráð. Ég hélt
að heimurinn væri að farast og
ég fann ekki tennurnar mínar“.
Hann hló við. „En nú hef ég feng
ið góða hvíld. Og ég vona að þér
hafið líka hvílst?“
„Nei, það hef ég ekki“.
Stoneman varð alvarlegur á
svipinn. „Ég veit það“, sagði
hann. „Þetta var hræðilegt, og
það er ekki nema eðlilegt að slíkt
hafi áhrif á menn. Það sýnir að
eins og þér eruð hjartagóður og
kunnið að nota heilann. En þér
gerðuð allt sem þér gátuð til að
hjálpa. Það er um garð gengið
nú og þér verðið að reyna að
gleyma“.
„Já. É" hef þjálfun. Ekkert
fær að koma á milli mín og starfs
míns“.
„Sama er að segja um mitt
starf“, ságði Mark. „Þess vegna
verður mér ekkert um þegar ég
er settur í aðra stöðu. Ég hef ó-
stjórnlega löngun til að reyna
mig sem leynilögreglumann aft-
ur“.
„Ég hélt að við hefðum komið
okkur saman um að minnast ekki
á það .... þessi mistök mín, á
ég við. En ef svo er, þá er ef til
yill bezt fyrir yður að fara.... “
Nei, Mark var það sízt að skapi
að fara nú frá Crestwood. Stone-
man var ekki hræddur lengur.
Það var auðséð að það sem hann
hafði verið hræddur við. hafði
verið fjarlægt. Gat það hafa ver-
ið frú Lacey?
„Ég bið afsökunar“, sagði hann
auðmjúkur. „Ég vil gjarnan halda
þessu starfi hjá yður .... Satt
að segja þarf ég á því að halda“.
„Jæja, jæja“, sagði Stoneman
ánægður. „Þá skulum við gleyma
þessu öllu. Auðvitað verðið þér
kyrr. Og við skulum gleyma
hinu fyrra í lífi yðar .... það
er ekki fallegt að vinna sér fyrir
lífsviðurværi með því að hnýs-
ast í einkamál annarra. Og þó
skal ég vera sanngjarn við yður.
Ef ég verð brenndur lifandi í
rúminu mínu, þá megifi þér vera
eins forvitinn og yður sýnist".
Mark hló við. „Ég skal vera
það“, sagði hann. „Klukkan er
orðin fjögur, herra Stoneman.
Viljið þér byria vinnu núna?“
„Nei, nei. Á morgun. Það er
nógur tími á morgun",
„Ef yður er þá sama....“ Hann
rétti honum miðann. „Það er frá
þvottahúsinu. Ég bað húsráðand-
ann minn að senda mér þvottinn
hingað“.
„Léleg skrift“, sagði Stoneman.
„Já, þér megið fara“.
Mark gekk hægt frá húsinu, en
um leið og hann var kominn úr
augsýn, tók hann til fótanna nið-
ur. brekkuna.
5. kafli.
Amos stóð á stöðvarpallinum
þegar Mark kom. „Sá yður
koma“, sagði hann. „Ég er búinn
að læsa svo við getum farið
strax“.
Amos gekk rakleitt inn á lítinn
stíg, sem lá á bak við stöðina.
„Þér vissuð auðvitað að það var
enginn pakki“, sagði hann.
„Já, ég vissi það. En hvert er-
um við að fara? Ég get ekki verið
lengi í burtu“.
„Ég get það heldur ekki siálf-
ur“, sagði Amos. „Það kemur
lest inn eftir fjórar mínútur....“
„En....“
„Hún stoppar ekki. Hlustið nú
á mig. Ég var heima hjá Ruthie
áðan. Ég var að taka fram fötin,
sem á að færa hana í. Hún hafjði
ákveðið það allt fyrirfram. Ég
sagði yður að ég hefði lykil að
húsinu. Ég vissi hvar fötin voru
vegna þess að hún sýndi mér það
síðast þegar hún fékk þunglyndis
kastið. Ég vildi heldur ekki að
ókunnugir færu að róta í dótinu
hennar“.
„Eðlilega ekki“.
„Ef hún hefur ánafnað beim
eitthvað, þá skulu þeir fá það frá
yfirvöldunum. Jæja, þegar ég tók
hvítu sokkana upp úr skúffunni,
þá rakst ég á pillur, sem Cumm-
ings, læknir, gaf henni til að
deyfa verkina, ef hún gat ekki
I sofið. Svefnpillur. Hún tók’bara
, eina eða tvær. Ég veit það. Jæja,
flaskan er núna næstum tóm.
Svo ..... bíðum við, hérna er
húsið“.
Þeir voru komnir að litlu, hvítu
húsi, umgirt lágum runnum.
,,Birki“, sagði Amos og stakk
lyklinum í skráargatið. „Og það
eru verðlaunakjúklingar í
hænsnahúsinu á bak við. Ég á þá
núna“. Hann ræskti sig. „Gerið
svo vel að ganga inn“.
Þeir gengu í gegn um litla for-
stofu og komu inn í setustofu.
Það var hálf dimmt þar inni. —
Amos kveikti á eldspýtu og bar
Austurferðir f rá Steindóri
Til skíðaskála Hveragerði Oaglegor í
Selfoss Eyrarbakka Sfokkseyrar ferðir
JJi^reJaó töL Hteinclóró
Sérleyfissími: 1585.
ARNÁLESBÓK
jXlcrgimblaíisiit$ 1
ÆVINTÝRI MIKKA IV.
Gáraldi
Eítir Andrew Gladwin
23.
lakkrísborði eftir af þeim sex, sem Mikki hafði upphaf-
lega átt.
Hinir meðlimir leitarflokksins voru allir ókomnir úr leit-
inni, allir mjög vonsviknir yfir því, að hafa ekki fundið
Gíaraldann. Prófessorinn gekk hratt fram og aftur í garð-
inum, órós í skapi og kvíðafullur. Almenn gleði og fögnuð-
ur brauzt út hjá mönnum, þegar Mikki kom með Gíraldann
í bandi á eftir sér. Þeir þyrptust í kringum Mikki og lustu
upp fagnaðarópum. Mikki varð auðvitað svolítið hreykinn
svona innra með sér.
— Kæri drengur minn, sagði prófessorinn og hrissti báð-
ar hendur Mikka í einu. Hann var í mikilli geðshræringu,
en ákaflega glaður yfir endurheimt Gíraldans. — Ég óska
þér innilega til hamingju með þeta afreksverk þitt. Hvernig
get ég nógsamlega þakkað þér fyrir þetta. Allur heimurinn
skal fá að vita þetta. Síðar verður þú að segja mér hvernig
og hvar þú fannst minn kæra félaga Gíraldann — en þó
ekki núna — klukkuna vantar aðeins tíu mínútur í fjögur —
Gestirnir koma bráðlega.
Þeir höfðu rétt lokið við að binda Gíraldann örugglega,
þegar hinit væntanlegu dýrafræðingar komu. Það voru fimm
menn, sem báru það allir með sér að vera mjög lærðir. Eftir
að hafa skipzt á kveðjum við prófessor Árbakka og óskað
honum innilega til hamingju, þá röðuðu þeir sér upp fyrir
framan búrið og störðu hátíðlegir á svip á hið sjaldgæfa
dýr f?á Œíþet. Þetta voru alit rosknir menn og reyndir dýra-
fræðingar, en Mikka var það samt ljóst, að Gíraldinn gerði
Höfum til afgreiðsh strax:
RÚDIJGLER
2ja, 3ja og 4ra m/m þykktir.
5 og 6 m/m væntanlegt bráðlega.
GRÓÐURH1J8AGLER,
í stærðum 45x60, 50x50 og 40x60 cm,
ORALGLER, enskt,
í ýmsum mjög fallegum litum.
f2
Útvegum gegn
nauðsynlegum leyfum:
THERIHOPHAIME,
tvöfalda rúðuglerið xneð loftrúmi á
milli.
BÚÐARRIJÐliGLER,
og allskonar slípuð gler í ýmsum
þykktum.
ÖRYGGISGLER,
í bíla slípuð og öslípuð.
LBTAÐ GLER,
í ýmsum litum og þykktum.
HAMRAD GLER,
fjölbreytt munstur.
VÍRGLER,
ýmsar gerðir.
VEGGJ AGLER,
ýmsar gerðir og stærðir.
Öllum fyrirspurnum um kanp á allskonar gleri
greiðlega svarað á skrifstofu okkar.
d^ert ^JCriótjánóioyi &> CJo. L.fí.
Sími 1400
v> i ta ■ ■ ■ «i ■ ■ • ■ i ■ ■ ■ ■ ■ ii ■ ■ ■■ i ■rii ■ ■ ii ■ (i ■) a ■ i r< io inmni