Morgunblaðið - 04.03.1952, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.03.1952, Blaðsíða 16
VeMHif I dag: Norðaustaa hvassviðri. Létt- skýjað. 52. tbl. — Þriðjudagur 4. marz 1952 Kesmngahríðin í Bandaríkjunum. Sjá bls. 9. Haukanes sem höggva citti upp i Belgíu sökk út ua i Lisfasafni ríkisins Sæhjörg hjargaöi tveim mönnum Á SUNNUDAGINN kom leki að togaranum Haukanesi, sem þýzkur dráttarbátur var á leið með til Belgíu, þar sem höggva átti togar- ann upp. — í gærkvöldi sökk togarinn ut af Grindavík. Tveim mönnum, sem á honum voru, var bjargað. Dráttarbáturinn lagði af 'stað héðan frá Eeykjavík á föstu- daginn var. Togarinn Haukanes var bundinn aftan í dráttarbát- inn sjálfan, en í skut togarans var bundinn togarinn Baldur, sem einnig átti að höggva upp. LEKI KOM AÐ TOGARANUM Á SUNNUDAGINN Á sunnudaginn milli klukkan 4 og 5 urðu þýzku eftirlitsmenn- irnir tveir, er voru um borð í Haukanesinu, þess varir, að skip ið var farið að leka. Þá var drátt arbáturinn kominn skammt suð- vestur fyrir Vestmannaeyjar. t>ar mun þá hafa verið slæmt sjó- veður. Skipstjórinn á dráttarbátnum snéri þá við. Mun hann hafa gert sér vonir um að ná til Reykja- víkur, þar eð lekinn að skipinu virtist ekki vera míkill. I GÆRKVÖLDI í gærkvöldi um klukkan ijíu, var Haukanesið að því komið að sökkva. Ekki talið forsvaranlegt að mennirnir tveir sem í voru, væru þar öllu lengur. — Þá var dráttarbáturinn aðeins um 5 sjó- mílur út af Grindavík. SÆBJÖRG BJARGAÐI MÖNNUNUM Björgunarskipið Sæbjörg og mb. Ársæll Sigurðsson fóru út frá Grindavík, mönnunum tveim á Haukanesi til bjargar. — Sú björgun tókst giftusamlega. Mun Sæbjörg hafa lagt svo að hinu sökkvandi skipi, að mennirnir tveir stukku yfir í björgunar- skipið. HÖGGVA ÁTTI Á VÍRANA Nokkru fyrir klukkan 11 í gærkvöldi, er blaðið síðast frétti af skipinu, maraði Haukanes í vatnsskorpunni. — Ekki höfðu þá borizt fregnir um hvernig tog verða á vír þann sem úr stefni hans lá yfir í Haukanesið. Tveir eftirlitsmenn voru um borð í Baldri. Þar sem Haukanes maraði í kafi í gærkvöldi, var mjög lítill vindur. Fjársöfnunin á Akur- eyri gekk vel AKUREYRI, 3. marz. — Hin almenna fjársöfnun hér norðan- lands fyrir fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er nú hafin. Svo sem gert var ráð fyrir s. 1. sunnudag var safnað á Akureyri og í Gler- árþorpi. Var Akureyri skipt í 43 hverfi. Ungt fólk úr æskulýðsfé- lagi Akureyrarkirkju gekk í hverfin með fjársöfnunarlista. Upphæð sú er safnaðist nam alis kr. 102,856. Var þátttaka fólks mjög almenn. Stærsta upp- hæðin frá einstaklingi var kr. 1500.00. Nú er ætlazt til þess, að söfn- unin haldi áfram og farí fram í öllum hreppum norðanlands. — Eiga Akureyringar og Glerár- þorpsbúar þakkir skildar fyrir hvað vel þeir brugðust við fjár- söfnun þessí.ri. H. Vald. Ekkerf nýíf í iogaradeilunni FUNDÍJR hófst klukkan 5 í gæf með deiluaðilum. og. sáttanefjid-1, inni í togaradeilunni. Stóð hann yfir enn er blaðið fór í préntun. Ekkert nýtt hafði þá gerzr, er bent gæti til þess að skjótrar lausnar væri að vænta. Óvíst var talið hvort fundur yrði haldinn í dag. Var barinn eflir að hafa fapað 1200 krónum ELDSNEMMA á sunnudagsmorg- un var komið með mann í slysa- varðstofuna, sem barinn hafði verið með flösku í höfuðið o« hafði hún brotnað á höfði mannsins. — Maðurinn hafði setið að pókerspili um nótt- ina og var við skál. Var hann búinn að tapa um 1200 krónum í peningum, en auk þess tveim ríkisskuldabréfum, þegar slags- málin hófust, en hann mun hafa byrjað þau. Lögreglan var beðin að sker- ast í leikinn. — Sættir munu hafa tekizt með spilamönnunum og sá sem laminn var fengið það sem hann tapaði endurgreitt. talið var víst að höggvið mundi' Orku h.f., Árni Oddsson og Magn- Snjóbílnum ekið þvert yf ir hálendið til Akureyrar AKUREYRI, 3. marz. — Um klukkan 2 í dag kom hingað til bæj- arins hinn nafntogaði snjóbíll Guðmundar Jónssonar öræfabíl- stjóra og ferðalangs. Var Guðmundur sjálfur með bílinn við þriðja mann. Hafði hann ekið þvert yfir landið og ferðin gengið vel. Með Guðmundi í bílnum voru ’ ús Jóhannsson. Þeir félagar tögðu aranum Baldri hafði reitt af, en ’ þeir Sigurður Helgason framkvstj. ' upp frá Reykjavík á fimmtudag- inn var. Óku þeir um Lækjar- botna til Þingvalla, síðan með Skjaldbreið og allt að sæluhúsi Ferðafélags Islands við Hagavatn. Þetta var fyrsti áfanginn á leið- inni. í næsta áfanga var snjóbílnum ekið allt norður í Hveravalla- sæluhús, en komið var við í Hvít- árvatnsskálanum. -— Leiðangurs- menn héldu til í Hveravallaskála í tvær nætur, eða fram á laug- ardagsmorgun. SVÁFU í BÍLNUM Á laugardaginn var ekið í skála Ferðafélags Akureyrar við Lauga fell. Þennan sama dag, var farið að Kerlingarhnjúk, vestan Urðar- vatna. Á sunnudag þar til eftir hádegi var hríðarveður og var þá haldið niður Vatnahjalla. Um nótt- ina sváfu leiðangursmenn í bíln- um, en í dag fóru þeir niður Eyja- fjarðardal og komu hingað til Ak- ureyrar um kl. 2, sem fyrr segir. Bloti og krapi hamlaði ferðinni framan af, þar sem ár og vötn runnu ofan á. Einnig töfðu dimm- viðri og snjókoma. Snjóbíllinn reyndist í alla staði hinn bezti og vel fór um þá félaga, þær tvær nætur, er þeir dvöldu í honum. Mjög róma þeir félagar fegurð ör- æfanna. Leiðin sem þeir fóru er 354 km á lengd og var bílnum ekið það á 16 klukkustundum. —H. Vald. Báter hælfu róðrum vegm ágengni erlendra togara FRÉTTARITARI Mbl. í Sandgerði símaði í gærkvöldi, að brezkir og þýzkir togarar gerðust nú umsvifamiklir á miðum bátanna út uf Eldey. Af ótta við að verða fyrir miklu veiðarfæratjóni af þeirra völdum, reru bátarnir ekki á laugardag. — Hinir erlendu skipstjórar taka ekki minnsta tillit til veiðarf&ra bátanna. í vikunni sem leið fóru bát-* arnir dag hvern í róður og fengu margir hverjir góðan afla. — Er vikan bezta aflavikan á vertíð- BÁTAR MISSTU 4—15 B.TÓÐ Þegar fór að koma fram í vik- una, tóku hinir erlendu togarar að leita meir og meir á mið bát- anna. Á föstudag var mesti sægur togara þar. — Þá urðu margir Saadgerðisbátar fyrir veiðar- færatjóni. Misstu þeir 4—14 bjóð, «r hinir erlendu togarar fóru með vörpu sína yfir lóðir bátanna. VIDSKIPTI EFTIRLITSSKIPSINS VI» TOGARANA Eftirlitsskipið Hermóður hefur yerið á þessum slóðum. Hefur skipstjórinn hvað eftir annað átt tal við hina erlendu skipstjóra. Beðið þá að taka tillit til veiðar- færa bátanna. — Hafa togara- skipstjórarnir svarað því til, að þeir séu utan við landhelgina, og þar sé þeim heimilt að veiða á þeim svæðum, sem þeim þyki bezt henta. Hvar bátarnir leggi línur sínar sé þeim óviðkomandi mál. ÞRIR AF 20 RERU Vegna þessa og bersýnilegs veiðarfæratjóns á miðunum, því fjöldi togara er þar enn, reru Sandgerðisbátar ekki almennt í laugard. Munu þrír hafa farið, en þaðan róa um 20 bátar. Fóru þessir bátar aðeins grunnt út. — Þetta er einn veggjanna í málverkasafni Norðmannsins Chr. Gierlöffs í Listasafni ríkisins, en það var opnað á ný á sunnudag* inn. — . ív Eldur logaði í kolaboxunum í 3’ daga — lók niðri á leið til hafnar ÞAÐ TÓK hart nær 12 klukkustundir að kæfa eld í kolaboxurn brezka togarans Lord Cunningham, sem kom hingað til Reykja- víkur á sunnudagskvöld. Dráttarbáturinn Magni fór til móts við skipið hér út í Flóann, en skipstjórinn var villtur og hafði skipið tekið niðri á grynningum. Þessi brezki togari var að koma^ frá Bretlandi í veiðiför. Fýrir | þrem dögum kviknaði eldur í kolaboxunum, og var það í þriðja sinn, síðan togarinn fór frá Bret- landi, að eldur kom þar upp. í hin skiptin tvö töldu skipverjar sig hafa ráðið niðurlögum eldsins BIÐUR UM AÐSTOÐ Snemma á sunnudagsmorgun bað togarinn um aðstoð. — Bað skipstjórinn um, að bátur yrði sendur út að Gróttu um klukkan 9, en þá taldi hann sig myndi aðaj.' verða þar. — Eldur var þá í kola boxunum og vildi skipstjórinn leita hafnar hér í Reykjavík. TOGARINN STRANDAÐUR Klukkan rúmlega 9 um morg- uninn kemur skeyti frá togar- anum þess efnis, að hann sé }jjel.a_ Var honum því sleppt með strandaður. Telur skipstjórinn sig [ Var sleppf með ámmmngu Á SUNNUDAGINN kom varð- skipið Ægir hingað til Reykja-* víkur með brezka togarann Dart-* ema frá Hul}. Varðskipið hafði tekið skipið innan landhelgislin- unnar við Hafnarberg, síðastliðinn laugardag, vegna ólöglegs umbún< á veiðarfærum, í landhelg-* inni. H Við rannsókn kom í ljós, að skipstjórinn á skipinu, hafði ekká verið að undirbúa að kasta vörp- unni fyrir borð. Skipstjórinn sagð-< ist hafa leitað upp í HafnarbergS vegna veðurs, en skipta þurfti utö vera í námunda við Reykjavík. Hafnsögumannabáturinn fór út að Gróttu, en ekkert strandað skip var að sjá. — Var soúið í land. aftur, og þá er enn komið skeyti frá skipinu. Þá bafði skip ið komizt á flot af skeri því sem það hafði tekið niðri á. MAGNI FÓR TIL IIJÁLPAR Magni fór nú skipinu til aðstoð ar. Út við Gróttu barst skeyti frá vitaskipinu Hermóði, þess efnis, að togarinn væri að hring sóla suður við Stafnes. Sennilegt er, að á grynningunum út af því, hafi togarinn tekið niðri. Er skemmst frá því að segja, að Magni fór langleiðina suður að Garðskaga til móts við togarann og leiðbeindi Magni honum hing að inn með því að sigla á undan. SKILRÚMIÐ VAR RAUÐGLÓANDI Þegar slökkviliðsmenn komu um borð í togarann virtist eldur- inn vera við skilrúmið milli box- anna og kyndingarplássins. Nokkru áður en tekizt hafði að slökkva eldinn, en þá var komið fram undir morgunn, var skil- rúmið orðið rauðglóandi af hita. Kolin, sem eftir eru — senni- lega um 100 tonn — verða öll tekin upp úr boxunum og var byrjað á því í gær, Togarinn mun einnig fara í slipp til athugunar á botni. Ástæðan til þess, að togirinn tók niðri og skipstjórinn var svo rammvilltur, sem raun bar vitni, mun vera sú, að hann var áber- andi ölvaSur. ammnmgu. Fulllrúaráð Heimdallar FULLTRÚRARÁÐ Ileimdallatl heldur fund i kvöld kl. 8.30, i Sjálfstæðishúsinu. Fulltrúaí* eru beðnir að fjölmenna og mæta stundvíslega. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.