Morgunblaðið - 06.03.1952, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.03.1952, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 6. marz 1952 MORGVNBLAÐ1Ð 11 Félagslíf B.Í.F. Farfuglar. Skemmtifundur að V.R. Vonarstreeti 4 í kvöld kl. 8.30 og hefst með kvikmynda- sýningu og auk þess yerða ýms fleiri skemmtiatriði og dans. — Farfuglar fjölmennið og takið með gesti. Nefndin. Glímudeild K. R. Æfing í kvöld í fimleikasal Miðbæjarbarnaskólans kl. 8 s.d. Áríðar.di æfing. Stjórnin. Handknattleiksstúlkur Ármanns! Áríðandi æfing verður í kvöld kl. 7,40 að Hálogalandi. Mætið stundvíslega. — Nefndin. tjóðdansafélag Reykjavíkur Æfingar fyrir börn í dag á venjulegum tíma. — Stjórnin. Knattspyrnumenn KR! Meistara- og l.-flokkur. Æfing í dag kl. 8,30 að Hálogalandi. — Nýr þjálfari. Mætið allir. Stjórnin. • »■«»!£ i ■ ■■■■«■ ■ s ■ aimiTli ■ aatTífinEO I. O. G. T. St. Sóley nr. 242. Félagar, munið heimsóknina til st. 'Andvara í G.T.-húsið í kvöld kl. 8.30. Fjölmennið. Æ.T. St. Víkingur nr. 104 heimsækir sti Frón í kvöld. — Embættismenn og félagar mæti stundvíslega. St. Andvari nr. 265 Fundur í kvöld kl. 8,30 í GT- húsinu. Fundarefni: Kosið í Fanga hjálparnefnd. Hagnefndaratriði. Draugasaga o. fl. St. Sóley heim- sækir. — Æ.T. Sl. Frón nr. 227 Fundur kl. 8 í kvöld í Bindindis- höllinni. SystrakvöUl, þær stjórna fundi. — 1. Venjuleg fundarstörf. -— 2. Inntaka. — 3. Stúkan Víkingur nr. 104 heinisækir. — Eftir fund: 1. Bögglauppboð, systumar beðnar að koma með böggla. — 2. Kaffi. — 3. Dans. Bjarni Böðvarsson leikur fyrir dansinum. Fjölmennið. Munið! Fundurinn hefst kl. 8. — Æ.t. Samkomw BræSraborgarstígur 34 Samkoma í kvöld kl. 8.30. — Arthur Gook og Jóhann Steins- son tala. Allir velkomnir. Minning Páls Auðans- sonar Nikuiásarhúsani Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. — Allir velkomnir. KFUK Stúlkur! Munið Hlíðarfundinn í kvöld kl. 8,30. — Stjórnin. KFUM — AD Fundur í kvöld kl. 8,30. Séra Þorgrímur Sigurðsson talar. — Allir karlmenn velkomnir. Vinna SAUMUM karlmannabuxur og kvensíðbuxur, einnig barna- fatnað úr gömlu og nýju. Uppl. á Hjallaveg 23, sími 80441. - - m—~—■—■■—■■ » — Hreingerningar Vanir menn, fljót og góð vinna. Sími 5179. — Alli. Hreingerningar Ábirgizt engar skemmdir. — Pantið kl. 9—6. Sími 4784. Þorsteinn. Hreingerninga- miðstöðin Simi 6813. — Ávallt vanir menn. Fyrsta floklts vinna. Hreingerningastöð bæjarins Sími 6645, hefur fullkomnustu tæki og varui menn til hreingerninga. Ákvæðis- eða tímavinna. HINN 24. nóv. sj. var jarðsettur að Hlíðarenda í Fljótshlíð Páll Auðunsson fyrrverandi bóndi að Nikulásarhúsum í sömu sveit. Páll var fæddur að Eyvindar- Múla 13. okt. 1877. Foreldrar hans voru Auðunn Jónsson odd- viti og Sólveig Jónsdóttir frá. Teigi. Páll ólst upp með föður sín- um að Eyvindar-Múla og átti þar heimili til ársins 1907. Á því ári kvæntist hann ágætri konu sem lifir mann sinn, Sigríði Guð- mundsdóttur frá Gafli í Flóa. Þau byrjuðu þegar búskap að Niku- lásarhúsum og bjuggu þar til ársins 1937. Þau hjónin eignuðust 7 mannvænleg börn og eru 4 þeirra á lífi. Auðunn, Guðmund- ur, Sólveig og Steinunn. Árið sem Páll hætti búskap giftist Auðunn sonur hans og tók við jörðinni. Veitti hann með aðstoð konu sinnar gömlu hjónunum að- hlynningu og skjól. Þegar Hekla gaus kom þykkt vikurlag yfir innanverða Fljóts- hlíð. Leit þannig út um tíma að stór hluti Fljótshlíðar ætti að hljóta sömu örlög og Þjórsárdal- ur, að eyðast með öllu vegna vikurs og ösku úr Heklu. En sem betur fór snérist allt til betri vegar. Mikill hluti vikursins og öskunnar hvarf og skemmdirnar urðu mun minni en nokkurn gat grunað, sem séð hafði þetta land- svæði fyrst eftir gosið. Jörðin Nikulásarhús er land- lítil og mátti ekkert missa af hin- um takmörkuðu gæðum, til þess að þar gæti talist lífvænlegt fyrir stóra fjölskyldu. Þetta gerðu þeir feðgar sér ljóst og tóku nú að leita fyrir sér eftir annari jörð. Fyrst var litast um í Fljótshlíðinni. Þar vildi fjölskyldan helzt eiga heima. En þar var engin jörð fáanleg. Var þá leitað víðar um Rangárþing, en þar var þá engin sæmileg jörð laus til ábúðar. Varð því úr að jörðin Bakki í Ölfusi varð fyrir valinu. Var það með nokkrum söknuði að Fljótshlíðin var. yfir- gefin og flutt búferlum i aðra sýslu. Mun söknuður Páls hafa verið meiri en menn hugðu, því hann var dulur skapfestumaður og lét ekki mikið á því bera, þótt hann fyndi sársauka og söknuð í sinni. En vel leið honum á hinu nýja heimili að öðru leyti. Páll sagði eitt sinn að það væru sínar mestu ánægjustundir að koma austur í Fljótshlíð. Tryggð hans við átthagana var í samræmi við líf hans allt. Skapfesta, trú mennska og drengskapur var uppistaðan í starfi hans og lífs- baráttu alla tíð. Páll var greindur maður, minn ugur vel og kunni vel að meta þær breytingar og umbætur, sem orðið hafa síðustu árin. Hann mundi gamla tímann eins og hann var í köldum veruleikanum. Hann mundi þá tíma þegar engin brú var á vötnunum, engin veg- arspotti, ekkert ökutæki, enginn sími, ekkert rafmagn. Hann mundi þann tíma, þegar hin frum stæðustu handverkfæri voru not- uð til alls og engin vél var hér þekkt til þess að létta störfin. Páll mundi þegar margir háðu harða og oft að því er virtist von- Fundið Lindarpenni fundinn. — Sími 5562. Kaup-Sola Fermingarkjóll til sölu á Reynimel 25 A. Slmi 2453. 6H FELRG HREiNGERNiNGAMftNNA Hreingerningar Pantið í tima. Guðmnnilur Húlni, Sími 5133. — ___ litla baráttu gegn hungri og kulda — við frumstæð og fátæk- leg skilyrði. Vegna þess hversu vel hann mundi gamla tímann kunni hann betur en margir aðrir að meta þær miklu framfarir, sem fólk á nú við að búa. Þess vegna var Páll bjartsýnn og sá góða mögu- leika til bjargar fyrir sig og sína. Vonleysi og óánægja var honum ekki að skapi. Taldi hann það; ómaklegt fyrir þá kynslóð, sem nýtur framfara og þæginda að vera vonlaus og óánægð, þar sem lífsbaráttan væri mun léttari nú en hún áður var og fyrir það ættu allir að vera þakklátir. Páll var einlægur trúmaður og mun það hafa mótað skap hans og gert hann sterkan og öruggan. Það var föst venja Páls að heim sækja Fljótshlíðina haust og vor ár hvert. Nú hefir hann farið sína hinztu ferð í Fljótshlíð, þar sem honum hefir verið búinn hvílu- staður við hlið horfinna frænda og vina. I. J. Kveðja frá gömlum Fljótshlíðing : Um langa æfi lundar þjáll lífs í heiðurs sessi. Sóma maður sýndist Páll sjálfur guð þið blessi. Þinn er heimur þér indæll. Þess ég óska og beiði. Vinur góði vert þú sæll veg þinn Drottinn greiði. ICartöfltfi- upptökuvél Ný Arvika kartöfluvél til sölu ásamt útbúnaði. Til- boð merkt: „218“ sendist Mbl. fyrir 9. marz. Timbur Notað timbur til sölu, um 500 fet battingar, og 300 fet klæðning, tveir gólf- flekar I%x2% m. ásamt þremur gluggum. Tilboð óskast lögð inn á afgr. blaðsins fyrir hádegi á laugardag merkt: „Vel út- lítandi — 210“. KYNIMIIMG Öska að kynnast vönduðum, einhleypum manni um fimm- tugt, sem vildi eignast gott heimili. Glaðlyndi og reglu- semi áskilin. Uppl., heiniilis- fang og simanúmer leggist á afgreiðsluna merkt: „Hag- kvæmt — 205“. Bókamarkaðurinn á Frakkastíg 16 er í fullum gangi. Hundruð eftirsóttra og eigulegra bóka seldar fyr- ir hálfvirði og þaðan af minna. — Aldrei hefur bóka mönnum gefizt eins gott tæki færi og nú til að eignast góð- ar bækur fyrir gjafverð. —• Sími 3664. —• Utgerðarmenn Fiskkuupm Tilboð óskast í leigu á eignum H.F. Sviða (áður Akurgerði) í Hafnarfirði: Skrifstofuhúsnæði, fisk- verkunarhús, og plan, þurrkhús og fiskreitar. Nánari upplýsingar gefa Stefán Jónsson í síma 1486, eða Hilmar Garðars, síma 3411, Reykjavík. Vegna jarðarEa&ur verður skrifstofum vorum og heildsölu lokað allan daginn á morgun (föstudag 7. marz). SLATURFELAG SUÐURLANDS Vegna jarðaríarar verður lokað á morgun, föstudaginn 7. marz, frá kl. 11 f. h. til kl. 4 e. h. Itfatardeliffln Hafnarstræti 5. Matarbúðin Laugavcg 42. KJötfcútuin Skólavörðustíg 22. Kjötbúð §úlv&lfla Sóivallagövu 9. t * >U Cr £ Vá *&. &&£***&& Litli drengurinn okkar RAGNAR KRISTINN andaðist 4. marz. Unnur Þórðardóttir, Arngrímur Guðjónsson. Konan mín, GUÐBJÖRG ELÍSABET EINARSDÓTTIR, andaðist í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði í gær. Fyrir mína hönd og annara ástvina, Þóroddur Gissurarson. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför INGUNNAR STEFÁNSDÓTTUR frá Geldingalæk. Synir og tengdadætur. Jarðarfarar- og minningarathöfn um þá: BENEDIKT KRISTJÁNSSON i MARVIN ÁGÚSTSSON " TT ERLEND PÁLSSON GUÐMUND KR. GESTSSON VERNHARÐ EGGERTSSON SIGURÐ GUNNAR GUNNLAUGSSON og GUÐMUND SIGURÐSSON sem fórust með m.s. Eyfirðingi við Orkneyjar, mánudag- inn 11. febrúar, fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudag- inn 6. marz kl. 14,30. — Húskveðjuathöfn hefst frá heimili Benedikts Kriatjánssonar, Skipasundi 19 kl. 13,30. — At- höfninni í kirkjunni verður útvarpað. Fyrir hönd aðstandenda f Njáll Gunnlaugsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.